Morgunblaðið - 19.01.2002, Qupperneq 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 25
1.851.-
Gott stofuteppi
Smámynstrað, efnismikið,
uppúrklippt.
Verð nú: 1.851 kr. m2
Verð áður: 3.085 kr.
eða 2.777.- stgr.
40% afsláttur
Til á lager: 140 fermetrar
V E R Ð D Æ M I 8
Emotion
plastparket
Sliþoltsflokkur 23.
Mynstur: Ljós hlynur H1040.
Verð nú: 998 kr. m2
Verð áður: 1.695 kr.
eða 1.610.- stgr.
40% afsláttur
Til á lager: 550 fermetrar
998.-
V E R Ð D Æ M I 2
286.-
3 litir af filtteppi
Dökkblár, grár og
dökkdrapp.
Verð nú: 286 kr. m2
Verð áður: 440 kr.
eða 395 kr. stgr.
35% afsláttur
Til á lager: 1400 fermetrar
V E R Ð D Æ M I 1
Slitþolið gólfteppi
Þéttofið og rauðleitt.
Verð nú: 2.430 kr. m2
Verð áður: 3.740 kr.
eða 3.366.- stgr.
35% afsláttur
Til á lager: 200 fermetrar.
690.-
Mynstraðir dreglar
Afgangar.
Verð frá: 690 kr. pr.
lengdarmeter
50-70%
afsláttur
670.-
Skipadreglar
Inngangsdreglar í 1 og 2ja
metra breidd. Litir: Drapp
og ljósgrár
Verð nú: 670 kr. m2
Verð áður: 1.340 kr.
eða 1.206.- stgr.
50% afsláttur
Til á lager: 400 fermetrar.
490.-
Heimilisgólfdúkar
Úrval mynstra og þykkta.
2ja metra breiðir.
Verðdæmi: 490 kr. m2
/ 690 kr. m2 / 875 kr. m2
50% afsláttur
Til á lager 8 mynstur,
alls 240 fermetrar.
Emotion
plastparket
Smellt, slitþolsflokkur 23.
Mynstur: Dökk, samlit hnota.
Verð nú: 1.406 kr. m2
Verð áður: 1.874 kr.
eða 1.687.- stgr.
25% afsláttur
Til á lager: 400 fermetrar
1.270.-
Emotion
plastparket
Slitþolsflokkur 23.
Mynstur: Eik, ljóst beyki,
rautt beyki o.fl.
Verð nú: 1.270 kr. m2
Verð áður: 1.695 kr.
eða 1.610.- stgr.
25% afsláttur
Til á lager: 660 fermetrar
2.877.-
Viðargólf – Parket
Frá Karelia, Finnlandi
Beyki Polar Light – ljóst
beyki, 1. flokkur.
Verð nú: 2.877 kr. m2
Verð áður: 4.110 kr.
eða 3.494.- stgr.
30% afsláttur
Til á lager: 320 fermetrar.
2.970.-
Viðargólf – Parket
Frá Tarkett. Olíuborið beyki.
Beyki natúr – samlitt
Verð: 3.258 kr. m2
Beyki heart - líflegt útlit
Verð: 2.970 kr. m2
35% afsláttur
Til á lager: 165 fermetrar.
Viðargólf – Parket
Frá Tarkett. Falleg dökk
viðartegund. Kempas natúr.
Verð nú: 3.615 kr. m2
Verð áður: 5.560 kr.
eða 5.004.- stgr.
35% afsláttur
Til á lager: 300 fermetrar.
2.430.-
3.615.-1.406.-
V E R Ð D Æ M I 3 V E R Ð D Æ M I 4 V E R Ð D Æ M I 5 V E R Ð D Æ M I 6
V E R Ð D Æ M I 7 V E R Ð D Æ M I 9 V E R Ð D Æ M I 1 0 V E R Ð D Æ M I 1 1 V E R Ð D Æ M I 1 2
ARGENTÍNSKA ríkisstjórnin hefur
krafist þess að Carlos Menem, fyrr-
verandi forseti landsins, útskýri upp-
runa tíu milljóna Bandaríkjadala sem
hann er sagður eiga á svissneskum
bankareikningum. Menem var forseti
1989–1999 og sætir nú rannsókn fyrir
„ólöglega auðsöfnun“. Samkvæmt
fjölmiðlafréttum hafa svissnesk yfir-
völd fundið tíu milljónir dala á reikn-
ingum hans.
Menem er ekki í Argentínu núna,
en hann hefur gagnrýnt forseta
landsins, Eduardo Duhalde, harðlega
og sagt hann „vanhæfan“ og hafa
rústað efnahag landsins. Duhalde tók
við embætti í ársbyrjun og afnam
tengingu gengis argentínska pesóans
við Bandaríkjadalinn, en þeirri teng-
ingu var komið á í forsetatíð Menems
1991.
Gengi bréfa á verðbréfamarkaðin-
um í Buenos Aires snarféll á fimmtu-
dag, þegar viðskipti hófust þar, en
þeim var hætt fjórða janúar, skömmu
áður en tenging pesóans við dalinn
var afnumin. Var sölugengi dalsins
1,95 til 2,1 pesói.
Argentínskir fjölmiðlar greindu frá
því að bankastjóri seðlabanka lands-
ins, Roque Maccarone, hefði lagt
fram uppsagnarbréf, en hann mun
hafa lent í deilum við efnahagsmála-
ráðherrann, Jorge Remes Lenicov,
vegna þeirra ráðstafana er stjórnin
hefði gripið til í baráttunni við efna-
hagskreppuna er geisar í landinu.
Mótmæli vegna efnahagsástands-
ins halda áfram og særðust alls níu
manns, sjö lögreglumenn og tveir
óbreyttir borgarar, í átökum, sem
brutust út á nokkrum stöðum í norð-
urhluta landsins í gær.
Carlos Menem
Krefja
Menem
skýringa
Buenos Aires. AFP.
HART er nú sótt að bandaríska sagnfræðingnum
Stephen E. Ambrose, sem skrifað hefur hverja
metsölubókina á fætur annarri á undanförnum ár-
um, en hann er sakaður um að hafa nýtt sér efni
annarra þannig að til vansa sé. Ambrose vitnar að
vísu ávallt skilmerkilega til heimilda sinna en
rannsóknir þykja hafa leitt í ljós að hann tekur oft
heilu málsgreinarnar nánast óbreyttar úr verkum
annarra án þess að setja í gæsalappir en þannig
auðkenna menn jafnan að um beina tilvitnun sé að
ræða.
Mál þetta komst í hámæli þegar bandaríska
stórblaðið The New York Times greindi frá því
fyrir viku að í ljós hefði komið að nýjasta met-
sölubók Ambrose, The Wild Blue, hefði að geyma
orðalag og málsgreinar sem svipaði óeðlilega mik-
ið til orðalags sem sagnfræðingurinn Thomas
Childers notar í bók sinni The Wings of Morning.
Báðar fjalla bækurnar um flugmenn í síðari
heimsstyrjöldinni.
Sem fyrr segir er ekki um það að ræða að
Ambrose vitni ekki til heimildar en reglan er sú að
menn annaðhvort umorði efni annarra fræði-
manna, þegar við það er stuðst, eða setji um það
gæsalappir til að auðkenna að orðalag annars
manns (og þ.a.l. hugsun sem hann hefur mótað) sé
notað.
Er ýjað að því í frétt The New York Times að
eftir að Ambrose skrifaði sína fyrstu metsölubók
árið 1994, D-Day, hafi hann æ síðan hirt minna um
vandvirkni í heimildanotkun sinni en meira um að
koma frá sér metsölubókum með reglulegu milli-
bili. Ambrose hefur skrifað fjölda bóka síðan 1994
en frægð hans jókst þó til muna á síðasta ári þeg-
ar leikarinn Tom Hanks og leikstjórinn Steven
Spielberg framleiddu sjónvarpsþættina Bræðra-
bönd (e. Band of Brothers) eftir bók hans en þætt-
irnir hafa nýverið verið sýndir hér heima á Stöð 2.
Nemendur skammaðir noti
þeir sömu vinnubrögð
Fyrir 1994 hafði Ambrose ritað nokkur „dæmi-
gerð“ fræðiverk, m.a. ævisögur forsetanna
Dwights D. Eisenhowers og Richards M. Nixons,
en ekki hafa verið gerðar athugasemdir við heim-
ildanotkun í þeim. Eftir að The New York Times
birti grein sína í fyrri viku hafa hins vegar fundist
ótalmörg dæmi í nýrri verkum hans sem mönnum
þykja bera vott um hroðvirkni.
Málið hefur vakið mikla umræðu meðal sagn-
fræðinga í Bandaríkjunum og hafa sumir háskól-
ar brugðið á það ráð að taka bækur Ambrose af
lestrarlistum. Benda menn á að kennarar leggi
mikla áherslu á það við nemendur sína að vanda
sig þegar vitnað er til heimilda og virðast flestir
sammála um að nemandi, sem beitti sömu vinnu-
brögðum og Ambrose, myndi lenda í vandræðum.
„Við segjum nemendum að svona vinnubrögð
gangi engan veginn, og þau eru ekkert afsakan-
legri þó að um þekktan höfund sé að ræða,“ segir
Arnita Jones, framkvæmdastjóri Sagnfræðinga-
félagsins þar vestra.
Ambrose ver sig hins vegar og leggur áherslu á
að hann vitni alltaf til frumtexta og hrósi höf-
undum þeirra jafnvel fyrir vel skrifaðan texta.
„Ég er að segja sögu,“ sagði hann. „Ég ræði ekki
heimildirnar. Ég ræði söguna, sem ég er að segja.
Hversu mikinn áhuga hefur lesandinn eiginlega á
þessum hlutum? Það er ekki eins og ég sé að
skrifa fræðilega doktorsritgerð.“
Segist Ambrose harma það hafi hann gerst sek-
ur um óvandvirkni og segir að mistökin verði leið-
rétt í seinni útgáfum verka sinna. „En það er ekki
eins og ég sé að stela verkum annarra. Ef ég er að
skrifa kafla um tiltekið mál og finn gott efni í bók
annars sagnfræðings þá skrifa ég það bara upp
eftir honum og vísa svo til þess. Það eina sem
skiptir mig máli er hvaðan það kom.“
Þessi ummæli ollu vonbrigðum Childers pró-
fessors, sem ekki hafði viljað bregðast hart við því
þó að svipað orðalag væri í nýjustu bók Ambrose
og sinni, The Wings of Morning, sem kom út 1995.
„Hversu erfitt er eiginlega að umorða kafla úr
verkum annarra?“ spyr hann. „Finndu sjálfur
orðin til að lýsa því sem þú vilt segja! Ekki láta
aðra um vinnuna, skrifaðu þína bók sjálfur!“
Úr sjónvarpsþáttunum Bræðrabönd (Band
of Brothers) sem gerðir eru eftir bók sagn-
fræðingsins Stephens E. Ambrose.
Þekktur sagnfræð-
ingur sakaður
um hroðvirkni
New York. AP.
VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti
var „götustrákur“ á uppvaxtarárum
sínum. Frá þessu segir hann í nýrri
bók, sem gefin hefur verið út í Rúss-
landi. Greinir Pútín þar jafnframt
frá því að áhugi hans á því að ganga
til liðs við rússnesku leyniþjónust-
una, KGB, hafi kviknað við áhorf
sovéskra bíómynda sem vörpuðu
rómantískum hetjuljóma á líf og
störf KGB-manna.
„Ég lærði fljótt að ég þurfti að
vera fær um að láta hart mæta
hörðu,“ segir Pútín í bókinni Vlad-
ímír Pútín: Ævisaga, sem blaðamað-
urinn Oleg Blotskí hefur ritað. Rifj-
ar Pútín sérstaklega upp slagsmál,
sem hann lenti í nokkru áður en
hann hóf skólagöngu. „Ég öðlaðist
skilning á því að til að vinna þá þarf
maður að vera tilbúinn til að berjast
til síðasta blóðdropa,“ segir hann.
Í bók sinni rekur Blotskí uppvaxt-
arár Pútíns, háskólaár hans og inn-
göngu í KGB. Notast höfundurinn
við samtöl sem hann átti við Pútín
en einnig við framburð vina og
vandamanna, sem og kennara sem
þekktu til forsetans í fæðingarborg
hans Pétursborg, sem á sovéttímum
hét Leníngrad.
„Ég lærði það sem ég kann á göt-
unni,“ segir Pútín, sem er 49 ára, í
bókinni. „Að stunda götur borgar-
innar með þessum hætti er eins og
að alast upp í frumskóginum.“
Vígamóður Pútíns olli því að hann
komst upp á kant við kennara sína í
grunnskóla, að því er fram kemur í
bókinni. Varð það
m.a. til þess að honum
var ekki veitt inn-
ganga í barnasamtök
Kommúnistaflokksins
fyrr en nokkru seinna
en öðrum börnum.
„Ég var óhlýðinn og
tregur til að fylgja
skólareglum,“ segir
Pútín nú. „Þegar mað-
ur elst upp á götunni
heldur hann áfram að
lifa eftir lögmálum
hennar jafnvel þó
hann skipti um um-
hverfi.“
Lýsa bekkjar-
bræður og kennarar
Pútín sem upp-
stökkum dreng, sem
aldrei óttaðist að
skora á hólm þá sem
þó voru honum sterk-
ari eða valdameiri.
„Hann var aldrei
hræddur við neinn,“
sagði Viktor Bor-
isenko, einn af æsku-
vinum Pútíns.
Blotskí blaðamaður
segist sjálfur hafa átt
frumkvæði að bókinni
en mörgum finnst þó
líklegt að Pútín og
ráðgjafar hans hafi
lagt blessun sína yfir
útgáfu hennar enda
styrki hún þá ímynd,
sem húsbændur í
Kreml vilji varpa fram
af rússneska forset-
anum; nefnilega að
hann sé karl í krapinu.
Pútín var „götustrákur“ í æsku
’ Ég lærði það semég kann á götunni ‘
Kápa bókarinnar
Vladímír Pútín: Ævi-
saga eftir Oleg
Blotskí, sem kom í
bókaverslanir í
Moskvu í vikunni.
Moskvu. AP.