Morgunblaðið - 19.01.2002, Síða 16
AKUREYRI
16 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
6 dagar
í Slava
Miðasala opin alla virka
daga kl 13-17 og fram
að sýningu sýningardaga.
Sími 4621400. www.leikfélag.is
NÝTT fyrirtæki hefur verið stofnað í
Ólafsfirði, SecoNor ehf. Það er í eigu
Ólafsfirðinga og Færeyinga og sér-
hæfir sig í þurrkun á saltfiski. Ætl-
unin er að setja upp fiskþurrkunar-
verksmiðju í bænum og mun
framleiðslan hefjast innan tíðar svo
hægt verði að taka þátt í páskasöl-
unni. Frímann Ásgeirsson einn eig-
enda sagði að 8-10 störf sköpuðust í
Ólafsfirði og þá yrðu framleiðslutæki
nýtt sem staðið hafa ónotuð um skeið.
Í fyrstu verður þurrkaður þar þorsk-
ur, ufsi, langa og keila en stefnt er að
því að þróa vöruúrvalið og pakka í
neytendapakkningar fyrir stórmark-
aði. Hráefni verður keypt af saltfisk-
framleiðendum í Færeyjum og eins
að einhverju leyti hér heima, þá er
gert ráð fyrir að nýta hráefni frá Nor-
egi og Rússlandi. Heimamenn eiga
67% í fyrirtækinu og Færeyingar,
33%, þ.e. fyrirtækið P/F Sesam, en
það er fjárfestinga og eignarhalds-
félag. Velti það á liðnu ári 2,7 millj-
örðum kr. og eru starfsmenn þess um
200 talsins.
Fyrsti gámurinn með fiski er vænt-
anlegur og verður þá þegar hafist
handa, en þurrkunarferillinn tekur 14
daga. Gert er ráð fyrir að framleidd
verði um 680 t. af afurðum. Ráðgert
er að selja afurðir að mestu til Suður-
Ameríku. Útflutningur á þurrkuðum
saltfiski hefur dregist verulega sam-
an frá árinu 1998. Fyrirtækið Sæunn
Axels í Ólafsfirði framleiddi langmest
af þurrfiski, en það var tekið til gjald-
þrotaskipta 1999. Skilyrði til fisk-
þurrkunar eru með besta móti um
þessar mundir, en gengisfall krón-
unnar síðustu mánuði hefur aukið enn
meira á hagkvæmni þurrkunar.
Nýtt fyrirtæki stofnað um fiskþurrkun í Ólafsfirði
8–10 ný störf
skapast í bænum
Ólafsfjörður
LEIKSKÓLASTJÓRAR á leik-
skólum á Akureyri hafa afhent
fulltrúum á skóladeild bæjarins
námskrá leikskólanna.
Haustið 1999 var skipuð fimm
manna nefnd sem fékk það verkefni
að búa til sameiginlega beinagrind
að skólanámskrá fyrir alla leik-
skólana og skilaði hún áliti vorið
2000. Vinnan hófst í kjölfar þess að
menntamálaráðuneyti gaf út Aðal-
námskrá leikskóla sumarið 1999.
Hver leikskóli hefur svo farið sína
leið í þessari vinnu. Akureyrarbær
styrkti þessa vinna sérstaklega með
framlögum árin 2000 og 2001, einni
milljón hvort ár.
Mikil vinna var lögð í gerð skóla-
námsskránna og mun hún án efa
skila leikskólunum betra starfi.
Námskrá leikskóla er lifandi leið-
arvísir um starfið í leikskólanum og
þarf því að vera í stöðugri endur-
skoðun, þannig að segja má að í
raun ljúki gerð skólnámskrár aldr-
ei.
Morgunblaðið/Kristján
Snjólaug Pálsdóttir, leikskólastjóri á Síðuseli, t.h., afhendir Hrafnhildi
Sigurðardóttur leikskólafulltrúa eintak af skólanámskrá leikskóla Ak-
ureyrarbæjar. Fyrir aftan þær eru glaðbeittir leikskólastjórar annarra
leikskóla bæjarins. Sitjandi f.v. eru Aðalheiður Hreiðarsdóttir, Klöpp-
um, Fanney Jónsdóttir, Kiðagili, og Sigríður Gísladóttir, Holtakoti. Aft-
ari röð f.v.: Sigrún Jónsdóttir, Pálmholti, Björg Sigurvinsdóttir, Lund-
arseli, Jónína Hauksdóttir, Árholti, Kristbjörg Svavarsdóttir, Iða-
völlum, Anna R. Árnadóttir, Krógabóli, Hanna Berglind Jónsdóttir,
Sunnubóli, og Sigríður Jónasdóttir, Flúðum.
Leikskólastjórar af-
henda skólanámskráMIKIL hreyfing er á bændum í Eyja-
fjarðarsveit um þessar mundir. Nú
eru til sölu 6 jarðir í sveitinni auk þess
sem ein jörð á Svalbarðsstönd er til
sölu.
Nokkrar þessara jarða teljast til
stórbýla og eru í fullum rekstri, en á
öðrum hefur kvóti þegar verið seldur.
Ólafur G. Vagnsson ráðunautur
sagði að jarðirnar yrðu auglýstar nú á
næstu dögum, en um viðbrögð kvaðst
hann ekki vita fyrirfram. Hann sagði
það óvenjulegt að svo margar jarðir
losnuðu í einu og þá sérstaklega á
þessum árstíma.
Sjö jarðir
til sölu
Eyjafjarðarsveit
HJÓNANÁMSKEIÐ verður í Akur-
eyrarkirkju næstkomandi miðviku-
dagskvöld, 23. janúar.
Þar verður fjallað um samskipti
hjóna, leiðir til að efla tjáskipti og
hvernig auðga megi samverustundir
í daglegu lífi.
Námskeið þessi hafa verið haldin í
Akureyrarkirkju undanfarin ár og
notið mikilla vinsælda. Þau eru ætl-
uð hjónum og sambýlisfólki en enn-
fremur þeim, sem hafa í hyggju að
ganga í hjónaband.
Prestar Akureyrarkirkju, þau sr.
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og sr.
Svavar A. Jónsson, sjá um kennsl-
una, en þau hafa margra ára reynslu
af starfi með hjónafólki. Námskeiðið
tekur eina kvöldstund. Markmiðið
með því er ekki það að greina og
leysa öll þau vandamál, sem hjóna-
fólk getur átt við að stríða, enda væri
það ekki unnt á svo stuttum tíma. Á
námskeiðinu er reynt að vekja at-
hygli á ýmsum forsendum góðra
sambanda, bæði með fræðslu og æf-
ingum.
Skráning á námskeiðið er hafin, en
hún fer fram í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju kl. 9 – 12 virka daga.
Akureyrarkirkja
Hjónanám-
skeið
SJÖ umsóknir bárust um starf bæj-
arlögmanns Akureyrarbæjar. Um-
sóknarfrestur rann út um áramót en
hann var framlengdur til 14. janúar.
Umsækjendur um stöðuna eru;
Björn Jónsson, Brynjólfur Hjartar-
son, Erlingur Óskarsson, Sigurður
Georgsson og Svavar Pálsson, allir
úr Reykjavík og Inga Þöll Þórgnýs-
dóttir og Sigurður Eiríksson frá Ak-
ureyri. Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri sagði að um áramót hefðu
aðeins borist þrjár umsóknir um
stöðuna og því hafi verið ákveðið að
framlengja umsóknarfrestinn. „Við
höfum verið að fá 40–50 umsóknir
um störf hjá bænum. Menn töldu að
auglýsingar um stöðuna hefðu getað
týnst um jólin og því var ákveðið að
auglýsa hana aftur.“
Sjö umsóknir
um starf bæj-
arlögmanns
AGLOW, kristileg samtök kvenna,
halda fund næstkomandi mánudags-
kvöld, 21. janúar og hefst hann kl. 20.
Fundurinn verður í félagsmiðstöð-
inni í Víðilundi 22 á Akureyri. Ræðu
kvöldsins flytur Hrefna Brynja
Gísladóttir háskólanemi. Þá verður
fjölbreyttur söngur og fyrirbæna-
þjónusta.
Aglow-fundur
ÞRENNT var flutt á slysadeild FSA
eftir harðan árekstur tveggja fólks-
bíla á Borgarbraut á Akureyri seinni
partinn í gær. Bílarnir voru að koma
hvor úr sinni áttinni en annar öku-
maðurinn missti stjórn á bílnum í
mikilli hálku og fór hann yfir á öfug-
an vegarhelming og hafnaði á bílnum
sem kom á móti.
Allir þrír úr öðrum bílnum voru
fluttir á slysadeild og þurfti að beita
klippum til að ná farþega í framsæti
úr bílnum. Að sögn varðstjóra hjá
Slökkviliði Akureyrar voru meiðsli
þeirra ekki talin mjög alvarleg. Öku-
maður hins bílsins var einn á ferð og
slapp hann með minni háttar meiðsl.
Mikið annríki var hjá Slökkviliði
Akureyrar um það leyti sem slysið
varð. Til viðbótar þurftu sjúkraflutn-
ingamenn að fara í sjúkraflug til
Neskaupstaðar og Hafnar í Horna-
firði. Venjulega eru sex menn á vakt
hjá slökkviliðinu á þessum tíma en í
tengslum við þessi verkefni seinni
partinn í gær voru 13 manns að
störfum.
Mikil hálka var á götum Akureyr-
ar í gær og urðu þrír minni háttar
árekstrar í bænum til viðbótar.
Morgunblaðið/Kristján
Sjúkraflutningamenn Slökkviliðs Akureyrar þurftu að beita klippum til
að ná farþega í framsæti út úr öðrum bílnum.
Harður
árekstur
á Borg-
arbraut
Mikil hálka á götum
Akureyrar
ANTON Konráðsson var valinn
íþróttamaður Ólafsfjarðar fyrir ár-
ið 2001. Auk hans fengu þrír aðrir
íþróttamenn útnefningu, William
Geir Þorsteinsson (knattspyrnu-
deild), Kristján Uni Óskarsson
(skíðadeild) og Sigurbjörn Þor-
geirsson (golfklúbburinn).
Anton Konráðsson er 41 árs gam-
all og hefur æft og keppt fyrir félag
sitt síðustu 7 árin. Helsti árangur
hans á árinu var: Landsmótsmeist-
ari UMFÍ í loftskammbyssu og
staðlaðri skammbyssu. 2. sæti á bik-
armeistaramóti Íslandis í loft-
skammbyssu og náði smáþjóða-
leikalágmarkinu. Anton náði
meistaraflokksárangri í loftskamm-
byssu, sá eini á landinu. Hann
hreppti 1. sæti á landsmóti STÍ í
apríl og 3. sæti á Íslandsmóti. Anton
varð Ólafsfjarðarmeistari í loft-
skammbyssu og með riffli liggjandi.
Ólafsfirðingar hafa valið íþrótta-
mann ársins á hverju ári síðan 1975,
en undanfarin 10 ár, með einni und-
antekningu, hefur Kristinn Björns-
son orðið fyrir valinu. Viðurkenn-
ingargripina gerði Tómas Ein-
arsson, steinsmiður í Ólafsfirði.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Íþróttamaður Ólafsfjarðar var valinn á dögunum og var myndin tekin í
hófi sem efnt var til af því tilefni, en á henni eru Óskar Þór Sigurbjörns-
son fyrir hönd Kristjáns Una, William Geir, Anton og Helga Jónsdóttir
fyrir Sigurbjörn, tengdason sinn.
Anton varð
fyrir valinu
Ólafsfjörður
Íþróttamaður Ólafsfjarðar
MARKMIÐLUN stendur fyrir
námskeiði sem ber heitið „Árang-
ursrík sala“ í Sveinbjarnargerði,
rétt utan Akureyrar, á þriðjudag,
22. janúar. Um er að ræða nám-
skeið sem hefur verið haldið sunn-
an heiða oftar en einu sinni og við
góðar undirtektir þátttakenda.
Fjölmargir framkvæmdastjórar,
sölustjórar og annað starfsfólk frá
minni og stærri fyrirtækjum hafa
sótt námskeiðið og nú hafa Ak-
ureyringar og aðrir Norðlendingar
möguleika á að sækja námskeiðið
á sínum heimaslóðum.
Árangursrík sala er 8 klst. nám-
skeið, byggt á sannreyndum að-
ferðum í upplifun og námi. Fyr-
irlesari er Ólafur Þór Ólafsson.
Það er Símenntunarmiðstöð Eyja-
fjarðar sem er samstarfsaðili
Markmiðlunar um námskeiðið í
Sveinbjarnargerði.
Námskeið
um árangurs-
ríka sölu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦