Morgunblaðið - 19.01.2002, Síða 54
DAGBÓK
54 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
ÞÓTT innritunargjöld við Há-skóla Íslands séu svo sem ekk-
ert voðalega há er ýmis annar
kostnaður sem fellur til og getur
verið námsmönnum íþyngjandi,
eins og t.a.m. bókakaup, svo ekki
sé talað um sjálfa framfærsluna í
launaleysinu. Vinur Víkverja og
starfsstéttarbróðir á eiginkonu sem
stundar meistaranám við Háskóla
Íslands og segja þau hjónin farir
sínar ekki sléttar. Og snýst málið
um Lánasjóð íslenska námsmanna,
sem virðist nær takmarkalaust
þrætuepli. Svo munu reglur þar á
bæ vera að sé námsmaður í hjóna-
bandi eða skráðri sambúð þá
skerða tekjur makans lánsupphæð-
ina, fari þær upp fyrir ákveðið há-
mark (sambærilegt öryrkjabóta-
reglunum umdeildu).
Vinur Víkverja mun seint teljast
til hátekjumanna í íslensku þjóð-
félagi og reyndar slefar hann rétt í
meðallaunin (karlmanna að minnsta
kosti). En einhverra hluta vegna
gera lög LÍN svo ráð fyrir að laun
þessi séu það há að makinn, náms-
maðurinn, þurfi svo gott sem ekki á
neinum lánum að halda. Eftir að
dregin hefur verið frá lánsúthlut-
uninni sú skerðing sem reiknuð er
út frá tekjum makans stendur
nefnilega eftir upphæð sem varla
dugir fyrir einni skólabók, af öllum
þeim fjölda bóka sem námsmað-
urinn þarf að kaupa á hverri önn.
Vissulega er hægt að taka undir
þau rök að fólki sé í sjálfsvald sett
hvort það fari út í framhaldsnám.
Að það eigi hreinlega ekki að fara
út í nám nema það hafi efni á og
eigi heldur ekki að þurfa að treysta
á skattpeninga annarra borgara,
jafnvel þeirra sem ekki töldu sig
hafa efni á að fara í langskólanám.
En á meðan lög í landinu kveða á
um jafnan rétt til náms, óháð efn-
um og aðstæðum, þá hlýtur Lána-
sjóðurinn og úthlutunarreglur hans
að þurfa að lúta þeirri meginhug-
sjón.
Það vill þar að auki gleymast,
sérstaklega að virðist þeim sem
eldri eru, að Lánasjóðurinn er ekki
lengur að gefa námsmönnum neina
peninga heldur er nú rækilega séð
til þess að lánið sé að fullu end-
urgreitt með dágóðum vöxtum,
ólíkt því sem var hér áður fyrr er
verðbólgan át upp hin óverð-
tryggðu lán. Það virðist einhvern
veginn vera sem sjóðurinn hafi þá,
og kannski að mörgu leyti rétti-
lega, fengið á sig slyðruorð ein-
hverrar góðgerðarstofnunar sem
enn hefur ekki tekist að losa hann
við, þrátt fyrir að hann hafi tekið
stakkaskiptum í gegnum árin,
námsmönnum vissulega í óhag.
Það er auðvitað óviðunandi að
námsmaður skuli missa rétt sinn til
námslána og þar með möguleikann
á fjárhagslegu sjálfstæði sé hann í
löggildri sambúð eða hjónabandi.
Slíkt leiðir eingöngu til einhvers
pukurs í kringum lögin, að fólk sé
að skrá sig úr sambúð meðan á
námi stendur og þar með þiggja
hinar og þessar bæturnar svona í
bónus, sem það á í rauninni ekki
rétt á og hefur enga þörf fyrir.
Ekki getur ríkiskassinn komið vel
út úr slíku makki.
Svo er það hitt sem efst hefur
verið á baugi undanfarið í hinni ei-
lífu rimmu um sjóðinn alræmda,
hversu óliðlegir stjórnendur hans
eru og svifaseinir að bregðast við
verðlagsþróun og hagsveiflum.
Nýjasta dæmið snýr að námsmönn-
um í hremmingum erlendis vegna
stórhækkandi skólagjalda í kjölfar
hruns krónunnar en annað dæmi
sem minna hefur verið um rætt er
að verð á erlendum skólabókum
hefur rokið uppúr öllu valdi af
sömu ástæðu. Og skyldi LÍN hafa
gert ráðstafanir til að mæta þeirri
þróun? Harla ólíklegt. Og á meðan
verður þetta blessaða jafnrétti til
náms hjákátlegra og hjákátlegra.
LÁRÉTT:
1 kasta rekunum, 4 vafst-
ur, 7 guðirnir, 8 sjávar-
dýr, 9 rödd, 11 sleit, 13
vaxi, 14 skeldýr, 15 sívala
pípu, 17 feiti, 20 rösk, 22
segls, 23 umbuna, 24
ákveðin, 15 snérum.
LÓÐRÉTT:
1 rýr, 2 látnu, 3 kvennafn,
4 ójafna, 5 ávinnur sér, 6
framkvæmdi, 10 hljóð-
færið, 12 löður, 13 megn-
aði, 15 á hesti, 16 læst, 18
geðvonska, 19 gleðskap,
20 þekkt, 21 höku.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 barkakýli, 8 eldar, 9 notar, 10 nón, 11 dofna, 13
aflið, 15 matta, 18 storm, 21 fót, 22 svart, 23 eimur, 24
farangurs.
Lóðrétt: 2 andóf, 3 kirna, 4 kenna, 5 lítil, 6 feld, 7 gráð,
12 net, 14 fet, 15 masa, 16 trana, 17 aftra, 18 stegg, 19
ormur, 12 morð.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
OKKUR langar að taka
undir grein Margrétar
sem birtist í Morgun-
blaðinu 17. janúar sl.
Þar er hún að lýsa okkar
heimilislífi síðastliðið ár.
Við eignuðumst okkar
þriðja barn í janúar 2001
og allt gekk vel fyrstu
þrjá mánuðina. En á
fjórða mánuði fór sú
stutta að vaka og gráta
út í eitt á næturnar.
Svona gekk þetta frá
apríl – ágúst. Þá vorum
við orðin uppgefin og hin
börnin farin að líða fyrir
ástandið og svefnlausa
foreldra. Þá var okkur
bent á að tala við Örnu á
Borgarspítalanum sem
við gerðum. Það sama
gerðist og hjá Margréti
og hennar fjölskyldu,
ekkert, þó við færum í
einu og öllu eftir því sem
okkur var sagt að gera.
Það var ekki fyrr en
mamman hætti öllum af-
skiptum og svaf á neðri
hæðinni og barnið fékk
sér herbergi sem svefn-
inn lagaðist.
Í lok október var hún
svo farin að sofa allt að
13 tíma í einu og er allt
annað barn síðan.
Við hvetjum alla sem
eiga við þetta vandamál
að stríða að notfæra sér
þessa þjónustu. Ekki
bíða svona lengi með
þetta, það verður bara
erfiðara eftir því sem
börnin eldast.
Með þessum orðum
þökkum við fyrir alla
hjálpina, með von um að
þetta hjálpi öðrum.
Agla og fjölskylda.
Ábending til
Eflingar
MIG langar að benda
Eflingu á að það er búið
að hækka matarkörfuna
um 18% að meðaltali.
Heildarhækkun á mat-
vöru síðastliðin tvö ár er
um það bil 70%. Ég legg
til að ég fái þessa hækk-
un ofan á kaupið mitt
strax.
Jón Trausti
Halldórsson starfs-
maður á bensínstöð.
Fyrirspurn
HVAR er hægt að læra
á Macintosh-tölvu?
Ef einhver getur gefið
mér upplýsingar um það
vinsamlegast hafið sam-
band við Björgu í síma
553-6871.
Tapað/fundið
Kvenúr
í óskilum
KVENÚR fannst fyrir
utan Brautarstöðina
(hamborgarastaður) í
Ármúla milli jóla og ný-
árs. Eigandi er vinsam-
legast beðinn um að hafa
samband í síma 899-9076
eða 552-9390.
Blá vattkúla
tapaðist
STÓR blá handunnin
jólavattkúla með silfur-
lituðu munstri tapaðist í
Kringlunni fyrir jól.
Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að
hafa samband í síma
695-4471.
Dýrahald
Fjórir kettlingar
fást gefins
FJÓRIR litlir tveggja
mánaða síamsblandaðir
kettlingar fást gefins.
Upplýsingar fást í síma
691-2786.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Svefnvanda-
mál barna
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. e3 O-O 5. Bd3 d5 6.
a3 Bxc3+ 7. bxc3 dxc4 8.
Bxc4 c5 9. Rf3 Dc7 10. Ba2
b6 11. O-O Rbd7 12. Bb2
Bb7 13. c4 Hfd8 14. He1
Hac8 15. d5 exd5 16. cxd5
c4 17. e4 b5 18. Rd4 De5 19.
Df3 He8 20. Hab1 Rxe4 21.
Rxb5 Dxd5 22. Rxa7 Hb8
23. Hed1 De6 24. Rb5 Dg6
25. Dh3 Rdc5 26. Rc3
Staðan kom upp í banda-
ríska meistaramótinu sem
lauk fyrir skömmu.
Alexander Shabalov
(2606) hafði svart gegn
Boris Gulko (2601).
26...Rd2! 27. Hbc1 27. Hxd2
gekk ekki upp vegna
27...Dxb1+ 28. Rxb1 He1#.
27... Bc8! 28. Bb1 Rxb1 29.
De3 Bb7 og hvítur gafst
upp.
Skák
Umsjón: Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Irena
Artica kemur og fer í
dag. Björn RE-79 fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Bravó kom í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Jóga-
námskeið hefst þriðju-
daginn 22. janúar og
verður á þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 17.
Um er að ræða átta
tíma, lágmarksþátttaka
er 10 manns. Skráning
afgreiðslu í s. 562-2571.
Þorrablót verður haldið
föstudaginn 1. febrúar,
húsið opnað kl. 18 með
fordrykk, þorrahlað
borð, borðhald hefst kl.
18.30. Gestur kvöldsins
Ingibjörg Sólrún borg-
arstjóri. Flosi Ólafsson
flytur gamanmál. Kar
lakvartett syngur, Hjör-
dís Geirs leikur fyrir
dansi, aðgangsmiði gild-
ir sem happdrætti.
Skráning í Aflagranda,
s. 562-2571, fyrir mið-
vikudaginn 30. janúar.
Allir velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43.
Þorrablót verður föstu-
daginn 1. febrúar.
Þorrahlaðborð hefst kl.
17, salurinn opnaður kl.
16.30. Ómar Ragn-
arsson skemmtir við
undirleik Hauks Heið-
ars Ingólfssonar,
Ágústa Sigrún Ágústs-
dóttir syngur við undir-
leik Sváfnis Sigurðs-
sonar, Ragnar Leví og
félagar leika fyrir dansi.
Skráning í s. 568-5052
fyrir föstudaginn 1.
febrúar.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 11. Kóræfing-
ar hjá Vorboðum, kór
eldri borgara í Mos-
fellsbæ á Hlaðhömrum
fimmtudaga kl. 17–19.
Púttkennsla í íþrótta-
húsinu kl. 11 á sunnu-
dögum. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586-8014, kl.
13–16. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og
fótanudd, s. 566-8060 kl.
8–16.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Þorrablótið er
24. jan. kl. 19.30 í Fjöl-
brautaskóla Garða-
bæjar. Rúta frá Hlein-
um og Kirkjuhvoli og
Holtsbúð. Mánud. 21.
jan. kl. 9 leir, kl. 9.45
boccia, kl. 11.15 og 12.15
leikfimi, kl. 13.05 róleg
leikfimi (stóla leikfimi),
kl. 13. gler/bræðsla, kl.
15.30 tölvunámskeið.
Þriðjud. 22. jan. kl. 9
vinnuhópur gler, kl. 13
málun, kl. 13.30 opið
hús, spilað bridge, vist
og lomber, kl. 16 búta-
saumur. Miðvikud. 23.
jan. kl. 11.15 og 12.15
leikfimi, kl. 13.05 róleg
leikfimi, kl. 13.30 handa-
vinnuhornið. Fimmtud.
24. jan. kl. 9 vinnuhópur
gler, kl. 9.45 boccia, kl.
12.15 spænska, kl. 13.
postulínsmálun, kl. 14.
málun. Föstud. 25. jan.
kl. 9 snyrting, kl. 11
dans.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum, boðið
verður upp á sparidaga
á Hótel Örk dagana
14.–19. apríl. Áhuga-
samir hafi samband við
ferðanefnd sem fyrst.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
mánudag pútt í Bæj-
arútgerð kl. 10–11.30
og félagsvist kl. 13.30,
sæludagar á Örkinni
3.–8. mars. Skráning í
Hraunseli í síma 555
0142. Þorrablót félags-
ins verður í Hraunseli
laugardaginn 26. jan.
nk. kl. 19. Skráning í
Hraunseli í síma 555
0142 Áríðandi að miðar
verði sóttir á mánudag-
inn 21. jan. milli kl. 13
og 16.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Þorrablótið
er 24. jan. kl. 19.30 í
Fjölbrautaskóla Garða-
bæjar. Rúta frá Hlein-
um og Kirkjuhvoli og
Holtsbúð. Mánud. 21.
jan. kl. 9 leir, kl. 9.45
boccia, kl. 11.15 og
12.15 leikfimi, kl. 13.05
róleg leikfimi (stóla
leikfimi), kl. 13. gler/
bræðsla, kl. 15.30 tölvu-
námskeið. Þriðjud. 22.
jan. kl. 9 vinnuhópur
gler, kl. 13 málun, kl.
13.30 opið hús, spilað,
brids, vist og lomber,
kl. 16 bútasaumur.
Miðvikud. 23. jan. kl.
11.15 og 12.15 leikfimi,
kl. 13.05 róleg leikfimi,
kl. 13.30 handa-
vinnuhornið. Fimmtud.
24. jan. kl. 9 vinnuhóp-
ur gler, kl. 9.45 boccia,
kl. 12.15 spænska, kl.
13. postulínsmálun, kl.
14. málun. Föstud. 25.
jan. kl. 9 snyrting, kl.
11 dans.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádeginu.
Sunnudagur: Félagsvist
kl. 13. Dansleikur kl.
20. Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Mánudag-
ur: Brids kl. 13. Dans-
kennsla Sigvalda fyrir
framhald kl. 1 og byrj-
endur kl. 20.30. Þriðju-
dagur: Skák kl. 13 og
alkort spilað kl. 13.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Leikfélagið Snúð-
ur og Snælda sýnir í
Ásgarði í Glæsibæ, fé-
lagsheimili Félags eldri
borgara söng- og gam-
anleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ minningar frá
árum síldarævintýr-
anna í samantekt Guð-
laugar Hróbjartsdóttur,
Brynhildar Olgeirs-
dóttur, Bjarna Ingvars-
sonar og leikhópsins.
„Fugl í búri“, drama-
tískur gamanleikur eft-
ir systurnar Iðunni og
Kristínu Steinsdætur.
Frumsýning sunnudag-
inn 3. febrúar. Sýn-
ingar: Sunnudaga kl. 16,
miðvikudaga kl. 14 og
föstudaga kl. 14. Mið-
apantanir í síma: 588-
2111, 568-8092 og 551-
2203. Brids fyrir byrj-
endur hefst í febrúar.
Stjórn Ólafur Lárusson.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofan er flutt að
Faxafeni 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB. kl.
10–16 s. 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf,
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug á veg-
um ÍTR á mánu- og
fimmtudögum kl. 9.30,
umsjón Edda Bald-
ursdóttir íþróttakenn-
ari. Boccia á þriðjudög-
um kl. 13 og á
föstudögum kl. 9.30,
umsjón Óla Kristín
Freysteinsdóttir, gler-
málun á fimmtudögum
kl. 13. Fimmtudaginn
24. janúar kl. 13.15
verður félagsvist í sam-
starfi við börn úr Selja-
skóla, stjórnandi Eirík-
ur Sigfússon, vegleg
verðlaun. Allir velkomn-
ir. Myndlistarsýning
Bryndísar Bjarnadóttur
opin laugar- og sunnu-
dag kl. 13–16. Veitingar
í veitingabúð. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Vesturgata 7. Þorrablót
verður fimmtud. 7. febr-
úar. Húsið opnað kl. 17.
Veislustjóri: Gunnar
Þorláksson. Ragnar Páll
Einarsson verður við
hljómborðið. For-
drykkur, þorrahlaðborð.
Magadansmeyjar koma
í heimsókn kl. 19.
Skemmtiatriði, KKK
syngja, fjöldasöngur og
fleira. Hljómsveit Hjör-
dísar Geirs leikur fyrir
dansi. Aðgangsmiði
gildir sem happdrætti.
Upplýsingar og skrán-
ing í síma 562-7077.
Kirkjustarf aldraðra
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 14
undirbúningsfundur
vegna átakshóps. Allir
velkomnir.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12,
Reykjavík. Stuðst er við
12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Karlakór Reykjavíkur.
Aðalfundurinn verður
haldinn í Ými í Skóg-
arhíð 20 laugardaginn
26. janúar kl. 10. fyrir
hádegi. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Átakshópur öryrkja.
Undirbúningsfundur
verður haldinn í dag kl.
14 í félagsheimili Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
Hátúni 12.
Í dag er laugardagur, 19. janúar, 19.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: Heil-
agi faðir, varðveit þá í þínu nafni, því
nafni, sem þú hefur gefið mér, svo að
þeir verði eitt eins og við.
(Jóh. 17, 11.)