Morgunblaðið - 18.10.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 18.10.2001, Qupperneq 28
ERLENT 28 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSRAELSKUR ráðherra var skot- inn til bana á hóteli í Jerúsalem í gærmorgun og róttæk hreyfing Pal- estínumanna lýsti morðinu á hendur sér. Að sögn hreyfingarinnar réð hún ráðherrann af dögum til að hefna morðs Ísraela á leiðtoga henn- ar fyrir tveimur mánuðum. Óttast er að með morðinu á Reh- avam Zeevi, 75 ára ferðamálaráð- herra, hafi hreyfingin blásið að glæðum vítahrings blóðhefnda og of- beldis sem staðið hefur í rúmt ár. Þetta er í fyrsta sinn sem Palest- ínumenn myrða ísraelskan ráðherra og búist er við að stjórn Ísraels grípi til hernaðaraðgerða í hefndarskyni. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, lýsti yfir stríði á hendur „hryðjuverkamönnum, aðstoðar- mönnum þeirra og þeirra sem sendu þá“. Ætlaði að ganga úr stjórninni Fyrir morðið á ráðherranum hafði komið upp ágreiningur innan sam- steypustjórnar Sharons vegna til- rauna Bandaríkjastjórnar til að knýja fram friðarviðræður milli Ísr- aela og Palestínumanna og treysta vopnahléssamkomulagið sem náðist 26. september. Sharon kynnti afstöðu sína til krafna Palestínumanna á þriðjudag og kvaðst geta fallist á að þeir stofn- uðu eigið ríki en með ströngum skil- yrðum sem leiðtogar Palestínu- manna hafa þegar hafnað. Zeevi tilkynnti á mánudag að flokkur sinn, Þjóðarbandalagið, hygðist ganga úr stjórninni vegna þess að Sharon væri of eft- irlátur við Palestínu- menn. Einn af forystu- mönnum Þjóðarbanda- lagsins tilkynnti þó í gær að hann hefði hætt við að ganga úr stjórn- inni. 50 vegnir af ásettu ráði Heimastjórn Palest- ínumanna fordæmdi morðið og kvaðst ætla að standa við vopna- hléssamkomulagið. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, skýrði Terje Larsen, sendi- manni Sameinuðu þjóðanna, frá því að hann hefði fyrirskipað að tilræð- ismennirnir yrðu handteknir. Ísraelar hafa orðið 50 manns að bana í árásum sem gerðar hafa verið á Palestínumenn er sakaðir hafa verið um hryðjuverk í Ísrael. Heimastjórn Palestínumanna kvaðst hafa varað Ísraela við því að slíkar árásir gætu magnað átökin. Mustafa Zibri, leiðtogi Alþýðu- fylkingarinnar fyrir frelsun Palest- ínu, PFLP, er þekktastur þeirra sem Ísraelar hafa ráðið af dögum. Hann beið bana þegar flugskeyti var skotið á skrifstofu hans í bænum Ramallah á Vesturbakkanum 27. ágúst. PFLP lýsti morðinu á Zeevi á hendur sér í gær og kvaðst hafa myrt hann til að hefna drápsins á leiðtoga hreyfingarinnar. Hún birti myndbandsupp- töku af þremur byssu- mönnum með grímur sem stóðu við stórt veggspjald með mynd af Zibri. Einn þeirra las yfirlýsingu þar sem gefið var til kynna að hreyfingin hygðist myrða tvo Ísraela til viðbótar. Sharon sagði fyrr í vikunni að hann hygð- ist ekki binda enda á mannvígin þrátt fyrir vopnahléssamkomulagið og harða gagnrýni Bandaríkjastjórnar. Þrír félagar í Hamas, hreyfingu her- skárra Palestínumanna, voru ráðnir af dögum í vikunni og Ísraelar sögðu að einn þeirra hefði skipulagt árás á dansstað í Tel Aviv sem kostaði 22 ísraelsk ungmenni lífið. Binyamin Ben-Eliezer, varnar- málaráðherra Ísraels, krafðist þess að Arafat framseldi leiðtoga PFLP til Ísraels. Hann sagði að Arafat bæri ábyrgð á morðinu í gær vegna þess að hann hefði ekki tekið nógu hart á hryðjuverkamönnum. Zeevi gisti á Hyatt-hótelinu í Jerúsalem með eiginkonu sinni. Hann var á leiðinni í herbergi sitt eftir að hafa snætt morgunverð á veitingahúsi hótelsins þegar ráðist var á hann fyrir utan herbergið. Hann fékk þrjú skot í höfuðið. Eig- inkona hans, Yael, kom að honum á ganginum. Einn hótelgestanna, bandarískur prestur, kvaðst hafa heyrt óp eig- inkonunnar og hlaupið til hennar. „Ég sá hana krjúpa yfir honum. Blóðið var úti um allt,“ sagði hann. Zeevi var látinn þegar komið var með hann á sjúkrahús. Zeevi var hlynntur því að öllum Palestínumönnum yrði komið í burtu frá Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu og hann hafði fengið marg- ar morðhótanir. Sem ráðherra átti hann rétt á lífverði en samráðherrar hans sögðu hann hafa hafnað þeirri vernd. Þegar Zeevi var í Jerúsalem vegna þingstarfa sinna dvaldi hann alltaf á Hyatt-hótelinu í austurhluta borgarinnar til að leggja áherslu á þá afstöðu sína að öll borgin til- heyrði Ísraelum og ekki kæmi til greina að Palestínumenn fengju yf- irráð yfir Austur-Jerúsalem. Honum var ráðlagt að skipta öðru hverju um hótelherbergi en hann vildi það ekki. Zeevi var áður hershöfðingi og naut virðingar meðal margra Ísraela fyrir framgöngu sína í hernum en margir töldu viðhorf hans einkenn- ast af kynþáttafordómum. „Ég bar mikla virðingu fyrir honum þótt við hefðum ekki verið sammála í stjórn- málunum,“ sagði Matan Vilnai, vís- indaráðherra Ísraels, sem var eitt sinn í fallhlífahersveit undir stjórn Zeevis. Lýsti Palestínumönnum sem „lúsum“ Zeevi fæddist í Jerúsalem. Á ár- unum 1974–77 var hann ráðgjafi Yitzhaks Rabins, þáverandi for- sætisráðherra, í baráttunni við hryðjuverkamenn. Hann lagðist gegn friðarsamningi Ísraela við Egypta árið 1979 og stofnaði hægri- flokkinn Moledet árið 1988. Zeevi olli uppnámi í júlí þegar hann lýsti Palestínumönnum sem starfa og dvelja án leyfis í Ísrael sem „lúsum“ og „krabbameini“. Þótt Zeevi væri ekki talinn á með- al friðarsinna gekk hann undir gælunafninu „Gandhi“, sem hann fékk á unglingsárunum þegar hann var svo horaður að hann minnti fólk á Mahatma Gandhi, leiðtoga þjóð- frelsisbaráttu Indverja. Hreyfing herskárra Palestínumanna, PFLP, lýsir manndrápi í Jerúsalemborg á hendur sér AP Palestínumenn í flóttamannabúðum nálægt Sídon í Líbanon fagna morðinu á ísraelska ráðherranum Rehavam Zeevi í Jerúsalem. Jerúsalem. AP, AFP. Myrti ráðherra í hefndarskyni Rehavam Zeevi AC-130-árásarflugvélin sem Bandaríkjamenn eru teknir að beita í Afganistan er vopn sem fallið er til að valda dauða og skelfingu. Úr vél- og fallbyssum flugvélarinnar geta 2.500 skot streymt á einni mínútu enda er hún almennt talin eitt öflugasta vopnið sem fram hefur komið gegn fötgönguliðum óvinaherja. Bandarískir embættismenn segja að mjög hafi verið horft til þeirra áhrifa sem þessi flugvél hefur haft á baráttuanda her- manna óvinarins þegar ákveðið var að beita henni gegn liðsafla talibana í Afganistan. „Þær umkringja skotmarkið. Hávaðinn er óskaplegur. Og þær bókstaflega uppræta allt sem fyrir þeim verður,“ segir Wesley Clarke, sem stjórnaði herafla Atl- antshafsbandalagsins (NATO) í Júgóslavíu árið 1999. „Fyrir þá sem eru á jörðu niðri eru þessar flugvélar eitt það skelfilegasta sem hægt er að upplifa,“ bætir hann við. Gregory Newbold, sem er að- gerðastjóri herráðs Bandaríkj- anna, er á sama máli. „Hin sál- rænu áhrif sem þessar flugvélar hafa eru mjög mikilvæg í þessu tilliti.“ Þessar stóru árásarflugvélar (sem nefnast „gunships“ á enskri tungu), geta gegnt margvíslegum hlutverkum. Þeim má t.a.m. fljúga gegn óvinaflugvélum og þær geta komið að gagni þegar þörf er á þungvopnuðum flugvélum í könn- unarferðir yfir óvinasvæði. Flug- vélin, sem er fjögurra hreyfla skrúfuþota, er hins vegar einkum hönnuð til að vera eins konar „fljúgandi skotpallur“ og styðja, einkum, sérsveitir sem þurfa að vera hreyfanlegar mjög og eru því léttvopnaðar. Í slíkum tilvikum flýgur AC-130-vélin hægt umhverfis skotmarkið og lætur kúlum rigna yfir það úr 25 mm Gatling- vélbyssum og 40 og 105 mm fall- byssum. AC-130 er iðulega einnig beitt gegn landher óvinarins en sprengjukúlur úr fallbyssunum eru svo öflugar að þær geta tor- tímt ökutækjum og heilum bygg- ingum. Byssurnar eru tölvustýrðar þannig að unnt er að halda miði á skotmarkið á meðan vélin flýgur umhverfis það. Beitt í Panama og Júgóslavíu Flugvélum þessarar gerðar var beitt árið 1990 þegar Bandaríkin réðust á Panama til að steypa Manuel Antonio Noriega herstjóra af stóli. AC-130-vélarnar lögðu í rúst höfuðstöðvar varnarmála- ráðuneytis Panama sem og stjórn- stöðvar heraflans. Árið 1999 voru þessar flugvélar einnig notaðar til að ráðast gegn fótgönguliði, brynvögnum og stór- skotaliði Serba. Þótt vélin geti flogið í allt að 25.000 feta hæð er henni oftast beitt í lágflugi. Það hefur aftur á móti í för með sér að þær eru ber- skjalda gagnvart loftvarnaskot- hríð. Bandaríkjamenn hafa stað- fest að loftvarnabyssur Serba hafi hæft AC-130-vélar í Júgóslavíu. Ein slík vél fórst yfir Indlands- hafi árið 1994 er hún var á leið til Sómalíu til að taka þátt í aðgerð- um sem Bandaríkjamenn hrundu af stað í því skyni að binda enda á blóðuga borgarastyrjöld í landinu. Önnur var skotin niður í Persa- flóa-stríðinu árið 1991 yfir Sádi- Arabíu og fórust allir, 14 manns, sem um borð voru. Bandarískir embættismenn vilja ekki ræða í hversu mikilli hættu telja verði áhafnir þessar véla nú þegar þeim er beitt gegn talib- önum í Afganistan. Þeir taka hins vegar fram að þær geti haldið sig í flughæð sem teljast megi sæmi- lega örugg auk þess sem senda megi orrustuþotur með þeim til varnar. „Fljúgandi skot- pallur“ lamar baráttuandann Washington. The Los Angeles Times.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.