Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 53
FYRSTA doktorsvörnin við fé-
lagsvísindadeild Háskóla Íslands fer
fram föstudaginn 12. október kl. 16.
Doktorsvörnin verður haldin í hátíða-
sal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir ver
doktorsritgerð sína í stjórnmálafræði
er hún nefnir: Íslenskur vinnumark-
aður á umbrotatímum: Sveigjanleiki
fyrirtækja, stjórnun og samskipti að-
ila vinnumarkaðarins. Andmælendur
eru Stefán Ólafs-
son, prófessor við
Háskóla Íslands,
og Ingi Rúnar Eð-
valdsson, dósent
við Háskólann á
Akureyri. Dokt-
orsvörnin er öll-
um opin.
Í rannsókninni
er verið að sýna
fram á að tengsl
séu á milli breyt-
inga á vinnumarkaði og breytinga
innan fyrirtækja og stofnana. Ís-
lenskur vinnumarkaður á tímabilinu
1987–1995 er sérstaklega rannsakað-
ur með hliðsjón af viðbrögðum stjórn-
enda og aðila vinnumarkaðarins við
efnahagskreppu.
Árelía Eydís fæddist 1966, útskrif-
aðist með BA-gráðu í stjórnmálafræði
frá Háskóla Íslands árið 1991, með
M.sc.-gráðu í vinnumarkaðsfræði frá
London School of Economics and
Political Science árið 1993. Árelía var
í doktorsnámi við University of Essex
frá 1993–1997 en flutti þá rannsókn-
ina til Háskóla Íslands.
Árelía er lektor við Háskólann í
Reykjavík og kennir þar stjórnun.
Hún hefur verið stundakennari við
University of Essex og Háskóla Ís-
lands.Vann sem ráðgjafi hjá Gallup á
Íslandi 1996–1999. Árelía á eina dótt-
ur, Álfrúnu Perlu Baldursdóttur.
Doktorsvörn við
Háskóla Íslands
Árelía Eydís
Guðmunds-
dóttir
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra hefur opnað nýjan
banka, Krakkabankann, með aðstoð
barna á Barnaspítala Hringsins.
„Krakkabankinn er nýr vefbanki
Æskulínu Búnaðarbanka Íslands og
býður upp á skemmtun og fræðslu
fyrir börn á leik- og grunn-
skólaaldri. Í Krakkabankanum
kynnast börn ýmsum hliðum á
sparnaði í gamni og alvöru. Mest er
áherslan þó á gamanið. Á vefnum er
að finna fjölda leikja og þrauta auk
þess sem útvarp Latibær flytur þar
líflega tónlist. Þá geta börnin sótt
um netfang á vefsetrinu krakka-
banki.is,“ segir í fréttatilkynningu
frá Búnaðarbankanum.
Í tilefni af opnun Krakkabankans
voru tveimur barnadeildum sjúkra-
húsa færðar öflugar tölvur. Þessar
deildir eru deild 12E á Barnaspítala
Hringsins og barnadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri. Tölv-
urnar eru ætlaðar börnum sem
dvelja á sjúkrahúsunum og aðstand-
endum þeirra. Með nettengingu er
þess vænst að eldri börnin geti haft
samband við vini utan spítala með
tölvupósti. Þá eiga eldri sem yngri
börn að geta stytt sér stundir með
aðstoð tölvanna. Síðast en ekki síst
er þess vænst að foreldrar, sem oft
dvelja langdvölum hjá börnum sín-
um á sjúkrahúsinu, geti nýtt tölvu-
aðgengið til að sinna ýmsum erind-
um eða sækja sér upplýsingar.
Árni Tómasson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, afhenti Barnaspítala
Hringsins tölvu fyrir börn og að-
standendur.
Morgunblaðið/Þorkell
Krakkabank-
inn opnaður
ÍSLENSKA stærðfræðafélagið held-
ur ráðstefnu sem ber yfirskriftina
Stærðfræði á Íslandi 2001 í Reykholti
í Borgarfirði dagana 13.–14. október
2001. Tilgangurinn er að safna saman
flestum þeirra sem fást við stærð-
fræði á Íslandi, hvort sem um er að
ræða rannsóknir, kennslu eða beit-
ingu stærðfræði til úrlausnar á verk-
efnum á öðrum sviðum.
Dagskráin er mjög fjölbreytt. Að-
allega verður fjallað um rannsóknir í
stærðfræði, en einnig stærðfræði-
kennslu. Sérstök áhersla verður lögð
á hagnýtingu á stærðfræði í fiski-
fræði, líftækni og í efnahags- og fjár-
málafræðum, en samtals verða haldn-
ir 10 fyrirlestrar um þessi efni.
Fyrirlesarar eru stærðfræðingar,
sem starfa við Hafrannsóknastofnun,
Íslenska erfðagreiningu, Kaupþing,
Seðlabankann og Háskóla Íslands.
Ný námskrá grunn- og framhalds-
skóla í stærðfræði auk stærðfræði-
kennslu í kennaranámi verða við-
fangsefni á sérstökum umræðufundi
og munu nokkrir kennarar halda þar
framsöguerindi um þessi mál. Ráð-
stefnunni lýkur með fjórum fyrir-
lestrum um tölvunotkun við stærð-
fræðikennslu og rannsóknir. Þátttaka
tilkynnist til Raunvísindastofnunar
háskólans. Upplýsingar eru á heima-
síðu Íslenska stærðfræðafélagsins,
www.vedur.is/is/reykholt.
Ráðstefna Íslenska
stærðfræðafélagsins
„Í ÁR, sem og í fyrra, efnir Skot-
veiðifélag Íslands til herferðarinnar
Láttu ekki þitt eftir liggja þar sem
skotveiðimenn eru beðnir um að taka
með sér til byggða notuð skothylki,
sín og annarra.
Umhverfisátak þetta er unnið í
samvinnu við umhverfisráðuneytið
og OLÍS,“ segir í frétt frá Skotveiði-
félagi Íslands.
Átak skot-
veiðimanna
LEIKMANNASKÓLI Þjóðkirkj-
unnar býður upp á námskeið í H.Í.
mánudagana 15. október og 22. októ-
ber n.k. kl. 18.00-20.30 sem nefnist Is-
lam í sögu og samtíð. „Þar ætlar sr.
Þórhallur Heimisson að veita innsýn í
veröld Islam og kynna upphaf, sögu,
útbreiðslu og þjóðfélagsáhrif frá dög-
um Múhammeðs spámanns til dags-
ins í dag. Spurt verður um eðli kór-
ansins, stöðu karla og kvenna, trú og
stjórnmál og mörg þau atriði sem eru
í fréttum í dag. Einnig mun hann
fjalla um hina ýmsu flokka múslima
s.s. sunníta, shíta, wahabíta og þá sem
í dag eru kallaðir bókstafstrúarmenn
eða öfgamenn.
Skráning fer fram á vef Leik-
mannnaskólans, www.kirkjurad.is/
leikmannaskoli,“.
Námskeið um íslam
Í SAMRÆMI við samning milli Ís-
lands og Argentínu, sem öðlaðist
gildi 28. september 2001, hefur
skylda íslenskra ríkisborgara til að
hafa undir höndum vegabréfsáritun í
ferðum til Argentínu verið afnumin.
Afnám þessarar skyldu er bundið við
3 mánaða dvöl á hverju sex mánaða
tímabili fyrir ferðamenn, fólk í við-
skiptaerindum og þá sem taka þátt í
íþróttum eða vísinda- og menningar-
starfsemi, enda sé ekki um það að
ræða að viðkomandi stundi launaða
vinnu.
Sem fyrr þarf sérstök leyfi til
lengri dvalar í Argentínu svo og til
að stunda þar launaða vinnu.
Þarf ekki vegabréf
til Argentínu
Á AÐALFUNDI fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Hafnarfirði sl.
mánudagskvöld var tillaga kjör-
nefndar um prófkjör fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar einróma
samþykkt. Prófkjörið verður opið
þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins sem eiga munu kosninga-
rétt í Hafnarfirði á kjördegi, segir í
fréttatilkynningu.
Opið prófkjör sam-
þykkt í Hafnarfirði
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur skipað húsafriðunarnefnd sam-
kvæmt nýjum lögum um húsafriðun
nr. 104/2001. Nefndin er nú þannig
skipuð:
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt,
formaður, skipaður án tilnefningar,
Pétur H. Ármannsson arkitekt,
varaformaður, tilnefndur af Arki-
tektafélagi Íslands, Einar Njálsson
bæjarstjóri, tilnefndur af Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, Nikulás Úlf-
ar Másson arkitekt og Guðmundur
Þór Guðmundsson lögfræðingur,
skipaðir án tilnefninga.
Varamenn eru Gylfi Guðjónsson
arkitekt, tilnefndur af Arkitekta-
félagi Íslands, Ingunn Guðmunds-
dóttir, formaður bæjarráðs, tilnefnd
af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Júlíana Gottskálksdóttir forstöðu-
maður, Guðrún Kristinsdóttir safn-
stjóri og Lýður Pálsson safnstjóri,
skipuð án tilnefninga.
Ný skipun
í húsafriðunarnefnd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn
BHM:
„Stjórn Bandalags háskólamanna
undrast að í tillögum ríkisstjórnar-
innar í skattamálum skuli ekki tekið
tillit til sjónarmiða háskólamanna,
sem ítrekað hafa komið fram, um að
afborganir af lánum Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna skuli dragast
frá tekjuskattsstofni. Í mörgum til-
vikum nema afborganir af námslán-
um svipaðri upphæð og ráðstöfunar-
tekjur eins mánaðar. Kominn er
tími til þess að fyrrverandi lánþegar
LÍN fái laun í tólf mánuði eins og
flestir aðrir í samfélaginu.“
Dæmi um endurgreiðslur náms-
lána segir stjórn BHM vera: Með-
allaun félaga í Bandalagi háskóla-
manna eru um 270.000 á mánuði.
Útborguð laun eru þá um 178.000.
Samkvæmt vef LÍN eru afborganir
þeirra sem eru með 3.250.000 í árs-
tekjur; 154.375 fyrir þá sem tóku lán
eftir 1992 en 121.875 fyrir þá sem
tóku lán fyrir 1992.
Ályktun frá
stjórn BHM
VIÐ fjöruborðið á Stokkseyri
verður 108 ára afmælis Páls Ísólfs-
sonar minnst í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20.30. Bjarki Svein-
björnsson flytur létt erindi úr
tónlistarsögu strandarinnar.
Að dagskránni standa Ung-
mennafélag Stokkseyrar, Kven-
félag Stokkseyrar, Hagsmunafélag
hestaeigenda og Hrútavinafélagið
Örvar.
Tónlistarmanns
minnst á Stokkseyri
Í TILEFNI af þriggja ára afmæli
Dvalar, athvarfs fyrir fólk með
geðraskanir, er opið hús í Dvöl
fyrir almenning laugardaginn 13.
október.
Sjálfboðaliðar Dvalar munu taka
á móti gestum frá klukkan 13–16.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér starfsemi Dvalar, Reyni-
hvammi 43, Kópavogi, eru vel-
komnir.
Opið í Dvöl