Morgunblaðið - 28.08.2001, Síða 17
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 17
LANDSSÍMI Íslands hf. skilaði 390
milljóna króna hagnaði á fyrstu sex
mánuðum ársins og er það tæplega
41% samdráttur frá sama tímabili á
síðasta ári en þá nam hagnaðurinn
656 milljónum króna. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnskostnað,
EBITDA, hækkaði hins vegar um
ríflega 6% frá fyrra ári, var nú tæpir
3,6 milljarðar króna miðað við liðlega
3,3 milljarða árið áður. Fjármagns-
kostnaður jókst nær fjórfalt frá fyrra
ári og nam 889 milljónum króna.
Rekstrartekjur félagsins námu
tæpum 8,7 milljörðum króna á fyrri
hluta ársins og jukust um tæp 10%
frá fyrra ári. Í tilkynningu kemur
fram að tekjuáætlanir félagsins hafi
að mestu gengið eftir. Tekjur af al-
mennri talsímaþjónustu hafi aukist
um tæp 6%, tekjur af farsímaþjón-
ustu um 19% og tekjur af gagnaflutn-
ingasþjónustu hafi aukist um 17%
miðað við sama tímabil í fyrra.
Athygli er vakin á því að meðal
tekjuþátta er söluhagnaður að fjár-
hæð 383 milljónir sem stafar að
stærstum hluta af sölu fasteigna
félagsins við Austurvöll í lok júní-
mánaðar.
Rekstrargjöld félagsins námu 5,1
milljarði króna og jukust um tæp
12% frá fyrra ári. Mest aukning varð
á uppgjörsgjöldum til annarra síma-
félaga eða um 19%, að sögn vegna
aukinnar hlutdeildar annarra síma-
félaga á innlendum markaði, hækk-
unar á uppgjörsgjöldum erlendis og
áhrifa frá gengisbreytingum.
Fjármagnskostnaður jókst
um 663 milljónir króna
Meginbreytingin á tímabilinu frá
fyrra ári liggur í hækkun hreins fjár-
magnskostnaðar úr 226 milljónum í
889 milljónir, eða um 663 milljónir
sem er nær fjórföldun kostnaðar.
Segir í tilkynningu félagsins að
mestu muni um 702 milljóna króna
gengistap af erlendum lánum félags-
ins og um verðbætur á rúmlega 8
milljarða innlendar langtímaskuldir
þess. Jafnframt segir að þunginn af
þessum skuldum hafi orðið til þegar
félagið gerði upp áratugagamlar líf-
eyrisskuldbindingar við stofnun
hlutafélags um Símann og vegna 5
milljarða króna greiðslu til ríkissjóðs
vegna vanmats á verðmæti við stofn-
un félagsins.
Hagnaður fyrir skatta nam 812
milljónum króna miðað við rúman
einn milljarð króna á sama tímabili í
fyrra, sem nemur 21% samdrætti á
milli ára. Þá eru áhrif frá dótturfélög-
um neikvæð um 174 milljónir króna
auk þess sem yfirverð á keyptum
hlutum í félögum var gjaldfært um 30
milljónir króna og eignarhlutir voru
afskrifaðir um 28 milljónir.
Hagnaður ársins áætlaður
1,1 milljarður króna
Veltufé frá rekstri nam rúmum 2,6
milljörðum króna á tímabilinu en ríf-
lega 2,7 milljörðum á sama tíma í
fyrra og hefur dregist saman um tæp
4%. Viðskiptakröfur er sagðar hafa
hækkað mikið og að það skýrist m.a.
af sölu fasteigna í lok tímabilsins,
breytingu á uppgjörsaðferðum og
hægari innheimtu almennra við-
skiptakrafna.
Veltufjárhlutfall félagsins á fyrri
hluta ársins var 1,53 miðað við 0,78 á
sama tíma í fyrra. Eiginfjárhlutfallið
er 43% samanborið við 49% á sama
tíma í fyrra og arðsemi eiginfjár er
5,76% miðað við 9,95% í fyrra.
Gert er ráð fyrir í endurskoðaðri
áætlun Símans fyrir árið í heild að
félagið skili hagnaði upp á 1,1 millj-
arð króna á árinu og að hagnaður fyr-
ir afskriftir og fjármagnsliði,
EBITDA, verði yfir 6,7 milljörðum
króna.
Fjármagnskostnaður
nær fjórfaldaðist
Hagnaður Símans nam 390 m.kr. á fyrri hluta árs
TAP Fjárfestingarfélagsins
Straums hf. á fyrri árshelmingi
2001 nam tæpum 263 milljónum
króna að teknu tilliti til tekjufærslu
tekjuskatts að fjárhæð 222 milljónir
króna. Tap félagsins fyrir skatta
nam 484 milljónum króna en 144
milljóna króna hagnaður varð af
rekstrinum fyrir skatta á sama
tímabili ársins 2000.
Tap félagsins til lækkunar á eigin
fé nemur 880 milljónum, þá er tekið
tillit til taps tímabilsins og lækk-
unar óinnleysts geymsluhagnaðar
sem nam rúmum 617 milljónum
króna á tímabilinu.
Stjórnendur Straums telja af-
komu félagsins á fyrri hluta ársins
viðunandi að teknu tilliti til þess
óróleika sem verið hefur á fjár-
magnsmörkuðum, að því er segir í
tilkynningu. „Á tímabilinu lækkaði
úrvalsvísitala VÞÍ um 17,3% auk
þess sem krónan veiktist um tæp-
lega 16%. Vaxtastig hefur haldist
hátt auk þess sem erlendir hluta-
bréfamarkaðir hafa lækkað.“
Eigið fé aukist um
37% frá áramótum
Hreinar fjármunatekjur félagsins
voru á tímabilinu neikvæðar um 416
milljónir króna en á sama tíma í
fyrra voru þær jákvæðar um 177
milljónir. Mesta aukning innan
þessa liðar var 740 milljóna króna
aukning vaxtagjalda og gengis-
munar af lánum. Rekstrargjöld
félagsins ríflega tvöfölduðust frá
fyrra ári, voru nú 69 milljónir
króna.
Eigið fé félagsins var 7,5 millj-
arðar í lok júní og hefur aukist um
liðlega 37% frá áramótum. Arðsemi
eigin fjár var neikvæð um 31% á
ársgrundvelli.
Tap Straums nam 263 m.kr.
TAP á rekstri útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækisins Guð-
mundur Runólfssonar hf. á
Grundarfirði á fyrstu sex mán-
uðum ársins 2001 nam 134
milljónum króna, að teknu tilliti
til skatta. Í fyrra var hagnaður-
inn á sama tímabili rúmlega 17
milljónir. Skattar félagsins eru
jákvæðir um 40 milljónir í ár en
voru engir í fyrra. Tap fyrir
skatta í ár var því 174 milljónir.
Rekstrarhagnaður Guð-
mundar Runólfssonar hf. fyrir
fjármunaliði dróst saman um
23% milli ára, var 53 milljónir í
ár en 69 milljónir í fyrra. Fjár-
magnsgjöld félagsins hækkuðu
um 175 milljónir milli ára, úr 52
milljónum í 227 milljónir.
Eignir félagsins hinn 30. júní
á þessu ári eru svipaðar eignum
þess á sama tíma í fyrra, 2.362
milljónir nú en 2.330 milljónir
ári áður. Eigið fé milli ára dróst
hins vegar saman um 229 millj-
ónir, úr 504 milljónum í fyrra í
275 milljónir í ár. Það stafar af
því að óráðstafað eigið fé í fyrra
var jákvætt um 148 milljónir en
neikvætt um 116 milljónir í ár.
Langtímaskuldir jukust um 158
milljónir og skammtímaskuldir
um 130 milljónir.
Tap Guð-
mundar
Runólfsson-
ar hf. 134
milljónir
HAGNAÐUR Kaupáss hf. eftir
skatta á fyrstu sex mánuðum
ársins 2001 nam 1,2 milljónum
króna, samanborið við 42,1
milljón á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður fyrir afskriftir og
vexti varð hins vegar 318,1
milljón, jókst um 75% frá fyrra
ári er hagnaðurinn var 182
milljónir. Hagnaður fyrir
skatta var 1,9 milljónir í ár
samanborið við 62,6 milljónir í
fyrra.
Rekstrartekjur Kaupáss juk-
ust um 15% milli ára, úr 5,5
milljörðum í 6,3 milljarða. Af-
skriftir félagsins fyrstu 6 mán-
uði þessa árs voru 167,8 millj-
ónir og fjármagnsgjöld að
frádregnum fjármagnstekjum
138,4 milljónir. Þar af er gjald-
færsla vegna gengistaps að
upphæð 128,5 milljónir. Veltufé
félagsins frá rekstri var 214,7
milljónir og hafði aukist um
15% frá árinu á undan. Eigið fé
félagsins er 1.576 milljónir,
hafði aukist um 10 milljónir frá
áramótum, og eignir eru alls
5.462 milljónir. Veltufjárhlut-
fall félagsins er 1,19 og eigin-
fjárhlutfall 28,9%.
Breyting varð á sjórn
Kaupáss hf. á hluthafafundi
félagsins síðastliðinn föstudag.
Ásmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri EFA, kom nýr í
stjórn sem fulltrúi stærsta
hluthafans í stað Gylfa Arn-
björnssonar. Ásmundur var
kosinn formaður stjórnarinnar.
Hagnaður
Kaupáss hf.
1,2 milljónir
Uppsagnir
hjá Toshiba
JAPANSKI raftækjaframleiðand-
inn Toshiba Corp. tilkynnti í gær
að 18.800 manns yrði sagt upp
störfum hjá fyrirtækinu fram til
mars árið 2004 vegna minnkandi
sölu og samdráttar í tæknigeir-
anum. Toshiba er stærsti framleið-
andi tölvukubba í Japan og hjá fyr-
irtækinu starfa alls 188.000 manns.
KAUPÁS hf. og Smáralind
hafa undirritað samninga um
leigu á rými undir verslanir
Nóatúns og Intersport, og
munu þær verða opnaðar þar
10. október næstkomandi.
Verslun Nóatúns verður 1.100
fermetrar að stærð og verslun
Intersport 500 fermetrar.
Nóatún og
Intersport í
Smáralind