Morgunblaðið - 22.03.2002, Side 22

Morgunblaðið - 22.03.2002, Side 22
ERLENT 22 FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Umberto Bossi, leiðtogi Norður- sambandsins, sem er lengst til hægri í ítölskum stjórnmálum, sakaði leiðtoga vinstriflokkanna um að hafa stuðlað að morðinu með því að ala á hatri í garð hægrimanna. Hann sagði þá hafa farið offari frá því að þeir misstu völdin í fyrra með því „að tala, án þess að hugsa, um fasisma og nas- isma“. „Hér ríkir hatur í garð þeirra sem vilja breytingar,“ sagði Bossi, sem fer með stjórnsýsluumbætur í stjórninni. „Þeir sem vilja breyt- ingar eru myrtir og hryðjuverka- starfsemi hefur hafist á ný.“ Silvio Berlusconi forsætisráð- herra hvatti til viðræðna milli verkalýðssamtakanna og ríkis- valdsins um fyrirhugaðar breyt- ingar á vinnulöggjöfinni skömmu eftir morðið á Biagi á þriðjudag. Roberto Maroni atvinnumálaráð- herra sagði hins vegar í gær að viðræður kæmu ekki til greina nema verkalýðssamtökin for- dæmdu hryðjuverk skýrt og skor- inort. Maroni skírskotaði til yfirlýsing- ar frá háttsettum félaga í róttæku verkalýðsfélagi, Cobas, þar sem hann gaf til kynna að hann harm- aði ekki morðið á Biagi. „Þetta er svo alvarleg játning að sýni vinstrimenn og verkalýðssamtökin ekki að þau séu andvíg hryðju- verkum get ég ekki hafið viðræður við þessa menn,“ sagði atvinnu- málaráðherrann. Rauðu herdeildirnar lýsa morðinu á hendur sér Leiðtogar verkalýðssamtakanna og vinstriflokkanna fordæmdu morðið en hafa boðað allsherjar- verkfall fyrir apríllok til að mót- mæla fyrirhuguðum breytingum á vinnulöggjöfinni, sem eiga að auð- velda fyrirtækjum að ráða og reka starfsmenn. Rauðu herdeildirnar, sem að- hyllast marxisma, lýstu morðinu á hendur sér í 26 síðna yfirlýsingu sem birt var á Netinu í gær. Þar sagði að Biagi hefði verið „líflát- inn“ fyrir þátt hans sem helsta málsvara breytinga á vinnulöggjöf- inni sem miðuðust því að reyra launþega í fjötra „arðráns og kúg- unar“. „Orðaval og innihald yfirlýsing- arinnar virðist sanna að hún komi frá Rauðu herdeildunum,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Bologna, þar sem Biagi var myrtur. Í yfirlýsingunni kvaðst hópurinn hafa hafið „vopnaða baráttu“ og „stríð gegn ríkisvaldinu“. Hann lýsti einnig yfir stuðningi við bar- áttuna gegn alþjóðavæðingu og sagði að „fjármagnskreppa“ hefði „knúið heimsvaldasinnaða eigna- stéttina til að taka upp nýjar arð- ránsaðferðir“. Í yfirlýsingunni eru hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september réttlætt og þeim lýst sem lið í baráttunni gegn heims- valdasinnum. Ný kynslóð borgarskæruliða Borgarskæruliðar Rauðu her- deildanna, sem kölluðu sig stund- um Vopnaða hermenn kommún- ista, stóðu fyrir mörgum morðum, mannránum og hryðjuverkum á áttunda áratug síðustu aldar. Þeir myrtu og limlestu leiðtoga verka- lýðssamtaka, háskólaprófessora og áhrifamikla stjórnmálamenn, þeirra á meðal Aldo Moro, fyrrver- andi forsætisráðherra, árið 1978. Flestir leiðtogar Rauðu her- deildanna náðust að lokum og fengu langa fangelsisdóma. Lög- reglan telur að nú hafi komið fram ný kynslóð borgarskæruliða en ekkert er vitað um leiðtoga henn- ar. Þessa nýja kynslóð Rauðu her- deildarinnar hefur sent ráðamönn- um þau skilaboð að engin mála- miðlunarlausn komi til greina í deilu stjórnarinnar og verkalýðs- samtakanna. Sakaðir um að ala á hatri á hægrimönnum Stjórn Ítalíu krefst þess að verkalýðssamtök fordæmi hryðjuverk afdráttarlaust Róm. AFP. STJÓRN Ítalíu kvaðst í gær ekki ætla að hefja nýjar viðræður við verkalýðssamök um fyrirhugaðar breytingar á vinnulöggjöfinni nema leiðtogar þeirra fordæmdu afdráttarlaust morðið á Marco Biagi, einum af höfundum lagabreytinganna. VATN flæðir yfir tröppur í Amm- an í Jórdaníu eftir úrhellisrign- ingu síðustu daga. Óvenjumikil úrkoma hefur verið í landinu í vetur og regnið er kærkomið þar sem þurrkar eru þar algengir og Jórdanía er eitt þeirra ríkja í heiminum sem hafa minnstan vatnsforða. Alþjóðadagur vatns- ins er í dag. Reuters Kærkomin rigning HAGSMUNAHÓPUR kvenna með átrask- anir hugðist í gær ræða við fulltrúa norsku hirðarinnar um áherslu fjölmiðla á líkama, útlit og mataræði Mörtu Lovísu prinsessu, að því er Aftenposten greindi frá. Merete Ness- et Andersson, fulltrúi hópsins, sagðist hafa áhyggjur af og vera misboðið vegna þeirrar auknu athygli sem sífellt grennri líkami prinsessunnar hafi fengið. „Prinsessan er fyrirmynd þúsunda norskra stúlkna sem eru að takast á við sjálfsímynd sína og sjálfstraust. Þegar prins- essan fær svona mikla viðurkenningu og lof fyrir að hafa tekist að grenna sig getur mað- ur rétt ímyndað sér hvernig þessum stúlkum líður þegar þær lesa tímarit full af fréttum um nýtt útlit Mörtu,“ sagði Nesset Anders- son við Aftenposten. Nesset Andersson var nóg boðið þegar hún las grein í slúðurblaðinu Se og Hør þar sem sagt var að prinsessan nærðist nú á lofti, ást og smávegis af heilsufæði. „Það getur verið að prinsessan sé ekki meðvitað í megr- un, og hún hefur ekki sagt að hún sé í megrun. Að prinsessan sé ástfangin og hamingjusöm og grennist þar af leiðandi er gott fyrir hana. En það er grundvallaratriði fyrir okkur að prinsessan láti til sín heyra og segi að hún sé ekki í megrun svo að ungar stúlkur á öllum aldri fari ekki að byrja á því,“ hefur Aften- posten ennfremur eftir Nesset Andersson. Upplýsingafulltrúi konungshallarinnar, Wenche Rasch, minnti á fréttamannafund sem prinsessan hélt í tilefni af 30. afmælis- degi sínum í september í fyrra, þar sem Aft- enposten spurði hvernig hún brygðist við allri þeirri athygli sem líkami hennar og útlit hefði fengið. Prinsessan svaraði því þar til, að hún ætti vinkonu sem ætti við átröskun að etja og hún gæti því sett sig í spor þeirra sem væru í slíkri aðstöðu. „Ég man eftir því, að ég reiddist þegar ég las, fyrir nokkrum árum, að ég hefði mjúkar línur. Slíkar athugasemdir geta því miður verið nóg til að valda átröskunum,“ sagði prinsessan. Mótmæla áherslu á líkama prinsessunnar Reuters Marta Lovísa Noregsprinsessa ásamt unnusta sínum, rithöfundinum Ara Behn, í janúar sl. JÓHANNES Páll páfi II for- dæmdi í gær þá presta, sem hafa rofið sín heit, og lýsti yfir samstöðu með þeim, sem sætt hafa kynferðislegri misnotkun. Kemur þetta fram í ávarpi, sem páfi kall- aði „Bréf til presta“, en að undanförnu hefur hvert hneykslismál- ið öðru verra komið upp í kaþólsku kirkjunni, einkum í Bandaríkj- unum. Nýlega var John Geogh- an, prestur í Boston, dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að misnota dreng, en alls var hann borinn þeim sökum af 85 manns. Gerðu þeir miklar skaðabótakröfur en sömdu um þær við kaþólska erkibiskupsdæmið í Boston án þess, að dómstólar kæmu nærri. Leszek Miller, forsætisráð- herra Póllands, ættlands páfa, hvatti í síðasta mánuði til lög- reglurannsóknar á ásökunum um, að erkibiskupinn i Poznan hefði beitt unga guðfræðinema og presta kynferðislegri mis- notkun. Páfi for- dæmir heit- rof presta Jóhannes Páll páfi ETA, aðskilnaðarhreyfingu Baska, var í gær kennt um morð á sveitarstjórnarmanni úr röðum sósíalista sem skotinn var til bana um miðjan dag í gær í borginni San Sebastian í Baskalandi. Atburðurinn átti sér stað á krá í San Sebastian og var stjórnmálamaðurinn, Juan Priede Perez, skotinn nokkrum skotum. Er þetta fyrsta morðið, sem talið er tengjast baráttu ETA fyrir sjálfstæði Baska- lands, í héraðinu á þessu ári. Perez var eini fulltrúi sósíalista í bæjarráði Orio-bæjar. Stjórnmála- maður myrtur YFIRMAÐUR Innflytjenda- eftirlits Bandaríkjanna segir að til greina komi að takmarka vegabréfsáritanir ferðamanna til Bandaríkjanna við 30 daga. Hingað til hafa slíkar áritanir verið til sex mánaða. Þetta kom fram í máli James Ziglar er hann viðurkenndi að stofnunin sem hann er í forsvari fyrir hefði brugðist með því að endurnýja dvalarleyfi tveggja þeirra manna sem flugu tveim- ur þotnanna í árásinni á Banda- ríkin 11. september. Sú stað- festing var send út í liðinni viku, sex mánuðum eftir að mennirn- ir frömdu sjálfsmorð með þess- um hætti. Ziglar sagði að til greina kæmi að breyta í grundvallar- atriðum mörgum þeirra reglna sem gilda um ferðamenn og út- lendinga í Bandaríkjunum. Þannig kæmi til álita að banna hverjum þeim sem kæmi til Bandaríkjanna sem ferðamað- ur eða í viðskiptaerindum að setjast í skóla þar vestra fyrr en stofnun hans hefði samþykkt það. Breyttar reglur um áritanir? STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.