Morgunblaðið - 21.12.2001, Síða 33
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2001 33
CONOR O’Neill (Keanu Reaves) er
reikull og ósjálfstæður maður sem
er um það bil að finna tilgang og
innri styrk, sem hann hefur ekki áð-
ur fundið. Á ólíklegasta stað og með
ólíklegasta hópi sem hugsast getur.
Conor er íþróttaveðmálafíkill,
sem gerir hann ekki beinlínis að
fyrirmyndarmanni í augum sam-
borgaranna. Hvað sem því líður
býðst vinur hans til að hjálpa Conor
að greiða niður veðskuldirnar – ef
hann tekur að sér þjálfun unglinga-
liðs í hafnabolta. Allt í einu er Con-
or orðinn leiðtogi ungra harðjaxla í
einu versta hverfi Chicagoborgar.
Það sem að öllu óbreyttu hefði
orðið versta refsing snýst upp í
andhverfu sína. Conor fær í fyrsta
skipti ögrandi verkefni, sem laðar
það besta fram í honum. Hann þarf
að bera ábyrgð á öðru en sjálfum
sér og gerir sér grein fyrir inni-
haldslausum lífsháttum er hann
finnur áhuga utangarðsbarnanna,
sem rétt skrimta í slömminu. Það
kemur engum meira á óvart en
Conor sjálfum að hann fer að drag-
ast að hinu unga hafnaboltaliði vill-
inganna – og áhugasömum kennara
þeirra (Diane Lane). Strákpjakk-
arnir fara að treysta á að hvíti þjálf-
arinn geti gert eitthvað úr þeim,
fengið þá til að gleyma hversdags-
grámanum um stund, þegar liðið fer
að taka upp á því að sigra.
Hardballs er byggð á bók Daniels
Coyle, Hardball: A Season in the
Projects, sem fjallar um reynslu
höfundar af íþróttaþjálfun unglinga
í hinu illræmda Cabrini-Green-
hverfi í Chicago.
Einn virtasti yngri kvikmynda-
leikari samtímans, Keanu Reeves,
hafði ósvikna ánægju af að taka að
sér hlutverk Conors. Reeves er ein-
staklega óhefðbundinn í hlutverka-
vali, hugsar frekar um leikrænan en
fjárhagslegan ávinning, a.m.k.
stundum, svo framleiðendurnir
settu þar í feitt. Reeves var sjálfur
ekki ókunnugur íþróttum á ung-
lingsárunum, spilaði íshokkí í
heimaborg sinni, Toronto. Það nýtt-
ist honum vel í hokkímyndinni
Youngbloods, á móti Rob Lowe.
Leikarar: Keanu Reeves (The Gift,
Speed, Matrix), Diane Lane (The Glass
House, Chaplin, The Cotton Club),
D.B. Sweeney (Gardens of Stone,
Memphis Belle, Spawn.) Leikstjóri:
Brian Robbins (Varsity Blues, Ready to
Rumble).
Hvatt
til dáða
DeWayne Warren og Keanu
Reeves í kvikmyndinni Hardball.
Laugarásbíó frumsýnir Hardball með
Keanu Reeves, Diane Lane, John Hawk-
es, D.B. Sweeney.
JÓLATEIKNIMYNDIN frá Disney
í ár er íburðarmikil og dýr stórmynd
um þjóðsöguna um Atlantis, týnda
meginlandið, Atlantis: The Lost
Empire. Að henni standa mennirnir
sem báru m.a. ábyrgð á Hringjaran-
um í Notre Dame og Fríðu og dýr-
inu, þeir Don Hahn, Gary Trousdale
og Kirk Wise. Hátæknivæddir lista-
mennirnir fara með áhorfendur í
landkönnunarferð til Atlantis, þessa
leyndardómsfulla og stórbrotna
týnda keisaraveldis, sem hvarf í haf-
djúpin blá fyrir árþúsundum. Beitt
til þess bæði stafrænni tækni og
gömlu góðu handunnu brellunum
sem við þekkjum úr eldri teikni-
myndum.
Aðalpersónan er Máni, ungur og
lítt reyndur ævintýramaður sem
slæst í hóp landkönnuða sem vilja
freista þess að finna hið dulmagnaða
Atlantis. Afi Mána hafði löngu áður
komist yfir ómetanlega vitneskju um
hið horfna land á hafsbotninum.
Máni verður því í fararbroddi rann-
sóknarleiðangursins, sem, kostaður
er af sérvitrum milljarðamæringi.
Nú hefst mikið ævintýri sem flyt-
ur leiðangursmenn niður á botn sjáv-
ar, þar sem þeirra bíður ótrúlegt æv-
intýraríki þar sem íbúarnir hugsa og
starfa á allt annan hátt en uppi á yf-
irborðinu. Þarna ríkir kóngurinn yfir
Atlantis, faðir hinnar engilfríðu
Kiddu prinsessu; það skyldi þó ekki
vera að ástin gerði vart við sig?
Disney lagði meiri vinnu í Atlantis
en áður hefur þekkst. Vinna við
myndina hófst þegar árið 1997, hafði
því verið heil fjögur ár í framleiðslu
er hún var frumsýnd á þessu ári.
Aragrúi hæfileikafólks kom að
myndinni, þ.á m. 350 listamenn,
teiknarar og tæknimenn. Tónlistin
er í höndum James Newton Howard
(The Sixth Sense, The Fugitive,
Prince of Tides, My Best Friends
Wedding) og öll áhöfnin valin úr hópi
hinna bestu. Myndin verður sýnd
með íslenskri og enskri raddsetn-
ingu.
Íslenskar leikraddir: Valur Freyr Ein-
arsson, Selma Björnsdóttir, Rúrik Har-
aldsson, Harald G. Haralds, Pálmi
Gestsson, Þórhallur Sigurðsson o.fl.
Bandarískar leikraddir: Michael J. Fox,
James Garner, Cree Summer, Leonard
Nimoy o.fl. Leikstjórar: Kirk Wise, Gary
Trousdale (The Hunchback of Notre
Dame, Beauty and the Beast).
Undraheimur undirdjúpanna
Sambíóin í Reykjavík, Keflavík og Ak-
ureyri ásamt Háskólabíó frumsýna Atl-
antis, teiknimynd með bandarískri og
íslenskri raddsetningu Vals Freys Ein-
arssonar, Selmu Björnsdóttur, Haralds
G. Haralds o.fl.