Morgunblaðið - 18.10.2001, Page 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁÆTLAÐ er að borholan á Trölla-
dyngju á Reykjanesi sé svo aflmikil
að hún geti framleitt um 15 megavött
af rafmagni. Samsvarar það raf-
magnsþörf allra Garðbæinga svo
dæmi sé tekið. Holunni var hleypt
upp í gær og verður hún mæld á
næstu vikum.
Jarðlind ehf. lét bora háhitaholuna
á Trölladyngju í sumar. Félagið er í
meirihlutaeigu Hitaveitu Suðurnesja
en Hafnarfjarðarbær, Garðabær,
Kópavogur, Bessastaðahreppur og
Jarðboranir hf. eiga minni eignar-
hluti. Holan er 2.307 metra djúp og
er dýpsta borholan á háhitasvæði
hér á landi.
Holunni var hleypt upp í gær við
hátíðlega athöfn og steig upp mikill
gufustrókur þegar Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra skrúfaði frá
krananum. Er þar með orðið til nýtt
kennileiti á Reykjanesskaganum.
Holan verður látin blása á næst-
unni og afköst hennar mæld. For-
svarsmenn Jarðlindar og Hitaveitu
Suðurnesja binda miklar vonir við
háhitasvæðið. Kom það fram í ávarpi
Júlíusar Jónssonar, stjórnarfor-
manns Jarðlindar og forstjóra Hita-
veitu Suðurnesja hf. „Það er von
okkar að þetta verði upphafið að ein-
hverju miklu, kannski eins og
Svartsengi,“ sagði Júlíus en tók fram
að það kæmi ekki í ljós fyrr en með
niðurstöðum mælinga hver afköstin
yrðu.
Albert Albertsson, aðstoðarfor-
stjóri hitaveitunnar, telur að borhol-
an muni skila 270 til 280 gráða hita
og verða mjög gjöful. Þá virðist vera
minni selta í henni en í borholunum í
Svartsengi svo að útfellingar og tær-
ing ætti að verða minna vandamál.
Fram kom hjá Albert á hluthafa-
fundi Hitaveitu Suðurnesja á dögun-
um að með því að bora aðra holu ætti
að verða unnt að reisa þarna um það
bil 70 megavatta virkjun.
Verið er að kortleggja svæðið,
sprungur, jarðskjálfasögu og viðnám
og verður ný hola staðsett að svo
búnu. Ákvörðun hefur þó ekki verið
tekin um borun.
Hugmyndin er að nýta orkuna til
iðnaðar.
Dýpstu háhitaholu landsins hleypt upp á Trölladyngjusvæðinu og lofar hún góðu
Hægt að fram-
leiða 15 MW af
rafmagni
Trölladyngja
Morgunblaðið/RAX
Miklir gufustrókar stigu til himins á Trölladyngjusvæðinu í gær þegar háhitaholunni var hleypt upp.
KAREN Sturlaugsson og verslunin
Ný-Ung fá menningarverðlaun
Reykjanesbæjar, Súluna, fyrir árið
2001.
Menningar- og safnaráð Reykja-
nesbæjar úthlutar árlega menning-
arverðlaununum Súlunni, annars
vegar til einstaklings og hins vegar
til fyrirtækis. Nefnin ákvað á fundi
sínum í vikunni hver ætti að fá verð-
launin fyrir árið í ár.
Karen Sturlaugsson, aðstoðar-
skólastjóri Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar og stjórnandi lúðrasveitar
skólans, fær verðlaunin sem einstak-
lingur. Lúðrasveitin vann til verð-
launa á landsmóti skólalúðrasveita
sem Tónlistarskólinn hélt í sumar.
Verslunin Ný-Ung fær verðlaunin
sem fyrirtæki en eigendur þess
keyptu listaverk eftir Erling Jónsson
og settu upp fyrir utan söluturn sinn.
Verðlaunin verða afhent við hátíð-
lega athöfn í Kjarna fimmtudaginn 8.
nóvember klukkan 18.
Karen og
Ný-Ung fá
menning-
arverðlaun
Reykjanesbær
HÖND í hönd er yfirskrift foreldra-
ráðstefnu sem fjölskyldu- og fé-
lagsþjónusta Reykjanesbæjar
stendur fyrir 10. nóvember næst-
komandi. Tilgangurinn er að vekja
foreldra til umhugsunar um for-
eldrahlutverkið og ábyrgð þess.
„Foreldrahlutverkið er eitt
stærsta hlutverk sem nokkur ein-
staklingur tekur sér fyrir á lífsleið-
inni og því teljum við ekki úr vegi að
því sé gert eins hátt undir höfði og
kostur er,“ segir í upplýsingum sem
Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri
hefur sent út um fyrirhugaða ráð-
stefnu.
Foreldrar og sérfræðingar munu
ræða ýmis mál og góður tími verður
fyrir umræður og fyrirspurnir.
Ráðstefnan verður í Kirkjulundi,
nýju safnaðarheimili Keflavíkur-
kirkju, og hefst klukkan 14.
Hönd í hönd
Reykjanesbær
SEX einstaklingar og samtök fá
stuðning úr styrktarsjóði menning-
ar- og safnaráðs Reykjanesbæjar.
Sótt var um styrki sem eru nærri
sexfalt hærri en það fé sem nefndin
hefur til ráðstöfunar.
Menningar- og safnaráð fékk tíu
umsóknir um styrki alls að fjárhæð
tæplega 5,8 milljónir kr. Hún hefur
hins vegar liðlega eina milljón til
ráðstöfunar og ákvað að leggja til
við bæjarstjórn að því yrði skipt á
milli sex umsækjenda.
Leikfélag Keflavíkur fékk
stærsta styrkinn, 460 þúsund krón-
ur vegna leikstjóralauna. Félag
myndlistarmanna fékk 200 þúsund
kr. vegna námskeiðahalds, fyrir-
lestra og viðhalds húseignar.
Kvennakór Suðurnesja og Karlakór
Keflavíkur fengu 125 þúsund króna
styrk hvor kór. Þá fengu tveir um-
sækjendur 50 þúsund króna styrk,
annars vegar Davíð Baldursson og
Bergur Ö. Gunnarsson vegna tón-
listarmyndbands og hins vegar Vil-
berg Viggósson til að semja og út-
setja píanólög fyrir börn.
Einnig sóttu Atli Ingólfsson,
Elíza Newman, Sigurður Sævarsson
og Norðuróp um styrki en nefndin
gat ekki orðið við þeim vegna tak-
markaðs fjármagns.
Leikfélagið
fær hæsta
styrkinn
Reykjanesbær
GRUNNSKÓLINN í Garði er reyk-
laus og langflestir nemendur hans
segjast ekki heldur neyta áfengis.
Nemendur sem rætt var við sögðu
að fræðsla á vegum skólans og öfl-
ugt félagslíf ættu mestan þátt í
reykleysinu.
Gerðaskóli í Garði er næstelsti
starfandi skóli landsins. Nem-
endafjöldi skólans er 220 og gerði
skólastjórinn, Einar Valgeir Ara-
son, á dögunum könnun á því
hversu margir reyktu eða drykkju
áfengi. Nemendur svöruðu þessari
könnun nafnlaust og kom í ljós að
enginn í skólanum reykti en aðeins
sjö nemendur svöruðu ekki spurn-
ingunni um áfengi, aðrir svöruðu
því til að þeir neyttu ekki áfengis.
Aðspurður sagði Einar Valgeir
að ástæðan fyrir því að þessi ár-
angur hefur náðst með nemendur
væri að kennarar skólans hefðu
markvisst unnið í því að uppfræða
og halda nemendum frá reykingum
og áfengisdrykkju. Einnig sagði
hann nemendur yfirhöfuð skyn-
sama krakka sem hefðu ákveðið að
ánetjast slíkum efnum ekki.
Fræðsla og
félagsstarf
Inga Lilja Eiríksdóttir, Thelma
Dögg Ægisdóttir og Andri Þór
Guðjónsson eru í 8.–10. bekk
Gerðaskóla. Þau segja mikla
fræðslu á vegum skólans eiga stór-
an þátt í reykleysi hans ásamt því
að félagsmiðstöðin sé með öflugt
starf fyrir unglinga. „Það þykir
bara ekki flott að reykja og við
höfum nóg annað að gera sem er
miklu skemmtilegra, þannig að við
erum ekki einu sinni að hugsa um
þetta,“ segja þau Inga, Telma og
Andri.
Félagsmiðstöðin er opin alla
virka daga og á föstudögum eru
haldin þar diskótek, en það má
auðvitað ekki reykja í félagsmið-
stöðinni. „Um helgar er síðan for-
eldravakt sem fylgist til dæmis
með að við förum beint heim eftir
diskótekin í félagsmiðstöðinni. Það
er samt eiginlega orðið óþarft því
við erum yfirleitt búin að fá nóg af
því að vera úti alla vikuna svo við
erum bara heima með popp og kók
um helgar.
Það skiptir líka máli að flestir
drekka ekki eða reykja og því eru
aðrir ekki eins mikið að hugsa um
það. Þeir myndu ekkert falla inn í
hópinn. Svo hafa íþróttirnar líka
áhrif. Það er mikill knattspyrnu-
áhugi í Garðinum og við viljum
ekki skemma fyrir okkur þar með
reykingum eða drykkju,“ segja
nemendurnir að lokum og halda
aftur hver í sína kennslustund.
Gerðaskóli er reyklaus skóli og lítið er um áfengisneyslu
Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir
Þrír nemendur úr áttunda, níunda og tíunda bekk hins reyklausa Gerðaskóla í Garði, Thelma Dögg Ægisdóttir,
Andri Þór Guðjónsson og Inga Lilja Eiríksdóttir, ásamt skólastjóranum, Einari Valgeiri Arasyni.
Þykir ekki flott að reykja
Garður
♦ ♦ ♦
BROSTE - HAUST 2001
Breiðholtsblóm
Huggulegt
heima....
er heitast
í dag