Morgunblaðið - 28.08.2001, Page 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 33
samband ríkt á milli foreldra og
systkina. Siggi var góður maður sem
unni fjölskyldu sinni og vinum vel.
Hann hafði sérstaklega góða nær-
veru, breitt bros og hlý augu. Minn-
ingarnar eru margar og lifa í hjörtum
okkar um ókomna framtíð.
Við höfum fylgst með uppvexti
Evu Maríu í gegnum árin. Hún var
lífsglöð og yndisleg stúlka, hafði ein-
staklega fallegt bros. Þrátt fyrir ung-
an aldur hafði hún ferðast víða og
upplifað margt, m.a. dvalið í Mexíkó
sem skiptinemi. Hún starfaði sem
flugfreyja en hugði á frekara nám í
vetur. Mikil gleði ríkti hjá fjölskyld-
unni við að fá Evu Maríu heim úr
langri dvöl erlendis vegna starfa
sinna.
En lífið er hverfult og stutt er á
milli gleði og sorgar.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós, og lýstu mér,
kom, líf, er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árin.
(Þýð. Vald. Briem.)
Elsku Magga, Jón Stefán og fjöl-
skylda, megi góður Guð vera með
ykkur og gefa ykkur styrk á þessum
erfiðu tímum.
Við sendum samúðarkveðju til
fjölskyldna þeirra sem einnig létu líf-
ið í þessu hörmulega slysi.
Jónína, Jóhanna, Margrét,
Sigríður, Edda, Hafdís,
Elín og fjölskyldur.
Félagi minn og vinur til margra
ára og áratuga, Sigurður Jónsson, er
fallinn frá. Skyndilega og öllum á
óvart.
Kunningsskapur okkar hófst í
gegnum knattspyrnu hjá Þrótti og
vakti Siggi strax athygli manna þar
vegna áhuga í leik og hvernig hann
fórnaði sér algjörlega fyrir liðið og
hafði hann ófáar skrámur og meiðsli
af. En alltaf mátti bóka að Siggi
kæmi aftur og með góð ráð fyrir okk-
ur hina ef eitthvað bjátaði á hjá okk-
ur í skrokknum. Þrátt fyrir baráttu
innan vallar var enginn ljúfari en
Siggi utan vallar. Alltaf stutt í brosið
og gat talað við alla.
Svo það átti vel við hann að vera
sölumaður sem hann var alla tíð.
Tryggð Sigga gagnvart Þrótti var
algjör.
Sama hvernig gengi félagsins var,
alltaf mátti ganga að því vísu að hann
væri á staðnum ef eitthvað var um að
vera hjá félaginu í starfi eða leik.
Það kom því öllum í opna skjöldu
að honum skyldi vera kippt útaf af
Honum sem öllu ræður. Og við sem
áttum eftir að gera svo margt saman.
Svo margt sem ekki náðist að segja.
Allt í einu er leiknum lokið og að því
er virðist bara af því að það vantaði
rifu á glugga.
Innilegar samúðarkveðjur send-
um við, ég og fjölskylda mín, Möggu
og Nonna á þessum erfiðu tímum og
vonandi mun tíminn græða flest sár-
in. Minningin um góðan dreng mun
lifa með okkur lengi.
Sverrir Brynjólfsson.
Í dag kveð ég mág minn og vin,
Sigurð Jónsson.
Elsku Siggi. Ég kynntist þér ung
að árum og þegar ég lít til baka, geri
ég mér ljóst, hversu mikil áhrif þú
hafðir á mitt líf. Það var ekki af því að
þú værir að reyna að stjórna mínu
lífi, heldur vegna þess að ég leit svo
upp til þín. Þú varst maðurinn henn-
ar stóru systur. Þú varst Þróttari, ég
var Þróttari. Þú fórst í Verzló, ég fór
í Verzló. Þú réðst mig í mína fyrstu
alvöru vinnu, þegar ég var aðeins
tæplega 16 ára, því þú hafðir svo
mikla trú á mér. Allt mitt líf varst þú
sá, sem örvaðir mig til dáða, bæði í
íþróttum og lífinu sjálfu.
Þú valdir mér eiginmann, þótt þú
hafir ekki vitað af því sjálfur. Þér
fannst Biggi svo æðislegur, að þá
fannst mér það bara líka. Þú hjálp-
aðir okkur að byggja og ef eitthvað
þurfti að mála sérstaklega vandlega,
þá hringdum við í þig. Þú varst okkur
alltaf innan handar við erfiðar
ákvarðanir og við mátum þitt innlegg
mikils.
Ég og þú áttum áhugann á íþrótt-
um sameiginlegan og einnig að mak-
ar okkar skildu ekkert í svoleiðis
tímaeyðslu. Stundum fannst mér
eins og við værum að stelast til að
tala um íþróttir í fjölskylduboðum og
skilja hina útundan. En það var ekki
bara talað um íþróttir. Þú hafðir ein-
staka frásagnargáfu og hafðir lent í
svo mörgum ævintýrum um ævina að
hægt væri að skrifa heila bók. Ynd-
islegasta frásögnin var þegar þú
varst lítill strákur og varst að lesa
hasarblöðin um Superman og fleiri.
Þú settir á þig lak og stökkst niður af
svölunum og varst svo hissa að þú
flaugst bara beint niður en ekki upp í
loftið eins og í Supermanblaðinu.
Mín síðasta minning um þig er
þegar við systkinin, makar og börn
fórum saman í Veiðivötn fyrir verzl-
unarmannahelgi. Þetta var þinn
helgistaður. Ég fór með þér og
Nonna út að veiða um hálffimmleytið
og prófuðum við nokkur vötn en ekk-
ert gekk. Við enduðum í Litla Sjó,
þar sem menn voru að fá nokkuð
væna fiska rétt hjá okkur. Þú hafðir á
tilfinningunni að hann væri að koma
á hjá þér og væri bara tímaspursmál
hvenær hann biti á agnið. Kannski
bara kortér, sagðir þú. Ég var orðin
köld og svöng og mig var farið að
lengja eftir að komast í grillið og hit-
ann í skálann hjá hinum. Þú gerðir
það fyrir mig að hætta snemma,
þrátt fyrir að fiskarnir væru að
svamla í kringum öngulinn þinn. Það
lýsir því best, hve þér þótti vænt um
mig.
Elsku Siggi, takk fyrir allt. Þið
Eva María passið hvort annað og
vakið yfir Nonna og Margréti. Guð
geymi ykkur!
Þín mágkona
Ásta.
Kveðja frá starfsmönnum
Flugfélagsins Atlanta
Það voru sorgarfregnir sem bár-
ust starfsfólki Flugfélagsins Atlanta
í síðastliðinni viku. Eva María hafði
látist í hörmulegu slysi ásamt föður
sínum og tveimur samferðamönnum.
Það var glaðlynd stúlka sem mætti
á flugfreyjunámskeið hjá félaginu í
október mánuði árið 1998 og er mér
einkar ljúft að minnast þess að hafa
verið einn af leiðbeinendum hennar.
Sem flugfreyja starfaði Eva María
við ýmis verkefni, lengstum í Madrid
á Spáni.
Í byrjun árs 2000 tók hún sér frí
frá störfum til að stunda iðnhönnun-
arnám. Röskun varð á námi m.a.
vegna verkfalla og því gekk hún til
liðs við félagið að nýju á þessu ári og
hefur starfað í Afríku, Mexíkó og
Frakklandi.
Eva María kom heim um miðjan
þennan mánuð til að undirbúa sig
fyrir áframhaldandi nám við hönnun
í Frakklandi.
Jafnframt því að leysa afar vel af
hendi starf sitt sem flugfreyja sam-
lagaðist hún ágætlega þeim stóra og
fjölþjóðlega hópi starfsmanna sem
starfar hjá félaginu.
Ég flyt hugheilar kveðjur frá öll-
um samstarfsmönnum og þá ekki síð-
ur þeim stóra hópi félaga og vina
hennar sem staddir eru erlendis og
koma því ekki við að vera viðstaddir
útför hennar.
Eigendur og starfsmenn Flug-
félagsins Atlanta senda móður,
systkinum, ættingjum og vinum Evu
Maríu innilegar samúðarkveðjur.
Evu Maríu verður sárt saknað.
Blessuð sé minning hennar.
Þorsteinn Schweitz
Þorsteinsson, deildarstjóri
þjónustuliða.
Fleiri minningargreinar um Sig-
urð Jónsson og Evu Maríu Sigurð-
ardóttur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
0
#
5,
0.<
- 1+! ! '*
2 4=
"
$4 !
-(
56 ! $5 56
7
)
'
*
'(
-(
8
//
-(
"
'
5
*+ !2*5*
!
) ! >5* +!
! '
+ !
+ 1
0 2.0
- ?*
@
%)'
9
6 !
&
56 ! $5 56
(
' (
/
0! $ - 1
0
, .
$(
' ! A
- - '
6 !
:(
)
% ! $5 56
7
'
/ 8
//
, -
, - 5 0!
*+ ! -
-,
*+ %
B ! !- 1
0
"
#
"
#
<.
1
,,0 B"%CC
"*%"
, !!
, !!
* / , !! '-
! , !! 5 $
!
+ 1
"
"
.<D<.
,0
,,0 $CE
; !
*+ !
F
%1
F
%"
F %$-
F ) !
+ !
+ 1
*
)
(
+
! '+'
!
" " "
" (
/D
/ ,,. "" ;4
"*%"
' %' ! G - ' 1
. /
( 5 %/ ! %$
5 % *
! ' #
!
*+ !
! ' )!() '$
/
*+ /
*+ 1
+ !
+ 1
7
+
!
!
/+
"
"
.#.
,,.
5 "( 4=
" 1H
*+
6 *$ ) '
!
'*. 6 *$
! $#
*+
/ + 6 *$ &>
*+ 6 *$ ' (%-
!
+ 1
<
)
)
'+
! /" (
!
"
"
0.
0D< .<).
,,. IB
' JJ
K(?1
,
)
" *
/
1 "
. /
(
!
! %'
"
! &L
#%
'$ "
) ! >
+-
, -
'**-
@ (!
+ !
+ 1