Morgunblaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 19
ÚTSALA
í nokkra daga
Raðgreiðslur
Victoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. kl. 12-18,
lau. kl. 11-16.
NEYTENDUR hafa ennsem komið er lítið orðiðvarir við nýjar flokkun-arreglur fyrir íslenskt
grænmeti sem komu út fyrr í sumar.
Reglunum er ætlað að samræma
flokkun á grænmeti í úrvalsflokk,
fyrsta flokk og annan flokk. Kaup-
menn almennt eru ekki farnir að
merkja vörur í verslunum sínum eft-
ir flokkum. Einu búðirnar sem hafa
merkt grænmetið hingað til eru
Hagkaup og Nýkaup, en þessar
verslanir unnu að þróun flokkunar-
reglnanna ásamt MATRA, Sölu-
félagi garðyrkjumanna og fleirum.
Hefur efasemdir um
flokkunarkerfið
„Vandamálið, sem við stöndum
frammi fyrir, er að kassarnir sem við
fáum grænmetið í eru ekki merktir
eftir flokkum enn sem komið er,“
segir Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss. „Um leið
og það verður komið verður þetta að
sjálfsögðu merkt í okkar hillum, en
þangað til er ómögulegt fyrir okkur
að flokka þetta í hillum okkar.“
Guðmundur segist hafa vissar efa-
semdir um þetta nýja flokkunar-
kerfi: „Í raun finnst mér ekki farið að
reyna á þetta kerfi enn sem komið
er, það fer fyrst að reyna á það í
haust þegar íslenska kálið er búið að
vera í nokkurn tíma í geymslu. Þá er
spurning hvort það verður áfram
flokkað sem fyrsti flokkur, þótt það
sé jafnvel farið að gulna, eða hvort
það verði flokkað sanngjarnt og sett í
annan flokk.“
Stendur til að merkja
Í samtali við Morgunblaðið í byrj-
un júlí segir Júlíus Guðmundsson,
kaupmaður í Sparversluninni, að til
standi að merkja bæði íslenska og
erlenda vöru eftir upprunalandi,
gæðaflokki og uppskeru. Þetta segir
Ingvi Guðmundsson, kaupmaður í
Sparverslun, ekki enn komið í gagnið
og treystir sér ekki til að spá hvenær
svo verði. Hann segir þó að merking-
ar á flokkun íslensks grænmetis séu
ágætis byrjun og á von á því að það
verði fyrir mánaðamót.
„Fljótlegasta aðferðin sem við
getum beitt er að merkja hillumiða
þannig að flokkurinn komi fram. Ég
á von á því að það verði komið fyrir
mánaðamót.“
Sjálfsögð þjónusta
við neytendur
Árni Ingvarsson, kaupmaður í Ný-
kaup, segir grænmeti hafa verið
merkt samkvæmt gæðaflokkum í
hillum verslunarinnar undanfarna
mánuði. „Þetta er vara sem við selj-
um mjög mikið af og því mikilvægt
fyrir okkur að neytendur geti séð að
hún uppfyllir ýtrustu gæðakröfur.“
Aðspurður hvort það sé mikið mál að
halda merkingunum í hillunum rétt-
um, segir Árni svo ekki vera og
bendir á að þetta sé sjálfsögð þjón-
usta við neytendur.
Bíða eftir samkeppnisaðilum
„Allt okkar grænmeti er fyrsta
flokks nema annað sé tekið fram,“
segir Gísli Sigurbergsson, verðlags-
stjóri í Fjarðarkaupum. Hann telur
þó líklegt að ef samkeppnisaðilar fari
að merkja grænmeti sitt sérstaklega
sem fyrsta flokks komi vel til greina
að gera slíkt hið sama.
Jákvæð viðbrögð neytenda
Að sögn Finns Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Hagkaups, er íslenskt
grænmeti merkt eftir flokkum í
Hagkaupsverslununum. „Það er
ákveðið mál að halda þessu kerfi
gangandi en við reynum að hafa
þetta í góðu lagi.“ Spurður um við-
brögð neytenda segir Finnur: „Við
höfum fengið jákvæð viðbrögð og
fólk er ánægt að vita nákvæmlega
hvað það er að kaupa.“ Finnur segir
þó eitthvað hafa borið á misskilningi
varðandi flokkunina þar sem fólk átti
sig ekki alltaf á því að til sé betri
flokkur en fyrsti flokkur. Að öðru
leyti segir hann kerfið hafa gengið
vel.
Merkt í hillum fljótlega
„Þetta er ekki merkt í okkar versl-
unum, hingað til hefur okkur ekki
þótt þörf á því enda bara verið með
fyrsta flokk í sölu,“ segir Pétur Vals-
son, gæðastjóri Nóatúns. Hann bæt-
ir við að það væri eflaust ekki mikið
mál að merkja íslensku framleiðsl-
una eftir gæðaflokkum í hillum. „Við
höfum verið að leggja mikla áherslu
á að fá góða vöru og þá er rétt að láta
fólk vita af gæðunum. Ég á von á að
þessar merkingar verði komnar í
hillur hjá okkur mjög fljótlega.“
Kerfið lengi í gang
Sigurður Teitsson, framkvæmda-
stjóri 11-11 verslananna, segir kerfið
í raun ekki komið full-
komlega í notkunn hjá
framleiðendum, og því
erfitt að vita nákvæm-
lega í hvaða flokkum
grænmetið sé. „Kassarn-
ir sem við fáum frá Sölu-
félagi garðyrkjumanna
eru ekki merktir enn sem
komið er svo við getum
ekki merkt í hillum okkar
þar til það er orðið. Þegar
framleiðendur eru komn-
ir með þetta í lag munum
við merkja grænmetið
eftir flokkum í hillunum.“
Verður merkt í
náinni framtíð
Flokkunarreglurnar höfðu ekki
verið skoðaðar í Samkaupum í júlí-
byrjun. Í dag segir Skúli Skúlason,
fulltrúi framkvæmdastjóra Sam-
kaupa, að þessar flokkunarreglur
séu komnar í notkun í versluninni.
Ekki er þó farið að merkja sérstak-
lega í hvaða flokk íslenska grænmet-
ið fellur í hillunum.
„Ég tel víst að þessum upplýsing-
um verði komið til neytenda í náinni
framtíð. Við erum með merkingar
við allt grænmeti og alla ávexti þar
sem kemur fram uppruni vörunnar
og almennar næringarupplýsingar.
Þessi skilti hanga við allar vörur og
þar ætti að vera hægt að bæta upp-
lýsingum um gæðaflokka.“
Kallar á þekkingu starfsfólks
„Eina íslenska grænmetið sem er í
gangi núna er fyrsti flokkur,“ segir
Hannes Karlsson, deildarstjóri
Nettó. Hann bætir við að erfitt geti
reynst að halda vörunum rétt merkt-
um, sér í lagi þar sem grænmetið
fellur niður um flokka eftir að hafa
verið í versluninni í nokkurn tíma.
„Þegar líða tekur á árið munu gæði
breytast sem kallar á þekkingu
starfsfólks á þessum flokkunar-
reglum svo þetta gæti tekið einhvern
tíma.“
Nýju flokkunarreglurnar fyrir íslenskt grænmeti lítt sýnilegar
Morgunblaðið/Þorkell
Til að merkingar í flokka séu marktækar þarf mikið innra eftirlit í verslunum til að fjarlægja grænmeti sem rýrnar í gæðum þegar líða tekur á.
Hægt er að merkja grænmetið á einfaldan
hátt. Slíkar merkingar auðvelda allan sam-
anburð þar sem vitað er að verið er að bera
saman sambærilega vöru.
Kaupmenn
seinir að
taka við sér
Nýlegar flokkunarreglur fyrir grænmeti
hafa ekki verið áberandi í verslunum und-
anfarið. Brjánn Jónasson kynnti sér stöð-
una. Einungis Nýkaup og Hagkaup merkja
grænmeti eftir flokkum.
brjann@mbl.is
KOMINN er á markað nýr næring-
arhristingur, Myoplex MRP.
Drykknum er ætlað að koma í stað
einnar eða fleiri máltíða. Hann inni-
heldur prótein, orkurík kolvetni,
trefjar og mikið af vítamínum og
steinefnum. Drykkurinn hentar að
sögn inn-
flytjanda
vel sem
næring
fyrir
skipulagða
þyngdar-
stjórnun.
Myoplex
MRP er til
með jarð-
arberja-,
súkkulaði-, vanillu- og banana-
bragði. Innflytjandi er B. Magn-
ússon hf. en vöruna má nálgast í
heilsubúðum, heilsuræktarstöðvum
og apótekum.
Myoplex
MRP-næring-
arhristingur
Nýtt
HAUST- og vetrarlistarnir frá Quelle
eru komnir. Stóri Quelle-listinn er
með mikið úrval fyrir fjölskylduna og
heimilið. Sér-
listarnir eru
ætlaðir sér-
hæfðari mark-
hópum.
Til dæmis
eru í boði
Mode-listinn
fyrir eldra
fólk, Maine
Grösse-listinn
með kvenmannsfötum upp í stærð 62,
K-listinn fyrir konur undir 157 á hæð,
Euro-Kids fyrir krakka og Haushalt-
listinn fyrir búsáhöld.
Nýir Quelle-
listar
BRAZZI, hreinn
appelsínusafi er
kominn á markað
frá Vífilfelli í nýj-
um umbúðum; 2
lítra fernu með
skrúfuðum tappa.
Brazzi
í nýjum
umbúð-
um