Morgunblaðið - 24.10.2001, Page 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 13
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Háholt, Hf. - 4ra herb. m. bílskúr
Vorum að fá skemmtilega ca 100
fm 3-4ra herb. íbúð auk 26 fm bíl-
skúrs á efstu hæð í nýju fjölbýli.
Íbúðin afhendist fullbúin án gólf-
efna með sérlega vönduðum inn-
réttingum, sérinngangur. Frábært
útsýni. Áhv. 7,7 millj. Afhending í
nóv. 2001. Verð 13,8 millj. 81611
FRAMKVÆMDUM við færslu
Njarðargötu að hluta og endurnýjun
yfirlags lýkur væntanlega í næstu
viku. Að sögn Haralds B. Alfreðs-
sonar verður í kjölfarið lokið við
Sturlugötu sem liggur meðfram ný-
byggingu Íslenskrar erfðagreining-
ar.
Unnið hefur verið að færslu
Njarðargötunnar suður fyrir hús ÍE
sem nú er að rísa en að auki er gatan
malbikuð. Hún mun svo tengjast
Eggertsgötu sunnan við bækistöð
gatnamálastjóra. „Síðan er verið að
ljúka við götu sem heitir Sturlugata
en hún liggur nánast í norður með-
fram ÍE og upp að Norræna húsinu,“
segir Harald.
Hann segir að hluti Njarðargöt-
unnar verði væntanlega tekinn í
notkun í næstu viku en ekki sé end-
anlega búið að ákveða hvernig geng-
ið verði frá götunni þar sem hún
nálgast Hringbraut. Framkvæmdir
við Sturlugötu muni síðan halda
áfram framundir mánaðamót nóv-
ember og desember.
Að sögn Haralds er kostnaður við
framkvæmdirnar um 35 milljónir
króna.
Morgunblaðið/RAX
Hluti Njarðargötunnar verður væntanlega tekinn í notkun í næstu viku.
Njarðargata
færð suður
fyrir ÍE
Vatnsmýrin