Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMENNI var á hátíðarsam-
komu í Iðnó í gær í tilefni af Alþjóða
geðheilbrigðisdeginum. Í upphafi
fluttu þeir Halldór Haraldsson, pí-
anóleikari og Gunnar Kvaran, selló-
leikari, nokkur tónverk og sýnt var
myndskeiðið Ekki líta undan.
Að því loknu las Jónína Bene-
diktsdóttir, íþróttafræðingur, kafla
úr bók, sem hún hefur skrifað og
kemur út í haust. Bókin, sem heitir
Dömufrí, fjallar að sögn Jónínu um
líðan konu, sem á þrjú börn og er að
reyna að lifa sinn draum og vill fá
að lifa hann með öðrum.
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, hlaut gullstjörnu
Geðræktar. Vísaði Sigurður Guð-
mundsson, landlæknir, sérstaklega
til skrifa Morgunblaðsins um geð-
heilbrigðismál af því tilefni. Þetta
er í fyrsta sinn sem gullstjarnan er
afhent en hún verður héðan í frá
veitt árlega, ávallt á Alþjóðlega
geðheilbrigðisdeginum, 10. októ-
ber.
Í fréttatilkynningu frá Geðrækt,
sem er samstarfsverkefni Land-
læknisembættisins, Geðhjálpar,
geðsviðs Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss og Heilsugæslunnar í
Reykjavík og hefur það meg-
inmarkmið að efla geðheilsu og
draga úr tíðni geðraskana, segir að
gullstjarnan sé veitt þeim ein-
staklingi eða samtökum sem þykja
hafa unnið óeigingjarnt og fórnfúst
starf í þágu geðræktar og geðheil-
brigðis á Íslandi.
Að loknu kaffihléi flutti Lög-
reglukórinn nokkur lög en síðan
fóru fram pallborðsumræður undir
stjórn Sigmundar Ernis Rúnars-
sonar aðstoðarritstjóra DV. Þátt-
takendur í þeim voru Eva María
Jónsdóttir, Sveinn Rúnar Hauks-
son, Egill Helgason, Héðinn Unn-
steinsson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson
og Alda Sigurðardóttir. Þær sner-
ust fyrst og fremst um þá spurn-
ingu, hvort dregið hefði úr for-
dómum í garð geðsjúkra en í
almennum umræðum um það efni
komu fram skiptar skoðanir um
það.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, var viðstaddur samkom-
una. Kynnir var Stefán Karl Stef-
ánsson, leikari, sem lýsti m.a. fyrir
gestum afleiðingum eineltis, sem
hann varð fyrir í æsku.
Í tilefni Alþjóðlega geðheilbrigð-
isdagsins var einnig í gær opið hús
m.a. hjá athvörfum fyrir geðfatl-
aða, Geðverndarfélagi Íslands og
Geðhjálp og Geðrækt þar sem boðið
var upp á kaffi og meðlæti og gest-
um gafst kostur að skoða starfsem-
ina.
Á laugardaginn, klukkan 14,
verður síðan ganga frá Hlemmtorgi
að Ingólfstorgi þar sem haldin
verður fjölskylduhátíð og þá hefst
tónlistarhátíð klukkan 15:30 á
Gauki á Stöng.
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn haldinn hátíðlegur í Iðnó í gær
Gullstjarna
Geðræktar
afhent í
fyrsta sinn
Morgunblaðið/Ásdís
Gestkvæmt var á opnu húsi hjá Geðverndarfélagi Íslands í Álfalandi í gær og var boðið upp á kaffi og meðlæti.
Morgunblaðið/Kristinn
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, tekur á móti Gullstjörnu
Geðræktar úr hendi Héðins Unnsteinssonar, verkefnisstjóra.
Jónína Benediktsdóttir las úr
bók sinni sem kemur út fyrir jól.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra og landlæknir voru meðal
fjölmargra gesta á Sléttuvegi 9, en
þar er að finna þjónustuíbúðir geð-
fatlaðra einstaklinga, vegna al-
þjóðageðheilbrigðisdagsins sem var
í gær. Tilgangurinn var að gefa
gestum kost á að fræðast um þá
starfsemi sem þar fer fram og jafn-
framt að skoða aðstæður heimilis-
fólks en Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra í Reykjavík leigir þar níu
geðfötluðum einstaklingum þjón-
ustuíbúðir.
Guðrún Einarsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og forstöðumaður þjón-
ustunnar, sagði í ræðu sinni mark-
miðið með þjónustunni vera m.a. að
upplýsa og að það væri liður í að
eyða fordómum sem enn væru í
samfélaginu gegn geðfötlun. Því til
staðfestingar sagði hún suma enn í
dag ekki þora að setjast við hlið
geðfatlaðra í strætisvögnum.
Guðrún sagði starfsemina við
Sléttuveg hafa gengið vel frá því að
þjónustuíbúðirnar voru opnaðar
fyrir um hálfu ári og að íbúar væru
ánægðir með nýja heimilið enda
væri húsnæðið allt til fyrirmyndar.
„Að fara úr sjúkrahúsumhverfi er
mikil breyting eftir svona mörg ár.
Að fara út litlu herbergi þar sem
menn höfðu jafnvel verið tveir sam-
an og flytja í íbúð er stórt skref,“
segir hún og bætti við að það hefði
gætt vissra efasemda og kvíða hjá
heilbrigðisstarfsfólki á geðdeild
Landspítala og aðstandendum íbú-
anna þegar kom að því að flytja
þangað þrátt fyrir góðan undirbún-
ing. „Það var einnig ótti hér í ná-
grenninu að fá geðveikt fólk hingað
í húsið en við hér höfum sýnt og
sannað að sá ótti var ástæðulaus,“
segir Guðrún og bætti við að haldið
yrði áfram að auka lífsgæði geðfatl-
aðra í framtíðinni með bjartsýni að
leiðarljósi. Vonandi yrðu síðan
stofnuð fleiri heimili eins og við
Sléttuveg í framtíðinni.
Vonandi stigin fleiri
og stærri skref
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra óskaði öllum til hamingju
með daginn. Hann sagði gleðiefni
hve allt hefði gengið vel við Sléttu-
veg og að það væri dýrmætt að
þeim sem þangað kæmu til vistar
væri búið betra líf en áður. „Virki-
lega ánægjulegt að verða vitni að
því að þessi tilraun er að ganga
upp. Vonandi getum við stigið fleiri
og stærri skref. Ég veit að nú er
mikill áhugi hjá stjórnvöldum að
sinna málum geðfatlaðra og geð-
heilbrigðismálum,“ segir Páll.
Í fréttatilkynningu frá Svæðis-
skrifstofu Reykjavíkur kemur fram
að rétt tæplega 400 einstaklingar
voru á skrá með geðfötlun 1. októ-
ber síðastliðinn, þar af njóta nú um
200 manns búsetuþjónustu utan
geðheilbrigðisstofnana. Þá segir
ennfremur að í upphafi árs hafi 47
einstaklingar með geðfötlun verið á
biðlista Svæðisskrifstofunnar eftir
búsetuúrræði. Í fréttatilkynningu
segir orðrétt: „Miðað við þá
reynslu sem komin er af félagslegri
búsetuþjónustu fyrir fólk með geð-
fötlun svo og óskum geðfatlaðra og
aðstandenda þeirra varðandi þjón-
ustu má búast við aukinni upp-
byggingu á félagslegum búsetuúr-
ræðum á næstu árum.“
Þeir heimilismenn sem blaða-
maður náði tali af voru allir sam-
mála um að við Sléttuveg væri gott
að búa og einn komst meira að
segja svo að orði að hann byggi nú
eins og forseti.
Kynning á starfsemi og þjónustuíbúðum við Sléttuveg
Töluverðir
fordómar enn
í samfélaginu
Morgunblaðið/Jim Smart
F.v. Björn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra í Reykjavík, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Jón Krist-
jánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Sigurður Guðmunds-
son landlæknir og Guðrún Einarsdóttir, forstöðumaður þjónustunnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjórir af níu heimilismönnum þjónustuíbúðanna. F.v. Jóhann Gröndal,
Guðmundur Kristinn Jónsson, Leifur Leifs og Sigurður Sigurðsson.
FÉLAG hópferðaleyfishafa hefur
farið þess á leit við samgönguráðu-
neyti að kæra félagsins vegna
mögulegrar misnotkunar sérleyf-
ishafa á sérleyfum verði tekin til
meðferðar í samræmi við álit um-
boðsmanns Alþingis sem birt var í
lok septembermánaðar. Þar komst
umboðsmaður að þeirri niðurstöðu
að ákvörðun ráðuneytisins að vísa
frá stjórnsýslukæru félagsins hafi
ekki verði í samræmi við lög.
Málavextir eru þeir að félagið
kærði til Vegagerðarinnar meinta
misnotkun tiltekinna leyfishafa á
sérleyfum og óskaði athugunar og
aðgerða af hennar hálfu. Vega-
gerðin taldi ekki ástæðu til að-
gerða eða frekari afskipta og
kærði félagið þá niðurstöðu til
samgönguráðuneytis, sem vísaði
kærunni frá þar sem það taldi ekki
um kæranlega ákvörðun lægra
stjórnvalds að ræða. Umboðsmað-
ur taldi hins vegar að ráðuneytinu
hefði borið að taka efnislega af-
stöðu í málinu, í stað þess að vísa
kærunni frá.
Í fréttatilkynningu segir að fé-
lagið eigi jafnframt á næstu dög-
um von á úrskurði frá samkeppn-
isráði vegna nýrra þjónustu-
samninga á milli ríkis og
sérleyfishafa. „Þjónustusamningar
þessir fela í sér stórauknar styrk-
veitingar til sérleyfishafa eða frá
um 50 milljónum á ári yfir í 100
milljónir. Það er að mati stjórnar
Félags hópferðaleyfishafa ámælis-
vert hjá samgönguráðuneyti að
tvöfalda styrki á sama tíma og út-
boði á sérleyfum er frestað til árs-
ins 2005. Óttast stjórn félagsins að
þetta verði til þess að tryggja
stöðu sérleyfishafa í væntanlegu
útboði á sérleyfum en jafnframt að
sérleyfishafar geti í ákveðnum til-
fellum notað þennan styrk til að
greiða niður annars konar akstur
eins og hópferða- og skólaakstur
sem er óstyrktur og á samkeppn-
ismarkaði.“
Hópferða-
leyfishafar
Ráðuneyti
taki stjórn-
sýslukæru
fyrir