Morgunblaðið - 28.08.2001, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Stella
Pollux kemur og fer í
dag. Helgafell kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Oz-
ernitsa fór í gær. Ver-
land og Brúarfoss kom í
gær. Bitland kom í gær
og fer í dag.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstudaga
til Viðeyjar kl. 13, kl. 14
og kl. 15, frá Viðey kl.
15.30 og kl. 16.30. Laug-
ardaga og sunnudaga:
Fyrsta ferð til Viðeyjar
kl. 13 síðan á klukku-
stundar fresti til kl. 17,
frá Viðey kl. 13:30 og síð-
an á klukkustundar
fresti til kl. 17:30. Kvöld-
ferðir eru föstu- og laug-
ardaga.: til Viðeyjar kl.
19, kl. 19:30 og kl. 20, frá
Viðey kl. 22, kl. 23 og kl.
24. Sérferðir fyrir hópa
eftir samkomulagi. Við-
eyjarferjan sími
892 0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Viðeyj-
arferju kl.10:30 og kl.
16:45, með viðkomu í
Viðey u.þ.b. 2 klst. Sími
892 0099
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl 2,
opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl. 17-
18.
Mannamót
Aflagrandi 40 og
Hraunbær 105. Samein-
inleg sumarferð í Vík í
Mýrdal miðvikudaginn
29. ágúst, lagt af stað frá
Aflagranda kl. 9:30 og
frá Hraunbæ kl. 10. Ekið
verður um Vík í Mýrdal
kirkjan skoðuð og
prjónastofan Víkurprjón
heimsótt. Í bakaleiðinni
verður ekið um Reyni-
staðahverfi og Fljótshlíð.
Fólk hafi með sér nesti.
Fararstjóri Anna Þrúður
Þorkelsdótir. Skráning í
Aflagranda s. 562-2571
og í Hraunbæ s. 587-
2888.
Aflagrandi 40. Skráning
er hafin á námskeið í
postulínsmálningu,
myndlist og bútasaum.
Ef næg þátttaka fæst
verður boðið upp á jóga-
tíma. Skráning og nánari
upplýsingar í afgreiðslu
Aflagranda 40 sími
562257. Nokkur sæti
laus í ferðina til Víkur í
Mýrdal á morgun.
Árskógar 4. Kl. 9-12
bókband og öskjugerð,
kl. 13-16:30 opin smíða-
stofa, kl. 10-16 púttvöllur
opinn. Allar upplýsingar
í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8:30 böð-
un, kl. 9-16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 9:30 morg-
unkaffi/dagblöð, kl.
11:15 matur, kl. 15 kaffi.
Félagstarf aldraðra
Garðabæ. Miðvikudag-
inn 29. ágúst er ferð í
Elliðarárdal. Rúta frá
Kirkjuhvoli kl.13:30.
Rafveitustöðin skoðuð.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 11:30 matur, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 15 kaffiveitingar,
Félagsstarf aldraðra á
Suðurnesjum. Dagana
27.- 29. ágúst, ferð í
Skagafjörð lagt að stað
frá SBK kl. 9, gist að
Hólum í Hjaltadal, tvær
nætur með fæði. Þriðju-
daginn 4. sept. hálfs
dags ferð í Borgarfjörð
m. a. Hvanneyri, Borg á
Mýrum, Borgarnes, lagt
af stað frá SBK kl. 12.30.
Þeir sem áhuga hafa á
ferð til Kanarí eyja hafi
samband sem fyrst,
dvalið verður á íbúðar-
hótelinu Los Tilos, farið
verður um mánaðamótin
janúar-febrúar.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Í
dag hefjast aftur saum-
ar eftir sumarfrí kl.
13:30. Púttað á Hrafn-
istuvelli milli kl. 14-16. Á
morgun verður pílukast
kl. 13:30. Innritun á
myndlistarnámskeið hjá
Rebekku er hafin.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10-13. Matur í hádeg-
inu. Göngu-Hrólfar
ganga frá Hlemmi mið-
vikudaginn 29. ágúst kl.
9.50. Baldvin Tryggva-
son er með fjár-
málaráðgjöf 31.ágúst
n.k. panta þarf tíma.
Dagsferð 5. september.
Sögustaðir í Rang-
árþingi. Brottför frá
Glæsibæ kl. 9. Leiðsögn
Pálína Jónsdóttir.
Skráning hafin. Silf-
urlínan er opin á mánu-
dögum og mið-
vikudögum frá kl. 10-12
f.h. Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10-16 í s.
588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9-12 hár-
greiðsla, sjúkraböðin kl.
9-14:30, morgunkaffi kl.
9-11, hádegisverður kl.
11:30-13, kl. 12:45 Bón-
usferð, eftirmiðdags-
kaffi kl. 15-16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16:30 vinnustofur
opnar m.a. perlusaumur
umsjón Kristín Hjalta-
dóttir, frá hádegi spila-
salur opinn, kl. 13 boccia
umsjón Óla Stína.
Myndlistarsýning
Gunnþórs Guðmunds-
sonar stendur yfir.
Allar veitingar í veit-
ingabúð Gerðubergs.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9:30 handavinnustofa
opin, leiðbeinandi á
staðnum frá kl. 10-17,
þriðjudagsganga fer frá
Gjábakka kl. 14. Leik-
fimin hefst í Gjábakka
þriðjudaginn 4. sept.
skráning er hafin. Fyr-
irhugað er að kenna kín-
verska leikfimi í Gjá-
bakka í vetur.
Áhugasamir skrái þátt-
töku sem fyrst.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 9:45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna og hárgreiðsla.
Hraunbær 105. Kl. 9-17
fótaaðgerðir, kl. 9:45
boccia, kl. 12:15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13-
17 hárgreiðsla.
Hallgrímskirkja eldri
borgarar, á morgun mið-
vikudag fyrirbænastund
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13-15.
Mosfellingar - Kjalnes-
ingar og Kjósverjar 60
ára og eldri. Halldóra
Björnsdóttir íþrótta-
kennari er með göngu-
ferðir á miðvikudögum,
lagt af stað frá Hlað-
hömrum: Ganga 1: létt
ganga kl. 16 til 16:30.
Gönguhópur 2: kl. 16:30.
Norðurbrún 1. Kl. 10-11
ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
dagblöð og kaffi, kl. 9:15-
15:30 almenn handa-
vinna, kl. 11 leikfimi, kl.
11:45 matur, kl. 13 frjáls
spilamennska, kl. 14:30
kaffi. Bútasaumur hefst
þriðjudaginn 4. sept.
Myndmennt og postu-
línsmálun hefst miðvi-
kud. 5. sept. Kóræfingar
hefjast mánud. 17. sept
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9:30
morgunstund og almenn
handmennt, kl. 10 fóta-
aðgerðir og almenn leik-
fimi, kl. 11 boccia, kl.
11:45 matur, kl. 14
félagsvist, kl. 14:30 kaffi
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svarað
í síma 552 6644 á fund-
artíma.
Eineltissamtökin. Fund-
ir að Túngötu 7, á þriðju-
dögum kl. 20.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Skagfirðingafélagið í
Reykjavík verður með
félagsfund í Drangey,
Stakkahlíð 17, í kvöld
þriðjudaginn 28. ágúst
kl. 20, kaffiveitingar.
Minningarkort
Minningarkort, Félags
eldri borgara Selfossi.
eru afgreidd á skrifstof-
unni Grænumörk 5, mið-
vikudaga kl. 13-15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482-1134, og versl-
uninni Íris í Miðgarði.
Í dag er þriðjudagur 28. ágúst, 240.
dagur ársins 2001. Ágústínusmessa.
Orð dagsins: Velgjörðarsöm sál
mettast ríkulega, og sá sem
gefur öðrum að drekka, mun
og sjálfur drykk hljóta.
(Orðskv. 11, 25.)
Á DÖGUNUM hélt und-
irritaður í smáheimsókn til
heimabæjarins Norðfjarð-
ar (Fjarðabyggðar). Áður
en lagt var í ferðina var sá
sem hér ritar eiginlega á
móti álveri í Reyðarfirði
(Fjarðabyggð). Fjöllin við
þann djúpa fjörð eru orðin
svolítið bláleit í minning-
unni enda alllangt síðan
heimabyggðin var síðast
sótt heim. Vélfákurinn
hélt sem leið lá hina svo-
kölluðu Norðurleið í gegn-
um blómlegar sveitir með
flosgrænum túnum en þó
eru á þeirri leið fleiri heið-
ar með gráleitum grjót-
flekkjum. Loks var lokið
við hálfan hringveginn og
numið staðar í heima-
byggðinni. Þá var komið
kvöld og undirritaður
skrapp í smágöngutúr um
bæinn. Mætti þar fljótlega
æskufélaga og tókum við
tal saman. Enn var fjalla-
bláminn í huganum og var
spurt: Búa ekki hérna í
kringum 1.700 manns?
Svarið breytti aðeins um-
hverfinu: „Nei gamli vin-
ur, hér búa núna bara í
mesta lagi 1.400 manns.“
Næstu dagar opnuðu enn
frekar augu gestsins fyrir
þeim raunveruleika sem
fólk býr við þar sem íbú-
um og atvinnutækifærum
fækkar. Fjarlægðin gerði
gömlu fjöllin ekki lengur
blá. Hið gráleita grjót
heiðanna sótti á hugann,
því hvaða gagn er að
ósnertu grjóti ef mannlífið
fær ekki að dafna?
Svo var haldið heim eft-
ir annars ánægjulega dvöl.
Eftir næstum 11 stunda
ferð blasti Reykjavík við
sem ljósfláki á dimmum
himni. Þarna í ljósadýrð-
inni hafði fólkið ekki
áhyggjur af fólksflótta eða
verðlitlum eignum. Vélfák-
urinn skeiðaði fram hjá
tveimur stóriðjuverum
sem kúrðu friðsæl í miðri
blómlegri Hvalfjarðarsveit
áður en hann stakkst inn í
göngin undir hafið. Þegar
hann skaust upp úr göng-
unum og enn magnaðist
ljósahafið þá mundi und-
irritaður eftir litlum kont-
ór sem nefnist „Skipulags-
stofnun“. Hvar skyldi
hann leynast í þessu ljósa-
hafi svo órafjarri Fjarða-
byggðum þessa heims? Og
hugurinn flaug aftur til
fjarðanna þar sem býr fólk
sem getur breytt vist-
vænni orku fossanna uppi í
grjótheiðunum í orkuspar-
andi léttmálm er nefnist
ál. Er ekki annars svolítil
eigingirni að vilja setja
alla náttúru landsins í sýn-
ingarglugga handa borg-
arbúum og túrhestum?
Brottfluttur
Austfirðingur.
Tindarnir sjö
SUNNUDAGINN 12.
þ.m. horfði ég á þátt í
sjónvarpinu sem hét Tind-
arnir sjö. Í þessum þætti
var fjallað um klif Harald-
ar Arnar á einn af þessum
tindum, McKinley, sem er
sá fyrsti af þeim sjö. Ég
dáist að dirfsku og þori
þessa unga manns, sem þá
þegar hefur gengið á báða
pólana. Sama kvöld horfði
ég á þátt sem heitir Date-
line. Þar var sýnt frá
nokkrum þrautreyndum
breskum hermönnum sem
hugðust klífa sama tind-
inn, McKinley. Við mjög
erfiðar aðstæður fór svo
að tveir þeirra hröpuðu og
urðu að hafast við á sillu í
tæpa 3 sólarhringa í
slæmu veðri, matar- og
drykkjarlausir, þar til
þeim var bjargað við illan
leik. Þá hafði kalið á tám
og fingrum, sem þeir
misstu að hluta. Geri hver
sem vill sér í hugarlund,
hvers má vænta við slíkar
aðstæður. Ég segi bara að
lokum. Áfram Haraldur og
gangi þér allt í haginn.
Kveðja,
Svanur Jóhannsson.
Tapað/fundið
Kvenmannsúr
tapaðist
KVENMANNSÚR tapað-
ist sl. þriðjudag í Hlíða-
hverfi. Upplýsingar í síma
551-2968 á kvöldin.
Dýrahald
Kettlinga
vantar heimili
ÞRÍR sjö vikna kettlingar
fást gefins. Kassavanir.
Upplýsingar í síma 896-
0086.
Dýri er
enn týndur
DÝRI týndist föstudaginn
6. júlí sl. úr Salahverfinu í
Kópavogi.
Hann var nýr í hverfinu
og gæti því verið að leita
að gamla heimilinu sem
var í Seljahverfinu í Breið-
holti. Hann er eyrna-
merktur, með dökkgræna
hálsól en ekki merkimiða á
ólinni. Hann er allur stein-
grár, mjög mjór og frekar
fælinn. Hans er sárt sakn-
að, ef einhver hefur séð
hann vinsamlegist hringið
í síma 557-5269, 698-0280
eða 696-5269.
Kettlingur
í óskilum
KETTLINGUR fannst í
Barðavogi fyrir rúmri
viku. Hann er kassavanur
og mjög gæfur, grábrún-
bröndóttur, með hvítar
loppur og hvíta bringu.
Hann er ómerktur.
Upplýsingar í síma 865-
0448.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Ál eða grjót
Víkverji skrifar...
NÚ ERU skólarnir að byrja ogsjást þess mörg merki. Mun
meira ber á börnum og ungu fólki í
umferðinni og því mikilvægt að aka
varlega og með mikilli aðgát í ná-
grenni skólanna, einkum þeirra sem
yngstu börnin sækja. Enginn vill
verða fyrir því að slasa barn og til að
koma í veg fyrir það verður að fara
varlega.
Þess sjást líka merki í bílaumferð-
inni að framhaldsskólarnir og skólar á
hærri stigum eru byrjaðir. Umferðin
hefur þyngzt verulega á síðustu dög-
um. Víkverji og kona hans aka saman
til vinnu fyrir átta á morgnana og fara
eftir Bústaðavegi til vesturs.
Um sumarið, þegar umferðin er
minnst, nægir að fara af stað um 20
mínútur fyrir átta til að forðast mesta
umferðarþungann. Nú verður að
leggja nokkru fyrr af stað til að vera
komin á vinnustað á sama tíma og áð-
ur. Það er í sjálfu sér allt í lagi. Merg-
urinn málsins er nefnilega sá að
leggja nægilega snemma af stað til
þess að verða ekki háður því að þurfa
að komast hraðar áfram en góðu hófi
gegnir. Þetta á við um alla bíltúra,
hvort sem þeir eru lengri eða
skemmri. Það er bezt að leggja tím-
anlega af stað og vera fyrir vikið
óstressaður og betri ökumaður.
x x x
VÍKVERJA finnst það mikill mun-ur að morgunsjónvarp Stöðvar
2 skuli vera hafið á ný eftir sumar-
leyfi. Fyrir Víkverja og konu hans var
morgunsjónvarpið orðið snar þáttur í
morgunverkunum og gott að geta
fylgzt með því sem hefur verið að ger-
ast meðan verið er að hafa sig af stað.
Einhverra hluta vegna gengur betur
að koma sér fram úr rúminu eftir að
morgunsjónvarpið byrjaði.
x x x
ÞAÐ var ekki þrautalaust ferða-lagið hjá Hollendingunum sem
línuskipið Skutull bjargaði úr Reka-
vík á Hornströndum eftir að þau
höfðu náð athygli skipverja og synt út
að skipinu. Í Rekavík höfðu þau hafzt
við dögum saman án matar og komust
hvorki lönd né strönd þar sem konan
treysti sér ekki til að ganga upp úr
víkinni og til Aðalvíkur. Þar höfðu þau
pantað far til Ísafjarðar fyrir nokkr-
um dögum. Það vekur athygli að eng-
ar viðvörunarbjöllur skuli hringja
þegar ferðamann mæta ekki til skips
sem á að flytja þá til byggða. Víkverja
finnst að við slík atvik ætti í það
minnsta að hefja eftirgrennslan því
vissulega gæti eitthvert óhapp hafa
orðið.
x x x
SÍFELLT berast fréttir af miklumuppsögnum erlendra risafyrir-
tækja, einkum í hátæknigeiranum en
einnig fjölmiðlun. Það er ljóst að sá
mikli gróði sem margir töldu sig sjá í
netfyrirtækjunum var ekki einu sinni
sýnd veiði, hvað þá gefin. Fyrirtæki af
þessu tagi hér á landi berjast einnig í
bökkunum, sýna gífurlegt rekstrar-
tap og segja upp fólki. Gengi hluta-
bréfa í þessum fyrirtækjum hefur
fallið að sama skapi og hafa margir
orðið fyrir verulegum fjárhagslegum
skakkaföllum af þeim sökum. Þar er
ekki einungis um venjulegt fólk að
ræða, sem reynt hefur að ávaxta
sparifé sitt, heldur bæði sjóði og
banka. Það er athyglisvert hve gíf-
urlegum upphæðum Landsbanki Ís-
lands hefur tapað á viðskiptum með
hlutabréf. Fyrst bankinn gat ekki
metið áhættuna betur er vart hægt að
ætlast til þess að almenningur geti
það. Það er sjaldan of varlega farið.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 umönnunin, 8 kraftur-
inn, 9 smábátur, 10 grein-
ir, 11 stólpi, 13 dimm ský,
15 hali, 18 mótlæti, 21
kærleikur, 22 þyngdar-
einingar, 23 gerist oft, 24
veikur jarðskjálfti.
LÓÐRÉTT:
2 brytja í duft, 3 vekur
máls á, 4 spaug, 5 geng-
ur, 6 fréttastofa, 7 beiti-
land, 12 blóm, 14 amboð,
15 munnfylli drykkjar, 16
lýkur upp, 17 skýjahulur,
18 spilið, 19 hamingja, 20
kylfu.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 grófs, 4 bólur, 7 staka, 8 rómum, 9 puð, 11 nótt,
13 arga, 14 eðlan, 15 full, 17 nasa, 20 æra, 22 liðug, 23
fangs, 24 rónar, 25 rýrar.
Lóðrétt: 1 gisin, 2 ósatt, 3 skap, 4 borð, 5 lómur, 6
romsa, 10 uglur, 12 tel, 13 ann, 15 fílar, 16 lóðin, 18 asn-
ar, 19 ausur, 20 Ægir, 21 afar.