Morgunblaðið - 20.09.2001, Side 35

Morgunblaðið - 20.09.2001, Side 35
7.865.000 króna. Þ.a.l. mun þessi fjölskylda þurfa að greiða 13.600 kr. í eignaskatt. Sjá töflu nr. 1 (Fjölskylda) Tökum annað dæmi af ellilífeyr- isþega sem býr einn. Gefum okkur að hann búi í sams konar íbúð og fjölskyldan. Hann er búinn að losa sig við sínar skuldir eftir langan vinnudag. Hann verður að sjálf- sögðu ekki fyrir skerðingu á vaxtabótum því þeirra naut hann ekki fyrir. Við 15% hækkun fast- eignamatsins hækka fasteigna- gjöldin um 8.000 kr. og 16.000 kr. í seinna tilvikinu. Þessi einstakling- ur býr við lægra fríeignamark en fjölskyldan, eða 3.932.000 krónum. Við 15% hækkun fasteignamats fer greiddur eignaskattur þessa manns úr 72.810 kr. í 90.810 kr. og við 30% hækkun í 108.810 krónur. Álögur á þennan einstakling eru með þessu auknar í fyrra dæminu um 26.000 kr, og í hinu síðara um 52.000 krónur. Það munar um minna. Sjá töflu nr. 2 (Ellilífeyrisþegi) Tillögur um úrbætur Hvað er til ráða? Í fyrsta lagi eru þetta fráleit vinnubrögð og ætti ríkisstjórnin að beita sér fyrir að endurskoðun fasteignamats komi ekki í bakið á fólki með þess- um hætti. Hitt þarf einnig að hafa í huga að þótt vandséð sé hvernig meta eigi fasteignir á annan hátt en með tilvísun til fasteignaverðs, þá er það engu að síður svo að húsnæði er heimili fólks. Aðstæður á markaði mega aldrei ógna öryggi heimilisins. Það er hlutverk stjórn- valda að sjá til þess. Óeðlilegt hlýtur því að teljast að miklar verðbreytingar á húsnæðismark- aði, eins og á undanförnum miss- erum, setji eins stórt strik í fjöl- skyldubókhaldið og við verðum nú vitni að. Úrbætur í húsnæðismálum al- mennt myndu tryggja jafnvægi á húsnæðismarkaðinum, en það er forsenda stöðugleika. Um þetta snýst málið fyrst og síðast. Að auki þarf að taka skattalöggjöfina til endurskoðunar og hvernig henni er beitt. Þar þarf að hafa tvennt sérstaklega að leiðarljósi. Í fyrsta lagi þarf að tryggja að rosk- ið fólk verði ekki hrakið úr íbúðum sínum vegna óheyrilegrar skatt- heimtu á íbúðarhúsnæði. Sérstak- ar ívilnanir í skattlagningu á íbúð- arhúsnæði aldraðra kæmu hér til álita að mínum dómi. Hitt er einn- ig brýnt að forða tekjuminni fjöl- skyldum frá að verða fórnarlömb þenslu á húsnæðismarkaði. Það kallar á gagngert endurmat á skattlagningu íbúðarhúsnæðis og vaxtabótakerfinu. Húsnæðismál Úrbætur í húsnæðis- málum almennt myndu tryggja jafnvægi á hús- næðismarkaðinum, seg- ir Ögmundur Jónasson, en það er forsenda stöð- ugleika. Um þetta snýst málið fyrst og síðast. Höfundur er formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2001 35 Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Bjórglös kr. 1.650 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14. Finnur Bjarnason stundaði söngnám í Reykjavík og London. Framundan hjá Finni eru óperu- hlutverk hjá English National Opera, Glyndebourne Festival Opera og Glyndebourne Touring Opera, auk tónleika í Kópavogi, Boston og London. Hlutverk Tamínós er annað hlutverk Finns hjá Íslensku óperunni. Hanna Dóra Sturludóttir nam söng í Reykjavík og Berlín. Hún hefur starfað sem gestasöngvari við óperuhúsin í Bonn, Rostock og Weimar og við Komische Oper í Berlín. Síðastliðin þrjú ár var hún fastráðin við óperuna í Neustrelitz. Hlutverk Pamínu er frumraun Hönnu Dóru á sviði Íslensku óperunnar. Tryggðu þér miða! Sími miðasölu: 511 4200 á sviði Íslensku óperunnar Sérstakar fjölskyldusýningar verða sunnudagana 30. sept., 14. okt. og 28. okt., þar sem Papagenó (Ólafur Kjartan Sigurðarson) kynnir verkið fyrir yngri áhorfendum áður en sýning hefst. Kynningin hefst kl. 16 og sýningin kl. 17. Óbreytt miðaverð en aðgangur að kynningunni er ókeypis fyrir gesti sýningarinnar. Tónlist: Wolfgang Amadeus Mozart Texti: Emanuel Schikaneder Íslensk þýðing: Þrándur Thoroddsen, Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason. Gunnsteinn Ólafsson endurorti að hluta og þýddi óbundið mál. Einvalalið ungra listamanna stendur að sýningunni: Hljómsveitarstjóri: Gunnsteinn Ólafsson Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason Leikmynd og búningar: Vytautas Narbutas Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Söngvarar: Guðjón Óskarsson, Finnur Bjarnason, Hanna Dóra Sturludóttir / Auður Gunnarsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Xu Wen, Guðrún Ingimarsdóttir / Sigrún Hjálmtýsdóttir, Snorri Wium, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir / Sigrún Jónsdóttir / Sigríður Aðalsteinsdóttir, Loftur Erlingsson, Skarphéðinn Þór Hjartarson, Árný Ingvarsdóttir, Regína Unnur Ólafsdóttir og Dóra Steinunn Ármannsdóttir. Kór Íslensku óperunnar og Hljómsveit Íslensku óperunnar Frumsýning 22. september PAMÍNA TAMÍNÓ GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.