Morgunblaðið - 28.08.2001, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í TILEFNI greinar Kristins Péturs-
sonar fyrrverandi alþingismanns.
„Kiddi minn, voðalega hefur legið
illa á þér þegar þú sendir okkur ná-
grönnum þínum á Eiði dembuna í
Mogganum miðvikudaginn 22. ágúst.
Ekki hefði okkur órað fyrir, að við
ættum í huga þínum eftir að njóta
þess sérstaka heiðurs að verða til-
nefndir til upptöku í heimsmetabók
Guinness fyrir argaþras. Og fyrir þá
sök að vera vondir við og djöflast
endalaust í Kananum. Fyrr hefði okk-
ur dottið í hug að þú sjálfur ættir
kannski eftir að komast í slíka bók,
fyrir annars aðdáunarvert þref þitt
um fáránleika hins íslenska fiskveiði-
stjórnarkerfis. Blaðaskrifa sem
margir vona að verði ásamt baráttu
annarra hópa í þjóðfélaginu til þess að
ganga af kvótakerfinu dauðu. Órétt-
látu kerfi sem margir spá að verði
lagt af, sama dag og höfundur þess og
þeir sem hrifsuðu til sín kvótagróð-
ann verða flúnir land.
Þess utan þá er það skoðun okkar,
að ef einhver ætti skilið að komast í
heimsmetabækur í tilefni þessa sér-
staka máls, þá eru það starfsmenn og
stjórnendur utanríkisráðuneytisins.
Þann vafasama heiður bæri þeim, fyr-
ir met í undirlægjuhætti gagnvart
bandarískum hernaðaryfirvöldum og
þjónkun við þeirra hagsmuni, gegn
hagsmunum íslenskra ríkisborgara.
Það er bandaríski herinn sem er eig-
andi eiturefnahauganna á Heiðar-
fjalli, og honum ber samkvæmt því að
fjarlægja þá.
Það örlar líka á óskiljanlegri öfund
hjá þér, vegna þess að við munum
„hugsanlega ef til vill geta haft pen-
inga út úr öllu saman“ eins og þú
orðar það sjálfur. Er það fráleitt í þín-
um huga að þiggja skaðabætur fyrir
það lítilræði að hafa setið uppi með
þúsundir tonna af eitruðum herstöðv-
arúrgngi yfir vatnsbólum okkar í
meira en 30 ár? Þetta er samviskusp-
urning sem við ætlumst ekki til að þú
svarir. Þú ættir sjálfur að minnast
orða okkar dáða og margblessaða for-
sætisráðherra, þegar hann í um-
ræðum um kvótakerfið vandaði um
við fólkið í landinu. Þá fullyrti hann að
það væri lágkúrulegt af almenningi
að vera að öfundast út í hina útvöldu,
sem fengu „sameign“ þjóðarinnar út-
hlutað án endurgjalds.
Kæri Kiddi, ég vona að þú getir í
framtíðinni fundið þér eitthvað annað
til að skammast þín fyrir, en baráttu
nokkurra einstaklinga fyrir að stjórn-
arskrárvernduð eignar- og mannrétt-
indi verði virt.
Varðandi hugmyndir þínar um
kaup „á öllu klabbinu“, eins og þú
orðar það svo skemmtilega, þá mun-
um við ekki svara tilboðum þess efnis
opinberlega. En verðum væntanlega
tilbúnir til viðræðna undir réttarvegg
í haust, ef þú verður í traustum
félagsskap.“
SIGURÐUR R. ÞÓRÐARSON,
Glaðheimum 8, Reykjavík.
„Heiðarfjallið
í heimsmet“
Frá Sigurði R. Þórðarsyni:
ÉG ER foreldri barns í leikskólanum
Álfabergi í Hafnarfirði. Leikskóli
þessi er í gömlu húsi á góðum stað og
líður börnunum þar vel. Eitt er það
þó sem skyggir á gleðina og er það
umhirða og frágangur á lóðinni.
Girðingin kringum lóðina er orðin
götótt og tvö leiktæki þarfnast við-
halds en fá ekki. Fjárveiting til við-
halds leiktækja þetta árið mun vera
50.000 kr. Kofi og bíll, hvort tveggja
úr timbri, er orðið brotið en þó hefur
lítillega verið átt við þessi tæki í
sumar. T.d. var þak kofans málað,
eina umferð, en ekki hefur verið gert
við það sem brotið er né heldur hafa
naglar verið dregnir úr sem standa
út úr. Gert var við annað sætið í bíln-
um, einnig var ,,mælaborð“ lagað og
bíllinn síðan málaður. Eftir stendur
að hitt sætið er brotið og gat er á
,,húddi“. Ég er nokkuð viss um að sá
starfsmaður sem þetta gerði gerði
það af heilum hug og gekk ekkert
nema gott eitt til. Eftir stendur að
leiktæki þessi eru brotin og kofinn er
allt að því hættulegur. Þessi leiktæki
eru með þeim vinsælustu hjá krökk-
unum og væri því synd ef þyfti að
fjarlægja þau. Í sumar voru fjar-
lægðar tvær klifurgrindur þar sem
þær teljast hættulegar. Í staðinn
kom gamalt vegasalt frá einhverju
öðru leiksvæði og erum við ekki
ósátt við það að fá gamalt svo fremi
sem það er boðlegt og í lagi. Lóðin
sjálf er að mestu möl þannig að þeg-
ar rignir eru börnin mjög óhrein.
Vakin hefur verið athygli bæjar-
stjórnar á málinu og var það gert í
byrjun sumars en lítið gengur. Hinn
14. júní svarar einn bæjarfulltrúi því
til að hann búist við að aukafjárveit-
ing vegna viðhalds á leiktækjum
leikskóla og róluvalla verði afgreidd
á næstu dögum en ennþá hefur það
ekki gerst.
Á sama tíma horfum við upp á ný-
smíðaða stiga sem munu hafa kostað
1.600.000 kr. Stigar þessir komu úr
tveimur áttum niður í hraungjótu,
rétt við leikskólann, og er göngustíg-
ur á milli. Ekki er ég að hallmæla því
að umhverfi sé fegrað en eftir að
hafa fylgst með þessum tröppum í
nokkurn tíma skil ég þetta ekki al-
veg því það eru 4-8 sem nota þessar
tröppur á dag. Minnihlutinn í Hafn-
arfirði hefur flutt tillögu í bæjar-
stjórn að varið verði 2 milljónum
króna til viðhalds og endurnýjunar á
leiktækjum á róluvöllum og leikskól-
um, en sú tillaga hefur enn ekki
fengið afgreiðslu. Mál þetta allt
minnir á Hafnarfjarðarbrandara og
því er fyrirsögnin eins og hún er.
Hægt er að fylgjast með framgangi
málsins á heimasíðu foreldrafélags-
ins http://home.islandia.is/alfaberg.
GUÐMUNDUR FYLKISSON,
Reykjavíkurvegi 27, Hafnarfirði.
Hafnarfjarðar-
brandari 2001
Frá Guðmundi Fylkissyni:
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.