Morgunblaðið - 28.08.2001, Síða 14
AKUREYRI
14 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMRÆMD VEFMÆLING VIKA NR. 34
Sjá á www.chamber.is
og textavarpi síðu 611
Samræmd vefmæling er listi yfir vefsetur, sem öll eru mæld af Modernus ehf.
VEFUR FLETTINGAR INNLIT GESTAFJÖLDI
www.mbl.is 1.364.369 389.198 75.415
www.einkamal.is 1.147.481 135.666 19.275
www.simaskra.is 399.978 102.627 32.564
www.hugi.is 343.909 62.324 13.451
www.femin.is 310.540 31.426 7.414
www.strik.is 234.864 57.886 19.657
www.torg.is 118.912 31.528 7.765
www.theyr.com 109.135 32.507 15.560
www.eidfaxi.is 54.545 12.182 4.022
www.netdoktor.is 54.037 8.936 4.291
www.formula1.is 38.028 9.126 2.907
www.althingi.is 31.993 8.119 3.464
www.ruv.is 29.099 11.282 5.298
www.skifan.is 20.836 3.668 1.740
www.form.is 17.190 4.872 2.927
www.gulalinan.is 15.839 3.981 2.750
www.ha.is 14.265 4.265 2.650
www.sjonvarp.is 12.494 3.425 1.866
www.rsk.is 9.832 4.194 1.494
www.akureyri.is 7.807 1.500 654
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
Verslunarráð Íslands
FRAMKVÆMDARÁÐ Akur-
eyrar samþykkti á fundi sín-
um í gær að leggja til við bæj-
arráð að gengið yrði til
samninga við lægstbjóðanda í
endurbætur á Hafnarstræti/
göngugötu.
Samið með tilliti til
breytinga á hönnuninni
Áður hafði framkvæmdaráð
samþykkt að hafna báðum til-
boðunum sem bárust í verkið
en þau voru bæði vel yfir
kostnaðaráætlun.
Jafnframt hafði fram-
kvæmdaráð samþykkt að fara
yfir hönnun götunnar á nýjan
leik og bjóða verkið út að
nýju, sem hefði þýtt að fram-
kvæmdir hefðu frestast til
næsta vors.
Ásgeir Magnússon, formað-
ur framkvæmdaráðs, sagði að
lagt væri til að gengið yrði til
samninga við G. Hjálmarsson
hf. á grundvelli tilboðs fyrir-
tækisins og þá með tilliti til
þeirra breytinga sem nauð-
synlegt er að gera á hönnun.
Ásgeir sagði að með þessari
samþykkt væri verið að reyna
að koma framkvæmdum í
göngugötunni í gang.
Lægra tilboðið var
133% af kostnaðaráætlun
Deila hefur staðið yfir um
höfundarrétt á hönnun Ráð-
hússtorgs vegna fyrirhugaðra
breytinga. Ásgeir Magnússon
sagði við Morgunblaðið að
samið yrði við þá aðila sem
hönnuðu Ráðhústorg á sínum
tíma um að vinna að tengingu
við göngugötuna og þá í sam-
vinnu við þá aðila sem hönn-
uðu fyrirhugaðar breytingar á
göngugötunni.
Tilboð G. Hjálmarssonar hf.
hljóðaði upp á tæpar 49 millj-
ónir króna, eða 133% af kostn-
aðaráætlun. Tilboðið frá GV-
gröfum ehf. hljóðaði aftur á
móti upp á rúmar 64 milljónir
króna eða 175% af kostnaðar-
áætlun.
Endurbætur á Hafn-
arstræti/göngugötu
Samið
verði við
lægst-
bjóðanda
HÓLMAR Svansson og Þórður
Kárason voru nálægt því að ljúka
akureyrsku þríþrautinni á laug-
ardag en urðu að láta sér nægja að
ljúka við tvær leiðir af þremur, eftir
að hafa lent í mjög erfiðum að-
stæðum við að synda yfir Pollinn.
Þeir hjóluðu yfir í Vaðlaheiði, lögð-
ust þar til sunds og ætluðu síðan að
hlaupa úr fjörunni við Torfunefs-
bryggju upp í Sundlaug Akureyrar
en hættu við það.
„Þetta var rosalegt og enginn af-
gangur af þessu hjá okkur,“ sagði
Þórður við Morgunblaðið. Þeir
höfðu reiknað með að sundferðin
tæki 40–45 mínútur en þeir voru
tæpar 67 mín. í rúmlega 10 gráðu
heitum sjónum og voru því orðnir
mjög þrekaðir er þeir komu að
landi við Drottningarbraut. „Að-
stæður í sjónum voru eins erfiðar
og frekast gat verið. Vegna sjó-
gangs þurfti maður að synda nánast
lóðréttur og það erfiðasta var að ná
ekki almennilegum sundtökum. Þá
bar straumurinn okkur til suðurs
og mistök okkar voru að taka ekki
land sunnar en við gerðum. Enda
reyndist þessi leið sem fórum mun
lengri en við héldum, eða 1,9 km.“
Mættir á dansleik um nóttina
Þórður sagði að þeir hafi verið
það þrekaðir eftir sundið að ekki
hafi þótt ráðlegt að hlaupa upp að
Sundlaug. Þórður fór í skoðun á
FSA en Hólmar fór í heitu pottana
og gufubaðið í Sundlauginni og
náði þar yl í kroppinn á ný. Þórður
hafði skamma viðdvöl á FSA, þótt
líkamshiti hans hafi farið niður í 28
gráður. Þeir félagar voru svo báðir
mættir í matarboð um kvöldið og á
dansleik síðar um nóttina ásamt
konum sínum. Þeim varð því ekki
meint af en með þessu uppátæki
voru þeir að efna áramótaheit frá
síðustu áramótum.
Aðspurður hvort reikna mætti
með frekari afrekum frá þeim
félögum sagði Þórður að þeir hefðu
vissulega áhuga á að ljúka þraut-
inni og jafnvel að fá einhverja fleiri
með sér. „Annars langar okkur
mest að klifra Hraundranga næst
en það mál er í skoðun.“
Um 30 manns synt yfir Pollinn
Skv. upplýsingum Haraldar Sig-
urðssonar, fyrrverandi bankafull-
trúa á Akureyri, var Karl Hansson
trésmiður fyrstur til að synda yfir
Pollinn 1907. Hann synti yfir frá
Oddeyrartanga, nokkrum dögum
áður en lærifaðir hans, Lárus Rist
sundkennari, synti sömu leið. Ári
síðar syntu svo þrír nemendur Lár-
usar yfir Pollinn. Haraldur taldi að
um 30 manns hafi synt yfir Pollinn í
gegnum tíðina en einnig hafi
nokkrir afrekað það að synda frá
Svalbarðseyri til Akureyrar, bæði
að Oddeyrartanga og inn að Torfu-
nefsbryggju, sem er mun lengri leið
en yfir Pollinn.
Hólmar Svansson og Þórður Kárason syntu yfir Pollinn við erfiðar aðstæður
Morgunblaðið/Kristján
Þórður Kárason og Hólmar Svansson koma að landi við Torfunefsbryggju eftir að hafa synt yfir Pollinn og verið rúman klukkutíma í sjónum. Páll Sig-
urjónsson fylgist með þeim úr kajak sínum en einnig voru björgunarsveitarmenn á gúmmíbáti með í för. Fjöldi fólks tók á móti sundgörpunum.
„Þetta var
rosalegt“
MATSNEFND sem fór yfir tilboð í
byggingu fjölnota íþróttahúss á
félagssvæði Þórs á Akureyri hefur
samþykkt að leggja til við bæjarráð
að gengið verði til samninga við Ís-
lenska aðalverktaka um byggingu
hússins. Íslenskir aðalverktakar
buðu 449 milljónir króna í verkið en
tilboðinu fylgdu frávik varðandi
verktilhögun og komu til mismun-
andi mikillar hækkunar.
Alls bárust átta tilboð frá fjórum
fyrirtækjum í verkið og sagði Ás-
geir Magnússon formaður mats-
nefndar að Íslenskir aðalverktakar
hafi fengið hæstu einkunn við mat á
tilboðunum. Ásgeir sagði að lagt
væri til að gervigrasið og búnaður í
húsið yrði tekið út úr tilboði ÍAV og
það boðið út sérstaklega.
Aðspurður um hvenær fram-
kvæmdir gætu hafist sagði Ásgeir
að það ætti eftir að koma í ljós enda
ætti málið eftir að fara fyrir bæj-
arráð. Hann sagði að Íslenskir að-
alverktakar ætluðu ekki í neinar
stórframkvæmdir fyrr en á næsta
ári „og ætla þá að klára þetta í ein-
um hvelli. Þeir bjóðast til að ljúka
verkinu fyrir 1. desember á næsta
ári.“
Tilboðin sem bárust í fram-
kvæmdina voru mjög mismunandi
enda voru verktakarnir að bjóða
ýmsar gerðir húsa og því var ekki
hægt að horfa eingöngu á fjárhæðir
tilboðanna. Tréverk í Dalvíkur-
byggð átti lægsta tilboð í verkið í
alútboði en það hljóðaði upp á 447,5
milljónir króna. Einnig sendu Katla
í Dalvíkurbyggð og Ístak inn tilboð í
bygginguna.
Áður en verðtilboðin voru opnuð
hafði matsnefndin gert mat á teikn-
ingum og greinargerðum með til-
boðunum og gefið þeim einkunn.
Hlutur einstakra matsþátta í heild-
areinkunn var eftirfarandi; útlit og
aðlögun 20%, gerð og gæði 20%,
tenging við Hamar 5%, rekstrarleg-
ir þættir 10% og tilboðsfjárhæð
45%.
Hugsanleg bygging fjölnota íþróttahúss á félagssvæði Þórs á Akureyri
Matsnefnd leggur til að geng-
ið verði til samninga við ÍAV
SKÓLASTARF hófst í grunnskólum Akureyrar í gær
en tæplega 2.500 nemendur setjast nú á skólabekk,
eða heldur fleiri en í fyrra. Skólarnir hefjast nú viku
fyrr en venjulega og mun skólastarf einnig standa
lengur fram á sumarið á næsta ári en skólaslit fara
fram þann 7. júní. Við þessi tímamót fjölgar ungum
vegfarendum til mikilla muna og er full ástæða til að
minna ökumenn á að taka tillit til þeirra.
Morgunblaðið/Kristján
Það var ekki laust við að þessir ungu nemendur í Glerárskóla væru þungt hugsi á fyrsta skóladeginum.
Skólastarf hafið