Morgunblaðið - 28.08.2001, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
STÆKKUN álversins í Straumsvík
úr 170 þúsund tonna framleiðslu á
ári í 370 þúsund tonn er nú til athug-
unar hjá eigendum verksmiðjunnar.
Um er að ræða tvo 100 þúsund tonna
áfanga og gæti fyrri áfanginn orðið
að raunveruleika árið 2005 og seinni
áfanginn um tveimur árum seinna.
Orkuþörf álversins við stækkunina
myndi aukast um 3.000 GWst á ári
en engar formlegar viðræður hafa
farið fram við þá aðila sem gætu ann-
að þessari orkuþörf.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi ÍSAL, segir að telja megi
talsverðar líkur á því að af stækkun
verði og nú sé hafin könnun á því
hvort slík stækkun sé í fyrsta lagi
möguleg og þá í öðru lagi hvort
stækkunin sé hagkvæm fyrir eigend-
ur álversins.
„Ef við getum fengið orkuna,
hvort sem það er frá Landsvirkjun
eða einhverjum öðrum, á verði sem
við getum sætt okkur við og þetta fer
í gegnum þennan formlega feril sem
þessar framkvæmdir þurfa að fara í
gegnum, umhverfismat og annað
slíkt, þá eru talsverðar líkur á því að
af þessu geti orðið. En þetta miðast
við að við erum eitt af 15 álverum
sem eru í eigu móðurfélagsins og
stækkun hér fer að sjálfsögðu eftir
því hvað er í boði annars staðar,
hvort yfir höfuð er hagkvæmara að
stækka hér eða annars staðar.“
Að sögn Hrannars er erfitt á þess-
ari stundu að meta kostnaðinn við
stækkunina. Verði kostnaðurinn
hins vegar einhvers staðar á bilinu
500 til 700 milljónir dollara, um 50 til
70 milljarðar íslenskra króna, er tal-
ið líklegt að stækkunin geti orðið
hagkvæm.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að sér hefði
verið kunnugt um þennan áhuga og
því kæmu þessi áform ekki á óvart.
Ráðherra segist munu hitta fulltrúa
ÍSAL fljótlega til að fara yfir stöð-
una. „Ég hef í sjálfu sér ekkert nema
gott um það að segja að þeir hafi
uppi áform um slíkt. En eins og þeir
segja nú sjálfir, þá er í sjálfu sér ým-
islegt sem þarf að geta gengið upp til
þess að af þessu verði. En orð eru til
alls fyrst og með því að greina frá
þessu svona, eins og þeir hafa gert,
tel ég að málið sé hugsanlega komið í
ákveðinn farveg,“ sagði Valgerður.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að fulltrúar
ÍSAL hafi átt óformleg samtöl við
Landsvirkjun um hugsanlega virkj-
unarkosti. Hins vegar sé ljóst að
fleiri aðilar en Landsvirkjun þurfi að
koma að málum. „Verði af þeim
áformum öllum sem menn eru að
ræða þessa stundina, þ.e.a.s. að
virkja bæði vegna Grundartanga-
stækkunar og stækkunar ÍSAL, þá
þarf að koma til rafmagn frá Lands-
virkjun, Hitaveitu Suðurnesja og
Orkuveitu Reykjavíkur, að minnsta
kosti, til að mæta þörfum þessara
tveggja stækkana upp í fulla stærð.“
ÍSAL kannar hagkvæmni stækkunar á álverinu í Straumsvík
Stefnt að 370 þúsund
tonna framleiðslu á ári
GÆRDAGURINN verður án efa lengi í minnum
hafður hjá fjölskyldu Jökuls Guðjónssonar, sem
lá heldur betur á að komast í heiminn, enda náði
móðir hans, Árdís Grétarsdóttir, ekki að ljúka
símtalinu við sjúkrabílinn þegar hún fann að
komið var að fæðingunni. Jökull lét ekki bíða eft-
ir sér og fæddist því í stofunni heima hjá sér á um
45 sekúndum. Fæðingin gekk að óskum og reynd-
ist Jökull rúmar 17 merkur og 56 cm.
„Ég var á leið út í búð en hætti sem betur fer
við það, því mér fannst eins og eitthvað gæti farið
að gerast,“ sagði Árdís í samtali við Morgun-
blaðið. „Svo hringdi ég á sjúkrabílinn og meðan
ég var að panta hann fæddist Jökull. Ég var bara
búin að segja til nafns og að ég þyrfti sjúkrabíl
fyrir fæðingu.“ Að svo komnu máli hófst fæðingin
sem var afstaðin örskömmu síðar. „Ég henti frá
mér símanum rétt á meðan og þegar ég var að
hugga hann og þurrka honum. Svo tók ég símann
aftur og sagði þeim að hann væri kominn.“
Mæðginin biðu sjúkraflutningamannanna
Það voru því mæðgin í stað verðandi móður
sem biðu Sigurjóns Valmundarsonar og Ólafs
Inga Grettissonar sjúkraflutningamanna þegar
þeir komu heim til Árdísar nokkrum mínútum
eftir útkallið. Árdís ól barnið ein, en skömmu síð-
ar kom móðir hennar, sem er hjúkrunar-
fræðingur, og aðstoðaði dóttur sína. Sjúkraflutn-
ingamennirnir sáu fljótt að móður og barni
heilsaðist vel og eftir að hafa klippt á nafla-
strenginn fluttu þeir mæðginin á Landspítala –
háskólasjúkrahús. Spítaladvölin stóð þó ekki
lengi og fóru hin stálhressu mæðgin heim
skömmu eftir vigtun og þvotta.
Árdís var yfirveguð í fæðingunni, hún kvaðst
ekki hafa fundið til óöryggis þrátt fyrir hinar
óvenjulegu aðstæður og sagði fæðinguna hafa
verið mjög auðvelda. „Þegar þetta gerist svona
hratt er þetta ekkert mál. Það þarf að passa að
missa ekki barnið og reyndar var ég ekki hrædd
um að það myndi gerast.“
Jökull er þriðja barn Árdísar og manns hennar,
Guðjóns S. Arinbjörnssonar. Eldri bræður Jökuls
litla eru Bóas, níu ára, og Grétar Ari, fimm ára.
Ól barn heima í stofu á tæpri mínútu rétt eftir að hafa pantað sjúkrabíl
Morgunblaðið/Golli
Jökull er Gaflari enda fæddur heima hjá sér í Hafnarfirðinum. Foreldrarnir Guðjón og Árdís með Jökli ásamt eldri bræðrunum, Grétari Ara og Bóasi.
„Henti frá mér símanum rétt á meðan“
ÍSLENSK erfðagreining, stjórn
Læknafélags Íslands og landlæknir
undirrituðu í gær sameiginlega yf-
irlýsingu um gagnagrunn á heil-
brigðissviði, sem samkomulag hefur
náðst um. Í henni kemur fram að
eyða skal strax upplýsingum um
sjúklinga úr gagnagrunninum óski
þeir þess. ,,Rekstraraðili [Íslensk
erfðagreining] gagnagrunns á heil-
brigðissviði þróar aðferðir til eyð-
ingar upplýsinga í gagnagrunninum
og heitir því að hefja ekki flutning
heilsufarsupplýsinga í gagnagrunn-
inn fyrr en þær hafa verið þróaðar
að fullu,“ segir í yfirlýsingunni.
ÍE og LÍ eru jafnframt sammála
um að bíða niðurstöðu aðalfundar
Alþjóðafélags lækna um vísindasið-
fræði gagnagrunna og flutning
heilsufarsupplýsinga einstaklinga í
gagnagrunna og að þær reglur verði
hafðar að leiðarljósi hér á landi þeg-
ar þær liggja fyrir. ,,Munu stjórnir
beggja hvetja til breytinga á lögum
um gagnagrunn á heilbrigðissviði
nr. 139/1998 í samræmi við þær
reglur, reynist þess þörf,“ segir í yf-
irlýsingunni. Búist er við að nið-
urstaða Alþjóðafélags lækna liggi
ekki fyrir fyrr en í fyrsta lagi haust-
ið 2002.
Tefur ekki undirbúning
gagnagrunnsins
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
Sigurbjörn Sveinsson, formaður LÍ,
og Sigurður Guðmundsson land-
læknir undirrituðu yfirlýsinguna í
gær og lýstu allir mikilli ánægju
með það samkomulag sem nú liggur
fyrir. Kári sagði m.a. að sú breyting
að skylt verði að eyða upplýsingum
úr gagnagrunninum, komi fram ósk-
ir um það, fæli í sér endurskilgrein-
ingu á gagnagrunninum. Aðspurður
segir Kári að biðin eftir niðurstöðu
Alþjóðafélags lækna muni ekki tefja
fyrir vinnu við uppsetningu gagna-
grunns á heilbrigðissviði.
Yfirlýsingin verður lögð fyrir að-
alfund Læknafélagsins í október,
sem á síðasta orðið, að sögn Sig-
urbjörns Sveinssonar. ,,Það er alveg
ljóst að það mun ekki verða ein-
hugur um þetta en ég er þess full-
viss að mikill meirihluti lækna mun
fagna þessari niðurstöðu,“ sagði
hann.
Sameiginleg yfir-
lýsing LÍ og ÍE
Skylt er að
eyða gögn-
um óski
sjúkling-
ur þess
Staðfestir/2
Samkomulag/26