Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 27
HÓPUR flóttafólks, sem ástralskt
herskip stöðvaði á siglingu undan
ströndum landsins, verður sendur til
Papúa-Nýju-Gíneu samkvæmt sam-
komulagi við stjórnvöld þar. Hann
mun þó stíga fæti á ástralskt land er
hann fer í annað skip á Jólaeyju.
Flóttamönnunum, sem segjast
vera íraskir og eru 187 að tölu, var
bjargað um borð í ástralskt herskip
sl. mánudag en þá var bátur þeirra
bilaður. Er flóttafólkið sjálft grunað
um að hafa valdið því. Þá er það
einnig sakað um að hafa kastað
börnum í sjóinn til að neyða áhöfn
ástralska herskipsins til að taka það
um borð.
„Við kærum okkur ekkert um fólk
af þessu tagi til Ástralíu. Alls ekki,“
sagði John Howard, forsætisráð-
herra Ástralíu, í fyrradag.
Fólkið, þar af 54 börn, er nú um
borð í freigátunni Adelaide en verð-
ur flutt yfir í annað skip á Jólaeyju,
sem er í Indlandshafi. Þaðan fer það
til Papúa-Nýju-Gíneu. Ástralíu-
stjórn hefur einnig rætt við yfirvöld
á Kiribati, lítilli Kyrrahafseyju, um
að taka við flóttafólki gegn greiðslu.
Ástralar vilja ekki
flóttafólk
Sent til
Papúa-
Nýju-Gíneu
Sydney. AFP.
ÆÐSTI áfrýjunarréttur Frakk-
lands staðfesti í gær, að Jacques
Chirac, forseti landsins, nyti frið-
helgi og yrði því ekki sóttur til
saka fyrir annað en landráð meðan
hann gegndi embætti. Honum yrði
heldur ekki stefnt fyrir rétt sem
vitni. Chirac er bendlaður við ýmis
spillingarmál en með þessum úr-
skurði virðist hann vera laus allra
mála.
Úrskurðurinn þýðir, að ekki er
unnt að höfða almennt sakamál
gegn Chirac eða stefna honum
sem vitni svo lengi sem hann situr
í embætti en kjörtímabili hans lýk-
ur í apríl næstkomandi. Honum er
þó heimilt að bera vitni kjósi hann
það sjálfur. Tekur úrskurðurinn til
allra saka annarra en landráða en
um þau fjallar hæstiréttur einn.
Þessi niðurstaða er að sjálfsögðu
mikill léttir fyrir Chirac, sem ætl-
ar að takast á við Lionel Jospin,
forsætisráðherra Frakklands, í
forsetakosningunum í apríl en á
hinn bóginn vofa spillingarásakan-
irnar yfir honum áfram.
Spillingarkærur
Chirac nýt-
ur friðhelgi
París. AFP.
LÝÐRÆÐISBANDALAG vinstri-
manna í Póllandi, sem bar sigur úr
býtum í þingkosningum sem fram
fóru í síðasta mánuði, hefur náð sam-
komulagi við Bændaflokkinn pólska
um stjórnarsamstarf. Hugðist Les-
zek Miller, leiðtogi vinstrimanna, til-
kynna ráðherraval sitt í gær en gert
var ráð fyrir að Jaroslaw Kal-
inowski, leiðtogi Bændaflokksins
yrði bæði landbúnaðar- og aðstoðar-
forsætisráðherra.
Samkvæmt stjórnarsáttmálanum
verður það forgangsverkefni ríkis-
stjórnarinnar að auka hagvöxt og
draga úr atvinnuleysi, sem nú er
16% í Póllandi. Ennfremur mun
stjórnin áfram vinna að inngöngu
Póllands í Evrópusambandið.
Miller og flokkur hans, sem áður
störfuðu undir merkjum kommún-
ista, hlaut ásamt litlum samstarfs-
flokki, Bandalagi verkamanna, 41%
atkvæða í kosningunum, sem fram
fóru 23. september.
Stjórn í
Póllandi
Varsjá. AP.
AÐ minnsta kosti fimmtán banda-
rískir ferðamenn létust þegar
fellibylurinn Íris skall á bát
þeirra við strendur eyjunnar Bel-
ís í Mið-Ameríku á þriðjudag með
þeim afleiðingum að honum
hvolfdi. Íris hefur leikið Belís
grátt á undanförnum dögum, tal-
ið er að þrettán þúsund íbúar eyj-
unnar séu heimilislausir, heilu
skóglendin hafa verið lögð í rúst
og óttast er að bananauppskera
landsins sé með öllu ónýt.
Íris lék húsakost landsmanna
afar grátt er hún gekk yfir á
mánudag og þriðjudag en flestir
íbúanna sluppu hins vegar með
skrekkinn. Höfðu þeir komið sér
fyrir í öruggu skjóli áður en felli-
bylurinn gekk yfir. Áður hafði Ír-
is komið við í Gvatemala og eyði-
lagt hundruð húsa.
Hjálparstarf fór af stað á fullu
á Belís í gær og lofuðu stjórnvöld
í nágrannaríkinu Hondúras að-
stoð sinni. Íris hefur nú breyst í
hitabeltislægð og var í gær ekki
talin til frekari stórræða af veð-
urfræðingum.
Á myndinni má sjá hvernig
fellibylurinn lék sum húsin í bæn-
um Placencia.
Reuters
Fimmtán fórust
í fellibyl á Belís
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦