Morgunblaðið - 28.08.2001, Qupperneq 35
Kveðja frá
Ferðafélagi Íslands
Fallinn er mikill og traustur liðs-
maður Ferðafélags Íslands. Haukur
Bjarnason var í stjórn þess í 21 ár og
átti sæti í bygginganefnd, ferðanefnd
og skemmtinefnd þess í fjölmörg ár.
Fyrir störf sín var hann sæmdur
gullmerki félagsins.
Sá, sem þessar línur ritar, kynntist
Hauki Bjarnasyni ekki fyrr en Hauk-
ur hafði horfið frá stjórnarstörfum í
félaginu. Af annnálum Árbókar
Ferðafélagsins var honum hins veg-
ar ljóst að ærin verk höfðu verið unn-
in í þeim nefndum sem Haukur sat í.
Tuttugu og eitt ár er langur tími í
þágu áhugamannafélags. Þótt form-
legu umboði til stjórnarsetu og
nefndarstarfa lyki, hélt Haukur
áfram störfum í þágu félagsins, fús
til ráðgjafar og miðlunar upplýsinga
til þeirra sem við tóku. Hann hélt
merki félagsins hátt á loft þegar þess
helst við þurfti og fáni sá, er félagið
notar á hátíðar- og sorgarstundum,
er til orðinn að hans frumkvæði.
Hann var manna fróðastur um sögu
Ferðafélagsins og samdi ásamt konu
sinni skrá yfir alla höfunda Árbóka,
stjórnarmenn og nefndarmenn
félagsins allt frá stofnun þess árið
1927 til loka síðasta árs.
Haukur var ljúfur maður í öllu fasi
og gott dæmi þess, er hefst af verk-
um sínum en ekki af hávaða eða ytri
fyrirferð. Hann var lánsmaður í
einkalífi sínu. Kona hans, Þórunn
Lárusdóttir, studdi hann í öllum
félagsstörfum og ekki síst, er úr
starfsgetu hans dró sökum veikinda.
Félagar í Ferðafélagi Íslands minn-
ast látins félaga með virðingu og
þökk fyrir samfylgdina. Konu hans,
börnum og venslafólki er vottuð sam-
úð.
Höskuldur Jónsson.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 35
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguð-
sþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænarefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Grafarvogskirkja. Innritun í Barna-
og unglingakórinn (11 ára og eldri)
verður í dag, þriðjudaginn 28.ágúst
kl.16:00-17:30 í Grafarvogskirkju.
Innritunargjald kr. 2000.-Innritun í
Krakkakórinn (7 -10 ára) er kl.17:30-
18:30. Inritunargjald kr.1.500-
Hjallakirkja. Bænastund kl. 18.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13–16 í safnaðarheimili
Vídalínskirkju. Kaffi á könnunni.
Hægt að grípa í spil, rabba saman og
yfirleitt að hitta mann og annan í
góðu tómi.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára
starf alla þriðjudaga kl. 17–18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga kl.
18.15–19.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudaga kl. 10–12.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
STARFSMANNAFÉLAG Greining-
ar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins vill
koma eftirfarandi á framfæri vegna
umfjöllunar um stöðu stofnunarinnar
í fjölmiðlum undanfarnar vikur.
Starfsmannafélag Greiningar-
stöðvarinnar lýsir yfir áhyggjum af
því ástandi sem ríkir vegna fjárhags-
vanda stofnunarinnar. Hlutverk
Greiningar-og ráðgjafarstöðvar ríkis-
ins er að greina fötlun hjá börnum og
ungmennum auk þess sem starfs-
menn gefa leiðbeiningar um leiðir til
að draga úr áhrifum fötlunarinnar.
Greiningarstöðin starfar samkvæmt
lögum um málefni fatlaðra og er ætl-
að að þjóna öllu landinu.
Í byrjun sumars lýsti forstöðumað-
ur Greiningarstöðvarinnar yfir
áhyggjum sínum af atgervisflótta og
þeim samdrætti í þjónustu sem fyr-
irsjáanlegur væri fyndist ekki lausn á
fjárhagsvanda stofnunarinnar. Yfir-
völd félagsmála hafa ekki brugðist við
og afleiðingarnar eru nú óðum að
koma í ljós. Sérhæfður starfsmaður
hefur sagt upp störfum og enginn
verður ráðinn í hans stað. Tveir
starfsmenn hafa farið í barnsburðar-
leyfi án þess að hægt hafi verið að
ráða í afleysingar fyrir þá. Vitað er að
fleiri starfsmenn eru farnir að líta í
kringum sig eftir betur launuðum
störfum. Alls er óvíst að hæft fólk
fengist til starfa, þótt gefið væri leyfi
til að ráða í laus störf, vegna þeirra
launa sem í boði eru og höfum við nú
þegar skýr dæmi um slíkt. Vegna
þessa hefur reynst óhjákvæmilegt að
draga úr þjónustu og frekari sam-
dráttur er óumflýjanlegur verði ekk-
ert að gert.
Skjólstæðingum Greiningarstöðv-
arinnar hefur fjölgað síðustu ár langt
umfram aukningu á stöðugildum.
Álag á starfsfólk hefur aukist og
stjórn starfsmannafélagsins hefur
þungar áhyggjur af því að afleiðing-
arnar verði frekari flótti frá stofnun-
inni. Við höfum ekki síður áhyggjur
af neikvæðum áhrifum þessarar
stöðu á börn með fötlun og fjölskyld-
ur þeirra. Í Morgunblaðinu 6. júlí sl.
birtist grein eftir móður fatlaðs barns
þar sem hún fer fram á varanlega
lausn á vanda Greiningarstöðvarinn-
ar. Þar benti hún á þá staðreynd að
foreldrar fatlaðra barna eiga ekki í
nein önnur hús að venda. Í máli henn-
ar kom einnig fram mikilvægi mennt-
unar og starfsreynslu starfsfólks á
sérhæfðri stofnun eins og Greining-
arstöðinni. Við tökum undir orð henn-
ar og bendum á að sú sérþekking,
sem er forsenda starfsemi stofnunar-
innar, fæst einungis með starfs-
reynslu, þjálfun og sérhæfðri teym-
isvinnu. Ljóst er að þessi sérþekking
mun glatast stofnuninni verði ekki
gripið nú þegar til viðeigandi ráðstaf-
ana.
Starfsmannafélag Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins lýsir yfir
stuðningi við forsvarsmenn stofnun-
arinnar. Við skorum á yfirvöld félags-
mála að finna varanlega lausn á
vandamáli sem kemur fyrst og fremst
niður á þeim sem síst skyldi.
Kópavogi, 23. ágúst 2001,
Bryndís Halldórsdóttir
fræðslufulltrúi,
Hrönn Björnsdóttir,
félagsráðgjafi á fötlunarsviði 2,
Svandís Ása Sigurjónsdóttir,
sálfræðingur á fötlunarsviði 4,
Þuríður Pétursdóttir,
sálfræðingur á fötlunarsviði 1.
Yfirlýsing frá starfsmannafélagi
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
textil.is
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Vélstjóri óskast
Vélstjóra vantar á Eyvind KE-99 sem er að hefja
dragnótaveiðar í Faxaflóa frá 1. september.
Upplýsingar í síma 892 0766.
Skipstjóra vantar
á togara í Namibíu
Áhugasamir sendi inn umsóknir til auglýsinga-
deildar Mbl., merktar: „Skipstjóri Namibía“,
fyrir 15. september.
Afgreiðslustarf
Okkur vantar nú þegar góðan starfsmann til
afgreiðslustarfa í verslun okkar að Austurst-
rönd 14, (við Eiðistorg). Vinnutími eftir hádegi
virka daga auk helgarvinnu ef vill.
Upplýsingar gefa Kristjana í síma 699 5423 og
Margrét í síma 561 1433.
Hjúkrunarfræðingar
Deildarstjóri óskast frá 1. október 2001, á hjúkr-
unardeild sem er í smíðum og tekur væntan-
lega til starfa í nóvember.
Skemmtilegt og spennandi verkefni fyrir hjúkr-
unarfræðinga sem hafa áhuga á að byggja upp
og skipuleggja nýja hjúkrunardeild. Menntun
og reynsla í stjórnun æskileg og að eiga auð-
velt með mannleg samskipti.
Upplýsingar veitir Áslaug Björnsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, sími 560 4163 eða netfang
aslaslaug@sunnuhlid.is .
Forstöðumaður
NORDITA
Kaupmannahöfn, Danmörku
NORDITA, norræn stofnun um kennilega eðlisfræði, auglýsir
lausa stöðu forstöðumanns frá 1. ágúst 2002. NORDITA heyrir
undir Norrænu ráðherranefndina. Hlutverk stofnunarinnar er að
sinna rannsóknum og skapa fræðilegt umhverfi sem stenst strangar
alþjóðlegar kröfur, auk þess að efla og þróa norræna samvinnu
á sviði grunnrannsókna og menntunar í kennilegri eðlisfræði.
Forstöðumaður þarf að hafa framúrskarandi hæfni á rannsókna-
sviði, hafa reynslu af stjórnun stofnunar/rannsóknarhóps, og stjórn-
sýsluhæfileika. Staðan krefst góðra samskiptahæfileika í ræðu
og riti, á ensku og einu Norðurlandamáli, góða þekkingu á norræn-
um aðstæðum og hafa góð sambönd við aðra fræðimenn á Norður-
löndunum og víðar. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sinni til jafns
vísindalegum rannsóknum og stjórnunarstörfum.
Að öllu jöfnu er ráðið í stöðuna til fjögurra ára, með möguleika
á framlengingu til annarra fjögurra ára, hið mesta. Samkvæmt
samkomulagi milli norrænu landanna jafngildir staða hjá
NORDITA starfi hjá hinu opinbera og veitir rétt til starfsleyfis
frá norrænum háskóla.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og skrá yfir útgefin rit, sendist til:
Professor Dan-Olof Riska,
Styrelseordförande, NORDITA
Blegdamsvej 17
DK-2100 København, Danmörk,
í síðasta lagi 30. september 2001. Nánari starfslýsingu er að finna
á slóðinni www.nordita.dk/positions .
Hefur þú áhuga á að
vinna með fólki?
Félagsþjónustan í Reykjavík óskar eftir að ráða
starfsfólk til starfa við búsetuþjónustu geð-
fatlaðra í borginni.
Starfið felst í að aðstoða einstaklingana við
daglegt líf þeirra heima og heiman. Reynsla
af starfi með geðfötluðum er æskileg.
Um er að ræða vaktavinnu. Laun samkvæmt
kjarasamningum Reykjavíkurborgar og hlutað-
eigandi stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður
Kristinsdóttir, forstöðumaður, í síma 567 0017
eða 899 8145 f.h. virka daga.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst nk. Umsóknare
Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu
Félagsþjónustunnar að Síðumúla 39. Umsókn-
um skal skila til Félagsþjónustunnar í Reykjav-
ík, starfsmannastjóra, Síðumúla 39, merkt
„búsetuþjónusta“.
Hljóðdeild
Starfsmaður óskast í hljóðdeild Þjóðleikhússins
leikárið 2001 til 2002.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu í hljóð-
vinnslu og almennri viðhaldsvinnu hljóðtækni-
búnaðar. Unnið er á vöktum. Laun fara eftir
kjarasamningi RSÍ við ríkissjóð.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, berist skrifstofu Þjóðleikhússins,
Lindargötu 7, fyrir 5. september nk.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
KIRKJUSTARF FRÉTTIR