Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTA byggingin er að rísa á nýju
iðnaðarsvæði í Vogum. Normi hf.
áformar að flytja starfsemi sína
þangað úr Garðabæ.
Vatnsleysustrandarhreppur hefur
skipulagt nýtt iðnaðarsvæði norðan
Vogabrautar sem liggur frá Reykja-
nesbraut í Vogana og er fyrirhugað
að koma þar fyrir grófari atvinnu-
starfsemi. Vélsmiðjan Normi hf. fékk
úthlutað fyrstu og jafnframt stærstu
lóðinni, um 20 þúsund fermetrum, og
hefur verið unnið í grunni verk-
smiðjuhúss í sumar. Nú er byrjað að
reisa húsið sem verður um 2.000 fer-
metrar að stærð með mikilli lofthæð.
Þar verður vélsmiðjan starfrækt og
einnig plastverksmiðjan Norm-X.
Vatnsleysustrandarhreppur hefur
unnið að lagningu vegar úr Vogum að
nýja iðnaðarsvæðinu og Hitaveita
Suðurnesja er að leggja þangað raf-
magn og vatn.
Að sögn Jóhönnu Reynisdóttur
sveitarstjóra hefur öðrum lóðum
ekki verið úthlutað þarna en þær
verða auglýstar opinberlega á næst-
unni.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Verið er að reisa grind verksmiðjuhúss Norma hf. í Vogum.
Fyrsta húsið á nýju
iðnaðarsvæði
Vogar
FIMMTÁN leiðbeinendur í
neyðarakstri voru útskrifaðir í
Reykjanesbæ á dögunum eftir
námskeið sem bandarískir sér-
fræðingar kenndu. Leiðbeinend-
urnir munu síðan kenna slökkvi-
liðsmönnum og sjúkraflutninga-
mönnum aðferðirnar, hver hjá
sinni stofnun.
Ekki hefur verið markviss
kennsla í neyðarakstri hér á landi,
að sögn Sigmundar Eyþórssonar
slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum
Suðurnesja. Hins vegar eru
slökkviliðsmenn almennt með
meirapróf og það veitir þeim góð-
an grunn, segir Sigmundur.
Bandarískt námskeið
Brunamálaskóli ríkisins og
fulltrúar stærslu slökkviliða lands-
ins, það er Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins, Slökkviliðs Keflavík-
urflugvallar og Brunavarna Suð-
urnesja hafa um tíma unnið að
undirbúningi þess að hefja kennslu
í neyðarakstri samkvæmt viður-
kenndum stöðlum. Keypt var nám-
skeið fyrir leiðbeinendur frá
bandaríska tryggingafélaginu
VFIS en það tryggir yfir tíu þús-
und neyðarþjónustudeildir slökkvi-
liða og sjúkraflutningafyrirtækja í
Bandaríkjunum og Kanada. Komu
tveir fulltrúar fyrirtækisins og
kenndu námsefnið í Kjarna í
Keflavík. Námskeiðið var keyrt í
gegn á fjórum dögum auk þess
sem stutt verkleg kennsla var á
flugbraut á Keflavíkurflugvelli.
Sigmundur segir að margt at-
hyglisvert hafi komið fram á nám-
skeiðinu. Lögð hafi verið áhersla á
öruggan neyðarakstur. Mikilvæg-
ast væri að hjálparlið kæmist
örugglega á staðinn og að ekki
sparaðist tími með neyðarakstri
sem fram færi með miklum látum.
Áfram er unnið að því að ís-
lenska námsefnið og staðfæra. Það
verður kennt í Brunavarnaskóla
ríkisins og leiðbeinendurnir munu
kenna það hver hjá sínu liði og hjá
öðrum minni slökkviliðum eftir því
sem þörf verður á.
Leiðbeinendur á nám-
skeiði í neyðarakstri
Reykjanesbær
HEILBRIGÐISSTOFNUN Suður-
nesja fær 30 milljónir króna til að
reka langlegudeild D-álmu sjúkra-
hússins í Keflavík rúmlega hálft
næsta ár. Telur framkvæmdastjóri
stofnunarinnar það fullnægjandi.
Verktaki er að ljúka við byggingu
D-álmu sjúkrahússins um þessar
mundir. Neðsta hæðin verður tekin í
notkun smám saman næstu daga og
vikur en þar verða rannsóknastofur,
starfsmannaaðstaða og fleira. Á
annarri hæðinni verða 24-25 rúm
fyrir langlegusjúklinga og er hún
einnig tilbúin. Hún verður tekin í
notkun 1. júní á næsta ári, í sam-
ræmi við samning ríkisins og sveit-
arfélaganna á Suðurnesjum sem
tóku að sér að flýtifjármagna fram-
kvæmdirnar.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyr-
ir næsta ár fær Heilbrigðisstofnunin
30 milljónir til að reka deildina á
næsta ári og telur Jóhann Einvarðs-
son framkvæmdastjóri að það dugi
ef allt gengur að óskum. Eftir er að
kaupa sjúkrarúm, önnur húsgögn og
búnað. Kostnaður hefur ekki verið
áætlaður en gæti verið einhvers
staðar á öðrum tug milljóna, sam-
kvæmt upplýsingum Jóhanns. Telur
hann víst að sérstök fjármögnun fá-
ist á því, af óskiptum fjárveitingum
til ráðuneytisins.
30 millj. til að reka
langlegudeild
Keflavík
GUÐRÚN J. Karlsdóttir, mynd-
listarmaður í Keflavík, hefur opn-
að málverkasýningu á Café Mil-
anó í Faxafeni í Reykjavík.
Á sýningunni eru 28 myndir og
allar málaðar með olíu.
Sýningin var opnuð sunnudag-
inn 7. október síðastliðinn og
stendur yfir til 18. nóvember.
Guðrún J. Karlsdóttir er með sýningu í Reykjavík.
Guðrún sýnir
á Café Milanó
Keflavík
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Á námskeiðinu voru slökkviliðsmenn frá Keflavík, höfuðborgarsvæðinu, Sauðárkróki og Akureyri. Einnig voru
þátttakendur frá Keflavíkurflugvelli, Brunamálastofnun, Ríkislögreglustjóra og Lögregluskólanum.
SJÖ ára gamall drengur slasað-
ist á höfði og hendi þegar hann
lenti undir steini í malargryfju
norðan Keflavíkur.
Slysið varð þegar drengurinn
var ásamt félaga sínum að leik í
malargryfu í nágrenni Heiðar-
holts síðastliðinn sunnudag.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar hefur efni verið losað
á brún gryfjunnar og í því er
stórgrýti. Stór steinn valt ofan á
drenginn sem klemmdist undir
honum. Félagi hans hljóp eftir
hjálp og komu menn til hjálpar.
Veltu þeir steininum, sem áætl-
að er að sé 300–400 kíló að
þyngd, ofan af drengnum.
Drengurinn fékk skurð á höf-
uð og meiddist auk þess á hendi.
Hann var fluttur á sjúkrahús í
Reykjavík en var ekki talinn lífs-
hættulega slasaður, að sögn lög-
reglu.
Varð undir
300 kílóa
steini
Keflavík
TVEIMUR skjávörpum og fartölvu
hefur verið stolið úr Fjölbrautaskóla
Suðurnesja á stuttum tíma.
Lögreglunni í Keflavík var til-
kynnt um þjófnaðinn síðastliðinn
föstudag. Þarna er um töluverð verð-
mæti að ræða, eða um 750 þúsund
krónur. Annar skjávarpinn hvarf 26.
september sl. en hinn skjávarpinn og
fartölvan hurfu seinnipart dags 4.
október.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um hvarf þessara hluta geta haft
samband við rannsóknardeild lög-
reglunnar í Keflavík.
Skjávörpum
stolið
Keflavík