Morgunblaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 47
MAGNAÐ
BÍÓ
Kvikmyndir.com
Hausverk.is
Geggjuð gamanmynd
frá leikstjóra Ghostbusters!
Sýnd. 6, 8 og 10.
Stærsta grínmynd allra tíma!
Sýnd. 6, 8 og 10.
betra en nýtt
Sýnd kl. 6.
Stærsta grínmynd allra tíma!
( )
Sýnd kl.10.
Stranglega b.i.16 ára.
Strik.is
Sýnd kl. 6 og 8. B.i.16 ára
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 8 og 10.
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 8. Vit nr 243.
Síðustu sýningar
www.sambioin.is
KISS OF THE DRAGON
ÚR SMIÐJU
LUC BESSON
Sýnd kl. 10.10
B.i.16 ára Vit nr. 257.
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 258.
Ef þú hefur það sem þarf
geturðu fengið allt.
H.Ö.J. kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit . 256 B.i. 12.
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Ef þú hefur það sem þarf
geturðu fengið allt.
H.Ö.J. kvikmyndir.com
Sýnd kl 8 og 10. Vit . 256 B.i. 12. Sýnd kl. 8 og 10.
www.sambioin.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.Sýnd kl. 3.50, 6, 8 og 10.15. B.i.12 ára.
www.laugarasbio.is
Stærsta grínmynd allra
tíma!
DVSV Mbl
Strik.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal.
Ef þú hefur það sem þarf
geturðu fengið allt.
H.Ö.J. kvikmyndir.com
ANDI tónleika sveitalaga-
sveitarinnar The Funerals á
laugardagskvöldið var ansi
fjarri þeirri grafalvarlegu
stemmningu sem hljómsveit-
arnafnið gefur til kynna.
Sveitin lék fyrir fullu Kaffi-
leikhúsi og fengu áhugasamir
gestir að skyggnast inn í
einkalíf liðsmanna í gegnum
opinskáa texta og tilheyrandi
sögur um tilurð þeirra á milli
laga. Ef til vill vísar nafnið til
þess að meðlimir séu að fjalla
um persónulega hluti og
leggja þannig „gömul kurl til
grafar“, eins og sagt er.
Sungið var um hvolpaaugu,
laugardagsvini, viskí, sofandi
ástvini og þann unað að sjá
mynd af sér á síðum tímarits.
Vonandi verður jafn spenn-
andi að sjá mynd af sér hér í
Morgunblaðinu!
Liðsmenn The Funerals
eru þau Ragnar Kjartansson,
Ólafur Jónsson, Þorgeir Guð-
mundsson, Viðar Hákon
Gíslason, Þorvaldur Gröndal
og Lára Sveinsdóttir. Nýlega
lögðu þau leið sína í sumarbú-
stað þar sem hljóðrituð voru
sjö lög á væntanlega breið-
skífu hópsins. Hugsanlegt er
að lögin verði fleiri en útgáfu-
dagur, -vika eða -mánuður
hefur ekki enn verið ákveðinn.
Þorvaldur Gröndal kitlar hljómborðið en Ólafur og
Ragnar sjá um sitt.
Morgunblaðið/SverrirLára og Ragnar syngja um svefninn.
Laug-
ardags-
vinir
The Funerals héldu tónleika í Kaffileikhúsinu
FRAMHALD
hinnar geysi-
vinsælu gam-
anmyndar Am-
erican Pie, sem
heitir því frum-
lega nafni Am-
erican Pie 2, hélt
toppsæti banda-
ríska aðsókn-
arlistans um
helgina.
Sú nýja mynd
sem klifraði hæst
upp listann er
nýjasta gam-
anmynd leikstjór-
ans Kevin Smith
en hann er þekkt-
astur fyrir mynd-
ir sínar Clerks,
Chasing Amy og
nú síðast Dogma.
Aðalsöguhetjur nýju mynd-
arinnar eru þeir Jay og þögli
Bob sem hafa ávallt farið með
aukahlutverk í myndum leik-
stjórans, en misstór þó. Það er
líka gaman að segja frá því að
þögli Bob er einmitt leikinn af
leikstjóranum sjálfum. Nýja
myndin heitir Jay and Silent
Bob Strike Back og er þar
vitnað í titil bestu mynd-
arinnar úr Stjörnustríðsbálk-
inum, The Empire Strikes
Back, en Stjörnustríðsbrand-
arar hafa oft fengið að fljóta
með í myndum kappans.
Myndin er eins konar fram-
hald fyrr mynda hans og
margar þeirra persóna sem
fram komu í þeim koma fram í
þessari. Leikstjórinn ráðlagði
þeim sem færu á myndina með
því hugarfari að finna ein-
hvern leyndan boðskap að
sleppa því, þar sem boðskap-
urinn væri einfaldlega fjarver-
andi. Hér væri aðeins um að
ræða einfalt og nakið spaug.
Bandaríkjamenn kunna
greinilega vel að meta grínið
og myndin hafnaði í þriðja
sæti listans. Margir þekktir
leikarar koma fram í myndinni
þ.á m. Ben Affleck, Matt Dam-
on, Carrie Fisher, Mark Ham-
ill, Jason Lee, Chris Rock,
Jason Biggs auk þess sem Al-
anis Morrisette endurtekur
hlutverk sitt sem Guð.
Tvær aðrar nýjar myndir
komust inn á listann þessa vik-
una. Önnur myndin heitir
Summer Catch og er róm-
antísk gamanmynd með
Freddie Prince Jr. í aðal-
hlutverki, hin er nýjasta
myndin úr smiðju hroll-
vekjukauðans John Carpent-
ers og heitir Ghost of Mars.
Síðari myndin gerist í framtíð-
inni og fjallar um hóp manna
sem hefur búið á plánetunni
Mars um skeið. Þegar draugur
fer að hrella lýðinn senda þau
út neyðarboð til jarðar og er
farið í heljarinnar björg-
unarleiðangur til þess að ná
þeim úr klóm draugsa. Með
aðalhlutverk fara rapparinn
Ice Cube, fyrirsætan Natasha
Henstridge og hin magnaða
Pam Grier sem flestir muna
eftir úr Jackie Brown.
!
!
!"
!
"
!"
!
"
!"
!"
!"
!"
!"
!"
"#$%& "()%) ""%" *&% +%& ,%+ (%+ "*%# )%( "&,%(
Jason Mewes, Kevin Smith og Ben Affleck í hlutverkum sínum.
Þrjár nýjar myndir á bandaríska kvikmyndalistanum
Jay og þögli
Bob snúa aftur