Morgunblaðið - 20.09.2001, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 20.09.2001, Qupperneq 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2001 49 Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433. Haustlínan er komin Munið buxurnar á kr. 1.990 SKELFING er ömurlegt að fylgjast með yfirklóri þeirra Ísólfs Gylfa og Guðna Ágústssonar í fjölmiðlum vegna „kaupa“ Ísólfs Gylfa á Upp- sölum í Hvolhreppi. Þeir keppast um að útlista hvað þetta var alltsaman löglegt og fínt. Það er alveg óþarfi fyrir þá að vera að því. Allir sem þekkja til vinnubragða þessara framsóknarmanna vita að þar er allt siðleysið löglegt og fínt, þeir taka kannski eina smábeygju framhjá einhverri reglugerð, skítt með það, þetta er allavega nógu löglegt til að standast fyrir dómstólum. Málið var semsé það að þessir heiðursmenn sem bjuggu á Uppsölum voru komn- ir á elliheimili og höfðu ekki nýtt sér kauprétt sinn á jörðinni (stóð senni- lega ekki til). Hvað var þá eðlilegra en gamall vinur gegnumgengist það fyrir þá og fengi svo eitthvað fyrir sinn snúð í staðinn? Annars hefði farið eins með Uppsalina og Kvos- lækinn í Fljótshlíð þar sem bóndinn dó frá sínum kauprétti og jörðin fór í almenna sölu og ríkið fékk rúmar tuttugu milljónir fyrir. Það er heldur ekkert ólöglegt við það þótt við fjár- mögnum hobbí Ísólfs Gylfa á Upp- sölum með Suðurlandsskógaverk- efninu, enda var hann nýbúinn að segja af sér sem formaður þar og þurfti þess vegna ekki að afhenda sér plönturnar sjálfur enda uppfyllir hann ákveðin skilyrði eins og þeir komast að orði. Ég var sá bjáni að halda að aðaltilgangurinn með þessu verkefni hefði verið að veita þeim bændum nytsöm verkefni heima hjá sér sem ekki gátu haft viðurværi af fjárbúskap á jörðum sínum til þess að geta dvalið þar áfram en ekki til að fjármagna hobbí fyrir sæmilega stætt fólk. Ég ætla svo að vona, þótt ekki verði nema fyrir tilverknað breyttrar kjördæmaskipunar, að við Sunnlendingar losnum við þessa full- trúa okkar af þingi og fáum nýja með örlítið sterkari siðgæðisvitund. ÞORSTEINN MARKÚSSON, Eystra-Fíflholti, Hvolsvelli. Yfirklór Guðna og Ísólfs Gylfa Frá Þorsteini Markússyni: NÚ ERU jarðarkaup þingmanns nokkurs orðin fæðubótarefni á fjörefnasnauðum veisluborðum fjöl- miðlanna. Ekki er nú metnaður- inn mikill! Síðan hvenær hefur það verið löstur eða lögbrot að gera góð kaup? Þingmaðurinn væri varla að fjárfesta í fast- eign á sínum heimaslóðum nema hann teldi sig gera góð kaup. Ekki ríður hræsnin við einteyming í þessu landi. Við erum með troð- fulla skóla sem hafa það megin- markmið að kenna fólki að græða. En ef einhver skyldi nú gera góð kaup, þá er hann úthrópaður „purkunarlaus bandit“. Aldrei hef ég kosið flokk Ísólfs Gylfa Pálma- sonar. En þegar jafnmikill ágæt- ismaður og þessi strangheiðarlegi Rangæingur er hafður að skot- spæni, þá er mál að linni. Það er pólitískur fjósaþefur af þessum málatilbúnaði og þeim til skammar sem skemmta. Ég legg til að fréttamenn láti fólk í friði í sínum prívatmálum og tíni sér sprek á öðrum rekavið- arfjörum. Þar eru örugglega stærri tré sem hægt er að saga niður. ÓLI HILMAR JÓNSSON, arkitekt, Álfaheiði 14, Kópavogi. Jarða- kaup og önnur kaup Frá Óla Hilmari Jónssyni: Óli Hilmar Jónsson MEÐGÖNGUFATNAÐUR fyrir mömmu og allt fyrir litla krílið Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.