Morgunblaðið - 28.08.2001, Síða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 21
FJÓRIR voru með allar tölur réttar
í Powerball-lottóinu í Bandaríkjun-
um á laugardag og deila með sér ein-
um hæsta vinningi sögunnar, 295
milljónum dollara eða 30 milljörðum
króna.
Eini vinningshafinn sem hafði gef-
ið sig fram í gær var David Edwards,
einstæður, atvinnulaus faðir frá
Kentucky. Ekki verður annað sagt
en að vinningurinn komi sér vel fyrir
Edwards því atvinnuleysisbæturnar
voru í þann mund að renna út og búið
var að loka símanum hjá honum auk
þess sem hann vantaði fé til að gang-
ast undir bakaðgerð.
Edwards sagðist ekki hafa keypt
lottómiða í marga mánuði vegna
peningaleysis en á laugardaginn
hefði hann samt slegið til og keypt
átta miða í verslun í Ashland í Ken-
tucky. „Ég taldi mig hafa allt að
vinna og engu að tapa,“ sagði hinn
lukkulegi vinningshafi. Á fyrstu mið-
ana merkti hann inn afmælisdaga
vina og kunningja, en á einn miðann,
vinningsmiðan sjálfan, reyndi hann
aðra aðferð. „Ég ákvað að virða töl-
urnar fyrir mér og láta þær eiginlega
velja mig,“ sagði Edwards.
Hann var að vonum í sjöunda
himni eftir útdráttinn á laugardags-
kvöld og kvaðst hafa „stokkið út úr
bílnum og þakkað guði“ er hann
heyrði fréttirnar.
Kýs að fá vinningsféð
í einu lagi
Viningshafarnir fjórir geta valið
um að fá 2,9 milljónir dollara á ári í
25 ár, samtals 72,5 milljónir, eða fá
41,4 milljónir greiddar strax út í
hönd. Í viðtali í þættinum Good
Morning America á ABC-sjónvarps-
stöðinni kvaðst Edwards myndu
kjósa eingreiðsluna. Í viðtali við
CNN sagðist hann ennfremur ætla
að leita ráðgjafar fjármálasérfræð-
inga um það hvernig fénu yrði best
varið. „Við þurfum nýtt hús,“ sagði
Edwards, en unnusta hans, Shawna
Maddux, bætti við að hún „myndi fá
sér Ferrari“.
Síðdegis í gær hafði reyndar ekki
verið staðfest að Edwards hefði
vinningsmiða undir höndum því
hann átti eftir að gefa sig fram við
höfuðstöðvar lottósins í Louisville,
ríkishöfuðborg Kentucky. Hinir
vinningsmiðarnir voru seldir í New
Hampshire, Minnesota og Delaware.
21 ríki í Bandaríkjunum, auk Col-
umbia-umdæmisins, stendur að
Powerball-lottóinu. Potturinn á
laugardag var sá næststærsti í sögu
þess happdrættis og sá þriðji stærsti
í Bandaríkjunum. Árið 1998 fékk
hópur vinnufélaga í verksmiðju 295,7
milljóna dollara vinning í Powerball-
happdrættinu og í fyrra deildu tvær
fjölskyldur með sér 363 milljónum
dollara í Big Game-happdrættinu.
Fjórir deila 30 milljarða lottóvinningi í Bandaríkjunum
Einstæður faðir einn
vinningshafanna
Louisville, Washington. AFP, AP.
MARITA Petersen, fyrsta
konan, sem gegndi lögmanns-
embætti í Færeyjum, er látin
aðeins sextug að aldri.
Marita var kjörin á þing
fyrir Jafnaðarflokkinn 1988 og
fimm árum síðar var hún kjör-
in formaður hans. Var hún í
því embætti til 1996. Hún fór
með mennta- og dómsmál í
samsteypustjórn Jafnaðar-
flokksins og Fólkaflokksins,
sem tók við 1991, og beitti sér
þá meðal annars fyrir nýjum
áfengislögum í Færeyjum.
Marita tók við af Atla P.
Dam sem lögmaður 1993, en
þótt Jafnaðarflokkurinn sæti í
stjórn eftir kosningarnar 1994
vildi hún ekki taka sæti í land-
stjórninni. Var hún forseti
þingsins í eitt ár, síðan al-
mennur þingmaður en gaf
ekki kost á sér í kosningunum
1998.
Marita
Petersen
látin
Þórshöfn. Morgunblaðið.
YFIR fimm þúsund manns komu
saman í kirkju í Sacramento í
Kaliforníu á sunnudag við útför
þeirra sex sem úkraínskur inn-
flytjandi myrti fyrir rúmri viku.
Lögregluþyrla sveimaði yfir kirkj-
unni og um 20 lögreglumenn
stóðu vörð ef maðurinn sem talinn
er hafa myrt fólkið kæmi til útfar-
arinnar. Nikolay Soltys er grun-
aður um að hafa skorið á háls van-
færa konu sína, þriggja ára son
sinn, frænku sína og frænda og
tvö ung skyldmenni sín 20. ágúst
sl. Soltys er efstur á lista banda-
rísku alríkislögreglunnar yfir eft-
irlýsta menn og hafa 70 þúsund
dollarar verið settir til höfuðs
honum.
Lögreglan telur líklegast að
Soltys sé enn í Sacramento eða ná-
grenni og eru yfir tíu skyldmenni
hans þar undir sérstakri vernd.
Engu að síður er leitað að Soltys
víðar, í San Francisco og Oregon,
og hefur lögreglan sérstaklega
beint athyglinni að Seattle, Charl-
otte í Norður-Karólínu og Bing-
hamton í New York en á þessum
stöðum hefur Soltys annaðhvort
búið áður eða á skyldmenni.
Útför í Sacramento
AP
SEX létu lífið er loftbelgur sprakk
í loft upp eftir að hafa rekist á raf-
magnslínu í frönsku Ölpunum á
sunnudag. Loftbelgurinn lagði upp
í stutta flugferð á sunnudagsmorg-
un frá Albertville og varð slysið er
loftbelgurinn var á leið aftur til
jarðar og rakst á 20.000 volta raf-
magnslínu, að því er fréttastofa
AP hefur eftir Laurent Moiron,
stöðvarstjóra á slökkvistöð stað-
arins.
Tveir farþegar létust er þeir
reyndu að forðast eldinn með því
að stökkva til jarðar og tveir köst-
uðust úr lofbelgnum við spreng-
inguna. Flugstjóri lofbelgsins og
einn farþegi til viðbótar fundust
um borð í belgnum um fimm km
frá Albertville.
Rannsókn stendur nú yfir á til-
drögum slyssins en rannsakendur
vilja komast að því hvort árekst-
urinn við rafmagnslínuna hafi or-
sakað það að eldur kviknaði í loft-
belgnum.
Fólk sem varð vitni að slysinu
kvaðst hafa séð eldtungur standa
upp úr belgnum áður en hann
rakst á línuna.
Loftbelgsstjórinn, Roger Fug-
ier, var mjög reyndur og hafði
margoft tekið farþega í útsýnis-
flug. Hann hafði meðal annars far-
ið yfir Gíbraltarsund og Pýrenea-
fjöllin í loftbelg.
Sex létust í loftbelgs-
slysi í Frakklandi
Verrens-Arvey, Frakklandi. AP.