Morgunblaðið - 20.09.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TÓNLISTARSKÓLA Hafnar-
fjarðar hlotnaðist á dögunum veg-
leg gjöf sem að sögn skólastjórans
er hvorttveggja viðurkenning á
starfi skólans og mikil hvatning
fyrir nemendur hans. Um er að
ræða 5 milljónir til stofnunar minn-
ingarsjóðs um Helgu Guðmunds-
dóttur, sem starfaði við skólann um
árabil. Það er eiginmaður Helgu og
lífsförunautur til 40 ára, Gunn-
laugur Jón Ingason, sem gefur
gjöfina.
Helga Guðmundsdóttir fæddist 3.
júlí árið 1927 en lést 6. desember
1992. Að sögn Gunnlaugs starfaði
hún lengi að félagsmálum, hvort
heldur var um líknarmál, stjórnmál
eða fegrun bæjarins að ræða. Síð-
ustu starfsárin vann hún sem skóla-
ritari í Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar. „Hún var í mjög
ánægjulegum tengslum við núver-
andi skólastjóra og allt starfsfólk í
Tónlistarskólanum og sagði að
þetta væri einhver besti vinnu-
staður sem hún hefði unnið á um
dagana,“ segir Gunnlaugur. „Hún
hélt mikið upp á þetta mannrækt-
arstarf og taldi það vera mannbæt-
andi. Þannig að mig langaði til, af
því að hún var mikil framámann-
eskja í bæjarfélaginu hérna í Hafn-
arfirði, að hennar yrði minnst á
þennan máta.“
Einn til þrír nemendur
verðlaunaðir árlega
Hann segir sjóðinn eiga eftir að
nýtast þannig að á hverju vori verði
einn til þrír nemendur sem hafa
skarað fram úr verðlaunaðir með
vissri peningaupphæð af því sem
sjóðurinn ávaxtar. „Þannig að það
getur orðið þónokkuð,“ segir
Gunnlaugur. „Svo verða nátt-
úrulega framlög í hann, t.d. í gegn
um sölu minningarkorta eins og
gengur þannig að hann getur vel
átt eftir að stækka og blómstra og
verða varanlegur.“
Stjórn sjóðsins mun að sögn
Gunnlaugs sjá um að velja verð-
launahafa og verður hún skipuð
bæjarstjóranum í Hafnarfirði,
skólastjóra Tónlistarskólans og
einum fulltrúa fjölskyldunnar á
meðan hennar nýtur við en eftir
það kýs sjóðurinn eða bæjarráð
mann í hans stað.
Það er óhætt að segja að margar
minningar búi að baki gjöf sem
þessari. Gunnlaugur og Helga voru
gift í 40 farsæl ár og áttu sex börn –
fimm syni og eina dóttur. Helga var
borin og barnfædd í Hafnarfirði en
Gunnlaugur fluttist þangað árið
1957. Hins vegar er greinilegt að
þar er sannur Hafnfirðingur á ferð
því hann ber mikinn hlýhug til bæj-
arins. „Ég var svo heppinn að hún
tók mig með sér til Hafnarfjarðar
og ég hef búið hér allar götur síð-
an. Betra og fegurra bæjarfélag
get ég ekki ímyndað mér,“ segir
hann.
Venus á hringtorg
við Ásland
Gunnlaugur lætur heldur ekki
við sitja að gefa fjármagn í minn-
ingarsjóðinn því hann hefur einnig
ákveðið að gefa bæjarfélaginu
listaverkið „Venus“ sem er eftir
son hans Halldór Gunnlaugsson.
„Þetta er skúlptúr, mjög fallegt og
skemmtilegt stykki, og það má
segja um hann eins og stendur í
kvæðinu: „Venus hátt í vestri skín/
við skulum hátta elskan mín“,“ seg-
ir Gunnlaugur og hlær. „Þetta er í
þá veru, mjög kröftugt verk og
skemmtilegt og sýnir þrjú him-
intungl á lofti: Venus, Mars og Júpí-
ter.“ Að sögn Gunnlaugs stendur til
að setja verkið upp á hringtorgi
þar sem ekið er upp í Ásland þar
sem mun sjást vel til þess. „Þannig
að ef það fær að vera í friði á það
eftir að verða til augnayndis fyrir
vegfarendur,“ segir hann.
Gunnar Gunnarsson, skólastjóri
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, seg-
ir sjóðinn vera mikla hvatningu fyr-
ir nemendur skólans, til dæmis fyr-
ir þær sakir að í hann verður meðal
annars hægt að sækja um styrki til
að sækja námskeið. Jafnvel komi til
greina að styrkja nemendur til að
einbeita sér að tónlistarnáminu að
sumri í stað þess að fara í almenna
vinnu. „Þetta er líka mikil við-
urkenning fyrir skólann en það hef-
ur komið fram að hluti af ástæðu
þessarar gjafar er að Helgu leið vel
hér í skólanum hjá okkur,“ segir
hann og bætir við að þau ár sem
hún starfaði við skólann hafi hún
verið bæði elskuð og dáð af kenn-
urum og nemendum.
„Feikilega mikill
atburður“
Hann segir að allur gangur verði
á úthlutunum úr sjóðnum. „Það
gæti verið styrkur þegar nemandi
er að ljúka námi en það gæti líka
verið styrkur til nemenda sem
væru að fara á einhver námskeið
erlendis svo eitthvað sé nefnt. En
hugmyndin er að þetta verði gert
með sérstakri athöfn á sumardag-
inn fyrsta á hverju ári. “
Hann segist ekki gera sér grein
fyrir því um hversu háar upphæðir
verður að ræða en telur ekki óvar-
legt að áætla að það gæti verið hátt
í 400–500 þúsund krónur en það
fari eftir þeirri ávöxtun sem höf-
uðstóllinn á eftir að skila.
Stefnt er að því að hafa athöfn í
skólanum í kringum næstu
mánaðamót þar sem féð verður
formlega afhent. „Þá ætlum við
jafnvel að hafa stutta tónleika og
gera svolítið úr þessu því að þetta
er náttúrulega feikilega merki-
legur atburður,“ segir Gunnar.
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar fær stórgjöf frá eiginmanni fyrrverandi ritara skólans
Morgunblaðið/Golli
Minningarsjóðurinn verður án efa mikil hvatning fyrir nemendur Tónlistarskólans, en hér
má sjá Kristínu Friðsemd Sveinsdóttur æfa sig á fiðlu undir handleiðslu Maríu Weiss.
Gunnlaugur ásamt konu sinni, Helgu, sem minningarsjóðurinn er tileinkaður. Árið 1989
fóru þau hjónin í frí til Flórída í góðra vina hópi og var myndin tekin í þeirri ferð.
Hafnarfjörður Gefur fimm milljónir
í minningarsjóð