Morgunblaðið - 18.10.2001, Page 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 63
Póstkröfusendum
BIODROGA
jurtasnyrtivörur
Súrefnislínan-Oxygen Formula
fyrir þurra og viðkvæma húð
24 stunda dag- og næturkrem
24 stunda augnkrem
Glæsilegur kaupauki
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Útsölustaðir: Stella, Bankastræti.
Snyrtistofa Lilju Högnadóttur, Stillholti, Akranesi.
Lífrænar jurtasnyrtivörur frá heilsuræktarbænum Baden Baden.
Kringlukast
Kringlunni 8–12 sími 568 6211
Skóhöllin Bæjarhrauni 16 Hf. sími 555 4420
Tilboð í Kringlunni
á herraskóm 1.990
Nýt
t
kor
tatí
ma
bil
Dömustígvél!
allar tegundir
20% afsláttur
Stígvél
Nokkrar tegundir áður 4.990
2.990
Landsfundur
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
2001
„Byggjum framtíð
á fjölbreytni“
verður settur í Borgartúni 6, Reykjavík,
föstudaginn 19. október kl. 17.00.
Vakiner athygli á eftirtöldum dagskrárliðum.
Föstudagur kl. 17.00 Setningarathöfn.
kl. 20.00 Almennar stjórnmála-
umræður.
Laugardagur kl. 15.30 „Byggjum framtíð
á fjölbreytni“-
hringborðsumræður.
kl. 17.00 Ávarp Kristinar Halvorsen,
formanns Sosialistisk
Venstreparti, Noregi.
Sunnudagur kl. 15.00 Lokaathöfn.
Allir velkomnir
Kringlunni, sími 553 2888
Mikið úrval
af flottum
leðurstígvélum
HVERSU margir eru stoltir af því
að hafa stutt Víetnamstríðið?
Hversu margir halda að loftárásir
á Írak hafi bætt aðstæður Kúrda eða
réttarstöðu kvenna í ríkjum Persa-
flóa?
Hversu margir eiga seinna meir
eftir að vera stoltir af því að hafa
stutt hernaðarárásir á Afganistan?
Hversu margir Íslendingar fagna
dauða þeirra hundraða óbreyttra
borgara sem nú þegar hafa verið
drepnir í loftárásum í Afganistan?
Hversu margir Íslendingar eru
ánægðir að vita af hundruðum þús-
unda afganskra flóttamanna sem
hrökklast hafa frá heimilum sínum
með stuðningi ríkisstjórnar Íslands?
Nýfætt barn sem fannst í þorpi
rétt hja Peshawar, sjúgandi blóð úr
deyjandi móður sinni, bar það líka
ábyrgð á stjórn talibana og hryðju-
verkunum í Bandaríkjunum?
Öllum líður illa. Þeir sem ólust upp
á tímum Víetnamstríðins eru ósáttir
við að núna skuli börn okkar alast
upp í engu skárri heimi. Íslendingar,
með lágmarksréttlætiskennd, eru
langflestir á móti stríði en það er erf-
itt að greina rétt frá röngu á stríðs-
tímum. Sannleikurinn er fyrsta fórn-
arlambið í hverju stríði. Þó er ljóst
að hundruð þúsunda Afgana eru á
flótta og þúsundir munu deyja. Verð-
ur einhver dreginn til ábyrgðar?
Margir spyrja hvað heimurinn geti
gert til að aðstoða Afgana? Matar-
sendingar á eftir sprengjuregninu?
Siðleysi!
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna eiga fimmtíu ára af-
mæli um þessar mundir. Félagið
starfar í nánu samstarfi við Alþjóða-
samtök lýðræðissinnaðra kvenna og
fær reglulega fréttir frá 629 systur-
félögum í 106 löndum víðs vegar um
heim. Rekja má uppruna hreyfing-
arinnar til kvenna sem lifðu af fanga-
búðavist í seinni heimsstyrjöldinni.
Þessar konur sameinuðust í þeirri
von að aldrei myndi mannskepnan
fremja aðra eins glæpi. Menningar-
og friðarsamtök íslenskra kvenna
voru á móti Víetnamstríðinu. Við
vorum á móti Persaflóastríðinu og í
dag erum við afdráttarlaust á móti
loftárásum á Afganistan.
Það er mikilvægt að sameina öll
lýðræðisöfl sem vilja ekki skiptingu
heimsins í kristinn heim eða múham-
eðstrúar, austur eða vestur, ríkan
heim eða fátækan. Föstudagurinn
19. október er alþjóðlegur baráttu-
dagur gegn ofbeldi og stríði. Þá ætla
félagar úr ýmsum samtökum og
hreyfingum að koma saman í miðbæ
Reykjavíkur og sameinast í kröfunni
um frið. Safnast verður saman í
Hljómskálagarðinum kl. 16:30 og
gengið niður á Lækjartorg, þar sem
flutt verða nokkur ávörp.
MARÍA S. GUNNARSDÓTTIR,
bókasafns- og upplýsingafræðingur
og formaður Menningar- og frið-
arsamtaka íslenskra kvenna.
Sameinumst gegn
ofbeldi og stríði
Frá Maríu S. Gunnarsdóttur:
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
Merinó ullarpeysur
Persónuleg þjónusta
Laugavegi 63, sími 551 4422
MEÐGÖNGUFATNAÐUR
fyrir mömmu
og allt fyrir litla krílið
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136