Morgunblaðið - 28.08.2001, Page 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 15
H
ö
n
n
u
n
&
u
m
b
ro
t
e
h
f.
©
2
0
0
1
D
V
R
0
7
4
Sænsk úrvalsfura á
hagstæðu verði
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
laugard. kl. 10-14
Síðumúla 34, Fellsmúlamegin
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
- trygging fyrir l
águ verði!
InnréttingarFu
rufulnin
ga
í sumar
húsið
Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433.
Rýmum fyrir nýjum vörum
Bolir frá kr. 500
Buxur frá kr. 1.790
Dragtir frá kr. 7.900VEIÐARFÆRADEILD Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja hefur verið að auka
áherslu á fjarnám. Deildarstjórinn
segir að það henti bæði netagerðar-
nemum og skipstjórnarmönnum.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er eini
framhaldsskóli landsins sem býður
upp á nám í veiðarfæragerð. Þar hef-
ur verið kennsla í netagerð frá árinu
1991. Lengst af var kennt annað hvert
ár en eitthvað starf hefur verið þar á
hverju ári eftir að Lárus Pálmason
kom til starfa 1998.
Lárus segir að á árinu 1999 hafi
tveir nemendur sjávarútvegsskóla
Sameinuðu þjóðanna verið þar við
nám, tveir á síðasta ári og í vetur komi
tveir nemar. Annar er frá Mexíkó og
hinn frá Taívan.
Eftir áramótin verða 5–7 nemend-
ur í dagskólanum og nokkrir í fjar-
námi að auki. Unnið hefur verið að
endurbótum á námskránni og náms-
efnisgerð til þess að auka möguleika á
fjarnámi sem hófst við skólann á síð-
asta ári. Fjarnámið verður auglýst á
næstunni en Lárus á von á að jafn-
margir verði í því og dagskólanum.
Fjarnámið er ætlað fyrir netagerð-
arnema og skipstjórnarmenn sem
vilja bæta við sig. Segir Lárus að þótt
dýrt sé að stunda fjarnám sé það mun
ódýrara fyrir nema sem búsettir eru
fjarri Suðurnesjum. Þeir þurfi þá ekki
að flytja á milli landshluta. Námið í
skólanum tekur þrjá mánuði í dag-
skólanum en tvöfalt lengri tíma í fjar-
náminu. Auk þess þarf að koma til al-
mennt nám sem getur farið fram í
öðrum framhaldsskólum og starfs-
þjálfun hjá meistara, þannig að nám
fyrir sveinspróf tekur allt að fjórum
árum. Eftirspurnin er þó að hans
sögn ekki síður frá skipstjórnar-
mönnum sem vilja bæta við sig, til
þess að eiga frekar kost á starfi í
landi. Þá getur hann þess að deildin
hafi annast hluta af kennslu nemenda
Stýrimannaskólans í Reykjavík, það
er að segja um veiðar og veiðarfæra-
fræði.
Breytt verkefni
Samdráttur hefur víða verið á neta-
gerðarverkstæðum, ekki síst þeim
sem lagt hafa áherslu á troll og snur-
voðir. Aukning hefur þó orðið sums
staðar á Austfjörðum vegna mikillar
áherslu útgerða þar á veiðar á upp-
sjávartegundum. Þá hefur hagræðing
í útgerð, með sameiningu útgerða og
fækkun skipa, minnkað verkefnin. Á
hinn bóginn hafa verkefnin breyst.
Veiðarfærin eru orðin stærri og
flóknari og meira af vinnunni hefur
farið inn á verkstæðin. Áður tóku sjó-
mennirnir meiri þátt í að útbúa veið-
arfærin. Nú eru gerðar kröfur um að
þau komi tilbúin um borð, frá spili í
poka, eins og Lárus orðar það.
„Svo lengi sem gert verður út héð-
an,“ segir Lárus þegar hann er spurð-
ur að því hvort áfram verði þörf á að
mennta netagerðarmenn.
Þá hafa íslenskir netagerðarmenn
fengið verkefni erlendis, sérstaklega
vegna útrásar Hampiðjunnar. Raun-
ar eru flestir nemarnir í dagskóla
veiðarfæradeildarinnar frá Hampiðj-
unni.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja kennir netagerðarnemum
Aukin áhersla á fjarnám
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Lárus Pálmason stendur við líkan að trolli sem nemar hans hafa búið til.
Reykjanesbær
Morgunblaðið/Júlíus
Búið er að flóðlýsa gokart-braut Reisbíla í Reykjanesbæ og hægt að aka þar frameftir kvöldi.
MAGNÚS Ó. Jóhannsson fékk
besta tímann í tímatökum fyrir
Esso-körtumótið hjá Reisbílum í
Reykjanesbæ. Eftir harðan slag
sem minnti á tímatökur í Form-
úlu-1 liggur nú fyrir hvaða tólf
ökumenn fá rétt til að taka þátt í
mótinu sem fram fer fimm næstu
laugardaga.
Geysihörð keppni var síðastlið-
inn sunnudag, lokadaginn sem
gestir gokart-brautarinnar við
Reykjanesbæ gátu spreytt sig í
tímatökum fyrir Esso-mótið. Féllu
bestu tímar hvað eftir annað og
röð efstu manna breyttist ört. Þá
komust tveir ökuþórar í hóp tólf
bestu með ótrúlegu harðfylgi á
síðustu sekúndunum um kvöldið.
Tólf fljótustu
Jón Ingi Þorvaldsson hafði átt
besta tímann um nokkurra daga
skeið en hann féll niður í þriðja
sætið á sunnudag.
Magnús fékk tímann 37,27 sek.
Auk hans komust áfram þeir Hlyn-
ur Einarsson, Jón Ingi Þorvalds-
son, Egill Þórarinsson, Karl Thor-
oddsen, Ingiberg Kristjánsson,
Hafsteinn Sigurðsson, Ólafur Jök-
ull Herbertsson, Sveinn Ólafsson,
Brynjólfur Einarsson, Valdimar
Jóhannsson og Ari Axelsson.
Tólf gokart-ökumenn komnir áfram
Hörð barátta
í tímatökum
Njarðvík
VINNUSLYS varð í sundmið-
stöðinni við Sunnubraut í
Keflavík síðastliðinn föstudag.
Maður sem fyrir slysinu varð
reyndist þó ekki alvarlega slas-
aður.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Keflavík var
starfsmaður að setja vatn á
stóran kút undir þrýstingi. Við
það sprakk lokið af kútnum og
lenti í höfði mannsins. Hann
var fluttur á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja til læknisskoðunar
en reyndist ekki alvarlega slas-
aður.
Slasaðist
í sund-
miðstöð
Keflavík FIMM verktakar hafa óskað eftir að
taka þátt í alútboði Grindavíkurbæj-
ar á Saltfisksetri Íslands. Bæjar-
stjórinn er ánægður með undirtektir.
Grindavíkurbær og ýmis félög og
fyrirtæki standa fyrir uppbyggingu
Saltfiskseturs Íslands í Grindavík.
Fyrirhugað er að byggja yfir setrið
og opna þar saltfisksýningu á næsta
ári.
Hönnun og bygging hússins ásamt
frágangi lóðar verður boðinn út í alút-
boði. Verktakarnir fimm sem sýnt
hafa því áhuga að taka þátt í útboðinu
eru Byggingaráðgjafinn í Garðabæ,
Íslenskir aðalverktakar í Reykjavík,
Keflavíkurverktakar í Reykjanesbæ,
Ístak í Reykjavík og Grindin í
Grindavík. Þrír til fjórir verktakar
verði valdir úr þessum hópi og gefinn
kostur á að keppa um verkið. Nið-
urstaðan mun ráðast af verði og út-
færslu, að sögn Einars Njálssonar
bæjarstjóra.
Fimm vilja byggja
yfir saltfisk
Grindavík