Morgunblaðið - 18.10.2001, Page 65
ÚR FRIÐÞJÓFSSÖGU
(13. öld)
Eigi sér til Alda,
erum vestr í haf komnir,
allr þykkir mér ægir
sem í eimyrju hræri;
hrynja hávar bárur,
haug verpa svanteigar,
nú er Elliði orpinn
í örðugri báru.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 65
DAGBÓK
Flauelisbuxur - peysur
Ný sending
GLÆSILEGIR
SÍÐKJÓLAR
Stærðir 36-44
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Allt að 50%
afsláttur
Laugavegur 55 Sími: 561 3377
Lagersala
vegna breytinga
Hápunktur haustsins
Sparidagar á Hótel Örk
Fyrir alla eldri borgara
Sparidagarnir hefjast 21. október,
þegar Gunnar Þorláksson skemmtanastjóri
mætir til leiks og stjórnar dagskránni.
Að venju verður í boði fjölbreytt dagskrá, m.a.:
Morgunhreyfing, félagsvist, gönguferðir, bingó
danskennsla, leikjanámskeið,
ferðalag og svo öll tómstundaaðstaða hótelsins, auk
kvöldskemmtana með söng og dansi á hverju kvöldi.
Tvö tímabil eru í boði: 21. okt. -26. okt. 28. okt. - 2. nov.
Verð fyrir manninn er kr. 18.500
Lykill að íslenskri gestrisni.
HÓTEL ÖRK
Sími 483 4700
Innifalið Gisting í fimm nætur, m.v. tvíbýli, morgunverður,
þríréttaður kvöldverður ásamt skemmtidagskrá alla daga.
Árnað heillaBRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ÍTALSKI landsliðsspilarinn
Norberto Bocchi starfrækir
ágæta heimasíðu sem hægt
er að nálgast í gegnum síðu
ítalska bridssambandsins
(Fererbridge.it). Meðal efn-
is á síðu Bocchis er þáttur
sem heitir því viðeigandi
nafni „Gjörðir og misgjörð-
ir“. Þar rekur Bocchi nýleg
spil og greinir skilmerkilega
frá staðreyndum, hvort sem
vel er gert eða illa. Bocchi
var ekki ánægður með
frammistöðu félaga síns í
þessu spili:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ Á854
♥ ÁG3
♦ 742
♣ D109
Vestur Austur
♠ 63 ♠ 107
♥ 9 ♥ KD10876
♦ ÁKG1096 ♦ 53
♣G872 ♣K64
Suður
♠ KDG92
♥ 542
♦ D8
♣Á53
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 2 hjörtu 2 spaðar
Pass 3 hjörtu *Pass 3 spaðar
Pass Pass Pass
* Áskorun í fjóra spaða.
Bocchi var í norður, en
Giorgio Duboin í suður.
Duboin er frábær spilari og
sérstaklega hæfur í hlut-
verki sagnhafa, en í þetta
sinn brást honum bogalistin.
Vestur kom út með einspilið
í hjarta, sem Duboin tók
strax og svo tvisvar spaða.
Skiljanlega hefur Duboin
verið heldur vonlítill, því
vörnin virðist eiga fjóra
rauða slagi og örugglega
einn á lauf. En eins og tígul-
staðan er, kemst austur ekki
inn til að taka hjartaslagina.
Duboin spilaði tíguldrottn-
ingu af rælni og austur tók
tvo slagi á litinn og spilaði
þriðja tíglinum. Duboin
trompaði og tapaði þar með
spilinu.
Ef sagnhafi hendir hjarta
í þriðja tígulinn gerast und-
ur mikil. Vestur spilar best
laufi frá gosanum og austur
lætur vera að setja kónginn
á níuna. Enn vofir yfir tap-
slagur í laufi, en sagnhafi á
tvær leiðir til að vinna spilið.
Hann getur spilað lauf-
drottningu til að þvinga út
kónginn og sent svo vestur
inn á gosann og neytt hann
til að spila út í tvöfalda eyðu.
Hin leiðin er fallegri og
Bocchi lætur nægja að nefna
hana. Sagnhafi tekur öll
trompin og neyðir austur til
að fara niður á eitt hjarta og
Kx í laufi. Og þá er einfalt að
senda austur inn á hjarta og
láta hann spila frá laufkóng.
1. f4 Rf6 2. Rf3 c5 3. g3 b6 4.
Bg2 Bb7 5. O-O g6 6. d3 Bg7
7. e4 O-O 8. Kh1 d6 9. Rc3
Rbd7 10. h3 d5 11. De1 d4
12. Re2 Re8 13. g4 e5 14. f5
Rd6 15. Rg3 c4 16. Hf2 cxd3
17. cxd3 Hc8 18. h4 Rc5 19.
Dd2 f6 20. Re1 Hf7 21. Kh2
Hfc7 22. Dd1 Ba6 23. Bf1
Bb5 24. g5 fxg5 25. hxg5
gxf5 26. exf5 Be8 27. Bh3
Hb8 28. De2 Rf7
29. Dg4 Dd7 30.
Dh4 Dd8 31. b4
Ra4 32. Re4 Rd6
33. Rf6+ Bxf6 34.
gxf6 Bc6 35. Bh6
Re8 36. Rf3 Bxf3
37. Hg1+ Kh8
Haustmót Tafl-
félags Reykjavík-
ur hefur verið
vagga íslensks
skáklífs í áranna
rás. Að jafnaði
hefur þetta verið
sterkasta meist-
aramót sem tafl-
félag á Íslandi heldur. Það
hefur ekki breyst þótt kepp-
endur séu færri en áður.
Mótinu í ár er nýlokið og
kom staðan upp á milli Arn-
ars E. Gunnarssonar (2270),
hvítt, og Ingvars Þ. Jóhann-
essonar (2055). 38. Dg5!
Bd5 39. f7! Dxg5 Ekki var
björgulegra að leika 39...
Bxf7 þar sem eftir 40. Bg7+
Kg8 41. Bf6+ er fokið í flest
skjól fyrir svartan. Lokin
eru grátbrosleg. 40. f8=D+
Dg8 41. Hxg8+ Bxg8 42. f6
Hf7 43. Hg2! Hxf8 44. Bg7+
Rxg7 45. fxg7#!
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 18.
október, er sjötug Þóra Sig-
urjónsdóttir, Lækjarbakka,
Gaulverjabæjarhr. Hún og
eiginmaður hennar, Gísli
Jónsson, taka á móti fjöl-
skyldu og vinum laugardag-
inn 20. okt. frá kl. 14-19 að
heimili sínu, Lækjarbakka.
85 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 18.
október, er 85 ára Garðar
Sigjónsson, fyrrverandi
skipstjóri og hafnarvörður
á Hornafirði, nú til heimilis
í Hraunbæ 103, Reykjavík.
Garðar er að heiman í dag.
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag fimmtudaginn 18. október
eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Steinunn Sveinbjörns-
dóttir og Steingrímur Þorsteinsson, fyrrverandi kennarar,
Vegamótum á Dalvík. Deginum verja þau með fjölskyldu
sinni.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
(13. öld)
Upp skalt á kjöl klífa,
köld er sævar drífa;
kostaðu huginn at herða,
hér skaltu lífit verða;
skafl beygjattu skalli,
þótt skúr á þik falli;
ást hafðir þú meyja;
eitt sinn skal hverr deyja.
ÞÓRIR JÖKULL
LJÓÐABROT
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur góðri
sköpunargáfu og átt auðvelt
með að hafa áhrif á fólk.
Treystu sjálfum þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Taktu það ekki nærri þér þótt
til einhverra orðaskipta komi
milli þín og vinar þíns út af
fjármálum. Hlutirnir munu
komast á hreint.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú mátt alltaf búast við því að
aðrir vilji hafa eitthvað um
það að segja, hvernig þú vinn-
ur. Láttu það ekki tefja þig
heldur haltu þínu striki.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt sjálfur að hafa fyrir
hlutunum því ekkert gerist
öðru vísi. Gerðu fyrst kröfur
til sjálfs þín áður en þú hefur
uppi kröfur á hendur öðrum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér berst óvænt boð um þátt-
töku í skemmtilegu sam-
kvæmi. Láttu það eftir þér að
fara og skemmtu þér vel. Það
lyftir þér upp og býr þig und-
ir frekari átök.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að skipuleggja hlut-
ina betur og reyna að hafa
sem mest á hreinu hvernig
dagurinn verður. Það auð-
veldar þér vinnuna og tryggir
betri afköst.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu þér ekki bregða þótt
einhver vinur þinn komi fram
við þig með óvenjulegum
hætti. Reyndu að setja þig í
hans spor og vera þolinmóð-
ur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú verður að standast allar
freistingar til fjárútláta því
nú er ekkert borð fyrir báru.
Þú verður að láta föstu út-
gjöldin ganga fyrir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér dugar lítt að sitja með
hendur í skauti því þannig
kemurðu engu í verk. Hristu
af þér slenið, brettu upp erm-
arnar og taktu til starfa.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það vantar ekki að allir í
kringum þig vilja gefa þér
góð ráð en þú ættir að hugsa
þig vandlega um áður en þú
ferð eftir einhverju þeirra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þegar þú tekur þátt í ein-
hverju með öðrum skaltu
ganga úr skugga um að sér-
hver greiði það sem honum
ber en að þú sitjir ekki uppi
með sárt ennið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur það á tilfinningunni
að eitthvað sé að gerast á bak
við tjöldin á vinnustað þínum
án þess að þú sért hafður með
í ráðum. Þinn tími kemur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ýmislegt getur komið þér á
óvart svo ef þú vilt ekki láta
slá þig út af laginu skaltu
vera viðbúinn. Þetta er þó
ekkert til að hafa áhyggjur af.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.