Morgunblaðið - 28.08.2001, Side 18
ÚR VERINU
18 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EINAR Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segist
reiðubúinn að beita sér fyrir frest-
un kvótasetningar krókabáta og
segist fagna öllum stuðningi við
slíkt, jafnvel þótt hann komi úr röð-
um stjórnarandstöðunnar.
Einar Oddur segir að meginatriði
málsins sé að með álitsgerð í kjölfar
Valdimarsdómsins hafi verið rofin
ákveðin sátt sem skapast hafi um
málefni smábáta. „Síðan hefur ríkt
ófriður um þessi mál og menn eru
síður en svo á einu máli um það
hvort túlkun dómsins sé rétt. Valdi-
marsdómurinn er af mörgum talinn
ruglingslegur en Vatneyrardómur-
inn er hins vegar mun vandaðri og
skýrari. Lögfróðir menn hafa full-
yrt að vegna Vatneyrardómsins
stríði núverandi stjórnkerfi smá-
báta ekki gegn stjórnarskránni og
því þurfi ekki að afnema kerfið.“
Einar Oddur segir að gildistaka
lagana hinn 1. september nk. sé
þannig mistök og því sé allt til vinn-
andi að koma í veg fyrir slíkt. „Ég
vona að augu manna opnist fyrir því
í hvaða vandræði og ógæfu er verið
að stefna þessu máli. Málið snýst
auk þess um tiltölulega lítið magn.
Stofnmat á til dæmis ýsu getur
sveiflast um tugi ef ekki hundruð
þúsunda tonna og þekkingin á
stofninum í raun og veru sáralítil.
Það sem menn eru hins vegar að bí-
tast um eru nokkur þúsund tonn.
Mér finnst því út í hött að setja
heilu byggðarlögin og hundruð
sjálfstæðra útgerðarmanna í upp-
nám út af svo litlu magni,“ segir
Einar Oddur.
Er ekki stefna
ríkisstjórnarinnar
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, segir
ljóst að gildistöku laganna verði
ekki frestað og því komi kvótasetn-
ing á krókabáta til framkvæmda
hinn 1. september. Hann segir að
afstaða sín til þessarar niðurstöðu
hafi ekki breyst frá því í vor en þá
lýsti hann sig andsnúinn þeirri leið
sem nú er ljóst að farin verður og
var þá kölluð miðlunarleiðin. Hann
segist því munu reyna að leita leiða
til að gerðar verði breytingar á
málum. „Ég hef lagt áherslu á það
frá upphafi að lagasetningin, sem
byggð er á stjórnarskrárlegum for-
sendum, leiði ekki til umtalsverðs
samdráttar í veikustu byggðum
landsins.
Lagasetningin þýðir að um veru-
legan samdrátt er að ræða á veiði
þessara báta, þrátt fyrir að bætt sé
við kvótann í ýsu og steinbít. Það
þýðir færri störf og í kjölfarið
brottflutning á fólki. Að mínu mati
þarf að halda atvinnulífi þessara
staða í því horfi sem verið hefur.
Það er í sjálfu sér engin ein leið til
þess og það þarf að finna niður-
stöðu í þeim efnum. Stjórnarflokk-
arnir verða að ná samstöðu í þessu
máli og ég geng út frá því að þeir
séu sammála um að afleiðingarnar
verði ekki eins og stefnir í. Það er
ekki stefna ríkisstjórnarinnar að
slíkt gerist,“ segir Kristinn.
Fagnar stuðningi
stjórnarandstöðu
Morgunblaðið/Birgir Þórbjarnarson
SÝSLUMAÐURINN á Akranesi
hefur krafið útgerð togarans
Marz AK um skýringar á veru
Rússa um borð í togaranum en
skipið er nú að veiðum í Barents-
hafi. Útgerðarmaður togarans
staðfestir að um borð séu Rússar
en þeir séu ekki hluti af áhöfn
skipsins og þurfi því ekki lög-
skráningu.
Marz AK er skráð á Íslandi og
er útgerðinni, Avona ehf. á Akra-
nesi, því skylt að fara að íslensk-
um lögum hvað varðar lögskrán-
ingu. Norska strandgæslan fór
um borð í skipið í síðustu viku og
hefur hún staðfest að í skipinu
voru að vinna 5–6 sjómenn sem
taldir eru vera rússneskir en þeir
eru ekki skráðir í áhöfn skipsins.
Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar,
sýslumanns á Akranesi, staðfesti
það grunsemdir um að lögskrán-
ingargögn útgerðarinnar stæðust
ekki. Hann segir að útgerðinni
hafi þegar verið gert að gera
grein fyrir mönnunarmálum um
borð í togaranum, sem og að
koma lögskráningarmálum í sam-
ræmi við lög. Samgönguráðuneyt-
inu hefur verið gerð grein fyrir
stöðu málsins og segir Ólafur Þór
að nú sé verið að fara yfir þær
skýringar sem borist hafi frá út-
gerðinni. Í kjölfarið verði næstu
skref ákveðin.
Ólafur Þór segir að þar sem
skipið sé ekki að veiðum innan ís-
lenskrar efnahagslögsögu taki lög
um lögskráningu sjómanna ekki
beinlínis á því hvaða aðgerðir ís-
lenskum stjórnvöldum er heimilt
að fara út í sé um brot á lögunum
að ræða. Úrræðið sé því að óska
eftir liðsinni íslensku Landhelg-
isgæslunnar. Leiði athugun henn-
ar í ljós að ástæða sé til að aðhaf-
ast enn frekar í málinu, sé hægt
að vísa skipinu til hafnar. Það
verði síðan að gera í samstarfi við
norsku strandgæsluna.
Sævar Sigurvaldason, útgerð-
armaður Marz AK, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær að
um borð í skipunu væru Rússar.
Þeir væru hins vegar ekki í áhöfn
skipsins og gengju ekki til dag-
legra starfa, heldur væru þeir um
borð á forsendum sem hann gæti
ekki upplýst að svo stöddu. Hann
sagði málið byggt á misskilningi
og að verið væri að reyna að koma
höggi á útgerðina.
Grunur um brot
á lögskráningu
Óskráðir Rússar um borð í Marz AK í Barentshafi
VIÐSKIPTI
NIÐURSTAÐA kærunefndar út-
boðsmála um að ógilda samstarfsút-
boð Ríkiskaupa um rafrænt mark-
aðstorg ríkisins gefur tækifæri til að
þannig verði staðið að málum að allir
standi jafnfætis, að sögn Rúnars Más
Sverrissonar, framkvæmdastjóra
Netverslunar Íslands hf. Hann segir
að nú verði hægt að færa fram þær
skýringar sem fyrirtækið hafi óskað
eftir að koma á framfæri í sambandi
við þetta verkefni sem ekki hafi gef-
ist kostur á í samstarfsútboðinu.
Rúnar væntir þess að annað útboð
verði haldið.
Erla S. Árnadóttir hæstaréttarlög-
maður, sem sá um að kæra sam-
starfsútboð Ríkiskaupa til kæru-
nefndar útboðsmála fyrir hönd
Netverslunar Íslands, segir að þegar
fyrirtækinu hafi verið boðið að taka
þátt í samstarfsútboðinu hafi stjórn-
endur þess ekki gert sér grein fyrir
því að útboðið uppfyllti ekki þær
reglur sem um samstarfsútboð gilda.
Það hafi ekki komið í ljós fyrr en eftir
að farið hafi verið að vinna í útboðinu
sem sé m.a. skýringin á því hvers
vegna Netverslun Íslands tók þátt í
útboðinu sem það síðan kærði að
skyldi vera haldið.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í síðustu viku kvað kæru-
nefnd útboðsmála nýlega upp þann
úrskurð að útboð Ríkiskaupa um svo-
nefnt „Rafrænt markaðstorg ríkisins
– samstarfsútboð“ væri ógilt. Ríkis-
kaup efndu til útboðsins eftir að hafa
hafnað öllum tilboðum í almennu út-
boði um sama efni.
Netverslun Íslands hf. kærði sam-
starfsútboðið til kærunefndar út-
boðsmála í júlí síðastliðnum en fyr-
irtækið var eitt þriggja fyrirtækja
sem tók þátt í útboðinu en þessi þrjú
fyrirtæki voru talin hafa boðið fram
tæknilega fullnægjandi lausnir í al-
menna útboðinu. Ríkiskaup ákváðu í
júní að hefja viðræður við Miðheima
hf. en hafna öðrum tilboðum.
Markmiðið með rafrænu markaðs-
torgi ríkisins er að þorri innkaupa
hins opinbera á vörum og þjónustu
fari þar fram en torginu er ætlað að
greiða fyrir samskiptum milli kaup-
enda og seljenda.
Erla S. Árnadóttir segir að meðan
á framkvæmd samstarfsútboðs Rík-
iskaupa stóð hafi ýmis atriði komið
upp. Þar megi til að mynda nefna að
Netverslun Íslands hafi ekki verið
boðið að koma öllum upplýsingum á
framfæri áður en Ríkiskaup til-
kynntu að ákveðið hefði verið að
hefja viðræður við einn hinna þriggja
aðila sem þátt tóku í útboðinu.
„Þegar niðurstaða Ríkiskaupa lá
fyrir óskuðu stjórnendur Netversl-
unar Íslands eftir skýringum Ríkis-
kaupa. Þeir fengu þau svör að ekki
hefði verið boðið upp á ákveðin atriði
í tilboði fyrirtækisins. Það var rangt
hjá Ríkiskaupum og var gert grein
fyrir því í gögnum sem send voru til
kærunefndarinnar og sem Ríkiskaup
andmæltu ekki. Allir stóðu því ekki
jafnt að vígi í samstarfsútboðinu. Þá
vöknuðu í framhaldinu upp spurning-
ar hjá stjórnendum Netverslunar Ís-
lands um réttmæti útboðsins og eins
og kærunefnd útboðsmála hefur nú
komist að niðurstöðu um var sam-
starfsútboð Ríkiskaupa ekki byggt á
heimildum,“ segir Erla.
Væntir ann-
ars útboðs
Stóðu ekki jafnt að vígi í útboði
Ríkiskaupa um rafrænt markaðstorg
HAFÞÓR Haf-
steinsson fram-
kvæmdastjóri
markaðssviðs
Flugfélagsins Atl-
anta hf. mun taka
við stöðu forstjóra
félagsins af Arn-
grími Jóhanns-
syni frá og með 1.
september nk. Arngrímur mun áfram
gegna stöðu stjórnarformanns.
Hafþór hefur verið flugmaður og
flugrekstrarstjóri hjá Atlanta frá
árinu 1992 og framkvæmdastjóri
markaðssviðs frá síðasta ári.
Við nýrri stöðu aðstoðarforstjóra
tekur Arnar Þórisson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs, ásamt því að
gegna áfram fyrri stöðu. Þá tekur
Davíð Másson, aðstoðarmarkaðs-
stjóri við stöðu framkvæmdastjóra
markaðssviðs.
Velta Atlanta var rúmir 14 millj-
arðar á síðasta ári en gert er ráð fyrir
veltu upp á rúma 22 milljarða á þessu
ári, að því er segir í tilkynningu frá
félaginu.
Nýr forstjóri Atlanta
ÍSLENSKA fyrirtækið Altech JHM
hf. gekk nýlega frá sölu á heildar-
tækjabúnaði í nýja skautsmiðju í ál-
veri í Sumgait í Aserbaídsjan. Sam-
ingsupphæðin er 10 milljónir dollara
eða um einn milljarður króna og er
þetta stærsti samningur sem Altech
JHM hefur gert frá því fyrirtækið
var stofnað árið 1987.
Jón Hjaltalín Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Altech JHM hf., segir
í samtali við Morgunblaðið að samn-
ingurinn hafi mikla þýðingu. „Í
fyrsta lagi höfum við nú verkefni út
næsta ár og þetta er mikil viður-
kenning á því starfi sem við höfum
lagt á okkur undanfarin tíu ár. Í öðru
lagi auðveldar þetta okkur að fá fleiri
samninga af þessu tagi.“ Jón segir að
nú standi yfir viðræður Altech við
um 80 álver í heiminum. „Við reikn-
um með að ná nokkrum samningum
fyrir næstu áramót, ekki svona
stórum reyndar, en það eru upphæð-
ir sem skipta nokkur hundruð millj-
ónum.“
Aðspurður segir Jón að upphafið
að töluverðum vexti fyrirtækisins
megi rekja til ársins 1996 þegar Al-
tech gerði um 200 milljóna króna
samning í Miðausturlöndum. Fyrir-
tækið er ekki með eigin framleiðslu
heldur leggur út verkefni hjá verk-
tökum á Íslandi og erlendis. Samn-
ingurinn nú er gerður við hollenska
fyrirtækið Fondel, sem er sérhæft í
viðskiptum með málma og hefur gert
samning við ríkisstjórn Aserbaíd-
sjan um að endurbæta gamalt álver
þar í landi með nútímatækni og í
samræmi við ströngustu umhverfis-
staðla. Álverið í Aserbaídsjan mun í
byrjun framleiða 130.000 tonn af áli
árlega, en verður síðan stækkað í
áföngum. Með þessari sölu til
Sumgait-álversins hefur Altech þeg-
ar gengið frá sölusamningum fyrir
1,2 milljarða það sem af er árinu.
Altech JHM hf.
selur búnað fyrir
milljarð króna