Morgunblaðið - 28.08.2001, Qupperneq 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Helgin
(The Weekend)
D r a m a
Leikstjórn og handrit: Brian Skeet.
Aðalhlutverk: Gena Rowlands,
Deborah Kara Unger og Brooke
Shields. Skífan. (92 mín.)
Öllum leyfð.
UNG hjón efna til kvöldverðar á
heimili sínu í sveitinni. Hörmulegur
atburður í fortíðinni varpar skugga
sínum yfir at-
burðina og sam-
koman verður til-
efni fyrir
persónurnar til að
horfa um öxl og
takast á við erfið-
leika sem reynt
hefur verið að forð-
ast.
Söguþráðurinn
er að vísu margbrotnari en þessi
stutta lýsing gefur til kynna, myndin
byggist rólega upp en nær fyrir vikið
að mynda tilfinningalegan þunga
sem heldur áhorfendum föngnum.
Leikarar standa sig afar vel, kemur
þar Brooke Shields dálítið á óvart
þar sem hún er kannski þekkt fyrir
flest annað en sterkan leik í drama-
tískum myndum, og hrein unun er að
Genu Rowlands í hlutverki athygl-
isglaðrar ekkju. Hér er á ferðinni af-
ar góð mynd fyrir fullorðið fólk.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Drama-
tískur
vinafundur
Á STEFNUMÓTI Undirtóna í kvöld
leikur hljómsveitin Right On Red en
sveitin er við það að ryðja sér til
rúms á rokklandakortinu íslenska.
Hljómsveitin er u.þ.b. eins árs gömul
en allir liðsmenn hennar voru saman
í sveitinni Cyclone fyrir nokkrum ár-
um. Liðsmennirnir rauðu eru þeir
Egill Árni Hübner gítarleikari og
söngvari, Hugi Jónsson bassaleikari
og Þorvaldur Kr. Þorvaldsson
trommari. Aðspurðir segjast þeir
vera undir áhrifum frá Kent, At the
Drive-in og öllu því sem þeir hafa
hlustað á í gegnum árin.
Einnig kemur fram plötusnúður-
inn Dj Ölwis.
Eins og áður fer Stefnumótið fram
á Gauki á Stöng, hefst upp úr 21 og
inngangseyrir er 500 kr.
Stefnumót Undirtóna í kvöld
Morgunblaðið/Arnaldur
Right On Red: Hugi, Egill og Þorvaldur leika á Gauknum í kvöld.
Rauðrokk
BANDARÍSKA leikkonan Angel-
ina Jolie var á mánudaginn út-
nefnd velviljandi sendiherra um-
boðsskrifstofu Sameinuðu
þjóðanna í málefnum flóttamanna.
Jolie var grátklökk við athöfnina,
sem fram fór í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í Sviss, og
sagði frá kynnum sínum við
flóttamenn frá Afganistan í Pak-
istan.
Jolie, sem kom frá Pakistan á
sunnudaginn, sagðist enn eiga
erfitt með að tala um ástandið í
flóttamannabúðunum. „Þetta eru
hræðilegar aðstæður sem fólkið
býr við,“ sagði Jolie við athöfnina.
„Þau búa við aðstæður sem ég
efast um að nokkur hér inni gæti
lifað við í nokkra daga.“
Jolie hóf að heimsækja flótta-
mannabúðir fyrr á árinu. Dag-
bækur sínar frá heimsóknum til
Síerra Leóne og Tansaníu birti
hún á Netinu til að vekja athygli á
málefninu.
Með heiðursnafnbótinni fetar
Jolie í fótspor leikaranna Rich-
ards Burton og Sophiu Loren.
Hinn háttsetti stjórnarnefndar-
maður Sameinuðu þjóðanna, Ruud
Lubbers, sagði Jolie hjálpa þeim
að vekja athygli ungs fólks á mál-
efnum flóttamanna.
Sendiherr-
ann Angel-
ina Jolie
AP
Sendiherrann Angelina Jolie
með skírteinið sitt.
TÓNLISTARMAÐURINN virti Tom Waits er
við það að senda frá sér nýja breiðskífu. Um er að
ræða tónlist sem hann og kona hans Kathleen
Brennan sömdu fyrir leikritið Woyzeck. Verkið
hefur verið sýnt við miklar vinsældir í Batty Nan-
sen leikhúsinu í Kaupmannahöfn síðan síðasta
haust. Áætlað er að platan komi út næsta vor.
Í leikritinu, sem hefur fengið lof gagnrýnenda,
eru lögin leikin af leikhússveit en sjálfur hefur
Waits aldrei flutt lögin á tónleikum. Það verður
því í fyrsta skipti hægt að heyra þau í hans flutn-
ingi þegar platan kemur út. Hópurinn sem leikur
lögin í verkinu er við það að hefja tónleikaferð um
Evrópu, án Waits.
Tónlistarmaðurinn hefur ekki gefið út breið-
skífu í tvö ár, en síðast gaf hann út hina mögnuðu
skífu Mule Variations, en þá voru liðin ein sex ár
frá því að hann hafði gefið út plötu. Síðustu ár hef-
ur Waits einbeitt sér að föðurhlutverkinu, en hann
og fjölskylda hans eiga búgarð í Kaliforníu.
Væntanleg plata frá Tom Waits
Lögin úr Woyzeck gefin út
Tom Waits.biggi@mbl.is