Morgunblaðið - 19.01.2002, Síða 31
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 31
LÍFSKJÖR þjóðar-
innar í nútíð og fram-
tíð munu að miklu leyti
ráðast af því hvernig
hlúð er að menntun og
jöfnum möguleikum
allra til náms. Auknar
álögur á nemendur,
sem ríkisstjórnin beitti
sér fyrir í lok síðasta
árs, eru því afar vara-
samar, stríða gegn öll-
um hugmyndum um
jafnrétti til náms og
leiða til þess að fjöldi
nemenda hættir við
nám. Þannig er brotið
grundvallaratriði
varðandi jafnrétti til
náms óháð fjárhag og búsetu.
Allt að 100% hækkun
á gjöldum nemenda
Eitt af síðustu verkum ríkis-
stjórnarinnar fyrir jólin var að auka
gjaldtökur í framhaldsskólum og
háskólum. Í framhaldsskólum voru
innritunargjöld hækkuð um 41,7%
og skrásetningargjöld í háskólum
hækkuðu um 30% úr 25.000 kr. í
32.500 kr. Fram hefur komið hjá
Stúdentaráði að 16.000 kr. skrá-
setningargjaldið dugar til að standa
straum af kostnaði við innritun og
rekstur nemendaskrár. Helmingur
gjaldsins virðist því vera almenn
tekjuöflun til að standa undir kostn-
aði við kennsluna og almennan
rekstur skólans.
Vaxandi útgjöld við skólanám
tengist líka bókakaupum og far-
tölvunotkun. Bókakaup vegna fram-
haldsnáms eru ekki undir 30 þús-
und kr. og tölvunotkun er vaxandi
þáttur í starfi nemenda. Flestir
nemenda geta hinsvegar ekki fest
kaup á tölvu nema með lánum. Of-
aná allt þetta hækkaði ríkisstjórnin
svo efnisgjöld um 100% eða úr 25
þúsund krónur í 50 þúsund krónur
sem getur haft úrslitaáhrif á fram-
haldsnám nemenda. Ríkisstjórnin
er með þessu að stuðla að því að
nemendur hverfi frá námi í enn
meira mæli en nú er, einfaldlega
vegna þess að fjöldi nemenda á ekki
fyrir skólakostnaðinum.
Stuðlað að flótta
úr verknámi
Ástæða er líka til að vekja athygli
á þessari aðför ríkisstjórnarinnar
að nemendum í ljósi nýlegrar
skýrslu Hagfræðistofnunar Há-
skóla Íslands um ójöfnuð í tekju-
skiptingu á Íslandi sem vaxið hefur
á undanförnum árum. Ein helsta til-
laga stofnunarinnar um hvernig
sporna megi gegn þeirri þróun var
að hvetja til aukinnar og almennrar
menntunar með auknu framboði og
fjölbreytni náms.
Sérstök athygli er vakin á því í
skýrslunni að nauðsynlegt sé að
styðja við hvers kyns verknám. Og
hvernig skyldi nú ríkisstjórnin gera
það? Jú, með því að hækka gjald á
efniskostnað í verklegu námi um
100%. Þessi mikla hækkun getur
ráðið úrslitum um hvort þeim sem
vilja fara í iðn- eða verknám sé það
fjárhagslega kleift.
Til viðbótar innritunar- og efnis-
gjaldi þurfa nemendur í öllum lög-
giltum iðngreinum að kaupa verk-
færi eða annað námstengt efni sem
þeir nota meðan á námi stendur.
Kostnaður hárgreiðslunema vegna
þessa er um 65 þúsund
krónur og matreiðslu-
nema um 45–50 þús-
und krónur. Auk þess
er bókakostnaður við
hverja önn um 30.000–
50.000 kr.
Þetta hefur m.a.
leitt til þess að aðsókn
að iðnnámi hefur
minnkað mikið með ár-
unum. Stór hluti nem-
enda í verknámi er af
landsbyggðinni, þar
sem skólar þar hafa
þurft að leggja niður
mikið af verknáms-
kennslu. Nemendur af
landsbyggðinni verða
því sérstaklega fyrir barðinu á
þessari hækkun sem lögð er á þá til
viðbótar verulegum útgjöldum í
formi ferðakostnaðar og hárrar
leigu á íbúðum á höfuðborgarsvæð-
inu. Enn einn landsbyggðarskattur-
inn bætist því á afrekaskrá ríkis-
stjórnarinnar.
Ríkisstjórnin hafnaði
betri kosti
Ofangreind hækkun á innritunar-
og efnisgjöldum, sem ríkisstjórnin
ákvað fyrir jólin að ná úr vösum
nemenda, skilar ríkissjóði 100 millj-
ónum króna. Nær hefði verið, eins
og Samfylkingin lagði til, að falla
frá þessari gjaldtöku á nemendur,
en hækka þess í stað tóbaksgjald
um 5 kr. Það hefði skilað ríkissjóði
sömu tekjum.
Allir nema ríkisstjórnin sjá að
þessi tillaga er í alla staði skyn-
samlegri, enda vinnur hún gegn
reykingum og kemur jafnframt í
veg fyrir að námi fjölda fólks sé
teflt í tvísýnu. Auk þess hefðu verð-
lagsáhrifin sem eru að kynda undir
verðbólgunni þessa dagana, orðið
mun minni með hækkun tóbaks-
gjaldsins eða um 0,03%, en verð-
lagsáhrif námsmannagjaldanna á
vísitöluna verða 0,14%. Ríkisstjórn-
in felldi þessa tillögu, einfaldlega
vegna þess að íhaldinu er í mun að
festa skólagjöldin í sessi og fram-
sóknarmenn láta það yfir sig ganga.
Aðför að
jafnrétti
til náms
Jóhanna
Sigurðardóttir
Höfundur er alþingismaður.
Gjaldtökur
Nær hefði verið, segir
Jóhanna Sigurðardótt-
ir, að falla frá þessari
gjaldtöku á nemendur,
en hækka þess í stað
tóbaksgjald um 5 kr.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía