Morgunblaðið - 28.08.2001, Side 22
Morgunblaðið/Billi
Nína Björk Elíasson og Kristín Bjarnadóttir sameina krafta sína.
Samspil ljóðlest-
urs og tónlistar
Árnadóttur. Báðar þekktum við
hana Nínu, og er þetta okkar leið til
að minnast hennar,“ segir Nína
Björk en hún hefur samið lög við
ljóð nöfnu sinnar Árnadóttur. Und-
anfarið hafa þær Nína Björk og
Kristín átt samstarf þar sem þær
flétta tónlist saman við upplestur
hinnar síðarnefndu á eigin ljóðum
úr bókinni Því að þitt er landslagið
sem út komið árið 1999. Kristín les
kafla úr bókinni og skapar Nína
Björk nokkurs konar undirleik með
röddinni. „Við fluttum hluta úr
þessu atriði á Menningarnótt í
Gautaborg í fyrra og fengum mjög
góð viðbrögð,“ segir nú Kristín.
„Það hefur verið mjög áhugavert
að flytja ljóðin með Nínu Björk.
Hún notast mikið við spuna, og því
verður til nokkurs konar samspil
milli ljóðlestursins og tónlistar-
innar.“ Á dagskránni hjá Nínu
Björk og Kristínu í kvöld eru einnig
nokkur ný ljóð eftir Kristínu, sem
hún kallar dansljóð. Einnig flytur
Nína Björk lög sem hún hefur sam-
ið við ljóð úr bókinni Dans í lokuðu
herbergi eftir Elísabetu Jökuls-
dóttur, auk fleiri verka.
Nína Björk er búsett í Kaup-
mannahöfn og er tekur virkan þátt
í tónlistarlífinu þar auk þess sem
hún hefur komið fram á tónleikum
víða á Norðurlöndum og í Evrópu.
Kristín Bjarnadóttir býr í Hagan í
Svíþjóð. Hún hefur birt frásagnir,
greinar og ljóð í blöðum og tímarit-
um, auk áðurnefndrar ljóðabókar.
Þær Kristín og Nína Björk hyggjast
gefa út geisladisk með flutningi sín-
um á ljóðunum úr bókinni.
HEIM og saman nefnist ljóða-
dagskrá sem haldin verður í Kaffi-
leikhúsinu í kvöld, kl. 21. Þær Nína
Björk Elíasson söngkona og Kristín
Bjarnadóttir ljóðskáld flytja þar
fléttur ljóða og tónlistar. „Við mun-
um flytja hluta úr dagskrá frá
Listasumari á Akureyri sem er
helguð minningu Nínu Bjarkar
LISTIR
22 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson varð í
gær fyrsti söngvarinn til þess að und-
irrita fastráðningarsamning við Ís-
lensku óperuna. Samningurinn mark-
ar tímamót í íslensku tónlistarlífi en
þetta er í fyrsta sinn sem gerður er
slíkur samningur við söngvara hér á
landi.
Samningurinn er til tveggja ára og
í honum felst að Ólafur Kjartan mun
taka þátt í óperuuppfærslum Óper-
unnar sem söngvari í burðarhlut-
verki. Hann mun einnig koma fram á
tónleikum á vegum Íslensku óper-
unnar og loks mun hann taka þátt í
þróun og mótun fræðsluefnis til kynn-
ingar á starfsemi Íslensku óperunnar
og óperulist almennt.
Ólafur Kjartan syngur hlutverk
Papagenós í Töfraflautunni eftir Moz-
art, sem frumsýnd verður í Íslensku
óperunni 22. september nk.
Við undirritun samningsins sagði
Bjarni Daníelsson óperustjóri að
verkefni Ólafs Kjartans yrðu fjöl-
breytt og að í hans verkahring yrði að
móta það starf að vera söngvari við
Íslensku óperuna. Hann sagði
reynslu af samvinnu við Ólaf Kjartan
hafa verið ákaflega góða,
en mestu skiptu þó um
ráðningu hans rödd og
framkoma í sérflokki.
Ólafur Kjartan þakk-
aði þann heiður sem hon-
um hefði verið sýndur
með því að verða fyrsti
atvinnusöngvarinn á Ís-
landi í þessari grein tón-
listar. Hann minnti á að
að baki þessum tímamót-
um stæðu margir góðir
söngvarar sem hefðu
hlúð að óperulistinni hér
á landi og plægt akurinn
með söng sínum og
nefndi hann Guðmund
Jónsson og Þuríði Páls-
dóttur í því sambandi.
Hann þakkaði þessum
fyrirrennurum sínum
þeirra störf og þarmeð
þann grundvöll sem þeir hefðu lagt að
þessum tímamótasamningi.
Ólafur Kjartan nam við Söngskól-
ann í Reykjavík hjá Guðmundi Jóns-
syni og við Royal Academy of Music í
London og Royal Scottish Academy
of Music and Drama í Glasgow. Þaðan
lauk hann meistaragráðu í óperusöng
sumarið 1998. Óperuhlutverk Ólafs
Kjartans eru m.a. Escamillo í Car-
men, Sulpice í Dóttur herdeildarinn-
ar, Bartolo í Rakaranum í Sevilla hjá
British Youth Opera og Garibaldo í
Rodelinda hjá Glyndebourne Touring
Opera. Á hlutverkaskrá hans eru einn-
ig Fígaró í Brúðkaupi Fígarós, Gug-
lielmo í Così fan tutte, Leporello í Don
Giovanni og Sid í Albert Herring. Önn-
ur viðfangsefni Ólafs Kjartans hafa
m.a. verið Sköpunin eftir Haydn á Co-
vent Garden Festival, Requiem eftir
Mozart með Sinfóníuhljómsveit Lund-
úna, Magnificat og óratoríur Bachs,
Requiem eftir Fauré, Messías Händ-
els, Rejoice in the Lamb eftir Britten,
Messe di Gloria eftir Puccini, Stabat
Mater og Petite Messe Solonelle eftir
Rossini og messur eftir Haydn.
Ólafur Kjartan hefur komið fram á
fjölda tónleika í Bretlandi, Frakk-
landi og á Íslandi, m.a. í Glasgow
Royal Concert Hall með Royal Scott-
ish National Orchestra og á tónleik-
um í St. Martin in the Fields í
London. Að auki hefur hann komið
fram í BBC Radio í Skotlandi. Hjá Ís-
lensku óperunni hefur Ólafur Kjartan
sungið hlutverk Tarquiniusar í Lúk-
retía svívirt árið 2000 og hlutverk
Shaunards í La Bohème síðasta vet-
ur.
Tímamót í íslensku tónlistarlífi er Íslenska óperan fastræður söngvara
Ólafur Kjartan Sigurðar-
son ráðinn til tveggja ára
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Bjarni Daníelsson óperustjóri og Ólafur
Kjartan Sigurðarson undirrita samninginn
um fastráðningu Ólafs Kjartans.
LISA Storm Villadsen prófessor við
Kaupmannahafnarháskóla heldur
fyrirlesturinn „Hinn þversagna-
kenndi flagari í „Flagaranum“ eftir
Jan Kjærstad í Norræna húsinu á
morgun, miðvikudag, kl. 12:15, en
skáldsagan hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs fyrir
skemmstu.
Lisa Storm skoðar mælskulist
sögunnar og listina að draga á tál-
ar, merkingu þess og möguleika.
Hún skoðar fyrirbærið eins og það
birtist í sígildum flagarabókmennt-
um á borð við Háskaleg kynni eftir
Laclos og Dagbók flagarans eftir
Kierkegaard. Meginniðurstaða
hennar er að Jonas Wergeland, að-
alpersónan í þríleik Kjærstad, sé
ákaflega tvíbentur flagari og að
skáldsagan í heild komist að þeirri
niðurstöðu að það að draga ein-
hvern á tálar kynferðislega hafi
misst sína upphaflegu merkingu í
nútímasamfélagi.
Lisa Storm fil.dr. er tímabundið
prófessor við heimspeki-, mælsku-
listar- og menntunardeild Kaup-
mannahafnarháskóla. Hún lauk
doktorsprófi frá Northwestern Uni-
versity, Illinois, USA í mars 2000.
Fyrirlesturinn er fluttur á dönsku
og er aðgangur ókeypis.
Fyrirlestur
um þver-
sagnir í
Flagaranum
SÍÐUSTU tónleikarnir í sumartón-
leikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafs-
sonar verða í kvöld kl. 20:30. Ingi-
björg Guðjónsdóttir sópran, Einar
Jóhannesson klarinettuleikari og
Valgerður Andrésdóttir píanóleikari
flytja verk eftir Louis Spohr, John
McCabe, Franz Lachner, Eyþór
Stefánsson, Karl O. Runólfsson, Jón
Ásgeirsson, Jórunni Viðar og Jón
Þórarinsson.
Ingibjörg segist hlakka sérstak-
lega til að syngja íslensku sönglögin.
„Það er orðið svolítið langt síðan ég
hef hlúð sérstaklega að þeim, – það er
gaman að syngja þessi klassísku ís-
lensku sönglög og verður gaman.“
Erlendu verkin sem Ingibjörg syng-
ur eru öll samin fyrir söngrödd, klar-
inettu og píanó. „Við syngjum verk
eftir Louis Spohr. Hann var mikill
fiðluvirtúós, en samdi mikið fyrir
klarinettu líka. Þetta eru ágætlega
þekkt verk, þrjú lög af sex, fyrir söng,
klarinettu og píanó; – saklaus lög og
textinn ljúfur; náttúran og ástin eru
þar sterk. Þetta er vel samið fyrir
þessa samsetningu og mikið jafnvægi
milli okkar allra. Svo erum við með
þrjú þjóðlög í útsetningu John
McCabe, sem er eitt virtasta tón-
skáld Breta. Lögin eru amerískt,
skost og breskt þjóðlag, – og mjög
skemmtilega útsett. Við ljúkum þess-
um hluta svo með Frauenliebe- und
leben eftir Franz Lachner. Hann var
uppi rétt á eftir Schubert, og þetta
var samið árið 1831 við fyrsta ljóðið
úr ljóðaflokknum sem Schumann
samdi við sitt vel þekkta verk. Ég
gæti ímyndað mér að þetta hafi aldrei
verið flutt hér áður. Þetta er mjög
Schubertlegt, – og maður heyrir áhrif
frá Hirðinum á hamrinum, sem Schu-
bert samdi fyrir sópran, klarinettu og
píanó. Það er skemmtilega ólík
stemmning í verki Lachner og í sam-
nefndu verki Schumanns; það er
miklu meiri léttleiki og glettni hér og
meiri rómantík.“
Ingibjörg segir að eitt af íslensku
lögunum verði flutt af þeim þremur,
en það er lag eftir Jón Ásgeirsson,
Vor hinsti dagur, við ljóð eftir Hall-
dór Laxness, en Jón útsetti það sér-
staklega fyrir þau þrjú.
Ingibjörg segir gott og gaman að
syngja í Sigurjónssafni. „Þetta er
yndislegur staður og gott að flytja
hér aðlaðandi tónlist fyrir sem fólk
hefur gaman af.“ Þær Ingibjörg og
Valgerður Andrésdóttir hafa starfað
saman frá árinu 1996, þegar þær voru
báðar í Danmörku. „Við höfum unnið
mikið saman og erum orðnar vanar
hvor annarri. Ég hef verið að gæla við
þá hugmynd í nokkur ár að fá Einar
Jóhannesson til liðs við okkur – það
gekk upp núna, og það er mjög gott
að starfa með honum. Hann er góður
söngvari auk þess að spila á hljóð-
færið, og það hefur sitt að segja. Það
er upplifun að vera að músisera með
fleira fólki og gaman að breyta til frá
því að vera bara með söng og píanó.
Þetta er öðru vísi – og allt í einu er
maður orðinn kammermúsíkant.“
Ingibjörg Guðjónsdóttir stundaði
söngnám í Tónlistarskóla Garða-
bæjar og í Indiana University í
Bloomington. Hún hefur haldið fjölda
einsöngstónleika og verið einsöngv-
ari með kórum og hljómsveitum bæði
hér á landi og erlendis og komið fram
með ýmsum þekktum hljómsveitum.
Ingibjörg hefur verið fulltrúi Íslands
á tónlistarhátíðum víða um heim og
hlotið verðlaun og viðurkenningar
fyrir list sína. Nítján ára gömul sigr-
aði hún í söngvakeppni Sjónvarpsins
og tók þátt í hinni frægu söngkeppni
„Cardiff Singer of the World“.
Einar Jóhannesson nam við The
Royal College of Music í London hjá
Bernard Walton og John McCaw og
vann þar til Frederick Thurston
verðlaunanna. Árið 1979 hlaut hann
Sonning-verðlaunin fyrir unga nor-
ræna einleikara og hélt þá til frekara
náms hjá Walter Boeykens. Einar
hefur komið fram sem einleikari og
hljóðritað fyrir fjölda útvarps- og
sjónvarpsstöðva í Evrópu, Asíu,
Bandaríkjunum og Ástralíu. Hann
hefur gegnt stöðu sólóklarínettuleik-
ara við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá
1980 og er einnig félagi í Blásara-
kvintett Reykjavíkur og Kammer-
sveit Reykjavíkur.
Valgerður Andrésdóttir stundaði
framhaldsnám í píanóleik við
Listaháskólann í Berlín hjá prof.
Georg Sava. Þaðan lauk hún burtfar-
arprófi árið 1992. Hún sótti einnig
reglulega námskeið hjá György Se-
bök. Valgerður hefur haldið fjöl-
marga tónleika innanlands og erlend-
is, unnið með söngvurum og leikið
kammermúsík.
„Þá er maður orðinn
kammermúsíkant“
Morgunblaðið/Sverrir
Tónlistarfólkið Einar Jóhannesson, Ingibjörg Guðjónsdóttir og Val-
gerður Andrésdóttir við eitt verka Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi.