Morgunblaðið - 20.09.2001, Page 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2001 53
Titanic, tilkomumikið stórvirki
James Camerons, kemst fyrir
margra hluta sakir feitletruð á blöð
sögunnar. Endurgerð hörmulegasta
sjóslyss sögunnar er allt í senn róm-
antísk, spennandi og dramatísk stór-
slysamynd. Útlitslega betur gerð en
dæmi eru til í kvikmyndasögunni.
Verður dýrasta, en jafnframt lang-
mest sótta, kvikmynd sögunnar.
Metið hennar verður seint slegið.
Aukinheldur vinnur hún til fleiri
Óskarsverðlauna en áður þekkist.
Fleiri eru að gera afburðamyndir.
Einn þeirra er Curtis Hanson sem
gerir L.A. Confidential (’97), sína
langbestu mynd. Umhverfi, and-
rúmsloft, texti og leikur – allt óað-
finnanlegt.
Á léttari nótum eru Farrelly-
bræður. There’s Something About
Mary (’97) er líkt og önnur verk
þeirra, ruglukollamynd, hlaðin aula-
bröndurum. Spyrst vel út, bætir
smám saman við aðsóknina og kemst
á toppinn eftir nokkrar vikur, sem er
einsdæmi. Hæfileikaríkasti gam-
anleikari samtímans, Jim Carrey,
sýnir á sér nýja hlið í The Truman
Show (’97), fantagóðri mynd Peters
Weir um ungan mann hefur verið
sjónvarpsmatur frá fæðingu. Frum-
leg, fyndin og sorgleg í senn.
Stanley Kubrick fellur frá er hann
hefur nýlokið við Eyes Wide Shut
(’89), sálfræðidrama með erótískum
undirtón, en er með síðri myndum
meistarans, þótt falleg sé fyrir aug-
að. Sá undarlegi Terence Malik
frumsýnir The Thin Red Line (’98),
fyrstu mynd sína í áraraðir. Feiki-
sterk ádeila á vopnaskak og önnur
hermdarverk mannsins á móður
náttúru og uppsker m.a. Silfurbjörn-
inn í Berlín.
George Lucas tilkynnir gerð
þriggja Stjörnustríðsmynda til við-
bótar, sú fyrsta, Star Wars: Episode
1 – The Phantom Menace, er mest
sótta mynd ársins ’99, þótt hún
standi þeim fyrri að baki að flestu
leyti. Árið áður sýnir hann end-
urbætta frummyndina sem rakar
inn morð fjár. Aðrir brellumeistarar
eru þeir Wachowski-bræður. Fram-
tíðartryllirinn Matrix (’99) er hrein
upplifun yfirburðabrellna og hraðr-
ar atburðarásar. David Lynch minn-
ir á sig með ofurhægfara Straight
Story (’00), ljúfum svanasöng gamla,
góða, geðþekka Richards Farns-
worth. Árið 2000 lýkur á úrvals-
myndunum American Psycho,
Magnolia eftir hinn bráðefnilega
Paul Thomas Anderson, Being John
Malkowich og American Beauty,
margfaldri óskarsverðlaunamynd
Sams Mendes.
Frá öðrum heimshornum
Ástralar láta á sér kræla með úr-
valsmyndinni Shine (’96) um glat-
aðan snilling, píanóleikarann David
Helfgott, sem Geoffrey Rush leikur
með eftirminnilegum tilþrifum.
Ken Loach er ábyrgur fyrir mörg-
um athyglisverðustu myndum Eng-
lendinga á síðustu áratugum. Carla’s
Song (’97) er raunaleg mynd sem
tengir skoskan atvinnuleysingja
óöldinni í Mið-Ameríku. Loach harð-
pólitískur sem fyrr. Landi hans, Pet-
er Cattaneo, er á léttari nótum,
frumraunin, The Full Monty (’97), er
eldhress gamanmynd um hvernig
neyðin kennir atvinnulausum verk-
smiðjukörlum að nekt getur borgað
sig. Tom Wilkinson og Robert Carl-
yle fara fyrir óborganlegum leikhópi
og myndin verður vinsælasta mynd
Breta frá upphafi.
Þjóðverjar láta ekki mikið fyrir
sér fara undir aldamót, þaðan kemur
þó ein athyglisverðasta mynd ára-
tugarins, spennutryllirinn Lola
Rennt (’98), frumleg og frábrugðin
flestum öðrum. Wim Wenders og
tónlistarsnillingurinn Ry Cooder
taka hús á öldruðum stórmús-
íköntum á Kúbu og uppskera Buena
Vista Social Club, mergjaða tónlist-
arheimildarmynd. Danir kynna
Dogmamyndir og Spánverjar sækja
jafnt og þétt í sig veðrið á kvik-
myndasviðinu, með Pedro Almodóv-
ar í fylkingarbrjósti. Todo Sobre Mi
Madre (’99) er besta verkið hans um
árabil. Meðal franskra er Jean-
Pierre Jeunet (Delicatessen) hvað
forvitnilegastur. Gerir Alien: Res-
urrection (’97) vestur í Hollywood og
blæs nýju lífi í bálkinn góða.
Netið, myndbanda- og síðar
mynddiskavæðingin, guð má vita
hvað verður næst, eru eðlilegir þætt-
ir í framþróuninni og kvikmynda-
húsin eiga örugglega eftir langa líf-
daga, svo lengi sem þau geta boðið
upp á frambærilega afþreyingu. Bíó-
ferð er einfaldlega ódýrt og spenn-
andi ævintýri. Við nútímamanninum
blasa ekki nógu mörg augnablik sem
jafnast á við eftirvæntinguna þegar
ljósin slokkna í kvikmyndasalnum.
Ingvar Sigurðsson í
metaðsóknarmyndinni
Englar alheimsins.
Keanu Reeves varð
heitur á ný í Matrix.
Lucas
reyndi að
varpa ljósi
á upptök
stjörnu-
stríðsins. kynning verður í Libiu, Göngugötu
Mjódd, fimmtudag og föstudag
Glæsilegur kaupauki
þegar verslað er fyrir
kr. 5000 eða meira
Sendum í póstkröfu. Sími 587 0203
Falleg svört hliðar-
taska.
Scarf Edt. 5 ml.
Profutura dag- og
næturkrem 5 ml.
Profutura augn-
krem 3 ml.
Energy Face and
Eye Mask 5 ml.
w
w
w
.f
o
rv
al
.is