Morgunblaðið - 28.08.2001, Page 16
LANDIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FARÞEGAFERJAN Lagarfljóts-
ormurinn strandaði við fljótsbakk-
ann skammt neðan við bæinn Hof í
Fellum um klukkan hálfellefu á laug-
ardagskvöld. Ferjan hafði verið í
skemmtisiglingu um Lagarfljót með
um 50 gesti á Ormsteiti, árlegri
hausthátíð Héraðsmanna.
Ferðinni var heitið eftir hefðbund-
inni siglingaleið til hafnar við Lag-
arfljótsbrúna er óhappið varð. Orsök
þess að ferjuna rak af leið er ekki
ljós, en hugsanlegt er að sjálfstýring
hafi bilað. Gat kom á botn skipsins.
Ýtt var við skipinu með gröfu þannig
að það losnaði og tókst að sigla til
hafnar, þar sem botninn var þéttur
til bráðabirgða. Farþegar voru flutt-
ir frá borði og ekið með rútu á
áfangastað. Ekki er ljóst hvenær
ferjan siglir aftur. Eftir er að meta
tjón á ferjunni og eru fulltrúar Sigl-
ingastofnunar og tryggingafélags
væntanlegir. Siglingar ferjunnar
heyra undir siglingalög og verða því
haldin sjópróf ef ástæða þykir til.
Lögreglan á Egilsstöðum rannsakar
nú tildrög strandsins.
Lagarfljótsormurinn strandaði
Morgunblaðið/RAX
Egilsstaðir
ÞAÐ var einstaklega fallegt sól-
arlag séð í vestur af Reynisfjalli til
Dyrhólaeyjar og Vestmannaeyjar á
sunnudagskvöldið. Það er orðið
mjög vinsælt af ferðamönnum að
keyra eða ganga upp á Reynisfjall í
Mýrdal. Í veðri eins og var um síð-
ustu helgi á Suðurlandi er enginn
svikinn af útsýninu af Reynisfjalli.
Horft er niður til Víkur og Reyn-
isdranga til Dyrhólaeyjar. Vest-
mannaeyjar eru í fjarska og ekki
má gleyma Mýrdalsjökli sem gnæf-
ir eins og kóngur yfir Mýrdalnum.
Á myndinni er Andrés Pálmason
að virða fyrir sér útsýnið.
Fagridalur
Sólarlag af
Reynisfjalli
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
SKODABIFREIÐ árgerð 1976, áð-
ur eign Ingimars Eydals hljómlist-
armanns, var afhent Samgöngu-
minjasafninu í Ystafelli nýlega, en
það var fjölskylda Ingimars heitins
sem kom með bílinn frá Akureyri og
færði hann safninu til varðveislu.
Bíllinn er í mjög góðu lagi og gekk
ferðin vel austur, en hann hefur verið
mikið notaður af fjölskyldunni og öll-
um kær eftir svo langan tíma.
Að sögn Ástu Sigurðardóttur,
ekkju Ingimars, fannst þeim viðeig-
andi að færa Samgönguminjasafninu
bílinn og að þar myndi hann geymast
best.
Þeir feðgar í Ystafelli, Ingólfur
Kristjánsson og Sverrir Ingólfsson,
fögnuðu að vonum bílnum, en bílar
sem eru í góðu lagi og með langa og
merka sögu eru safninu mikill feng-
ur.
Safnið stækkar og dafnar
Samgönguminjasafnið sem nú hef-
ur starfað í nær tvö sumur stækkar
og dafnar og telur á þriðja hundrað
mismunandi samgöngutæki og alltaf
bætist við. Húsnæði það sem byggt
var fyrir starfsemina er þegar orðið
of lítið og segir Ingólfur að nauðsyn-
legt sé að byggja aðra skemmu til að
koma sem mestu undir þak.
Fyrir utan bíla er á safninu mikið
af gangfærum gömlum dráttarvél-
um, margar þeirra með merka sögu,
auk ýmissa annarra landbúnaðar-
verkfæra.
Þá má nefna að gríðarlegt magn
varahluta í hinar ýmsu gerðir bif-
reiða er að finna í Ystafelli og hafa
þeir feðgar, Ingólfur og Sverrir, mik-
inn fróðleik að færa þeim gestum
safnsins sem spyrja og vilja fræðast
um samgöngutæki síðustu aldar.
Áhugi fyrir safninu er mikill og
hefur aðsókn verið góð. Á veturna
þegar minna er um gesti gera þeir
feðgar upp gamla bíla og stundum
þarf að gera einn bíl úr tveimur.
Samgönguminja-
safnið fær bíl
Ingimars Eydals
Laxamýri Ingimar
Eydal við
skódann
sinn.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Bíllinn af-
hentur Sam-
gönguminja-
safninu. Frá
vinstri: Ing-
ólfur Krist-
jánsson,
Sverrir Ing-
ólfsson, Ásta
Sigurð-
ardóttir,
Ingimar Ey-
dal, Ingimar
Björn Dav-
íðsson og
Ásta Guðrún
Eydal.
VEGAGERÐIN hefur nú lokið við
að leggja bráðabirgðaveg yfir
Norðfjarðará svo að þungaflutn-
ingabílar þurfa nú ekki lengur að
fara yfir vað á ánni.
Eins og kunnugt er hefst smíði
nýrrar brúar fljótlega og verður
að vona að ekki komi mikill vöxtur
í ána áður en brúin verður tilbúin
því að hætt er við að bráðabirgða-
vegurinn þoli það ekki og rofni.
Morgunblaðið/Ágúst
Þungaflutningar
aftur á þurru
Neskaupstaður
Umhverfisnefnd
Rangárvallahrepps
veitti nýverið
nokkrum aðilum í
hreppnum við-
urkenningar fyrir
snyrtilegt umhverfi
og góða umgengni.
Fyrir býli í dreifbýli
hreppsins hlutu við-
urkenningu þau
Þorbjörg Atladóttir
og Gústav Stolz-
enwald á Stokka-
læk en þau keyptu
jörðina 1998, en hún
hafði verið í eyði í
nokkur ár. Þau hafa
gert hluta útihús-
anna upp, m.a.
hlöðu og fjós sem
hýsir nú hótel- og
veitingarekstur, en
að mati umhverf-
isnefndarinnar þyk-
ir öll endurgerð húsanna og upp-
bygging bera vott um smekkvísi
og virðingu fyrir umhverfi stað-
arins.
Fyrir lóð og hús á Hellu hlutu
viðurkenningu Ingibjörg Gunn-
arsdóttir og Guðni G. Kristinsson
á Hólavangi 8 en húsið var byggt
árið 1942. Þykir frágangur snyrti-
legur og sérstaklega tekið til þess
hversu endurbætur á húsinu hafa
heppnast vel eftir jarðskjálftana á
síðasta ári. Lóðin og garðurinn eru
í góðri rækt og bera vott um mikla
umhirðu.
Í flokki fyrirtækja hlaut Odd-
hóll-ferðaþjónusta ehf. viðurkenn-
ingu fyrir Hótel Rangá á Rang-
árvöllum en hótelið var tekið í
notkun á sl. ári. Húsið er sérstætt
bjálkahús og þykir vandað að allri
Snyrtilegt umhverfi
og góð umgengni
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Í garðinum hjá Ingibjörgu og Guðna á
Hólavangi 8 á Hellu.
gerð og ber vott um mikinn metn-
að eigenda sinna. Staðsetning hót-
elsins á bökkum Eystri-Rangár er
rómuð og hafin er uppgræðsla og
ræktun á landspildunni sem hót-
elið stendur á og hefur það fram-
tak breytt ásýnd þessa lands til
mikilla bóta.
Í flokki sumarhúsa hlutu þau
Guðmundur Júlíusson og Katrín
Stella Briem viðurkenningu fyrir
sumarhús þeirra og jörð á Langa-
nesmelum við Eystri-Rangá en
húsið var byggt árið 1996. Í um-
sögn umhverfisnefndarinnar segir
að allur frágangur sé snyrtilegur
og byggingar sómi sér vel. Hafa
þau hjónin unnið að uppgræðslu
og ræktun á jörðinni sem hefur
tekist vel og eru nú grænir hagar
þar sem áður voru svartir sandar.
Hella
sími 562 6470
Sveitarfélög - verktakar - fyrirtæki
Ýmsir möguleikar við
rýmis- og lagerlausnir.
Kynntu þér möguleikana.
Getum með stuttum
fyrirvara afgreitt
gámahús frá
eftir þínum óskum.