Morgunblaðið - 18.10.2001, Blaðsíða 48
UMRÆÐAN
48 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALFREÐ Þorsteinsson ritaði
broslega grein í Morgunblaðið á
laugardaginn. Í greininni líkir hann
sjálfum sér af lítilli hógværð við for-
ingja og frumkvöðla Sjálfstæðis-
flokksins, menn eins og Jón Þorláks-
son, Geir Hallgrímsson, Bjarna
Benediktsson og fleiri. Það er gott að
hafa ekki minnimáttarkennd en stór-
mennskuæði er sennilega ekki
skárra. Alfreð stillir upp fyrirtækinu
Lína.net ehf. til jafns við framfara-
mál eins og uppbyggingu sjálfstæð-
ismanna í veitumálum borgarinnar
og þá ekki síst hinni einstöku hita-
veitu okkar sem var stórvirki á
heimsvísu. Langt er til jafnað. Borg-
arfulltrúann dreymir um stórafrek
og aðdáun en uppsker háð og spott
enda á ekki annað skilið. Greinin op-
inberaði raunveruleikalos og aumk-
unarverðan staðreyndaflótta sem við
öllum blasir. Fjáraustur af al-
mannafé í fyrirtækið Lína.net ehf. er
siðlaust sukk sem við sjálfstæðis-
menn höfum marglagt til að hætt
verði við nú þegar enda af og frá að
það sé hlutverk borgarinnar að
stofna og starfrækja fyrirtæki í sam-
keppnisrekstri.
Tölvutengingar um raflínur
Helgi Hjörvar lofaði í síðustu
kosningum að tölvutengja alla borg-
arbúa um raflínur og flaug úr 22.
sæti á síðasta kjörtímabili í 1. sæti í
prófkjöri R-listans. Kjós-
endum hans fannst ber-
sýnilega ekki ónýtt að fá
mann í borgarstjórn sem
gat boðið hraðari og
ódýrari tölvutengingu en
áður hafði þekkst inn á
hvert heimili. Utan um
þetta verkefni var fyrir-
tækið Lína.net ehf. stofn-
að. Það er dótturfyrir-
tæki Orkuveitu
Reykjavíkur sem er
borgarfyrirtæki. Ná-
kvæmlega ekkert varð úr
efndum. Tölvutæknin,
sem mærð var í kosn-
ingabaráttunni, var ekki
til og R-listinn sat uppi
með stór fjárútlát, svikin loforð og
tilgangslaust fyrirtæki.
Nú voru góð ráð dýr og allt sett í
gang til að bjarga
andliti stofnendanna.
Seint hefðu þeir þor-
að að játa á sig óða-
gotið. R-listinn, með
borgarstjórann í
broddi fylkingar, fór
út á fyrirtækjamark-
aðinn með vasa fulla
af peningum og inn-
kaupanet til að kaupa
fyrirtæki sem sam-
eina mætti Línu.net
ehf. til að finna því
fyrirtæki ný verk-
efni. Þrjú fyrirtæki
voru keypt í hend-
ingskasti og lítt gætt
að verðmiðanum
enda pólitísk framtíð frambjóðenda
R-listans að veði. Borgarbúar borg-
uðu brúsann.
Nokkurra daga gamalt fyrirtæki,
Irja hf., var keypt á heilar 250 millj-
ónir króna. Varla var blekið þornað á
kaupsamningnum þegar R-listinn
krafðist 225 milljón króna afsláttar á
kaupverðinu fyrir gerðardómi. Í fát-
inu hafði kötturinn verið keyptur í
sekknum. Ekki var fallist á að veita
slíkan afslátt enda er það grundvall-
aratriði að mönnum ber að standa
við gerða samninga, vitleysislega
sem skynsamlega. 250 milljóna
króna fyrirtækið er nú bókfært á 500
þúsund krónur og hafa því verið af-
skrifaðar um 224,5 milljónir króna.
Björgunaraðgerðir
dugðu skammt
Björgunaraðgerðir dugðu Línu.-
neti ehf. skammt og nú er svo komið
að fyrirtækið hefur beðið lánar-
drottna sína um greiðslufrest og bið-
lund en viðskiptamenn þess hafa
flestir talið sig vera að skipta við
borgarfyrirtæki. Á fyrstu 6 mánuð-
um ársins tapaði fyrirtækið krónu
fyrir hverja krónu sem velt var. Því
miður mun fyrirtækinu reynast erf-
itt að rétta úr kútnum enda hefur
stjórn þess gert hver mistökin á fæt-
ur öðrum. Þar situr greinarhöfund-
urinn kotroskni, Alfreð Þorsteins-
son, í sæti stjórnarformanns og
Helgi Hjörvar er varaformaður
stjórnar.
En R-listinn er ekki enn af baki
dottinn. Síðasta „snjallræðið“ er að
mynda nýtt félag, dótturfélag Lín-
u.nets ehf., um rekstur Irju hf. (nú er
það kallað Tetralína) og selja dótt-
urfyrirtækið, eða öllu heldur dóttur-
dótturfyrirtækið, síðan móðurfyrir-
tækinu, Orkuveitu Reykjavíkur, á
sama verði og Lína.net ehf. keypti
það á – verði sem þessir sömu menn
kröfðust úrskurðar gerðardóms um
að væri allt of hátt! Með þessum
hætti eru borgarfulltrúar R-listans
enn og aftur að reyna að bjarga
Línu.net ehf. og um leið að reyna að
bjarga eigin skinni. Eftir situr að um
400 milljónir króna eru færðar úr
sjóðum borgarinnar til fyrirtækis í
samkeppnisrekstri. Það að láta
Orkuveitu Reykjavíkur kaupa það
sem hún átti fyrir lýsir því vel hversu
brenglað siðferði R-listans í Reykja-
vík er orðið. Nauðsynlegt er að fá úr
því skorið hvort yfirfærslur af þessu
tagi standist lög.
Línur eru skýrar
Á öllum sviðum hafa sjálfstæðis-
menn í borgarstjórn bent á betri
leiðir. Sé það rétt, sem haldið er
fram, að litróf stjórnmálanna sé orð-
ið einlitt á það ekki við um borgar-
stjórn. Þar eru línur skýrar. Borg-
arfulltrúar R-listans sækjast
markvisst eftir því að ná völdum í at-
vinnu- og fjármálalífinu í gegnum
setu sína í borgarstjórn og gengur
herfilega að greina á milli opinbers
rekstrar og einkarekstrar. Lína.net
ehf. er dæmi um það.
Siðlaus stefna
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Lína.Net
Það að láta Orkuveitu
Reykjavíkur kaupa
það sem hún átti
fyrir lýsir því vel, segir
Júlíus Vífill Ingvarsson,
hversu brenglað
siðferði R-listans í
Reykjavík er orðið.
Höfundur er borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Mikið úrval af
brjóstahöldurum
verð frá kr. 700
Mömmubrjósta-
haldarar kr. 1900
Úrval af náttfatnaði
fyrir börn og fullorðna
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433