Morgunblaðið - 24.10.2001, Síða 42

Morgunblaðið - 24.10.2001, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG ER sveitamaður í húð og hár, ég bý á Akureyri, já þessum pínu- litla stað þarna norður undir heim- skautsbaug sem gerðist svo kræfur að biðja menntamálaráðherra um það að taka nú svæðisútvarpið okk- ar ekki frá okkur. Og hvað gerði ráðherra? Hann lagði til að við tækjum útvarpsstöðina í heilu lagi, jú hann bauð okkur einu útvarps- stöðina á Íslandi sem gerir ekki upp á milli aldurshópa, þau reyna ekki að vera yfirgengilega flott eða fyndin, nei þau eru bara þau sjálf. En það er eitt sem að ég átta mig ekki á, af hverju, ef útvarps- stöðin flytur, þyrfti það að skemma fyrir höfuðborgarsvæðinu, útvarp- ið næst út um land allt, það er sama hvaðan útsendingarnar eru. Ég las grein í Morgunblaðinu föstudaginn 19. október, eftir Jak- ob „Stuðmann“ Magnússon tónlist- armann og flokksbróðir minn, og honum fannst það hræðilegt að ís- lensku tónlistarlífi væri stefnt svona í voða með þessum hug- myndum, gróskan í íslensku tón- listarlífi væri öll á suðvesturhorn- inu og það myndi skemma fyrir ungum og upprennandi „Björkum“ ef Rás 2 yrði tekin í burtu, já auð- vitað allir sem kunna að syngja eða spila nútímatónlist eru á suðvest- urhorninu. Við landsbyggðarfólk sitjum heima á kvöldin, öll saman í baðstofunni og spilum á langspil og kveðumst á, svo þegar líða tekur á kveldið kveikjum við á viðtækinu og hlýðum á fréttirnar, en aðeins í smástund, því ekki er rafmagnið mikið úti á landi þar eru of margar náttúruperlur sem ekki mega blotna. Nei, þetta er ekki svona og ég er alls ekki að segja það að við eigum að flytja Rás 2 – útvarp allra lands- manna algjörlega til Akureyrar, Ísafjarðar eða Egilsstaða en við verðum að passa okkur á því að ríkisrekin stofnun eins og Rás 2, verði ekki alfarið höfuðborgar- stofnum. Þegar fulltrúar umferð- arráðs koma fram í útvarpinu og láta fólk vita af því hvernig um- ferðin gangi tala þeir endalaust um hálku á Miklubraut eða óhapp við Gullinbrú en aðeins sárasjaldan segja þeir hvernig ástand sé á fjall- vegum. Svo eru margir góðir kvöldþætt- ir á Rás 2 fyrir ungt fólk, þar sem „Bjarkir, Sigurrósir og Emilíön- ur“, eins og hann Jakob orðaði það, geta komið fram. Hvernig væri að senda út einn svona þátt á viku eða bara mánuði frá landsbyggðinni og segja aðeins frá því hvaða hljóm- sveitir eru að gera góða hluti hér úti á landi? Ef Rás2 verður enn þá með höf- uðstöðvar í höfuðborginni er það svo sem ásættanlegt, hjá þessum íhaldsmönnum má hvort sem er ekki breyta neinu, nema þá að einkavæða eitthvað. En það sem er ekki ásættanlegt er það að hér á Akureyri sé nægur tækjabúnaður og aðstaða fyrir 15 starfsmenn nánast ónotuð. Það þarf að efla svæðisútvarpið í öllum fjórðungum og nýta þá hæfu menn sem þar starfa og þær milljónir sem liggja í þessum tækjum. Ef þetta liggur bara ónotað eins og það hefur gert, má alveg eins selja það fólki sem hefur einhvern áhuga á því að starfa á litlu skrítnu stöðn- um sem eru á víð og dreif um land- ið. LÁRUS HEIÐAR ÁSGEIRSSON, nemi, Akureyri. Rás 2 og landsbyggðin Frá Lárusi Heiðari Ásgeirssyni: HAFRANNSÓKNASTOFNUN hefur boðað til funda víða um land til að kynna almenningi rannsóknir sínar. Yfirleitt þykir góðra gjalda vert, að fræðimenn kynni almenn- ingi störf sín. Nú vill svo til, að beðið er þríþættrar kynningar á ís- lenskum hafrannsóknum, sem sjáv- arútvegsráðherra stofnaði til í vor, rétt eftir að Hafrannsóknastofnun hafði lýst mistökum sínum. Það þrennt, sem ráðherrann vildi, að yrði kynnt, var í fyrsta lagi, að stofnunin útskýrði mistök sín og segði, hvernig hún þættist geta bætt sig. Þá var fenginn er- lendur líffræðingur til að leggja mat á fiskveiðiráðgjöf stofnunar- innar. Í þriðja lagi var stjórnandi Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna, sem er í sama húsi og Hafrannsóknastofnun, fenginn til að leggja dóm á gagnrýni, sem fram hefði komið á fiskifræði stofn- unarinnar. Ekkert af þessu hefur verið birt almenningi. Á meðan svo er er ruglandi að boða almenning á kynningarfundi. Þegar hin þrí- þættu svör hafa verið birt þarf að gefa Hafrannsóknastofnun og þeim, sem sett hafa fram gagnrýni á hana, og öðrum ráðrúm til að meta svörin og bregðast við þeim. Þá fyrst fer að nálgast efni til ályktunar. BJÖRN S. STEFÁNSSON, Kleppsvegi 40, Reykjavík. Hafrannsóknir kynntar Frá Birni S. Stefánssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.