Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. INNAN Alþýðusambandsins er nú til skoðunar að kaupa hæð í byggingu sem Efling – stéttarfélag reisti í Sæ- túni 1 af lífeyrissjóðnum Framsýn undir framtíðarstarfsemi sambands- ins og einstakra landssambanda. Um er að ræða 1. hæð hússins þar sem ferðaskrifstofan Samvinnuferð- ir-Landsýn er nú til húsa. Ágreining- ur er hins vegar innan ASÍ um hvort eðlilegt sé að ASÍ og einstök lands- sambönd hafi með sér slíkt samstarf og verði í sameiginlegu húsnæði í framtíðinni. Var tekist á um málið á miðstjórn- arfundi í gær. Tóku einstakir mið- stjórnarfulltrúar hugmyndina óst- innt upp og héldu því fram að slík nálægð einstakra aðildarsambanda við forystu ASÍ myndi skapa tor- tryggni innan hreyfingarinnar. Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ og formaður Starfsgreinasam- bandsins, segir að málið sé á byrj- unarstigi en þetta sé sú hugmynd sem er til skoðunar núna. Að hans sögn hafa Starfsgreina- sambandið og Sjómannasambandið þegar samþykkt að skoða þann möguleika að deila húsnæði með ASÍ og jafnframt hefur Landssamband verslunarmanna beðið um húsaskjól hjá ASÍ. Rafiðnaðarsambandið, sem er með höfuðstöðvar sínar í nýlegri byggingu á Stórhöfða, er mótfallið þessu og óvissa er um afstöðu Sam- iðnar. Um er að ræða um 1.400 fermetra á 1. hæð hússins auk aðstöðu í kjall- ara. Að sögn Halldórs má lífeyris- sjóðurinn lögum samkvæmt ekki eiga húsnæðið og þarf því að selja flytji Samvinnuferðir aðstöðu sína annað. Skrifstofur Eflingar eru á þriðju hæð hússins og m.a. eru Framsýn og Landssamband lífeyrissjóðanna til húsa í Sætúni 1. Hugmyndin umdeild Halldór Björnsson segir að það hafi lengi staðið til að ASÍ kæmist í almennilegt húsnæði og hann hafi verið hlynntur samstarfi við lands- samböndin um þetta. Hins vegar hafi komið í ljós í gær að miðstjórnar- menn voru ekki sammála þessu og komið hafi fram aðdróttanir um bak- tjaldamakk. ,,Við erum aðallega að hugsa um hvað er hentugt og hvort við getum samnýtt starfsemina. Auð- vitað verður þetta rekið sem sjálf- stæðar einingar. Það er ákaflega erf- itt að ná nokkurri niðurstöðu þegar menn eru haldnir þessari firru. Það náttúrlega borgar sig ekki að fara með landssamböndin inn með Alþýðusambandinu ef það veldur ein- hverjum óróa í hreyfingunni, sem er tiltölulega róleg í dag.“ Miðstjórn fól Grétari Þorsteins- syni, forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörns- syni framkvæmdastjóra og Halldóri Grönvold skrifstofustjóra að vera í forsvari þessa máls á næstunni. Hall- dór Björnsson sagði sig frá málinu þar sem hann á sæti í stjórn lífeyr- issjóðsins Framsýnar. Ágreiningur í miðstjórn ASÍ um húsnæði með landssamböndum Rætt um að kaupa hæð í Sætúni 1 af Framsýn MIKILL fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind á fyrsta degi opnunar- hátíðar og höfðu um 45 þúsund manns heimsótt þessa nýju og glæsilegu verslunarmiðstöð þegar verslunum var lokað klukkan átta í gærkvöld. Formleg opnun Smáralindar fór fram klukkan tíu mínútur yfir tíu í gærmorgun þegar þau Smári Páll Svavarsson og Linda Margrét Gunnarsdóttir ýttu á rofann sem hleypti m.a. straumi á ljós og rúllustiga og höfðu þá þegar myndast raðir við helstu dyr verslunarmiðstöðvarinnar. Að sögn Þorvalds Þorlákssonar, markaðsstjóra Smáralindar, var aðsóknin um 20% meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Umferð gekk vel við Smáralind, að sögn lög- reglu, og urðu engar teljandi tafir. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í ræðu sinni við opnunina að Smáralind væri glæsilegt mann- virki sem myndi auka fjölbreytni í þjónustu og verslun. Þá væri hægt að treysta því að verslunarmiðstöðin myndi auka samkeppni „en fákeppni er fjand- maður neytandans, eins og dæmin sanna“, sagði forsætisráðherra. 45.000 gestir heim- sóttu Smáralind  Glæsilegt/28–29 Morgunblaðið/Ásdís Margt var um manninn í Smáralind í gær á fyrsta degi opnunarhátíðar verslunarmiðstöðvarinnar. SEÐLABANKINN greip inn á gjaldeyrismarkaði í gær með því að selja 4,5 milljónir dollara. Þetta jafn- gildir krónukaupum fyrir u.þ.b. 1,8 milljarða króna. Inngripin voru gerð eftir að ljóst var að krónan væri tek- in að styrkjast og frá opnun markaða til lokunar nam styrkingin tæpum tveimur prósentum. Að sögn Birgis Ísleifs Gunnars- sonar seðlabankastjóra byrjaði krónan að styrkjast í gærmorgun eftir mikla lækkun að undanförnu. „Við erum mjög eindregið þeirrar skoðunar að það séu engin efnahags- leg rök fyrir þeirri lækkun sem hefur orðið undanfarnar vikur. Þannig að við ákváðum að fylgja því eftir þegar ljóst var að krónan var byrjuð að styrkjast og reyna að fá fram frekari styrkingu. Það gerðist þannig að hún styrktist um tæp 2% frá opnun til loka markaðarins.“ Hann segir að inngripin hafi byggst á þeirri ein- dregnu skoðun Seðlabankans að krónan væri orðin of veik. „Við bara fylgjumst rækilega með því sem ger- ist á markaðinum en það virtist vera komin ró yfir markaðinn fljótlega eftir hádegið [í gær] og krónan var frekar að styrkjast. Við vonum að sú óvissa, sem verið hefur á markaðin- um, sé búin.“ Seðlabankinn seldi dollara í gær fyrir 1,8 milljarða króna Fylgdi eftir styrk- ingu krónunnar HEILDSALAR í Texas og Oklohoma í Bandaríkjunum hafa óskað eftir að kaupa þrjátíu tonn af hrútspungum af Norðlenska. Í Bandaríkj- unum eru hrútspungarnir seldir djúpsteiktir á skyndi- bitastöðum og þykja mjög góðir. Nær ekki að afgreiða svo stóra pöntun Ljóst er að Norðlenska nær ekki að afgreiða svo stóra pöntun en fyrirtækið telur sig geta flutt út tólf tonn í haust og fær það hærra verð fyrir pungana ytra en hér heima. Fastlega er gert ráð fyrir að framhald verði á þessum útflutningi næsta haust. Hrúts- pungar útflutn- ingsvara  Selja 12 tonn/C1 FÓLKIÐ sem slasaðist í miklu grjóthruni í Glymsgili í Hvalfirði hinn 29. september síðastliðinn hefur verið útskrifað af sjúkrahúsi. Tveir slösuðust í gilinu, 28 ára kona og 32 ára maður, og voru þau lögð inn á sjúkrahús með mikil meiðsli á fótum. Maðurinn lá á sjúkrahúsinu á Akranesi og var út- skrifaður fyrir nokkrum dögum. Konan lá á Landspítalanum í Foss- vogi og var útskrifuð af bæklunar- deild í gær. Útskrifuð af sjúkrahúsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.