Morgunblaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 43
DAGBÓK
LJÓÐABROT
MORGUNN
Syngur ástar sætum róm
svanur í bláum straumi,
döggu slegin blunda blóm
í blíðum geisladraumi.
Suðar lækur silfurtær
í sælum fjalla dölum,
bjartur sólarbjarmi hlær
á brjóstum unnar svölum.
Morgunblærinn hægt fær hreyft
hreina skrautið blóma,
aleðlið er svásum sveipt
sólargeisla dróma.
Kristján Jónsson, fjallaskáld.
Árnað heilla
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 16. júní sl. í Hvera-
gerðiskirkju af sr. Jóni
Ragnarssyni Agnes Elva
Guðmundsdóttir og Jóhann
Sigurðsson. Heimili þeirra
er að Þelamörk 45, Hvera-
gerði.
Ljósmynd/Myndrún ehf.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 4. ágúst sl. í Akureyr-
arkirkju af sr. Jónu Lísu
Þorsteinsdóttur Júlía
Skarphéðinsdótir og Birgir
Torfason. Heimili þeirra er
að Borgarsíðu 37, Akureyri.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar
Rauða krossi Íslands og söfnuðu 3.020 kr. Þær heita
Björt Magnúsdóttir, Bryndís Hrönn Kristinsdóttir og
Margrét Jóhannsdóttir.
Norðurlandamótinu í skák
lauk fyrir stuttu í Bergen í
Noregi. Mót þessi hafa
langa sögu en þar sem ekki
er talinn grundvöllur fyrir
að skipuleggja það sérstak-
lega var keppnin höfð þann-
ig að hún færi fram innan
opins alþjóðlegs móts. Stað-
an kom upp á mótinu. Sævar
Bjarnason (2281) hafði svart
gegn pólsku skákkonunni
Joanna Zimny (2087). 45...
Rxb2! 46. Hxb2
Hxc3+ 47. Ke4
Hxc1 48. Hxb5
Hc3 49. Kxe5
Hxa3 50.
Hb7+? Þrátt
fyrir að svartur
hafi unnið peð
eru úrslitin
hvergi nærri
ráðin þar sem
kóngur hvíts er
mun virkari en
kollegi hans.
Þannig hefði
50. Hb6 farið
langleiðina með
að tryggja hvít-
um jafntefli.
Í framhaldinu hefði hann
einnig getað varist betur
þótt erfiðari hefði verið. 50...
Kg6 51. g4 He3+ 52. Kd4
Hh3 53. Ha7 Hxh2 54. Ha6+
Kg7 55. Hxa4 Hf2 56. Ke5
Hf6 57. Ha7+ Kg6 58. Ha4
Hf1 59. Ha6+ Kg7 60. Ha7+
Hf7 61. Ha4 h5! og svartur
vann nokkru síðar. Loka-
staða efstu manna varð
þessi: 1.-2. Evgeny Agrest
og Artur Kogan 8 vinninga
af 9 mögulegum. 3. Leif Er-
lend Johannessen 7 v. 4.-9.
Stellan Brynell, Lars Schan-
dorff, Einar Gausel, Rune
Djurhuus, Nikolay Mitkov
og Olli Salmensuu 6½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
EITT af því fyrsta sem
byrjendum er kennt er að
spila út í lengsta lit gegn
grandi. Margir gleyma
þessari speki þegar þeim
vex ásmegin í spilinu og eru
sífellt að reyna að „hitta á
lit makkers“. Vissulega
reynist stundum vel að spila
út í stuttlit, en þá verða að
vera gild rök fyrir útspilinu.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KD94
♥ ÁG6
♦ 10962
♣ Á6
Vestur Austur
♠ 63 ♠ G1072
♥ K94 ♥ 10532
♦ D75 ♦ ÁK
♣ G9874 ♣ 1032
Suður
♠ Á85
♥ D87
♦ G843
♣ KD5
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Svona gengu sagnir mjög
víða í sumarbrids í Húna-
búð í síðustu viku. Tígullinn
er eðlileg opnun og tvö
grönd áskorun í geim, án
hálitar. Það er mjög líklegt
að NS eigi ekki átta spila
samlegu í hálit og á þeirri
forsendu völdu margir að
koma út með spaða eða
hjarta frá vesturhendinni.
En bæði útspilin eru van-
hugsuð. Austur virðist eiga
6-9 punkta, en lét samt
ógert að stinga inn hálita-
sögn. Hann á því varla góð-
an fimmlit og því er allt of
hættulegt að koma út í hálit
og best að halda sér við
lengsta lit, eða laufið. Vörn-
in sleppur skaðlaust frá út-
spili í spaða, en hjarta frá
kóngnum kostar slag. Sagn-
hafi nær að fría slag á tígul
og fær líka þrjá á hjarta,
eða samtals tíu.
En hvernig fer spilið með
laufi út? Sagnhafi þarf að
þríbrjóta tígulinn og vörnin
verður þannig á undan að
fría laufið. Fær suður þá að-
eins átta slagi?
Svo virðist vera, en Sæ-
vin Bjarnason sýndi fram á
annað. Hann tók laufútspil-
ið með ás og spilaði tígli.
Austur átti slaginn og kom
með lauf, og aftur lauf þeg-
ar hann fékk næsta slag á
tígul. Nú er laufið frítt og
vestur á enn tíguldrottn-
ingu. Sævin hætti við tígul-
inn og svínaði næst hjarta-
gosa. Tók svo þrjá slagi á
spaða. Þriðji spaðinn fór al-
veg með vestur. Hjarta
mátti hann ekki henda, því
þá kæmi kóngurinn í ásinn,
svo hann kastaði laufi. Þá
spilaði Sævin tígli og vestur
varð að spila frá hjarta-
kóngi í lokastöðunni.
Vel spilað, en Sævin fékk
aðeins tæpa meðalskor fyr-
ir vinnu sína, því margir
sagnhafar fengu útpspil í
hjarta og tíu auðvelda slagi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Hlutavelta
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú kannt betur við tjalda-
bakið en sviðsljósið. Samt
ertu ekki metnaðarlaus
en mörgum hættir til
að dæma þig svo.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú kannt að standa frammi
fyrir vandamáli sem þér finnst
þú ekki reiðubúinn til þess að
glíma við. Dragðu djúpt and-
ann og skoðaðu málið í heild
sinni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Allt í einu ert þú allra vinur.
Það er gleðilegt að njóta slíks
á meðan það varir en farðu þér
hægt og mundu að ekki eru
allir viðhlæjendur vinir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur það á tilfinningunni
að samstarfsmenn þínir efist
um hæfileika þína. Einbeittu
þér að því að sýna þá með ótví-
ræðum hætti í verki.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert undir mikilli pressu og
finnst þú þurfa að taka margar
ákvarðanir með skjótum
hætti. Flýttu þér samt hægt
og gerðu ekkert að óathuguðu
máli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert eitthvað óvenju niður-
dreginn þessa stundina og
kannt svo sem ekki neina
skýringu á því. Þú verður bara
að hrista af þér slenið og halda
áfram.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér finnst aðrir vilja um of
stjórna þínu lífi. Þá er ekki um
annað að ræða fyrir þig en að
brjótast undan því oki og vera
sjálfur þinnar gæfu smiður.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Fjölskylduböndin eru eitthvað
stíf þessa dagana. Gerðu þitt
til þess að létta andrúmsloftið
og mundu að sjaldan veldur
einn þá tveir deila.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vertu ófeiminn við að tjá öðr-
um tilfinningar þínar hvort
sem þær eru viðkomandi í hag
eða ekki. Aðalatriðið er að þú
sért frjáls að því að vera þú
sjálfur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hlauptu ekki eftir hverjum
hlut sem hugurinn girnist.
Hugsaðu fyrst um það hvort
hann sé einhvers virði og komi
þér að einhverjum notum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki deigan síga heldur
hamraðu á skoðunum þínum
þangað til þær hljóta hljóm-
grunn. Reyndu bara ekki að
slá ryki í augu fólks því það
hefnir sín alltaf.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Berðu höfuðið hátt þótt ein-
hverjir erfiðleikar steðji að.
Þeir eru bara til þess að sigr-
ast á þeim og í sjálfu sér er það
auðvelt því vilji er allt sem
þarf.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Komdu til dyranna eins og þú
ert klæddur því annars áttu á
hættu að fólk taki þig fyrir
annan en þú ert og sá mis-
skilningur komi sér illa.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Boðið er upp á bæði morgun- og kvöldnámskeið
og hefjast næstu námskeið í byrjun september
NTV skólarnir bjóða upp á tvö hagnýt og
markviss tölvunámskeið fyrir byrjendur.
arkvisst
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500
Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937
Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
Upplýsingar og innritun:
NTV Hafnarfirði - 555 4980 - NTV Kópavogi - 544 4500
NTV Selfossi - 482 3937 - www.ntv.is
Grunnatriði í upplýsingatækni
Windows 98 stýrikerfið
Word ritvinnsla
Excel töflureiknir
Access gagnagrunnur
PowerPoint (gerð kynningarefnis)
Internetið (vefurinn og tölvupóstur)
Almennt um tölvur og Windows 98
Word ritvinnsla
Excel töflureiknir
Internetið (vefurinn og tölvupóstur)
TÖK-tölvunám 90 stundir
n
t
v
.i
s
nt
v.
is
n
tv
.i
s
Almennt tölvunám 72 stundir
Mtölvunám
Hverfisgötu 78, sími 552 8980
AUKAAFSLÁTTUR AF SUMARVÖRUM
NÝJAR VÖRUR
Á ÚTSÖLU
Til sölu við Stigahlíð
Hef til sölu fallega 3-4 herb. íbúð á 1. hæð í fjölb. við Stigahlíð.
Mikið endurnýjuð. Tvö svefnherb., stofa, borðst. Suðvestursvalir.
Frábær staðsetning. Verð 11,0 millj.
Þórey Aðalsteinsdóttir hdl. Skeifunni 19
Sími 5503707 8491233 thorey@logmenn.is
Helga
Jóakimsdóttir
kennir rétta líkamsbeitingu og leiðréttir
skekkjur.
Býð einnig upp á kennslu og hóptíma
í Chi Kung, kínverskum orku- og
heilsuæfingum.
Helga Jóakimsdóttir,
Þórsgötu 21a, 101 Reykjavík
Upplýsingar og pantanir
í síma 552 1851.
Hef opnað aftur eftir sumarfrí.
Alexandertækni