Morgunblaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 41
Útsala!
Glæsilegar yfirhafnir
Opið laugardag frá kl. 10—15
Mörkinni 6, sími 588 5518,
opið laugardaga kl. 10-15.
20 - 50%
meiri lækkun á
útsöluvörum
Tilboð
Barnamyndatökur verð frá kr. 5.000
Innifalið 1 stækkun 30x40 cm í ramma,
aðrar stækkanir að eigin vali, með allt að
50% afslætti
Ljósmyndastofan Mynd, sími: 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími: 554 3020
Tilvalið námskeið fyrir fólk á leiðinni út á
vinnumarkaðinn eða þá sem vilja styrkja
stöðu sína með aukinni menntun. Námið er
258 stundir. Næstu námskeið hefjast í byrjun sept.
og tölvunám
Windows 98
Word 2000
Excel 2000
Power Point 2000
Internetið frá A-Ö
Lokaverkefni
Bókhald - Tölvubókhald
Verslunarreikningur
Sölutækni og þjónusta
Mannleg samskipti
Framkoma og framsögn
Almennt um tölvur
Tímastjórnun
Örfá
sætilaus
Helstu námsgreinar
Skrifstofu
Upplýsingar og innritun:
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
NTV Hafnarfirði - 555 4980
NTV Kópavogi - 544 4500
NTV Selfossi - 482 3937
n
t
v
.i
s
nt
v.
is
n
tv
.i
s
Ég var hjá ykkur í Skrifstofu- og tölvunámi jan-maí og langaði bara
til að þakka kærlega fyrir mig. Mér líkaði alveg rosalega vel við allt
skipulag og uppsetningu á náminu og það hefur nýst mér vel í mínu
nýja starfi. Ég starfa nú hjá Flugleiðum á Keflavíkurflugvelli, er ritari
Yfirstjórnar Flugþjónustunnar.
Ég er lengi búin að vera á leiðinni að hafa samband og þakka fyrir mig og læt nú loks
verða að því. Svo er aldrei að vita nema maður snúi aftur, því auglýsingatæknin heillar
mig mikið. Enn og aftur takk kærlega, ég er viss um að ykkar skóli á hlut í því að ég sé
hér í dag. Kveðja Anna
K
la
p
p
a
ð
&
k
lá
rt
/
ij
HÓTEL OG GISTIHEIMILIÐ
HÖFÐI ÓLAFSVÍK
Frábærar aðstæður fyrir
ráðstefnur, fundi og námskeið.
Sími 436 1650
netfang; hotel.hofdi@aknet.is - www.norad.is/hotelhofdi .
brautir &
gluggatjöld
Faxafen 14, sími 525 8200
Efni
frá
kr. 100
og margt
margt fleira
Útsala
TAFLFÉLAGIÐ Hellir fagnaði 10
ára afmæli félagsins á laugardaginn
með veglegu skákmóti sem haldið var
í nýju félagsheimili þess í Álfabakka
14a í Mjódd. Taflfélagið Hellir var
stofnað 27. júní 1991 og voru félags-
menn þá sjö. Um þessar mundir eru
félagsmenn á þriðja hundrað og félag-
ið er meðal öflugustu taflfélaga lands-
ins hvað varðar starfsemi og styrk-
leika.
Afmælismót félagsins var vel sótt
og voru þátttakendur 51, þar af 5
stórmeistarar. Hannes Hlífar Stef-
ánsson sigraði á mótinu, hlaut 13
vinninga af 14 mögulegum og tapaði
ekki skák. Helgi Ólafsson varð annar
með 12 vinninga. Hann sigraði alla
andstæðinga sína 2–0, nema Hannes.
Jón Viktor Gunnarsson varð þriðji
með 10½ vinning. Röð efstu manna
varð þessi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 13 v.
2. Helgi Ólafsson 12 v.
3. Jón Viktor Gunnarsson 10½ v.
4.–5. Páll A. Þórarinsson, Þröstur
Þórhallsson 10 v.
6.–7. Snorri Guðjón Bergsson, Jón
L. Árnason 9 v.
8.–17. Arnar E. Gunnarsson, Helgi
Áss Grétarsson, Róbert Harðarson,
Ingvar Ásmundsson, Björn Þorfinns-
son, Sigurbjörn J. Björnsson, Sigurð-
ur Daði Sigfússon, Tómas Björnsson,
Magnús Örn Úlfarsson, Lenka
Ptácníková 8½ v.
18. Andri Áss Grétarsson 8 v.
19.–23. Ásgeir P. Ásbjörnsson, Jón
Garðar Viðarsson, Sæberg Sigurðs-
son, Hrannar Björn Arnarsson, Bragi
Halldórsson 7½ v.
24. Þorvarður F. Ólafsson 7 v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Gunnar Björnsson.
Að mótinu loknu bauð félagið til hófs
til að fagna nýja húsnæðinu í Álfa-
bakka 14a og farsælu starfi undanfar-
in 10 ár.
Guðmundar mót Arasonar
Skákmót Guðmundar Arasonar
fólst að þessu sinni í keppni milli ís-
lenskra og svissneskra drengja og
stúlkna sem lauk um helgina í Olten í
Sviss. Íslenska drengjaliðið sigraði
16½–15½. Kvennaliðið tapaði hins
vegar ½–7½. Svisslendingar unnu því
samtals 23–17. Guðjón Heiðar Val-
garðsson stóð sig frábærlega og sigr-
aði í öllum sínum viðureignum. Ár-
angur íslensku skákmannana varð
þessi:
Drengir 17–20: Halldór Brynjar
Halldórsson 2½ v., Davíð Kjartans-
son 2 v., Stefán Bergsson 1½ v., Guðni
Stefán Pétursson ½ v. Samtals:
6½–9½
Drengir 16 ára og yngri: Guðjón
Heiðar Valgarðsson 4 v., Dagur Arn-
grímsson 3 v., Guðmundur Kjartans-
son 2 v., Björn Ívar Karlsson 1 v.
Samtals: 10–6
Stúlkur 20 ára og yngri: Aldís Rún
Lárusdóttir ½ v., Harpa Ingólfsdóttir
0 v. Samtals: ½–7½
Fararstjórar og liðsstjórar voru
Haraldur Baldursson og Ríkharður
Sveinsson. Sem fyrr var það Guð-
mundur Arason sem gerði þennan
viðburð mögulegan.
Heimsmeistaramót unglinga
Bragi Þorfinnsson hefur nú hlotið 5
vinninga og er í 40.–54. sæti á Heims-
meistaramóti unglinga í Grikklandi
eftir 10 umferðir. Stefán Kristjánsson
hefur 5½ vinning og er í 27.–39. sæti.
Efstur er armenski alþjóðlegi meist-
arinn Gabriel Sargissian (2.514) með
8 vinninga. Mótið er 13 umferðir og
lýkur 29. ágúst.
Skák frá Norðurlandamótinu
Árangur Arnars Gunnarssonar á
nýlega afstöðnu Norðurlandamóti í
skák vakti athygli. Í fyrstu umferð-
unum var það hins vegar Sævar
Bjarnason sem dró að sér athyglina
með því að sigra næststigahæsta
keppandann á mótinu, danska stór-
meistarann Lars Schandorff (2.551),
en Sævar hefur oft á tíðum reynst
stórmeisturunum skeinuhættur.
Hvítt: Sævar Bjarnason
Svart: Lars Schandorff
Katalónsk byrjun
1. c4 e6 2. g3 d5 3. d4 Rf6 4. Rf3
dxc4 5. Da4+ c6
Svartur hefur um tvær aðrar leiðir
að velja, annaðhvort 5 ... Rbd7 6. Bg2
a6 7. Dxc4 b5 eða 5. -- Bd7 6. Dxc4
Bc6 o.s.frv.
6. Dxc4 b5 7. Dc2 Bb7 8. Bg2 Rbd7
9. a4 c5!? 10. 0–0 --
Hvítur græðir ekkert á 10. axb5
cxd4, t.d. 11. 0–0 Bc5 12. Dd2?! e5 13.
Dg5? h6! 14. Df5 Be4 15. Dh3 Bd5 16.
Bg5 e4 17. Rfd2 0–0 18. Bxf6 Rxf6 19.
Ra3 e3 20. fxe3 d3 21. Rdc4 dxe2 22.
Hfe1 Hc8 23. Hxe2 Bxc4 24. Rxc4
Dd3 og hvítur gafst upp (Helgi Áss
Grétarsson – Hector, Reykjavík
1996)
10 ... a6 11. axb5 axb5 12. Hxa8
Bxa8 13. Bg5 Db6 14. Rbd2 Rd5
Þetta mun vera nýr leikur í stöð-
unni. Eftir 14 ... Be7 15. Bxf6 Bxf6 16.
dxc5 Rxc5 17. Hc1 Ra4 18. Dc8+ Dd8
19. b3 Bxf3 20. Rxf3 Rb6 21. Dc5 Rd7
22. Dxb5 0–0 23. Hd1 Db8 24. Dxb8
Rxb8 25. b4 Rc6 26. b5 Re5 27. Rxe5
Bxe5 28. b6 g5 29. e3 átti hvítur betra
tafl, sem hann vann (Skembris –
Prentos, Katerini 1993)
15. Ha1 Bb7 16. Rb3 c4 17. Ra5 h6
18. Rxb7 Dxb7 19. Bd2 Be7 20. b3
cxb3 21. Dxb3 0–0 22. Re1 Hc8 23.
Ha5 Hb8 24. Rd3 Dc6
Svartur verður að fara varlega.
Eftir 24 ... Bd8 25. Ha2 Bc7 26. e4
R5f6 27. e5 Rd5 28. Rf4 R7b6 29.
Dxb5 vinnur hvítur peð með betra
tafli.
25. Rf4 R7f6 26. e4 Rxf4 27. Bxf4
Db6 28. Ha2 --
Eftir 28. Da2 leikur svartur 28. --
Hc8, en ekki 28. -- b4? 29. Bxb8 b3 30.
Ha8! bxa2 31. Bc7+ Bd8 32. Hxa2
Bxb6 o.s.frv.
28 ... Hd8 29. d5 exd5 30. exd5 Bc5
31. h3?! --
Hvítur hefði betur leikið 31. Bf3,
ásamt 32. Kg2 og hefur þá áfram
þægilegra tafl.
31 ... He8?
Schandorff missir af leið, sem hefði
gefið honum þægilega stöðu.
Eftir 31 ... Rh5!, t.d. 32. Bc1 (32.
Be5? He8 33. He2? Hxe5! 34. Hxe5
Bxf2+ 35. Kh1 Rxg3+ 36. Kh2 Bg1+
37. Kxg3 Dg6+ 38. Kf3 Df6+ 39. Ke4
Dh4+ 40. Kf3 Df2+ 41. Kg4 Dd4+
42. He4 f5+) 32. -- Hc8 33. Ba3 b4 34.
Hc2 Rxg3 35. Bxb4 Re2+ 36. Hxe2
Dxb4 o.s.frv.
32. Bf1 b4 33. Kg2 Rh5 34. Bc1 Df6
35. Hc2 Bd6 36. Hc6 De5 37. Df3
Rf6??
Eftir 37 ... Hd8 hefði svartur vænt-
anlega haldið sínu með bestu tafl-
mennsku, þótt hann verði að gæta sín.
38. Bf4 --
Svartur gafst upp, því að biskupinn
á d6 fellur óbættur.
Hannes Hlífar sigraði
á Afmælismóti Hellis
SKÁK
H e l l i s h e i m i l i ð
27. ágúst 2001
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson