Morgunblaðið - 20.09.2001, Qupperneq 34
UMRÆÐAN
34 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á
næstu dögum er
væntanleg á markað í
Danmörku bók eftir
blaðamanninn Kjeld
Hansen sem ber hinn
ógnvænlega titil Farvel til Grön-
lands Natur (útg. Gads forlag)
sem lauslega útleggst Hinsta
kveðja til grænlenskrar náttúru. Í
bókinni færir Hansen gild rök fyr-
ir því að á Grænlandi sé verið að
ganga svo nærri flestum veiði-
dýrastofnum landsins að ef ekkert
verði að gert þá muni stofnunum
annaðhvort verða útrýmt eða þeir
verða svo litlir að engin not verði
af þeim næstu áratugina.
Hansen full-
yrðir að
Grænlend-
ingar nú-
tímans séu
ekki lengur
háðir veiðum
og því sé fráleitt að réttlæta
stjórnlausar veiðar á fuglum og
spendýrum sem frumþörf frum-
byggjanna. Veiðigleði Grænlend-
inga séu hins vegar lítil takmörk
sett og nánast engar hömlur séu
settar á magn eða veiðitíma. Til
marks um það má nefna að tvenns
konar veiðileyfi eru gefin út á
Grænlandi. Atvinnuveiðileyfi og
sportveiðileyfi. Leyfi til atvinnu-
veiða hafa 2.569 einstaklingar en
sportveiðileyfi hafa 8.094. Það er
því ljóst að mikill minnihluti veiði-
manna hefur lífsbjörg sína af veið-
um þótt allir gangi að þeim eins og
svo sé. Allir Grænlendingar sem
náð hafa 12 ára aldri og eiga lög-
heimili í landinu geta fengið
byssuleyfi; engin próf þarf að taka
eða sanna hæfni sína á annan hátt.
Af ofangreindum tölum er ljóst að
fimmti hver Grænlendingur hefur
veiðileyfi og á síðasta ári voru flutt
inn um 90 tonn af skotfærum fyrir
riffla og haglabyssur en það sam-
svarar um 9 kg af skotfærum á
hvern veiðimann. Það eitt útaf fyr-
ir sig er þó ekki orsök eins eða
neins segir Hansen, heldur stunda
Grænlendingar veiðarnar eins og
um líf eða dauða væri að tefla,
fuglar, selir, birnir og hvalir eru
skotnir hvar sem til þeirra sést og
þær fáu reglur sem settar hafa
verið um veiðitíma og meðferð
bráðar eru þverbrotnar árið um
kring. Hansen lýsir því hvernig
stuttvíubyggðum hefur nánast
verið eytt víðast hvar á Grænlandi,
þar sem líklegt er talið að um hálf
milljón fugla hafi verið drepin ár-
lega undanfarin ár en varpstofn-
inn er ekki nema 350 þúsund fugl-
ar. Fuglafræðingar hér á Íslandi
hafa lýst áhyggjum sínum af þess-
ari gegndarlausu ofveiði þar sem
talsvert af stuttvíustofninum er
sameiginlegur með Íslandi og
Grænlandi. Hið sama á einnig við
um gæsastofna, eins og blesgæs,
margæs og helsingja, sem eru
sameiginlegir stofnar með Bret-
landi og öðrum Evrópulöndum. Úr
þessum stofnum er veitt á haustin
hérlendis (umferðarfuglar) og á
Bretlandi en á Grænlandi er geng-
ið að fuglunum á vorin og sumrin í
varplöndunum, fullorðnir fuglar
drepnir, egg tekin og ungum slátr-
að.
Hansen færir rök fyrir því að
hefð Grænlendinga fyrir því að
hver og einn megi stunda veiðar
eins og hann getur og vill, komi í
veg fyrir að lög og reglur um veiði-
tíma séu virtar. Hann bendir á að
eggjatínsla í stórum fuglabyggð-
um sé óskipulögð og valdi stöð-
ugum truflunum við varpið svo
skaðinn sé jafnvel meiri af því
heldur en eggjatökunni sjálfri. Má
í því sambandi benda á að hér-
lendis sem og í Færeyjum hefur
lengi viðgengist að fara aðeins
einu sinni eða tvisvar að vorinu til
eggjatöku og gefa fuglinum síðan
nauðsynlegt næði til að verpa aft-
ur. Hansen segir að ef Grænlend-
ingar gætu komið sér saman um
eitthvert slíkt fyrirkomulag þá
væri stórt skref stigið.
Hann bendir einnig á að nýting
kjöts af sel og hval sé mjög lítil því
selir séu fyrst og fremst veiddir
vegna skinnanna og hvalir vegna
tannanna. Enginn markaður sé
fyrir aðrar afurðir af þessum stóru
dýrum og því fari hundruð tonna
af kjöti forgörðum á ári hverju.
Grænlendingar eru ennfremur
eina þjóðin í veröldinni sem hefur
samþykki Alþjóðahvalveiðiráðsins
til að skjóta stórhveli með rifflum
og má nærri geta hversu margir
sleppa á brott við illan leik til þess
eins að drepast á hafi úti. Hvort
hvalrekar hér við land á und-
anförnum árum eigi rætur að
rekja til þessara veiða er athug-
unarefni.
Veiðitímabil á Grænlandi eru
rýmri en víðast hvar annars stað-
ar. Sterk hefð er fyrir vorveiðum á
fugli og má nærri geta hversu illa
það kemur við varpstofnana að
sæta stöðugum ofsóknum við und-
irbúning varps. Ekki gilda sömu
reglur alls staðar á Grænlandi og á
austurströndinni eru veiðar á
svartfugli leyfðar árið um kring,
með tilheyrandi afleiðingum fyrir
varp og afkomu stofnanna. Fugla-
veiðar á sjó eru undantekning-
arlaust stundaðar af vélbátum,
sem reyndar er gert hérlendis
líka, en reglur um ganghraða eru
engar á Grænlandi og nefnir
Hansen dæmi um veiðar utan lög-
legs veiðitíma af bátum í opinberri
eigu svo við ramman reip er
greinilega að draga ef fylgja á eftir
reglum um veiðarnar.
Bók Hansens er greinilega orð í
tíma töluð ef ekki er þegar orðið
um seinan að grípa í taumana hvað
sumar dýrategundir varðar. Hann
tekur svo stórt upp í sig að segja
að ef ekkert verði að gert þá verði
hin merkilega dýralífsflóra Græn-
lands stórum fátæklegri innan
fárra ára. Hann segir það róm-
antíska ranghugmynd að tala um
ósnortna náttúru Grænlands; þar
eigi sér stað gegndarlaus rányrkja
og ofveiði sem eigi sér enga rétt-
lætingu.
Íslendingar ættu að leggja sitt
af mörkum með því að takmarka
veiðiálag á þá veiðidýrastofna sem
standa hvað höllustum fæti og
ekki síður að fylgja betur eftir
þeim reglum sem settar hafa verið
um veiðar og veiðitæki en nokkur
misbrestur mun vera á að farið sé
að reglum í þeim efnum.
Rányrkja
á Græn-
landi
Allir Grænlendingar sem náð hafa 12
ára aldri og eiga lögheimili í landinu
geta fengið byssuleyfi.
VIÐHORF
Eftir Hávar
Sigurjónsson
havar@mbl.is
ÞÆR hækkanir
sem nú hafa verið
kynntar á fasteigna-
mati eru í mörgum til-
fellum óheyrilegar.
Eðlilegt er að spurt
sé hvað valdi. Fast-
eignamat ræðst af
verðbreytingum á
fasteignamarkaði.
Fasteignir hafa verið
að hækka mikið í
verði undangengin ár
og þ.a.l. rýkur fast-
eignamatið upp úr
öllu valdi. Um leið
hækka skattstofnar
ríkis og sveitarfélaga.
Árið 1999 nam þessi hækkun á
fasteignamati íbúðarhúsnæðis í
Reykjavík 17% og árið 2000 nam
hún 15%. Það sem
gerist síðan í ofanálag
er að Fasteignamat
ríkisins ræðst í end-
urmat á fasteigna-
stofninum og hefur
það haft í för með sér
verulegar breytingar
fyrir marga.
Heljarstökk
Í stað þess að end-
urmeta skattstofninn
jafnt og þétt og í
áföngum er nú tekið
heljarstökk. Það
stökk er tekið í að-
draganda sveitar-
stjórnakosninganna á komandi ári.
Vonandi er hugarburður að sam-
hengi kunni að vera þar á milli.
Mestar eru þessar hækkanir í
Reykjavík og er ljóst að fyrir
margar reykvískar fjölskyldur
mun nýja fasteignamatið hafa al-
varlegar fjárhagslegar afleiðingar
í för með sér. Þar má nefna stór-
hækkun fasteignagjalda og skerð-
ingu vaxtabóta. Í mörgum tilvikum
hækkar eignaskattur og bitnar það
sérstaklega illa á eldra fólki í eigin
húsnæði. Eldra fólk hefur í mörg-
um tilvikum litla sem enga mögu-
leika til að afla tekna til að rísa
undir þessum viðbótarálögum.
Eignaskattur hefur verið þessu
fólki mörgu nær ofviða og er hætt
við því að við breytingarnar nú
hrekist það úr húsnæði sínu.
Dæmin tala
Lítum á dæmi af fjölskyldu, sem
hefur 2.800.000 í fjölskyldutekjur
og býr í íbúð sem metin er á 10
milljónir. Hún skuldar 4 milljónir í
íbúðinni og á þ.a.l. 6 milljónir
króna hreina eign. Hún fær nú
vaxtabætur sem nema 106 þúsund
krónum á ári. 15% hækkun fast-
eignamats veldur því að vaxtabæt-
urnar rýrna um 56.000 kr. og
verða því aðeins 50.000 krónur.
Við 30% hækkun fasteignamats
þurrkast vaxtabæturnar alveg út.
Að auki hækka fasteignagjöld í
fyrra tilvikinu um 8.000 kr. eða
þar um bil og í því seinna um
16.000 krónur. Að auki er á það að
líta að við hækkunina í seinna til-
vikinu er hrein eign fjölskyldunnar
nú komin ríflega einni milljón
króna yfir fríeignamörkin sem eru
Nýtt fasteignamat ógn-
ar fjárhag heimilanna
Ögmundur Jónasson
GAMALL draumur
þeirra sem reka versl-
anir, veitingahús og
önnur þjónustufyrir-
tæki í miðborginni er
nú loks að rætast.
Miðborgargjafakortið
er orðið að veruleika
og sala þess hafin. Yf-
ir 130 fyrirtæki í mið-
borginni eru með í
þessu verkefni frá
byrjun og taka við
gjafakortinu, sem
fæst keypt í sex versl-
unum, á Netinu og í
símasölu.
Stefnt er að því að
fjölga þeim sem taka
við gjafakortinu verulega á næstu
mánuðum.
Oft er sagt að gjafakort séu gjöf
sem getur ekki valdið vonbrigðum
og það má vissulega til sanns veg-
ar færa, ekki síst þegar hægt er að
nota kortin á svo fjölbreyttum
vettvangi sem miðborgin er. Gjafa-
kortin má innleysa í verslunum, á
veitingastöðum, listhúsum, snyrti-
stofum, leikhúsum og líkamsrækt-
arstöðvum. Þau eru hentug til
gjafa, hvort sem um er að ræða
fermingargjafir, brúðargjafir, af-
mælisgjafir eða jólagjafir.
Og fyrirtækin fagna því mörg
hver að eiga nú kost á Miðborg-
argjafakortinu til jólagjafa fyrir
starfsmenn sína eða viðskiptavini
og þegar stórafmæli eða önnur
tímamót ber að höndum.
Þróunarfélag miðborgarinnar er
málsvari hagsmunaaðila í verslun,
viðskiptum, veitingasölu og ann-
arri þjónustu í miðborginni. Félag-
ið hefur í sumar undirbúið útgáfu
gjafakortsins, sem nú er byrjað að
selja.
Ánægjulegt hefur verið að fylgj-
ast með áhuga kaupmanna og ann-
arra þjónustuaðila á þessu fram-
taki, sem hefur þjappað mönnum
saman og verður vonandi þarft
innlegg í þeirri hörðu
keppni, sem nú fer í
hönd á markaðinum.
Miðstöð verslunar
og mannlífs
Ef vel tekst til mun
gjafakortið beina
sjónum manna í aukn-
um mæli að miðborg-
inni sem miðstöð
verslunar, þjónustu,
sögu og mannlífs í
Reykjavík. Það er líka
hlutverk miðborgar-
innar og verður von-
andi um langa fram-
tíð.
Miðborgin hefur
svo ótal margt fleira innan sinna
vébanda sem fólk sækist eftir
heldur en verslunarmiðstöðvarnar.
Má þar nefna fjölbreytt lista- og
menningarlíf, sem hefur eflst til
muna með tilkomu Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu og
Borgarbókasafns og Ljósmynda-
safns Reykjavíkur í Grófarhúsi við
Tryggvagötu. Skammt þar frá, við
höfnina, á svo að rísa á næstu
árum tónlistar- og ráðstefnuhús og
ýmsar byggingar í tengslum við
það. Þessi stórframkvæmd mun
eflaust styrkja mjög stöðu mið-
borgarinnar um ókomin ár.
Miðborgin lagar sig stöðugt að
breyttum lífsháttum og neyslu-
venjum. Ekki eru mörg ár síðan
örfá veitingahús og kaffihús voru í
miðborginni. Nú hefur þeim fjölg-
að gríðarlega á fáum árum. Einnig
má merkja greinilega fjölgun á
snyrtistofum, hárgreiðslustofum
og líkamsræktarstöðvum. Þetta
sýnir og sannar að unga fólkið
sækir í miðbæinn í frístundum sín-
um.
Meðan svo er þarf miðborgin
engu að kvíða.
Andlitslyfting í Kvosinni
Í vor var ráðist í viðamiklar end-
urbætur á götum í Kvosinni og
standa þær enn yfir í Pósthús-
stræti. Þótt mjög hafi reynt á þol-
inmæði margra við allt raskið í
sumar velkist enginn í vafa um að
Kvosin hefur fengið glæsilega and-
litslyftingu og er þess albúin að
mæta nýjum kröfum á nýrri öld.
Miðborgin horfist nú í augu við
stóraukna samkeppni í verslun og
harðnandi baráttu um hylli neyt-
enda. Margir velta vöngum yfir því
hvernig best verði brugðist við
nýjum aðstæðum á markaði. Ég
held að miðborgin geri það með því
að halda áfram að vera það sem
hún er, öflug, þróttmikil og fram-
sækin, en jafnframt rómantísk,
gamaldags og sérstæð.
Borgaryfirvöldum ber skylda til
að hlúa vel að miðborginni. Sú
skylda hvílir líka á íbúum í mið-
borginni, húseigendum, kaup-
mönnum, veitingamönnum, bönk-
um, menningarstofnunum og
reyndar öllum velunnurum mið-
borgarinnar. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft er miðborg Reykjavíkur
sameign okkar allra – og ekki bara
okkar Reykvíkinga, heldur allra
landsmanna.
Fyrirtækin í miðborginni
sameinast um gjafakort
Einar Örn
Stefánsson
Gjafakort
Ef vel tekst til, segir
Einar Örn Stefánsson,
mun gjafakortið beina
sjónum manna í aukn-
um mæli að miðborginni
sem miðstöð verslunar,
þjónustu, sögu og mann-
lífs í Reykjavík.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Þróunarfélags miðborgarinnar.
Fjölskylda Óbr. mat 15% hækkun 30% hækkun
Fasteignamat 10.000.000 11.500.000 13.000.000
Skuldir 4.000.000 4.000.000 4.000.000
Hrein eign 6.000.000 7.500.000 9.000.000
Vaxtabætur 106.000 50.000 0
Eignarskattur 0 0 13.600
Hækkun fasteigngj. 0. 8.000 16.000
Áhrif 106.000 42.000 -39.600
Ellilífeyrisþegi Óbr. mat 15% hækkun 30% hækkun
Fasteignamat 10.000.000 11.500.000 13.000.000
Skuldir 2.000.000 2.000.000 2.000.000
Hrein eign 8.000.000 9.500.000 11.000.000
Eignarskattur 72.810 90.810 108.810
Hækkun fasteignagj. 0 8.000 16.000
Áhrif 72.810 98.810 124.810