Morgunblaðið - 18.10.2001, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2001 73
Ótrúlegar tæknibrellur, brjáluð spenna og veisla
fyrir augu og eyru. Þú hefur aldrei séð annað eins.
Sýnd kl. 4.
Íslenskt tal. Vit 265.
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.
Vit 245
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Vit 268
Kvikmyndir.com
Rás 2
Mbl
Sýnd kl. 6 og 10.
B. i. 12. Vit 270
Radíó X
HK DV
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Mbl
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.10. Vit 281
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 265.
DV
Strik.is
strik.is kvikmyndir.isSýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
B.i. 12. Vit 273
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 278
Allir vilja þeir
sneið af „glæpakökunni“
Nýjasta snilldar-
verkið frá
meistaranum
Woody Allen.
Með hreint út sagt
úrvalsliði leikara:
Hugh Grant ,
Tracey Ullman ,
Michael Rapaport
og Jon Lovitz .
Sýnd kl. 8 og 10.10.
B i. 16. Vit 251
strik.is
Mögnuð stuðmynd
í nánast alla staði!
Kvikmyndir.is
Capoera
Brasilísk bardagalist.
4ra vikna námskeið.
Kennari: Clayton
frá Brasilíu.
sími 551 5103.
Beint á toppinn í USA
www.skifan.is
Sýnd kl. 5.40.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Tvíhöfði/Hugleikur
Hausverk.is
USA TODAY
1/2 NY POST
Kvikmyndir.com
Hollywood í hættu
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
Ertu tilbúin fyrir Jay og Silent Bob... því
þeir eru gjörsamlega steiktir! Frá Kevin
Smith, snillingnum sem gerði Clerks,
Mallrats, Chasing Amy og Dogma kemur
ein fyndnasta mynd ársins.
Sýnd kl. 8 og10.10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
FYRSTA smáskífa Michaels Jacksons í
fjögur ár náði ekki settu marki, toppsæti
breska vinsældalistans, eins og nær allir
höfðu spáð.
Söngdísin litla hún Kylie Minogue var
þess valdandi en lag hennar sem allir eru
með pikkfast í höfðinu sat sem fastast á
toppnum, fjórðu vikuna í röð – nokkuð
sem ekki hefur gerst í háa herrans tíð.
Jackson karlinn, sjálfur sjálfskipaði
poppkóngurinn, var búinn að ausa
ómældu fé í markaðsátak til kynningar
nýja laginu „You Rock My World“,
myndbandið er eitthvert það dýrasta
sem gert hefur verið við sönglag og
framleiðslukostnaður væntanlegrar
breiðskífu frá honum, Invincible, hljóðar
upp á 21 milljón punda (900 milljónir
króna) sem er hærri tala en nokkru sinni
áður hefur verið nefnd í tengslum við
gerð hljómplötu. Platan kemur út síðar í
mánuðinum og verður spennandi að sjá
hvort karlinum takist þá að velta Kylie
úr sessi en breiðskífa hennar, Fever,
vermir toppsætið í Bretlandi, aðra vik-
una í röð.
Kylie hrærir duglega
í heimi poppkóngsins
AÐ ÞESSU sinni
sýnir Filmundur
spænsku gaman-
myndina Torrente 2:
Misión en Marbella
sem kemur í kjölfar
afar vinsællar mynd-
ar, Torrente, el brazo
tonto de la ley, sem
fór sigurför um Spán
þegar hún kom út ár-
ið 1998 og var sýnd
hér á landi við eftir-
tekt fyrir tveimur ár-
um.
Í fyrstu myndinni
kynntumst við José
Luis Torrente, full-
komlega siðblindum
fyrrverandi lögreglu-
manni sem getur ekki
látið vera að elta uppi glæpamenn
þó að flestir væru honum sjálfsagt
hæfari á þeim vettvangi. Nú er
hann kominn aftur á stjá. Hann hef-
ur ákveðið að flytja sig um set til
Marbella ásamt hinum dygga að-
stoðarmanni Cuco og taka upp þá
iðju sem hentar
honum best að eig-
in mati, sem er að
verja borgina með
öllum ráðum og
framfylgja réttlæt-
inu út í ystu æsar.
Og viti menn, Torr-
ente er ekki fyrr lentur en stór-
viðburðir taka að gerast í glæpa-
heimi Marbella. Vopnasalinn
Spinelli hótar að sprengja borgina í
loft upp fái hann ekki 2.000 milljón
peseta í vasann og það sem allra
fyrst. Það er ljóst að aðeins einn
maður getur bjargað borginni að
svo komnu. En hann er því miður
staddur erlendis. Af þeim sökum
lendir öll ábyrgðin á herðum vafa-
sömu hetjunnar Torrente sem hef-
ur framtíð Marbella nú í höndum
sínum.
Torrente getur engan veginn tal-
ist geðþekkur maður.
Hann er best þekktur
fyrir dónaskap, ófyr-
irleitni og nísku, sem
dæmi neyðir hann
föður sinn, sem er
bundinn í hjólastól, til
að betla sér til viður-
væris. Hann mætir
aldrei ódrukkinn til
vinnu, er bullandi
tækifærissinni sem
þolir ekki útlendinga
og kemur illa fram við
konur. Honum tekst
að móðga nánast alla
sem hann kemst í
tæri við og flestum er
illa við hann, nema
hinum trygga aðstoð-
armanni Cuco. Ekki
má gleyma spillingunni, en óhætt er
að segja að enginn sé ósnortinn af
henni í umhverfi Torrente, síst af
öllu hann sjálfur. Sú sýn sem gefin
er af samfélaginu er vægast sagt
kaldhæðin, allir nota alla og öllum
er sama um náungann. Það er því
óhætt að mæla með
Torrente 2 fyrir þá
sem hafa gaman af
sótsvörtum og kald-
hæðnislegum húm-
or í bland við yfir-
drifið ofbeldi. Hafi
menn opinn huga
má einnig greina hárbeitta ádeilu á
samfélag sem enn ber merki ógnar-
stjórnar Francos.
Torrente er leikinn af Santiago
Segura, sem er þekkt sjónvarps-
stjarna og kvikmyndaleikari á
Spáni og hefur leikið í á fjórða tug
mynda á undanförnum áratug.
Hann hefur verið að sækja í sig
veðrið sem leikstjóri undanfarið, og
leikstýrir hann sjálfur Torrente-
myndunum.
Torrente 2 verður sýnd í Há-
skólabíói í kvöld og á mánudaginn
kl. 22.30.
Siðblindur lag-
anna vörður
Torrente er gjarnan
með allt niðrum sig.
Filmundur sýnir Torrente 2: