Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á MÓTI SÓL hefur verið að
treysta sig í sessi í meistaradeildinni
í poppbransanum, eða sveitaballa-
bransanum, og er orðin með vinsælli
sveitum í þeim geiranum. En það
sem meira er um vert, og er auð-
heyranlegt hér, hefur hljómsveitin
einnig tekið stórfelldum tónlistar-
legum framförum. Þessi plata,
þeirra þriðja og samnefnd sveitinni,
er nefnilega hið prýðilegasta dæmi
um vel heppnaða poppsmíð, nokkuð
sem aðrar viðlíka sveitir gætu tekið
sér til fyrirmyndar.
Þessi árangur er sannarlega
gleðilegur, sérstaklega í ljósi þess að
ég átti síst von á þessu frá þessum
piltum. Á móti sól var lengi hálfgerð-
ur bastarður ballsenunnar, þökk sé
ömurlegum lögum eins „Djöfull er
ég flottur“ og pervisnum
plötum eins og Gumpin-
um. En batnandi mönn-
um er best að lifa, svo
mikið er víst.
Metnaðurinn hér er
greinilegur og finnst
hann víða; t.d. á
pakkningum sem eru
veglegar bæði og
smekklegar og einn-
ig á hljóðvinnslu sem
er nánast fullkomin, hljómur tær og
góður. Rennslið á plötunni er ákveð-
ið og næsta óbrigðult og þægilega
pottþétt ára umlykur gripinn.
Hér er að finna fullmótuð og út-
hugsuð popplög eins og „Ég er til“,
„Star Wars“ og sérstaklega „Eitt-
hvað er í loftinu“ sem er ekkert
minna en frábært, knúð þungri og
stingandi undiröldu; góðar ballöður
(„Ef ég má“, „Bara ef“) og grallara-
leg stuðlög sem ná tilætluðum ár-
angri („Austur-þýsk“ og „Afmæli“).
Meira að segja jólalagið sem rekur
lestina sem hálfgildings aukalag er
bráðgott. Söngvaraskipti áttu sér
stað hjá sveitinni fyrir nokkru og
víst að það segi töluvert um þessi
umskipti. Magni Ásgeirsson er með
sterka og örugga rödd; leiðir lögin
vel áfram án þess að
verða of áberandi.
Textar hjá íslensk-
um poppsveitum eru
sjaldnast rismiklir og
mikið hægt að agnúast
út í þá. Þótt greinilegt sé
að textarnir hér séu að-
allega samdir til að fylla
upp í skylduna, fremur en
af andagift, þjóna þeir til-
ganginum ágætlega. Hin
góða heildaráferð plötunnar nær
líka að blása burt öllum pirringi,
sem ella hefði kannski gert vart við
sig.
Vissulega er hér stöku uppfylling-
arefni á ferð (t.d. „Éra springa“) en í
það litlu magni að skugga slær ekki
á heildina, sem er heilsteypt og góð.
Á móti sól er vel heppnað verk
sem aðstandendur geta verið stoltir
af.
Tónlist
Á móti sól
Á móti sól
Spor
Á móti sól, þriðja plata samnefndrar
sveitar sem er skipuð þeim Magna Ás-
geirssyni (söngur, gítar, raddir), Sævari
Helgasyni (gítar, raddir), Stefáni Þór-
hallssyni (trommur), Þóri Gunnarssyni
(bassi) og Heimi Eyvindarsyni (hljóm-
borð, raddir). Aðstoðarmenn eru Pétur
Örn Guðmundsson, Jóhann Helgason,
Regína Ósk, Gunnar Ólason, Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson, Einar Bárðarson, Sig-
ursteinn Einarsson (allir raddir), Hafþór
Guðmundsson (forritun, raddir), Guð-
mundur Jónsson (gítar), Jóhann Hjörleifs-
son (trommur), Friðrik Sturluson (bassi),
Jens Hansson (hljómborð), Vignir Ólafs-
son (banjó), Lárus Bjarkason (sítar) og
Jón Hafsteinsson (stálgítar).
Lög og textar eru eftir meðlimi en auk
þess koma Stefán Jónsson, Hafþór Guð-
mundsson, Guðmundur Jónsson og Einar
Bárðarson við sögu í lagasmíðum.
Stjórn upptöku var í höndum Hafþórs
Guðmundssonar nema í laginu „Eitthvað
er í loftinu“, þar sem Guðmundur Jónsson
aðstoðaði hann. 45.28 mínútur.
Pottþétt
popp
Arnar Eggert Thoroddsen
„Þessi plata,
þeirra þriðja
og samnefnd
sveitinni, er ...
hið prýðileg-
asta dæmi um
vel heppnaða
poppsmíð,“
segir Arnar
Eggert Thor-
oddsen um nýja
plötu Á móti
sól.
Sniðgangan
Boycott
Drama
Leikstjórn Clark Johnson. Aðalhlutverk
Jeffrey Wright, Terrence Howard. (110
mín.) Bandaríkin 2001. Skífan VHS. Öll-
um leyfð.
ÞESSI VANDAÐA sjónvarps-
mynd frá HBO-kapalstöðinni banda-
rísku segir frá atburðum sem áttu
sér stað um miðbik sjötta áratugar-
ins og eru af mörgum taldir marka
upphaf mannréttindahreyfingar
samtímans. Kveikjan virtist lítilfjör-
leg í fyrstu. Rosa
Parks, svartur íbúi
suðurríkjabæjarins
Montgomery, neit-
aði að standa upp
fyrir hvítum manni
í strætisvagni og
storkaði þar með
reglum um aðskiln-
að hvítra og
svartra sem voru í
gildi í bænum sem er í Alabama-ríki.
Svartir íbúar bæjarins ákváðu í
framhaldið að sniðganga strætis-
vagnana í mótmælaskyni og kölluðu
til ungan og efnilegan prest til að
stjórna aðgerðum sínum en það var
enginn annar en dr. Martin Luther
King sem seinna varð leiðtogi frið-
samlegrar baráttu svartra um gerv-
öll Bandaríkin fyrir auknum borg-
aralegum réttindum.
Þetta er blátt áfram og nokkuð
heiðarleg frásögn af merkum við-
burði í samtímasögu okkar. Galli er
þó að ekki náist að grípa mann betur
með svo safaríku viðfangsefni en
Wright geislar hins vegar í hlutverki
dr. Kings og nær honum skuggalega
vel, bæði í máli og fasi. Magnaður
leikari. Myndbönd
Söguleg
strætóferð
Skarphéðinn Guðmundsson
ÍÞRÓTTIR
Ungir íslenskir listamenn í aðalhlutverkum
Snorri Wium stundaði söngnám í Reykjavík og
Vínarborg. Hann var fastráðinn við óperuna í
Coburg í Þýskalandi á árunum 1992-1996 og
söng hlutverk Dr. Blind í uppfærslu Íslensku
óperunnar á Leðurblökunni vorið 1999.
Athugið breytilegan sýningartíma.
Gefðu þig ævintýrinu á vald!
Sími miðasölu: 511 4200
– töfraheimur á sviði Íslensku óperunnar
MÓNÓSTATÓS
UPPSELT
Mozart
Píanókonsert nr. 23. KV 488
Idomeneo, balletttónlist
Sinfónía nr. 40 í g-moll, K 550
Hljómsveitarstjóri: Philippe Entremont
Einleikari: Philippe Entremont
Sinfónían
Háskólabíó við Hagatorg
Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is
www.sinfonia.is
Rauð áskriftaröð í kvöld
kl. 19:30 í Háskólabíói
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hinn heimskunni píanisti og hljómsveitar-
stjóri Philippe Entremont færir okkur
konfekt frá ýmsum tímum í ævi Mozarts:
!
!
"#
$ "## # % #"#&
!
!"##$%&&
'()*+,
- '!./
0)*) 1
2(3 4!3#5''-%&
46+'
(
'
6
-
7
--
1'
.
'-#89#:
!
64
.
!$;%#$&&
<<<-'-
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson
í leikgerð Hörpu Arnardóttur
Frums. Lau 20. okt kl. 14:00 ÖRFÁ SÆTI
2. sýn. su. 21.okt. kl. 14:00 ÖRFÁ SÆTI
lau 27. okt kl. 14:00 ÖRFÁ SÆTI
su 28. okt. kl. 14:00 ÖRFÁ SÆTI
lau 3. nóv kl. 14:00 UPPSELT
su 4. nóv kl. 14:00 NOKKUR SÆTI
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
5. sýning lau 13. okt kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
6. sýning su 14. okt kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
7. sýning fi 18. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
8. sýning fö 19. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
9. sýning lau 27. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
10. sýning su 28. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
11. sýning fi 1. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI
12. sýn. fö 2. nóv KL. 20 - NOKKUR SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fö 12. okt. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 20. okt. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fö 26. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 3. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Frumsýning Su 14. okt kl. 17 - UPPSELT
2. sýn f i 18. okt kl. 20 - UPPSELT
3 sýn Fö 19.okt kl 20:00 - ÖRFÁ SÆTI
4. sýn Lau 27. okt kl. 20:00 - NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Í kvöld kl. 20 - UPPSELTI
Lau 13. okt kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fi 18. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 19. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
20/10 og 21/10 í Vestmannaeyjum
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Í kvöld kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fö 12. okt. 20 - LAUS SÆTI
ATH. SÍÐUSTU SÝNINGAR
Stóra svið
Litla svið
3. hæðin
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
!"#$" %&!!'(%&!')