Morgunblaðið - 28.08.2001, Qupperneq 39
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 39
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga
nema mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu
og Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu
er alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað
mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn:
Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös.
kl. 13–16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dag-
skrá á internetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu-
daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
maí–september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl.
13–16 alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er
opið alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í
s. 553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn
alla mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán-
._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið
er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími
575-7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga
frá 1. júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskóg-
um 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl.
11–17 til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leið-
sögn eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og
handverksmunum. Kaffi, kandís og kleinur. S.
471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi.
S. 567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s.
422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið
frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S.
462 3550 og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS,
Einholti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á
öðrum tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-17.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030,
bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is –
heimasíða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og
sun. til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmynd-
um. Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–
16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði,
er opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september.
Sími sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv.
samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–
18. S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suð-
urgötu. Handritasýning opin:1. júní - 25. ágúst mánu-
daga - laugardaga kl. 11.00 - 16.00
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla
daga kl. 10–18. Opnað fyrir hópa utan þess tíma. For-
sýning á safni Landmælinga Íslands. Maríukaffi býð-
ur upp á gómsætar veitingar. Til sölu steinar, minja-
gripir og íslenskt handveerk. S. 431 5566. Vefsíða:
www.islandia.is/steinariki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mán-
uði frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir
geta pantað leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl.
í símum 861-0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýn-
ingar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla
daga frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl.
10–19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14–18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1.
júní – 1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í
sumar frá kl. 11–17.
UM helgina voru sjö öku-
menn stöðvaðir vegna
gruns um ölvun við akst-
ur. Þá var tilkynnt um 39
árekstra.
Bílvelta varð á laugardagskvöld á
Vesturlandsvegi við Víkurveg.
Tvennt var flutt á slysadeild með
minniháttar meiðsli. Ökumaður er
grunaður um ölvun við akstur.
Ekið var á 10 ára stúlku í Fanna-
fold. Hún meiddist á hné og var flutt
á slysadeild.
Síðdegis á laugardag ók vörubif-
reið með tengivagn aftan á fólksbíl á
Suðurlandsvegi við Rauðavatn. Far-
þegi í fólksbifreiðinni meiddist
minniháttar.
Tuttugu innbrot voru tilkynnt til
lögreglu um helgina, flest í ökutæki
þar sem stolið er sýnilegum verð-
mætum.
Brotist var inn í nýbyggingu á
Kjalarnesi og þaðan stolið vélum og
verkfærum.
Brotist var inn í bíla á nokkrum
stöðum í borginni, oft við útivistar-
svæði, almenningsbílastæði eða bíla-
geymslur. Lögreglan minnir á að því
miður er tilefni slíkra skemmda og
þjófnaða að verðmæti eru skilin eftir
sýnileg í bifreiðum.
Hugðust ekki greiða
fyrir matvöruna
Brotist var inn á heimili í Breið-
holti og stolið verðmætum; skart-
gripum, DVD-myndum, 200 geisla-
diskum og hljómflutningstækjum.
Á laugardagsmorgun var karl-
maður handtekinn í fyrirtæki í Hlíð-
unum. Öryggiskerfi fór í gang en
maðurinn gat ekki gert grein fyrir
veru sinni í fyrirtækinu.
Höfð voru afskipti af feðgum eftir
þjófnað og líkamsárás þeirra á
sunnudag. Feðgarnir höfðu farið í
verslunarleiðangur síðdegis á
sunnudag en höfðu ekki uppi áform
um að greiða fyrir matvöruna sem
þeir tíndu í burðarpoka. Þegar
starfsmaður hugðist ræða við þá um
greiðslu var hann sleginn í andlitið af
syninum. Vörurnar sem feðgarnir
höfðu týnt til voru að verðmæti rúm-
lega 30 þúsund.
Ökumaður var stöðvaður í Vest-
urbergi aðfaranótt sunnudags. Við
leit fundust ætluð fíkniefni og landi.
Annar ökumaður var stöðvaður á
Selásbraut aðfaranótt sunnudags
þar sem einnig fannst landi og hafði
ætluðum fíkniefnum verið hent út úr
bílnum. Tveir voru handteknir vegna
málsins.
Lögreglan varð að leysa upp ung-
lingateiti í heimahúsi í vesturbænum
um miðnætti á sunnudag. Sex ung-
mennum, sem flest voru um 14 ára
gömul, var ekið heim. Á sama stað
haldlagði lögregla tvær haglabyssur
og 150 haglaskot sem lágu á glám-
bekk. Að mati lögreglu er það
ábyrgðarhlutur þegar foreldrar
samþykkja slík veisluhöld ung-
menna án þess að nokkur fullorðinn
sé á staðnum.
Haglabyssur á glámbekk
í samkvæmi unglinga
Úr dagbók lögreglu – 24. til 26. ágúst
Morgunblaðið/Júlíus
Bíll valt á Vesturlandsvegi á móts við Víkurveg á ellefta tímanum á
laugardagskvöld. Loka þurfti vesturakrein Vesturlandsvegar um tíma.
Í VIÐTALI í Morgunblaðinu 25.
ágúst sl. við Hjálmar W. Hannesson
sendiherra, er ekki gefin rétt mynd af
samskiptum okkar við Kanada og
Kína. Þeir, sem lesa greinina, mættu
halda, að nú fyrst væri verið að taka
upp stjórnmálasamband við Kanada
og Kína. Sú er ekki raunin. Hjálmar
er ekki fyrsti sendiherra okkar í þess-
um löndum, þótt hann sé fyrsti sendi-
herrann sem er búsettur í þessum
löndum.
Fyrsti sendiherra okkar í Kanada
var Thor Thors árin 1947 til 1965 með
búsetu í Washington. Síðan komu
þeir hver af öðrum: Pétur Thorsteins-
son, Magnús V. Magnússon, Guð-
mundur Í. Guðmundsson, Haraldur
Kröyer, Hans G. Andersen, Ingvi S.
Ingvarsson, Tómas Á. Tómasson,
Einar Benediktsson, Jón Baldvin
Hannibalsson allir með búsetu í
Washington og sendiherrar þar.
Hjálmar W. Hannesson er því nr. 11 í
röðinni.
Fyrsti sendiherra okkar í Kína var
Sigurður Bjarnason árin 1973 til 1976
með búsetu í Kaupmannahöfn. Pétur
Thorsteinsson, Benedikt Gröndal og
Ingvi S. Ingvarsson næstu sendiherr-
ar í Kína voru með búsetu í Reykja-
vík. Hjálmar W. Hannesson var
fimmti sendiherra okkar í Kína, en sá
fyrsti með búsetu í Peking.
Oddný Thorsteinsson.
Athugasemd
Sendiherrar
Íslands í
Kanada og Kína
Í KVÖLD, þriðjudaginn 28. ágúst,
verður farið í síðustu kvöldgöngu
sumarsins um Viðey og hefst hún með
siglingu yfir sundið kl. 19:30.
Gangan verður með óvenjulegu
sniði því, ásamt því að fara um vestu-
hluta eyjunnar verður boðið til kúm-
entínslu. Fólk sem hefur áhuga á
tínslunni er því beðið um að koma
með skæri og poka.
Þeir sem hafa áhuga á að tína kúm-
en, en komast ekki í kvöld og vita ekki
hvernig það lítur út, geta haft sam-
band við leiðsögumann og mælt sér
mót til tínslunnar út vikuna.
Fyrir ferðina í kvöld er nauðsyn-
legt að fólk klæði sig eftir veðri og
verði í góðum skóm. Leiðsögnin er án
endurgjalds, en í ferjuna kostar kr.
400 fyrir fullorðna og 200 fyrir börn.
Kúmen tínt
í Viðey
EDMUND Gussmann flytur fyrir-
lestur miðvikudaginn 29. ágúst kl.
16.15 í boði Íslenska málfræðifélags-
ins. Fyrirlesturinn er í stofu 422 í
Árnagarði og nefnist „A Double
Agent in the Phonology of Icelandic“.
Edmund Gussmann er prófessor í
almennum og keltneskum málvísind-
um við háskólann í Gdansk. Hann
hefur fengist við hljóðkerfisfræði,
orðhlutafræði og málbreytingar í
ýmsum tungumálum, þar á meðal
ensku, íslensku, pólsku og írsku.
Hann hefur samið fjölda bóka og
greina og nýjasta bók hans, Phono-
logy: Analysis and Theory, verður
gefin út hjá Cambridge University
Press í haust.
Fyrirlestur á vegum
málfræðifélagsins
HINIR árlegu merkjasöludagar
Hjálpræðishersins á Íslandi verða að
þessu sinni frá miðvikudeginum 28. til
föstudagsins 31. ágúst.
Merkjasala Hjálpræðishersins er
þýðingarmikil fjáröflunarleið fyrir
starf hans hér á landi, segir í frétta-
tilkynningu. Tekjur af merkjasölunni
eru notaðar til að fjármagna barna-
og unglingastarfið sem nú er að hefj-
ast að afloknu sumarfríi.
Merkið verður selt á götum
Reykjavíkur og Akureyrar og einnig
verður víða selt í húsum. Verðið er hið
sama og undanfarið ár, 200 krónur.
Það er von Hjálpræðishersins að
sem flestir kaupi merki og styrki
þannig félags- og hjálparstarfið, segir
í tilkynningu frá Hernum.
Merkjasala
Hjálpræðis-
hersins
♦ ♦ ♦