Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 1
232. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 11. OKTÓBER 2001
„Nú þegar Bandaríkin hafa hafið
stríð við múslíma er staðan gerbreytt
og öllum hömlum á Osama bin Laden
hefur verið aflétt,“ sagði Abdul Hai
Muttman, talsmaður talinbanastjórn-
arinnar. „Heilagt stríð er skylda allra
múslíma í heiminum. Við viljum þetta,
bin Laden líka, og Bandaríkin verða
að taka afleiðingunum.“
Áður hafði hreyfing bin Ladens, al-
Qaeda, hótað fleiri árásum í Banda-
ríkjunum. Þarlend yfirvöld eru með
mikinn öryggisviðbúnað vegna hætt-
unnar á fleiri árásum hryðjuverka-
manna og farþegavél á leiðinni frá
Atlanta í Georgíu til Los Angeles var
nauðlent í gærkvöld í fylgd tveggja
orrustuþotna eftir að flugstjórinn
skýrði frá því að farþegi hefði verið
með ólæti í stjórnklefanum.
Bin Laden er efstur á lista sem
George W. Bush birti í gær yfir 22
meinta hryðjuverkamenn sem
Bandaríkjastjórn leggur mest kapp á
að handtaka.
Bandarískur embættismaður sagði
í gærkvöld að leyniþjónustumenn
hefðu skýrt frá því að nokkrir af for-
ystumönnum talibana hefðu fallið í
loftárásunum á Afganistan á sunnu-
dag, þeirra á meðal tveir frændur
Mohammads Omars, leiðtoga talib-
ana.
Árásum á fleiri ríki hafnað
Herþotur vörpuðu sprengjum á
skotmörk í Afganistan í gær í hörð-
ustu loftárásunum til þessa í barátt-
unni við hryðjuverkamenn. Þoturnar
beittu í fyrsta sinn öflugri sprengju
sem notuð er til að eyðileggja neð-
anjarðarbyrgi. Talibanar sögðu að 76
óbreyttir borgarar hefðu látið lífið í
árásunum frá því á sunnudag.
Utanríkisráðherrar OIC, samtaka
íslamskra ríkja, sögðust í gær vera
andvígir því að árásir yrðu gerðar á
önnur múslímaríki en Afganistan í
baráttunni gegn hryðjuverkastarf-
semi. Ráðherrarnir fordæmdu ekki
árásirnar á Afganistan en létu í ljósi
áhyggjur af því að þær gætu valdið
mannfalli meðal óbreyttra borgara.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, hvatti til alþjóðlegra aðgerða
til að uppræta hvers konar hryðju-
verkastarfsemi í heiminum.
Leiðtogar talibana hvetja alla múslíma til árása á Bandaríkin
Gefa bin Laden frjálsar
hendur til að heyja stríð
STJÓRN talibana í Afganistan tilkynnti í gær að sádi-arabíski útlag-
inn Osama bin Laden hefði nú frjálsar hendur í baráttunni við Banda-
ríkjastjórn og sagði það skyldu hans og raunar allra múslíma í heim-
inum að heyja „heilagt stríð“ við Bandaríkin.
Reuters
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hóf í gær þriggja daga ferð um Mið-Austurlönd og ávarpar hér breska
hermenn í Óman. Blair sagði að yfirlýsing talibana um að Osama bin Laden hefði frjálsar hendur til að heyja
„heilagt stríð“ við Bandaríkin sannaði að loftárásirnar á Afganistan væru nauðsynlegar.
Kabúl, Íslamabad, Washington. AFP, AP.
Ráðist gegn/24–26
Nokkrir forystumenn talibana
sagðir hafa fallið í loftárásunum
BANDARÍSKA alríkislögreglan,
FBI, hélt í gær áfram að rann-
saka tildrög tveggja miltisbrands-
sýkinga í Flórída og fregnir
hermdu að „einstakir eiginleikar“
sýkilsins bentu til þess að hann
kynni að hafa verið ræktaður á
rannsóknarstofu í Iowa fyrir
hálfri öld. Dagblaðið The Miami
Herald og CNN-sjónvarpið höfðu
þetta eftir heimildarmönnum í
lögreglunni. Þeir lögðu áherslu á
að lokaniðurstaða rannsókn-
arinnar lægi ekki fyrir en sögðu
að ef rétt reyndist að miltisbrand-
urinn væri af mannavöldum yrði
málið rannsakað sem sakamál.
Þeir tilgreindu ekki rannsókn-
arstofuna sem kann að hafa rækt-
að sýkilinn og sögðust ekki vita
hvort hún væri enn starfrækt.
Störfuðu í
sömu byggingu
Miltisbrandur er bráðdrepandi
bakteríusjúkdómur og annar
mannanna sem sýktust í Flórída
lést á föstudag. Þeir störfuðu
báðir í byggingu nokkurra síð-
degisblaða í bænum Boca Raton
og heilbrigðisyfirvöld í Flórída
sögðu í gær að líkurnar á að tveir
menn sýktust af miltisbrandi á
sama stað væru „einn á móti
milljarði“.
Grunur lék á að kona, sem
starfaði í sömu byggingu, hefði
einnig sýkst af miltisbrandi en
læknar sögðu í gær að það væri
mjög ólíklegt.
Rannsóknarmenn eru hér að
störfum í fjölmiðlabyggingunni í
Boca Raton.
Reuters
Miltis-
brandurinn
af manna-
völdum?
Mikil hræðsla/2
TALSMAÐUR Bandaríkjafor-
seta hvatti í gær bandarískar
sjónvarpsstöðvar til þess að
hugsa sig vel um áður en þær
sýndu upptökur af yfirlýsingum
Osama bin Ladens og sagði hann
geta notað þær til að fyrirskipa
hryðjuverk.
„Þegar best lætur eru skila-
boð bin Ladens áróður, áskorun
um að drepa Bandaríkjamenn. Í
versta falli er hugsanlegt að
hann gefi fylgismönnum sínum
fyrirmæli um að hefja slíkar
árásir,“ sagði talsmaðurinn, Ari
Fleischer.
Sjónvarpsstöðvarnar sögðust
ætla að verða við þessari beiðni,
þeirra á meðal CNN sem kvaðst
ætla að kanna vandlega allar
upptökur af yfirlýsingum bin
Ladens áður en þeim yrði sjón-
varpað og hafna efni sem talið
væri „greiða fyrir hryðjuverk-
um“. „Þegar ákveðið er hvað
skuli sýnt hyggst CNN hugleiða
ráðleggingar yfirvalda.“
CNN hefur hingað til sýnt
ávörp bin Ladens og hreyfingar
hans um leið og arabíska sjón-
varpið Al-Jazeera án þess að
kanna boðskapinn áður. Fleisch-
er kvað Bandaríkjastjórn vilja
að fjölmiðlar vöruðust að birta
skilaboðin í heild. „Það er ekki
ritskoðun, heldur beiðni til fjöl-
miðla og þeir ákveða sjálfir hvað
skuli birt.“
Fjölmiðlar
varist
áróður
bin Ladens
Washington. AFP.
Afskipti af fjölmiðlum/25
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins (ESB) gaf í gær ríkis-
stjórnum aðildarlandanna leyfi til að
hlaupa undir bagga með flugfélögum
sem orðið hafa fyrir miklu tjóni vegna
afleiðinga hryðjuverkanna í Banda-
ríkjunum 11. september. „Við viljum
ekki að evrópsk flugfélög standi höll-
um fæti gagnvart bandarískum
keppinautum,“ sagði Loyola de Pal-
acio sem fer með samgöngumál í
framkvæmdastjórninni. Mikil endur-
skipulagning var hafin í evrópskum
flugrekstri fyrir árásirnar og de Pal-
acio sagði að sérstakar aðstæður nú
breyttu því ekki að eftir sem áður
þyrfti að gera róttækar breytingar.
„Falla þarf frá hugmyndinni um
þjóðarflugfélag, við gætum þurft
Evrópuflugfélag. Raunveruleikinn
krefst þess,“ sagði de Palacio.
Bandarísk stjórnvöld hafa veitt
innlendum flugfélögum samanlagt 15
milljarða dollara aðstoð í kjölfar árás-
anna á New York og Washington.
Samgönguráðherrar ESB-ríkjanna
hittast í Lúxemborg á mánudag og
fjalla þá um tillögur framkvæmda-
stjórnarinnar. Að sögn de Palacio hef-
ur pöntunum hjá evrópsku félögunum
á ferðum til Bandaríkjanna og Mið-
Austurlanda fækkað um 30%.
Framkvæmdastjórnin leggur m.a.
til að stjórnvöld framlengi ríkis-
ábyrgð vegna hækkaðra tryggingaið-
gjalda. „Okkur skilst að þörf sé á
nokkrum bótum vegna tapsins sem
félögin urðu fyrir meðan lofthelgi
Bandaríkjanna var lokuð í fjóra
daga,“ sagði de Palacio en gaf í skyn
að um takmarkaða aðstoð yrði að
ræða.
Einnig er mælt með að slakað verði
á kröfum um þjónustu og eftirlit á
leiðum sem fáir nota og evrópsk flug-
félög ættu ekki að þurfa að óttast að
missa réttindi á flugvöllum vegna
minni umsvifa í kjölfar árásanna.
Kanna mætti hvort sams konar til-
slökun væri við hæfi í vetur ef sam-
drátturinn í flugi héldi áfram.
Bandarísk félög hafa gripið til ým-
issa ráðstafana til að auka öryggi og
eftirlit og de Palacio sagði að herða
yrði öryggiskröfur í Evrópu þótt ekki
væri að þessu sinni mælt með því að
öryggisverðir yrðu í vélunum.
ESB mælir með
aðstoð við flugfélög
Hugmyndir um eitt
Evrópuflugfélag
Brussel. AP, AFP.
Stjórnvöld/2