Morgunblaðið - 28.08.2001, Page 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 23
KERAMIKGERÐ er heillandi,
ekki aðeins vegna efnisins og tækn-
innar heldur einnig út af hinni ríku
hefð og sögu sem nær mörg þúsund
ár aftur í tímann. Þó að keramik-
tækni sé vissulega notuð við gerð
frjálsra myndverka, höggmynda og
tvívíðra verka, hafa keramikhlutir
flestir verið gerðir með notagildis-
sjónarmið í huga sem hefur haft mót-
andi áhrif á lögun og útlit þeirra í
gegnum aldirnar. Það er stór ástæða
þess að listformið hefur ekki tekið
stökkbreytingum í gegnum tíðina og
þróunin hefur meira komið fram í til-
raunum með efni og vinnuaðferðir.
Þessi staðreynd gerir það að verkum
að hægt er að skoða og meta ker-
amikverk dagsins í dag í samhengi
við allt sem gert hefur verið í ker-
amiki í gegnum árþúsundin, sem
gefur þeim ákveðinn sögulegan
styrkleika.
Kristín S. Garðarsdóttir sýnir
þrjú sett af keramikverkum í List-
húsi Ófeigs. Í sýningarskrá eru verk-
in aðgreind með upplýsingum um
vinnsluaðferð frekar en heitum og
má ímynda sér að gaman væri að sjá
titla við verkin, slíkt gæti verið
áhugaverð viðbót. Fyrsta settið á
sýningunni er á lægri palli og sam-
anstendur af stórum skálum hand-
mótuðum úr postulíni og grófum
steinleir. Á efri palli eru fínlegri
verk. Það eru ýmis ílát, föt, skálar og
bollar úr postulíni steypt í gifsmót.
Þessi verk bera með sér ferskan blæ
og frjálsleg en hæfilega sparleg
notkun blás litar gefur þeim ríkan
karakter. Annað sterkt einkenni
verkanna er tilraunir með „pósitívt/
negatívt“ rými en listakonan hefur
t.d. gert gat í botninn í öðrum helm-
ingi skálar en í andstæða helminginn
upphleypta kúlu. Þriðja atriðið sem
áberandi er í þessum verkum, og
reyndar einnig í verkunum úr grófa
steinleirnum, er notkun 8-formsins,
þ.e. verkin eru í laginu eins og talan
átta. Í kristinni hugmyndafræði er
talan átta tákn upprisunnar og eilífs
lífs en hvort Kristín hefur haft það í
huga við gerð verkanna skal ósagt
látið.
Í miðjum hópi verkanna með bláa
litnum eru litlar skálar úr postulíni
sem brenndar eru í gasofni. Í upplýs-
ingum sem fylgja sýningunni kemur
fram að þegar postulín er brennt í
gasofni komi fram mismunandi blæ-
brigði eftir því hvar munirnir eru
staðsettir í ofninum. Blæbrigðamun-
ur var þó afskaplega lítill að sjá á
verkunum.
Verk Kristínar í Listhúsi Ófeigs
eru falleg og faglega er að sýning-
unni staðið. Í því samhengi bendi ég
á boðskortið sem liggur frammi á
sýningunni og sýningarsalinn sjálfan
sem hentar verkunum afar vel. Allir
gripirnir eru verðmerktir og vakti
hagstætt verð þeirra undrun mína,
en það er furðulega nálægt verði
fjöldaframleiddra gripa af sömu teg-
und.
Keramik 8ur
LISTHÖNNUN
L i s t h ú s Ó f e i g s
Opið virka daga kl. 11–18 og laug-
ardaga kl. 11–16. Til 29. ágúst.
LEIRLIST
KRISTÍN SIGFRÍÐUR
GARÐARSDÓTTIR
Morgunblaðið/Þóroddur
Frá sýningu Kristínar Sigfríðar Garðarsdóttur.
Þóroddur Bjarnason
GLÚMUR Gylfason, organisti Sel-
fosskirkju, leikur á fyrstu Sept-
embertónleikum kirkjunnar í
kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30.
Upphaf þessarar tónleikaraðar má
rekja til stækkunar orgelsins árið
1991 og mun orgelið hljóma á öll-
um tónleikunum sem framundan
eru í tónleikaröðinni.
Næsta þriðjudag, 4. september,
leikur Steingrímur Þórhallsson og
11. september Björn Steinar Sól-
bergsson.
Ásamt honum koma fram
Margrét Bóasdóttir sópran og
Nora Kornblueh selló. 18. sept-
ember leikur Douglas Brotchie á
orgelið. Tónleikaröðinni lýkur svo
25. september með leik Jörgs
Sondermanns.
Allir tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og eru innan við 50 mínútna
langir.
September-
tónleikar
í Selfoss-
kirkju
AUKASÝNING verður í kvöld,
þriðjudagskvöld, á leikritinu Fröken
Júlía – enn og aftur alveg óð. Leik-
sýningin er í Smiðjunni Sölvhólsgötu
13, gengið inn um port frá Klapp-
arstíg. Aðeins er um þessa einu sýn-
ingu að ræða.
Auka-
sýning á
Fröken Júlíu
♦ ♦ ♦
BJARNI H. Þórarinsson sjónhátta-
fræðingur opnaði á Menningarnótt
sitt 12. sjónþing í Reykjavík-
urAkademíunni í JL-húsinu, Hring-
braut 121, en hann er meðal þeirra
listamanna sem hlutu starfslaun
Reykjavíkurborgar á þessu ári.
Bjarni sýnir úrval af verkum sínum
undanfarin ár og einnig vísi að
næsta sjónþingi.
„Framsetning verka Bjarna er í
myndlistarformi nýs liststíls, þar
sem hann blandar saman handriti
og myndlist, og kallar benduvísilist
sem birtist í formi vísirósa. Höf-
undur kallar verkefnið Litlu ís-
lensku endurreisnina,“ segir í
kynningu.
Bjarni er stofnandi Vísiakadem-
íunnar og höfundur fræða hennar.
Sýningin er opin frá kl. 9-17
virka daga og stendur til 1. októ-
ber.
Bjarni H. Þórarinsson hóf sjón-
þing sitt með gjörningi.
Benduvísilist í
Reykja-
víkurAka-
demíunni