Morgunblaðið - 18.10.2001, Síða 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STARFSEMI göngudeildar SÁÁ á
Akureyri er í uppnámi vegna fjár-
skorts og gæti komið til þess að
deildinni yrði lokað á næsta ári.
Þorgerður Þorgilsdóttir, formaður
Norðurlandsdeildar SÁÁ, sagði að
þetta hefði komið fram í máli Þór-
arins Tyrfingssonar, formanns
SÁÁ, á fundi á Akureyri um síð-
ustu helgi.
Þorgerður sagði að göngudeildin
á Akureyri væri gríðarlega mik-
ilvæg og ekki bara fyrir Akureyr-
inga, heldur einnig aðra Norðlend-
inga og Austfirðinga. Hún sagði að
framundan væri hörð barátta fyrir
því að tryggja áframhaldandi
rekstur deildarinnar og m.a. leitað
eftir stuðningi þingmanna kjör-
dæmisins.
Ólafur Hergill Oddsson, héraðs-
læknir Norðurlands eystra, tók í
sama streng um mikilvægi göngu-
deildar og sagði nauðsynlegt að
halda þeirri starfsemi áfram. „Það
er mjög mikilvægt að hafa svona
starfsemi utan spítala, sem er angi
þjónustu SÁÁ, bæði varðandi það
hvort leggja þurfi fólk inn á Vog
og eins fyrir aðstandendur sem
eru að leita eftir fræðslu og til-
lögum um úrræði. Þessi starfsemi
hefur gefist vel og er mikilvægur
þáttur sem angi af heilbrigðsþjón-
ustunni,“ sagði Ólafur Hergill.
Um 300 koma í viðtöl á ári
Stefán Ingólfsson er ráðgjafi á
göngudeildinni og jafnframt eini
starfsmaður SÁÁ á Akureyri. „Það
er ekkert hægt að horfa fram hjá
því að til lokunar geti komið en
hins vegar hefur starfsemin hér
forgang fáist aukið fjármagn. Við
höfumsagt upp samningi við sál-
fræðing og geðlækni í sparnaðar-
skyni og það er vissulega slæmt.
Við erum með marga unglinga sem
eiga í erfiðleikum og það var ein-
mitt liður í því að efla og bæta
meðferðina að fá sérhæft starfs-
fólk til liðs við okkur.“
Stefán sagðist fá um 300 komur
í viðtöl á ári og að auki væri hann
með stuðningshópa í gangi, fyr-
irlestra og námskeið og því alveg
ljóst að þörfin fyrir þessa þjónustu
væri brýn, bæði fyrir þá sem ættu
við áfengis- og vímuefnavandamál
að stríða svo og aðstandendur
þeirra..
Stefán hefur unnið á Akureyri í
fimm ár og hann sagði að helsta
breytingin á þeim tíma væri sú að
foreldrar hefðu nú meiri áhyggjur
af hassneyslu unglinga. Neyslu
þessara ólöglegu vímuefna fylgdu
oft lögreglumál, handtökur og
fleira.
Hef talað fyrir daufum eyrum
Þorgerður sagði að aðstandend-
ur hefðu ekki önnur úrræði en
göngudeildina og heldur ekki for-
eldrar sem hefðu áhyggjur af
börnum sínum. „Það er líka hægt
að meta það hér á staðnum hversu
mikinn vanda er um að ræða hjá
fólki.“
Þorgerður sagði líka dæmi um
að með stuðningi frá göngudeild-
inni hefði verið komið í veg fyrir
innlögn fólks á spítala. Þetta skipti
miklu máli því það væri dýrt fyrir
samfélagið að fólk lægi inni á
sjúkrastofnunum vikum saman.
„Ég hef á hverju ári leitað eftir
stuðningi við starfsemina hjá
fjölda fólks. Ég hef farið fyrir fjár-
laganefnd, heilbrigðisráðherra, að-
stoðarmenn ráðherra og alþingis-
menn en því miður hefur maður
verið að tala fyrir daufum eyrum.“
Útlit fyrir niðurskurð á starfsemi SÁÁ vegna fjárskorts
Starfsemi göngu-
deildar í uppnámi
FÉLAGAR í Kiwanisklúbbnum
Grími eru öflugir í sínu starfi. Einn
af föstu liðunum í starfseminni er
söfnun á flöskum og gleri eyjarbúa.
Sú söfnun fer fram tvisvar á ári og
stórir pokar sigla í land til endur-
vinnslu. Peningarnir sem fást út úr
þessu nema nokkrum hundruðum
þúsunda og renna óskiptir til björg-
unarmála í Grímsey. Vel útbúin
björgunarsveit er lífsnauðsyn hér í
okkar eyju og sem stendur er
björgunarsveitin undir vernd-
arvæng Kiwanisklúbbsins Gríms.
Grímsfélagar hafa nýlega bæði
fjárfest í góðum björgunarbát og
stórum gámi sem hýsir tæki og bún-
að björgunarsveitarinnar.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Félagar í Kiwanisklúbbnum Grími fyrir utan flöskuskúrinn.
Flöskur til
björgunarmála
Í LANDI Botns í Eyjafjarðarsveit,
sem er í eigu Akureyrarbæjar, er
talsverð skógrækt eða um 7,5 ha
reitur, en skógrækt hófst þar ár-
ið 1951. Hluti reitsins, þ.e. sunn-
an og austan heimreiðarinnar að
Botni, er ræktaður í minningu
Lárusar Rist. Reiturinn er í um-
sjón Rótarýklúbbs Akureyrar og
hafa rótarýfélagar gróðursett tré
í þennan reit og tileinkað hann
sér til frekari gróðursetningar. Á
hverju ári gróðursetur m.a. um-
dæmisstjóri Rótarýs á Íslandi eitt
tré í reitnum þegar hann kemur í
árlega heimsókn til Rotarýklúbbs
Akureyrar. Núverandi umdæm-
isstjóri, Eysteinn Tryggvason,
gróðursetti tré í Botnsreit þegar
hann og kona hans, Guðný Jóns-
dóttir, heimsóttu Rótarýklúbb
Akureyrar nú fyrir skömmu.
Reiturinn er opinn almenningi, en
ekki er heimilt að tjalda þar.
Upplýsingar um reitinn, ásamt
fjölmörgum greinum um skóga
og skógrækt í Eyjafirði, er að
finna í ágætri bók Skógrækt-
arfélags Eyjafjarðar: Ásýnd Eyja-
fjarðar, skógar að fornu og nýju.
Rótarý-menn
gróðursetja
í landi Botns
Eysteinn Tryggvason, umdæmisstjóri Rótarýs, gróðursetur í landi Botns
í Eyjafjarðarsveit en með honum eru félagar í Rótarýklúbbi Akureyrar.
KÓR Flensborgarskólans í
Hafnarfirði heldur tónleika í
Akureyrarkirkju næstkomandi
fimmtudag, 18. október, og
hefjast þeir kl. 20:00. Kórinn
flytur blandaða efnisskrá sem
samanstendur af lögum frá öll-
um heimshornum. Aðgangs-
eyrir er krónur 800 en frítt er
fyrir alla nemendur. Stjórnandi
Kórs Flensborgarskóla er
Hrafnhildur Blomsterberg og
píanóleikari er Ólafur Kolbeinn
Guðmundsson.
Tónleikar
í Akureyr-
arkirkju
Kór Flensborgarskóla
í Hafnarfirði
KOSIÐ verður um sameiningu fjög-
urra hreppa í S-Þingeyjarsýslu laug-
ardaginn 3. nóvember nk., þ.e. Bárð-
dælahrepps, Hálshrepps, Ljósa-
vatnshrepps og Reykdælahrepps.
Verði sameiningin samþykkt verður
til sveitarfélag með um 740 íbúa.
Tekjur munu aukast um 18 millj-
ónir króna á ári miðað við óbreyttan
íbúafjölda en þar er um að ræða auk-
in framlög úr Jöfnunarsjóði sveitar-
félaga. Skuldir sameinaðs sveitarfé-
lags munu nema tæpum 23 þúsund
krónum á íbúa en meðaltal skulda á
íbúa í sveitarfélögum á landinu nem-
ur um 200 þúsund krónum.
Samstarfsnefnd um sameiningu
hreppanna fjögurra hefur dreift
kynningarbæklingi til íbúa sveitarfé-
laganna, þar sem fjallað er um nið-
urstöður af starfi nefndarinnar og
tillögur hennar. Þá verður efnt til
kynningarfunda í sveitarfélögunum
fjórum á næstu dögum.
Sem minnst breyting verði
á þjónustuþáttum
Tillaga samstarfsnefndar byggist í
meginatriðum á að sem minnst
breyting verði á þjónustuþáttum í
sveitarfélögunum frá því sem nú er,
t.d. hvað varðar grunnskóla- og heil-
brigðisþjónustu og fleiri slíka þætti.
Yfirstjórn verður endurskipulögð,
sem og nefndastarf og gert er ráð
fyrir að ráðinn verði sveitarstjóri
sem stýri daglegum rekstri sveitar-
félagsins.
Sveitarfélögin fjögur búa við líka
stöðu þegar kemur að fjármálum.
Hátt hlutfall tekna rennur í fastan
rekstrarkostnað og mun hlutfallið
lækka við sameiningu. Samstarfs-
nefndin leggur áherslu á að við sam-
einingu skapist tækifæri til að auka
þjónustu og framkvæmdir á vegum
sveitarfélagsins. Sameiningar yrðu
því farsælt skref fyrir svæðið.
Kosið um sameiningu fjögurra
hreppa í S-Þingeyjarsýslu
Með sameiningu
verður til sveitarfé-
lag með um 740 íbúa
TVEIR ráðgjafar frá Foreldrahús-
inu í Reykjavík verða á Akureyri á
laugardag, 20. október. Munu þeir
bjóða upp á einkaviðtöl við foreldra í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju,
en þau eru eingöngu ætluð foreldr-
um barna og unglinga sem eiga í
vanda vegna áfengis- eða fíkniefna-
neyslu eða grunur leikur á að slíkur
vandi sé fyrir hendi.
Frá kl. 17 til 19 sama dag verður
opið hús í Safnaðarheimilinu, þar
sem m.a. verður kannað hvort áhugi
sé fyrir að hefja á Akureyri starf-
semi í líkingu við Foreldrahúsið í
Reykjavík og þá í samstarfi við það.
Fundir í Safnaðarheimili
Ráðgjafar frá Foreldrahúsi á Akureyri
fimmtudaginn 18. október. Kennt
verður á ensku. Aðgangseyrir er
1.000 kr. en 500 kr. fyrir náms-
menn og öryrkja. Allir eru hjart-
anlega velkomnir.
BÚDDAMUNKURINN Vener-
able Drubchen fræðir um hin fjög-
ur göfugu sannindien það var það
fyrsta sem Búdda kenndi. Kennt
verður í Múlasíðu 1,íbúð C,
Kennsla um Búdda