Morgunblaðið - 28.08.2001, Side 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 25
UNDIRRITUÐUM brá í brún
við lestur greinar í Fiskifréttum
dags. 24. ágúst undir fyrirsögninni
„Rangsleitni“. Þar vegur formaður
LÍÚ með miður smekklegum hætti
að einum dugmesta skipstjórnar-
manni Íslendinga á nýliðinni öld.
Orðrétt segir í niðurlagi greinar-
innar. „Það er ástæða til að óska
Ásgeiri Guðbjartssyni sérstaklega
til hamingju með að vera færður
veiðiréttur með þessum hætti með
hliðsjón af öllu því sem hann er bú-
inn að selja frá sér.“
Fyrst af öllu rifjuðu þessi um-
mæli upp fyrir mér máltækið, að
„gleymt er þá gleypt er“. Það eru
ekki mörg útgerðarfélög, sem
byggt hafa lengur og betur undir
sjóði LÍÚ en útgerð Ásgeirs til
fjörutíu ára, Hrönn hf. Formann-
inum virðist ofbjóða
allur sá veiðiréttur,
sem Ásgeir hefur selt
frá sér. Rétt er því og
skylt að bæta nokkuð
úr fáfræði þessa gam-
alreynda formanns. Ás-
geir Guðbjartsson hef-
ur aldrei selt frá sér
eitt einasta kvótatonn.
Þvert á móti var fyrir-
tæki hans eitt af
drýgstu kaupendum
veiðiheimilda, eða með
öðrum orðum „hann
vann með kerfinu“.
Útgerð Ásgeirs,
Hrönn hf., ákvað fyrir
nokkrum árum að sam-
einast útgerðarfélaginu
Samherja á Akureyri. Þessi sam-
eining fór ekki framhjá þjóðinni,
svo mikið var um hana fjallað í fjöl-
miðlum. Rétt er, að gefnu tilefni, að
rifja upp forsendur þess, að Ásgeir
Guðbjartsson og Guðmundur Guð-
mundsson útgerðarmaður ákváðu
að ganga til sameiningar við Sam-
herja hf. Þeir fengu ítrekuð loforð
stjórnenda Samherja um að engin
grundvallarbreyting yrði á útgerð
skipsins, þ.e.a.s. það yrði áfram
gert út frá Ísafirði. Loforð þessi
kristallast í orðum, sem eru þjóð-
inni kunn. „Hún verður áfram gul,
áfram gerð út frá Ísa-
firði með hinum dug-
miklu ísfirzku sjó-
mönnum.“
Þjóðin öll þekkir
einnig efndir Sam-
herja á drengskapar-
loforðum, sem þess-
um virta skipstjóra
og útgerðarmanni á
Ísafirði voru gefin.
Það verður hver og
einn að leggja sitt
mat á þá afstöðu
þeirra Ásgeirs og
Guðmundar að trúa
því, að staðið yrði við
það atriði, sem var
meginforsenda þess,
að sameiningin varð að veruleika.
En það er nú svo, að hin gömlu ís-
lenzku gildi orðheldni og dreng-
skapur vega létt á þingi verðbréf-
anna.
Ásgeir trúði því lengi vel ekki, að
menn yrðu með þeim hætti af aur-
um apar, að þeir opinberuðu slíkan
ódrengskap fyrir þjóðinni, en korn-
ið semfyllti mælinn, var þegar
ákveðið var að selja Guðbjörgina úr
landi. Þá ákvað hann að selja hlut
sinn í Samherja til að geta á ný haf-
ið uppbyggingu í sinni heimabyggð.
Fyrir það liggur hann nú undir
ámæli frá formanni LÍÚ.
Því er við þetta að bæta, að Ás-
geir Guðbjartsson hefur aldrei á
opinberum vettvangi tekið þátt í
þeim deilum, sem uppi eru um fisk-
veiðistjórnunarkerfið. Þaðan af síð-
ur hefur hann verið að vega að for-
ystu LÍÚ. Hins vegar hefur ekki
hjá því farið, að löng og farsæl störf
hans á sjónum hafa byggt undir þau
völd í þjóðfélaginu, sem formaður
LÍÚ nú nýtur. Vil ég því skora á
formanninn að biðja þennan sjötíu
og þriggja ára sævíking opinber-
lega afsökunar á ómarklegum orð-
um. Hann yrði maður að meiri.
Guðmundur
Halldórsson
Höfundur er formaður smábáta-
félagsins Eldingar.
Sjávarútvegur
Hin gömlu íslenzku
gildi, orðheldni og
drengskapur, segir
Guðmundur Hall-
dórsson, vega létt á
þingi verðbréfanna.
Guðbjörg ÍS-46.
Skora á formann LÍÚ
að biðjast afsökunar
Kringlunni, sími 568 9033.
Í haust er áherslan lögð á sindrandi mjúka húð, áberandi
varir, áhrifamikla innrömmun augnanna og glæsilegar neglur.
Haustlitirnir eru sólmettaðir - vínrautt, plómulitt, ryðgullið,
falleg tilbrigði Estée Lauder við sígild stef.
Nýjung sem gaman er að prófa:
In Color Lip and Eye Blocks, nútíma-
leg snyrtiaskja með varalit, augn-
skugga og „liner“.
Gerðu varirnar tælandi með Real
Rouge Lip Tint og prófaðu Copper
Lights Microfine lausa púðrið sem
sindrar á húðinni.
Fæst aðeins hjá Estée Lauder.
HAUSTIÐ ’01
Í LIT
HAUSTLITADÝRÐ, VÍNRAUTT,
PLÓMULITT OG RYÐGULLIÐ
ESTÉE LAUDER
Ráðgjafar frá Estée Lauder verða í versluninni þri. til lau.
Nokkur frábær fyrirtæki
1. Nýlegur tölvuskóli með mjög fullkomin tæki og góðan viðbúnað.
Frábært námsefni fylgir með. Selst vegna anna eigandans. Pláss
fyrir 36 nemendur. Allt nýtt og fullkomið. Aðalvertíðin er að
byrja.
2. Lítið en þekkt innrömmunarfyrirtæki til sölu. Ágætis aðstaða
fyrir sýningar og sölu á listmunum. Það geta allir innrammað.
Góð vinna fyrir hjón eða einstakling.
3. Þjónustufyrirtæki til sölu. Plöstun á kortum u.þ.h. Ljósritun. Nafn-
spjaldagerð. Óteljandi möguleikar. Gott og þekkt fyrirtæki. Auð-
velt fyrir hver sem er að læra þetta og það á skömmum tíma.
Ertu þreyttur á að vinna hjá öðrum, var kannski verið að segja
þér upp, eða er hætta á því? Þá er þetta tækifærið til að vera
sjálfstæður og eiginn herra.
4. Lítil blómaverslun með mikla veltu og á sanngjörnu verði. Vel
staðsett. Einnig selur hún fallegar gjafavörur. Gott tækifæri fyrir
tvær samheldnar vinkonur.
5. Heilsustofa með trimmform tæki og strada. Góð aðstaða á góðum
stað. Sanngjarnt verð.
6. Iðnfyrirtæki með prjónavélar sem framleiðir frábærar vörur,
betri en innfluttar (ekki peysur). Getur verið hvar sem er á land-
inu. Einstök gæðavara með fallegu útliti. Mikil hönnunarvinna
hefur átt sér stað.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SENNILEGA eru
þeir fáir, sem í dag
mundu mæla fyrir al-
gjörri einokun ríkisins
á útvarpi hér á landi,
eins og Stefán Jón
Hafstein fjölmiðla-
fræðingur taldi besta
kostinn fyrir Ísland og
Íslendinga í greinum
sínum í Vísi sáluga í
febrúar og apríl 1978.
Greinar Stefáns Jóns
Hafstein voru að ein-
hverju leyti viðbrögð
vinstrisinnaðs ung-
mennis við hugmynd-
um Sjálfstæðismanna
svo sem Guðmundar
H. Garðarssonar, þáverandi þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar lögfræð-
ings, Markúsar Arnar Antonssonar,
Þorsteins Pálssonar þáverandi rit-
stjóra Vísis og Ólafs Haukssonar,
sem allir töldu að leyfa ætti einka-
rekið útvarp hér á landi. Sumir
þessara manna, svo sem núverandi
útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins,
Markús Örn Antonsson og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, lögfræð-
ingur og borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, gengu svo langt að óska
eftir leyfi til einkarekins útvarps
þegar á árinu 1976 og Guðmundur
H. Garðarsson bar fram frumvarp á
Alþingi 1977 um afnám
einkaréttar Ríkisút-
vapsins. Markús Örn
og Vilhjálmur fengu
ekki útvarpsleyfi og
ríkiseinokun útvarps
var viðhaldið og þeim
gerð refsing, sem fóru
gegn henni jafnvel, þó
svo hagaði til að ríkið
gæti ekki staðið fyrir
útvarpsrekstri vegna
verkfallsaðgerða
starfsmanna sinna,
eins og reyndin var á
haustdögum 1984, sbr.
hæstaréttardóm frá
20. maí 1987 ákæru-
valdið gegn Kjartani
Gunnarssyni, Eiríki Ingólfssyni og
Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni.
Refsimál þetta, sem höfðað var
vegna einkarekins útvarps á haust-
dögum 1984, var ef til vill það, sem
þurfti til að sannfæra meirihluta Al-
þingismanna, um að einkaréttur
ríkisins til útvarps samrýmdist ekki
stjórnarskrárvörðum rétti einstak-
linga til atvinnu- og tjáningarfrelsis
(á þessum tíma prentfrelsis), eins
og komið hafði fram hjá Kjartani
Gunnarsyni við skýrslutökur hjá
lögreglu í áðurgreindu máli og í
máli verjanda hans Jóns Steinars
Gunnlaugssonar hrl.
Í dag á fimmtán ára afmæli Ís-
lenska útvapsfélagsins hf., ber að
þakka þeim einstaklingum, sem hér
að framan hafa verið verið nafn-
greindir svo og þingmönnum, sem
veittu frumvarpi til útvarpslaga
brautargengi á Alþingi 1985 fyrir
framlag þeirra í baráttunni fyrir af-
námi ríkiseinokunar á öldum ljós-
vakans. Þó frelsið sé fengið er bar-
áttunni fyrir tilvist einkarekins
útvarps hvergi nærri lokið og því er
skorað á framangreinda aðila og
alla þá sem una einkarekstri að
standa vörð um einkarekið útvarp
með því að berjast fyrir því að nauð-
ungaráskrift að ríkisútvarpinu verði
afnumin.
Baráttukveðja á afmæli
einkarekins útvarps
Sigurður G.
Guðjónsson
Fjölmiðlun
Þó frelsið sé fengið,
segir Sigurður G.
Guðjónsson, er barátt-
unni fyrir tilvist
einkarekins útvarps
hvergi nærri lokið.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður
og stjórnarmaður í Norðurljósum
samskiptafélagi hf.