Morgunblaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 31
sæti til Íslandsmeistara þegar þetta
hörmulega slys átti sér stað. Mikið
erum við þakklát fyrir þær stundir
sem við áttum með Brynjari því all-
ar voru þær góðar og var sérstak-
lega gaman að borða með honum
því ekki var sá matur til sem hann
var ekki tilbúinn að smakka.
Ég átti því láni að fagna að hafa
starfað með Brynjari í litlu fyr-
irtæki við Ármúla fyrir níu árum og
á því margar góðar minningar um
hann frá þeim vinnustað og nú síð-
astliðið ár vorum við saman félags-
kap sem ber nafnið Round Table og
fórum við meðal annars í mjög svo
eftirminnilega ferð í Offisera-klúbb-
inn á hersvæðinu í Keflavík.
Minningin um einstaklega góðan
og yndislegan dreng mun alltaf eiga
sinn stað í hjörtum okkar og varð-
veitast þar um ókomna framtíð.
Elsku Anna systir, Elli, Daníel
og Guðrún, orð eru svo lítils megn-
ug en við samhryggjumst ykkur og
megi algóður Guð styrkja ykkur á
erfiðum tímum.
Einn er maðurinn veikur
en með öðrum sterkur.
Einmana huga þrúgar
þarflaus kvíði.
Ef vinur í hjarta þitt horfir
og heilræði gefur
verður hugurinn heiður
sem himinn bjartur
og sorgar ský
sópast burt.
(J.G. Herder.)
Haraldur, Ragna,
Þorsteinn Andri, Inga
Björk og Ragna Björg.
Okkar fyrstu kynni af Brynjari
eru eftirminnileg, þessi glaðlegi og
hressi drengur varð strax vinur
okkar og félagi í go-kartinu. Hann
hafði þennan skemmtilega íþrótta-
mannsanda að stefna til sigurs en
alltaf á heiðarlegum forsendum.
Strax á fyrsta móti sýndi hann að
hann var efni í góðan ökumann þótt
hann sigraði ekki þá. En hann beið
ekki lengi eftir verðlaununum því á
fyrsta móti þessa árs stóðum við
félagarnir saman á palli og það ekki
í þetta eina skipti. Brynjar gat ekki
beðið eftir vorinu hann notaði hvert
tækifæri til að fara og æfa sig, jafn-
vel þótt það væri hálka, það var
bara betra eins og hann sagði. Þess
á milli aflaði hann sér upplýsinga
um akstur og uppsetningar á kört-
um. Hann var heill hafsjór fróðleiks
og ef við vorum ekki vissir um eitt-
hvað var bara nóg að spyrja Brynj-
ar, hann var oftar en ekki með
lausnir á hlutunum.
Áhugi hans á þessari keppnisí-
þrótt var svo mikill og einlægur að
við hin hlutum að hrífast með. Það
leið ekki sá dagur að hann kæmi
ekki við í búðinni hjá okkur til að
ræða um bílana, keppnina eða ann-
að það sem snerti íþróttina.
Brynjar var alltaf svo léttur í
lund og hafði gaman af smá prakk-
araskap. Honum fannst gaman að
stríða stelpunum Svövu og Evu,
sem eru að keppa með okkur, með
símhringingum og smáskilaboðum.
Eitt skipti sendi hann tölvupóst á
alla kartara þar sem hann var að
velta fyrir sér hvaða nafn ætti að
gefa þessum hóp og þar var efst á
lista „Gellukartklúbbur Svövu“.
Þetta var ekta hann.
Brynjar bjó til þennan litla
kjarna með léttleika sínum og glað-
værð. Sá kjarni stendur þétt saman
á þessari stundu. Það var mikil til-
hlökkun að fara norður á Sauð-
árkrók að keppa, þetta var líka síð-
asta keppni sumarsins. Við ókum
saman þrír félagarnir norður en að-
eins tveir frændurnir til baka með
söknuð í hjarta og þungt hugsi yfir
þessu hörmulega slysi.
Við þökkum góðum dreng fyrir
samverustundirnar og óskum hon-
um góðrar ferðar á öðrum go-kart-
brautum.
Innilegar samúðarkveðjur til for-
eldra, bróður og annarra ættingja.
Bogi Guðmundur og
Steinar Freyr.
Fleiri minningargreinar
um Brynjar Örn Hlíðberg bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝ Anton Gunnars-son fæddist á
Reykjum í Ólafsfirði
30. september 1927.
Hann andaðist á St.
Jósefsspítala í Hafn-
arfirði 20. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Þorgrímur
Gunnar Ásgrímsson,
f. 1. júní 1903, d. 11.
desember 1981, og
Guðfinna Stefanía
Sigurðardóttir, f. 4
nóvember 1901, d.
19. janúar 1984.
Systkini Antons eru:
1) Ásgrímur Gunnarsson, f. 11.
október 1931, kvæntur Ástu Dóm-
hildi Björnsdóttur, f. 8. október
1929; 2) Halla Gísladóttir (fóstur-
systir), f. 27. október 1938, gift
Guðlaugi Eyjólfssyni, f. 23. októ-
ber 1933.
Hinn 8. apríl 1950 kvæntist Ant-
on Sveinhildi Torfadóttur, sjúkra-
liða, f. 4. febrúar 1926. Foreldrar
hennar voru Torfi
Karl Eggertsson, f.
29. ágúst 1893, d. 17.
janúar 1951, og Guð-
rún Sigríður
Brandsdóttir, f. 22.
október 1898, d. 16.
júní 1972. Sonur
Antons og Sveinhild-
ar er Torfi Karl Ant-
onsson, náttúru-
fræðingur, f. 27.
október 1951. Kona
hans er Ingibjörg
Erla Jósefsdóttir, f.
16. desember 1951.
Börn þeirra eru: 1)
Jósef Trausti (fóstursonur Torfa),
f. 4. nóvember 1972. Börn hans
eru Alexander Birgir, f. 21. sept-
ember 1994, og Hafsteinn Aron, f.
19. júlí 1998. 2) Sveinhildur, f. 22.
febrúar 1977, og 3) Erla Hjördís,
f. 22. maí 1983.
Útför Antons fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Stundum fylgir frétt af andláti
einhvers þakklæti og svo var þegar
ég heyrði af andláti Antons, eða
Tona eins og hann var alltaf kallaður
innan fjölskyldunnar. Þá vissi ég að
hann þurfti ekki lengur að þjást, að
veikindastríðinu var lokið, ekki endi-
lega með sigri einhvers, heldur ein-
ungis umbreytingu.
Eins og alltaf flögrar hugurinn svo
til baka og maður rifjar upp sam-
skiptin við þann sem horfinn er af
sjónarsviðinu. Eiginlega man ég eft-
ir Tona alveg frá því ég var lítil
stelpa. Hann var kvæntur Sveinhildi
móðursystur minni og ég minnist
þess hversu ættfræðin þvældist fyrir
mér þegar mamma var að skýra það
út að þótt Stella væri frænka mín
væri Toni ekki frændi minn. Sú ætt-
fræði hentaði mér ekki og þrátt fyrir
útskýringar mömmu voru þau alltaf í
mínum huga Stella frænka og Toni
frændi.
Þau höfðu kynnst á „Súðinni“ við
Grænland og bjuggu fyrsta hjúskap-
arárið í Ólafsfirði en fluttu síðan
1952 til Reykjavíkur. Þar man ég
fyrst eftir heimili þeirra í kjallara-
íbúð við Laugarnesveginn. Toni hóf
nám í múrverki við Iðnskólann í
Reykjavík og tók sveinspróf frá þeim
skóla í júlí 1959. Meistari hans var
Guðvarður Sigurðsson, móðurbróðir
hans. Árið eftir sveinsprófið gerðist
hann félagsmaður í Múrarafélagi
Reykjavíkur og starfaði við iðn sína
allt fram til ársins 1996. Ég sá Tona
alltaf fyrir mér sem traustan, hæg-
látan og þægilegan mann. Fjöl-
skyldumann sem sótti sína vinnu,
var alltaf áreiðanleikinn uppmálaður
og gekk hinn gullna meðalveg í nán-
ast öllu í gegnum lífið. Hann var góð-
ur vinur vina sinna og þegar á þurfti
að halda var hann alltaf tilbúinn til
að rétta hjálparhönd og nutum bæði
móðir mín og við systkinin góðs af
því.
Toni hafði mikið dálæti á Kiljan og
ég man oft eftir honum í góðum hæg-
indastól með bók við hönd og einnig
því hvað honum þótti gaman að ræða
um skrif skáldsins síns. Hann hafði
sterkar skoðanir í pólitík og keypti
einungis Þjóðviljann en hafði ekkert
á móti því að lesa Moggann þegar við
vorum í nábýli við hann og hann gat
fengið hann lánaðan hjá mömmu.
Bæði Stella og Toni lögðu mikið
upp úr fjölskyldutengslum og fylgd-
ust vel með systkinabörnunum þeg-
ar þau eltust. Eftir að ég stofnaði
mína eigin fjölskyldu hitti ég þau
samt sjaldnar en áður, en í hvert sinn
sem við hittumst voru alltaf fagnað-
arfundir. Í mörg ár vakti árleg heim-
sókn okkar hjóna til þeirra með nýj-
an lax gleði og ánægju. Og Stella og
Toni voru ein þau fyrstu sem lögðu á
sig ferð vestur að Hellnum, til að
skoða nýjan búsetustað okkar eftir
að við fluttum þangað.
Þrátt fyrir mikil veikindi geislaði
gleðin í augum Tona þegar ég hitti
hann í vor í fermingarveislu hjá fjöl-
skyldunni og þá gleði ætla ég að
muna. Ég og fjölskylda mín sendum
Stellu frænku og Torfa og Ingu og
börnum þeirra og barnabörnum okk-
ar einlægustu samúðarkveðjur.
Guðrún G. Bergmann.
ANTON
GUNNARSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
!
! " #$
#% &$ #$
' ( )
*+
, - . / ! %$
0
+ !
+ 1
"
#
"
2 3 2
,,0 ! +$ $44
"*%"
$% !
&
'
()(
" '
'*
1 *
! '* / *
5 %'* 1&
'* ' "'
+ !
+ 1
*
)
)
+
!
'+'
#
!
)05
6 %'478
" 1
,
)
'
'(
- (
. /
( + ' *+
*+ ) "
%1
) " ' (%
! ' ) " 0!/1
! (1) "
! '
-
+ !!-
+ 1
!"#"
$ %& "' "%#"
!" %& ( ) *#)#"
%! $&
## $#"
* !"&
!"#" +, -" . %&
, ', !"#"
. %! (/ +, &0