Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 21 FYRIR skömmu sýndi Framhalds- skólinn á Húsavík þá framsýni og áræði að afhenda flestum kenn- urum skólans fartölvur til afnota við starf sitt þeim að kostn- aðarlausu. Við athöfn í skólanum kom fram í máli Guðmundar Birkis Þorkelssonar, skólameist- ara FSH, að þetta er fyrsti skól- inn á landinu sem stígur þetta skref til fulls. Aðrir skólar hafa til þessa styrkt kennara til kaupa á fartölvum, frá nokkrum tugum þúsunda til allt að helmings kaup- verðs. Stjórnendur FSH líta svo á að fartölva sé nauðsynlegt tæki fyrir nútíma kennsluhætti. Því sé sjálfsagt að leggja kennurum til slík verkfæri með svipuðum hætti og töflukrít, landakort, vasatölvu eða myndvarpa á árum áður. Skólameistari sagði að ekki væri gert ráð sérstaklega fyrir fjárframlögum til þessa verkefnis í fjárveitingum til framhalds- skóla. Þó hafi tekist að fjármagna kaupin með útsjónarsemi og sparnaði á öðrum sviðum. Þannig þarf nú t.d. ekki að kaupa borð- tölvu í hverja kennslustofu með tilheyrandi kostnaði. Á næstu dögum er svo gert ráð fyrir að setja upp þráðlaust net innan skólans. Þannig geta allir sem nota fartölvur í skólanum tengst innra og ytra neti skólans með einföldum og hagkvæmum hætti. Guðmundur Birkir sagði að engar kröfur væru um að nemendur skólans keyptu svo dýr tæki sem fartölvurnar væru. Nemendur hafa aðgang að 20 nýlegum borð- tölvum auk nokkurra eldri véla. Hins vegar hafa allir þeir nem- endur sem þess óska aðgang að skólatilboðum tölvufyrirtækjanna. Skólinn tók tilboði frá Aco- Tæknivali um kaup á tölvunum sem eru eru annars vegar Tosh- iba Satellite og hins vegar Mac- intosh iBook. Sigurður Erlends- son, netstjóri og tölvukennari skólans, kynnti kennurunum kosti tölvanna sem sumir hverjir urðu strax niðursokknir í nýju græj- urnar. Þorsteinn Kruger tók til máls fyrir hönd kennara og þakk- aði stjórnendum skólans þeim Guðmundi Birki skólameistara og Gísla G. Auðunssyni, formanni skólanefndar, fyrir fartölvurnar og þann búnað sem þeim fylgir. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Gunnar Baldursson aðstoðarskólameistari, niðursokkinn í nýju tölv- unni, og Brynjar Már Bjarkan, formaður nemendafélags skólans. Framhaldsskólinn af- henti kennurum fartölvur Húsavík LANDSÆFING Slysavarna- félags Íslands verður haldin á Snæfellsnesi laugardaginn 13. október með þátttöku björgunar- sveita frá öllum landshlutum. Sama dag verða þjálfunarbúðir Landsbjargar á Gufuskálum vígð- ar af Sturlu Böðvarssyni sam- gönguráðherra. Auk björgunar- sveitafólks tekur þátt í æfingunni fjöldi viðbragðsaðila s.s. lögregla, slökkvilið, heilbrigðisstarfsmenn Landhelgisgæslan og varnarliðið í Keflavík. Vænst er þátttöku á fimmta hundrað þátttakenda. Stór þáttur æfingarinnar verður rústabjörgun, þar sem æfð er björgun fólks úr húsarústum í kjölfar jarðskjálfta, sprenginga eða annarra hamfara. Landsæfing Lands- bjargar á Snæfellsnesi Snæfellsnes GAMLA brúin á Blöndu sem var vígð árið 1897 og flutt árið 1962 fram í Svartárdal til þessa að tengja Stein- árbæi við þjóðvegakerfið er aftur komin á Blönduós eftir 39 ára fjar- veru. Þessi elsta brú landsins var hætt að gegna hlutverki sínu fyrir Steinárbændur því samgöngutæki nútímans eru orðin breiðari en þessi trausta og fornfræga brú. Ákveðið var að flytja brúna aftur til Blöndu- óss því bæjarstjórn Blönduóss hefur lýst yfir áhuga sínum á að fá henni aftur hlutverk ekki síst vegna þess hve veigamiklu hlutverki brúin gegndi á sínum tíma og þeirra gríð- armiklu áhrifa sem hún hafði á allar samgöngur í héraðinu. Ýmsar hug- myndir eru uppi um hvar eigi að setja brúna niður og eru margir á því að gamla Blöndubrúin þjóni best hlutverki sínu niður við ósinn. Engar endanlegar niðurstöður hafa verið teknar um staðsetningu brúarinnar en næstu mánuðir verða notaðir í það að gera brúna upp og velta vöng- um um hlutverk og staðsetningu hennar. Þó svo að gamla Blöndubrú- in væri hætt að þjóna sínu hlutverki fyrir Steinárbændur þá fann yngsta kynslóðin á Steinárbæjum til sárs saknaðar þegar brúin var hífð upp og flutt í burt því þessi reisulega, rúm- lega aldar gamla brú átti stóran sess í hugarheimi þeirra. Steypustöðin á Blönduósi mun byggja fyrir Stálbæ hf. í Kópavogi nýja brú í stað þeirrar gömlu yfir Svartá fyrir 13 milljónir króna og hefur ætlað sér mánuð til að koma íbúum Steinárbæja aftur í vegasamband. Elsta brú landsins væntir hlutverks á ný Gamla brúin á Blöndu komin heim eftir 39 ár í Svartárdal Morgunblaðið/Jón Sig. Þegar gamla Blöndubrúin fór yfir þá nýju krækti hún í arftaka sinn svona rétt til að minna hana á að hún væri komin aftur heim. Blönduós NÝR hringingarbúnaður var settur í klukknaport Ólafsvíkurkirkju á dögunum. Búnaðurinn, sem er tölvustýrður, gefur möguleika á mismunandi hringingum fyrir ólík tilefni og stjórnar einnig hitastigi inni í kirkjunni. Ólsurum þótti e.t.v. nóg um þegar verið var að prufu- keyra búnaðinn, en þá ómaði klukknahljómur í bænum á klukku- stundar fresti allan sólarhringinn. Nú hringja klukkurnar kl. 12 á há- degi og kl. 18 og minna þannig á hógværari hátt á Guðsríkið á þess- um síðustu og verstu tímum. Klukknahljóm, klukknahljóm Ólafsvík Morgunblaðið/Elín Una RAUÐAKROSSDEILD Rangárvallasýslu færði nýverið hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu göngugrind að gjöf. Kemur hún að góðum not- um fyrir einstaklinga sem eru verulega hreyfihaml- aðir. Að sögn Jóhönnu Friðriksdóttur hjúkrunar- forstjóra eykur notkun hennar töluvert lífsgæði þeirra sem að öðru jöfnu eru bundnir hjólastólum. Á grindinni er sæti sem hægt er að hækka og lækka þannig að notand- inn er veginn upp í stand- andi stöðu. Þannig getur hann ýmist beitt kröftum sínum í að ganga eða hvílt sig í sætinu þegar hann þreytist. Það voru sjúkraliðanem- ar í starfsnámi á Lundi sem bentu á að grind sem þessi gæti komið að góðum notum fyrir skjólstæðinga stofnunarinnar. Tækið keypti Rauðakrossdeildin hjá Eirbergi ehf. og kostar það á þriðja hundrað þús- und króna. Góð gjöf til hjúkrun- ar- og dvalarheimilis Hella Ljósmynd/Anna Ólafsdóttir Þorvaldur frá Núpakoti viðrar sig úti í göngugrindinni með Jónu Guðbjörnsdótt- ur, starfsmann á Lundi, sér við hlið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.