Morgunblaðið - 12.07.2002, Side 2

Morgunblaðið - 12.07.2002, Side 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Skagamenn á sigurbraut /C3 Landsliðinu boðið á World Cup /C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag  Allir í tísku /2  Með grasið í skónum /4  Kúnstugt knipl /6  Heitir straumar á klakanum /7  Auðlesið efni /8 lli í í i í i l i i l l i i MAÐURINN sem lést af slysförum er hann féll úr stiga við hús sitt á þriðjudagskvöld hét Jón Brynjólfs- son, til heimilis að Bárugötu 20 í Reykjavík. Hann var fæddur 4. októ- ber árið 1928 og lætur eftir sig þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn. Lést af slysförum KNÖPUM og hestum þykir útivistin jafnan góð og fátt sem jafnast á við góðan reiðtúr í fallegu umhverfi. Unga fólkið sem brá sér á dögunum á bak hjá hestaleigu Álftagerðis við Mývatn var greinilega ekki í vafa um hvernig ætti að njóta íslenskrar náttúru. Þarfasti þjónninn, eins og íslenski hesturinn var kallaður, bregst sjaldan og er fyrir löngu orðinn samofinn ört vaxandi útivist og ferðaþjónustu eins og hann var tengdur landbúnaði órofa böndum hér áður fyrr. Morgunblaðið/Sig. Sigmunds. Hófa- skellir við Mývatn FUNDIST hafa fornminjar á Kirkjubæjarklaustri frá klaustur- tímanum en fornleifafræðingar eru nú að rannsaka rústirnar. Byrjað var að grafa 3. júní sl. og hafa nú meðal annars fundist mannvistar- leifar frá 18. öld, skeifuför í tröð- um frá 17. öld, grjót og torf- hleðslur frá 16. öld, ásamt altarissteini. Forsaga málsins er sú að Skaft- árhreppur hafði samband við Línu- hönnun vegna áhuga manna á að leita fornleifa klausturs á Kirkjubæjarklaustri. Línuhönnun kom því að máli við Bjarna F. Ein- arsson fornleifafræðing og var síð- an ákveðið að sækja um styrk til Rannsóknarráðs Íslands. Fékkst styrkur til að fara í undirbúnings- rannsóknir árið 2000. Útkoman úr þeim rannsóknum var ágæt en þó ekki einhlít. Bjarni taldi þó að allar líkur væru á að þarna væri að finna klaustrið, og byggði hann það á rannsóknum Viðeyjarklausturs, jarðsjármælingum, prufuholum og almennu hyggjuviti sínu sem forn- leifafræðings. Í framhaldi af því var ákveðið að sækja um styrk til Kristnihátíð- arsjóðs sem stofnaður var á Al- þingi 17. júní árið 2000 á Þingvöll- um. Fékkst þar ágætis styrkur og bætti Skaftárhreppur þar við. Þetta eru einu aðilarnir sem sjá um fjármögnun þessa verkefnis. Verkefnið er samvinnuverkefni Fornleifafræðistofunnar og Kirkju- bæjarstofu, auk þess sem Háskóli Íslands kemur lítillega að því. Þeir sem rannsaka eru fornleifafræð- ingar frá Íslandi og Svíþjóð auk þess sem annar tveggja forvarð- anna kemur frá Englandi, en hann hefur unnið við mörg verkefni um allan heim. Það eru einkum sex manns sem vinna að þessum rann- sóknum en níu þegar mest er. Ís- lendingar sem vinna að þessu auk Bjarna eru Kristján Mímisson og Magnús A. Sigurðsson, minjavörð- ur Vesturlands og Vestfjarða. Bjarni segir að þetta sé fimm ára verkefni þar sem markmið fyrsta sumarsins sé nánast aðal- lega að finna klaustrið. Gríðarlegar líkur séu á að það hafi loks fundist og byggir Bjarni það á því að fund- ist hefur mannabústaður sem get- ur ekki verið annað en klaustrið eða klausturbærinn. Og þar sem altarissteinn fannst í þessum rúst- um bendir það eindregið til þess að um klaustrið sé að ræða. Hér á landi hafa altarissteinar eingöngu fundist við uppgröft í kirkjum og í Viðeyjarklaustri, auk nokkurra lausafunda. Bjarni segir að ætlunin sé að fara aðeins dýpra til þess að kom- ast niður á annað gólf sem er betur varðveitt, en rannsóknum lýkur í dag, föstudaginn 12. júlí. Vonast eftir að hafa fundið klaustrið Morgunblaðið/Eiður Björn Ingólfsson Horft yfir rannsóknarsvæðið á Kirkjubæjarklaustri. Stærstu steinarnir tilheyra húsi frá 17. öld. Steinadreifin er í húsi frá klausturtímanum. Kirkjubæjarklaustur. Morgunblaðið STJÓRNARFUNDUR hjá banda- ríska álfyrirtækinu Alcoa hófst í gær og verður honum fram haldið í dag og mun þá stjórnin ræða um hug- myndir um mögulega þátttöku fé- lagsins í því að reisa álverksmiðju á Reyðarfirði. Jake Siewert, upplýs- ingafulltrúi hjá Alcoa, minnir þó á að hver svo sem niðurstaða stjórnar- manna Alcoa verði eigi enn alveg eft- ir að ganga frá einstökum efnisatrið- um í mögulegum samningum við Íslendinga. Hvað snerti ákveðna þætti verkefnisins sé ekki hægt að ræða um þá fyrr en viljayfirlýsing beggja aðila liggi fyrir. Aðspurður segir Siewert að stjórnendur Alcoa hafi átt í ýtarleg- um viðræðum við umhverfissamtök um mögulega þátttöku félagsins í verkefninu á Reyðarfirði. Verði af því sé Alcoa staðráðið í því að nýta bestu fáanlegu tækni til þess að lág- marka umhverfisáhrif. Siewert segir að áhyggjur manna beinist vitaskuld mest að virkjunarframkvæmdum og Alcoa hafi átt í viðræðum við um- hverfissamtök, íslensk stjórnvöld og Landsvirkjun um að koma mætti upp eins konar vernduðu svæði eða „þjóðgarði“ nálægt virkjuninni. „Það er auðvitað ólíklegt,“ segir Jack Siewert, „að það dugi til þess að milda afstöðu þeirra sem vilja ekki að ráðist verði í nokkrar fram- kvæmdir yfirleitt. En við teljum hins vegar mikilvægt að tekið verði frá sérstakt landsvæði handa komandi kynslóðum. En þegar upp er staðið er það Íslendinga og íslenskra stjórnvalda að taka endanlega ákvörðun um slíkt.“ Formenn sjö umhverfis- og nátt- úruverndarsamtaka á Íslandi hafa sent formanni stjórnar Alcoa bréf vegna væntanlegrar ákvörðunar stjórnarinnar um kaup á orku af Landsvirkjun. Í því er skorað á stjórn Alcoa að slíta viðræðum við íslensk stjórnvöld um möguleg orkukaup vegna álvers á Reyðarfirði enda sé ljóst að fram- kvæmdum fylgi mikil umhverfis- spjöll og mjög skiptar skoðanir séu á meðal Íslendinga um slíkar fram- kvæmdir. Stjórnarfundur stendur yfir hjá bandaríska álfyrirtækinu Alcoa Álver á Reyðarfirði á dagskrá í dag BORIS Spassky, fyrrverandi heims- meistari í skák, mun koma til Íslands í ágúst til að taka þátt í málþingi um „Einvígi aldarinnar“, en í gær voru 30 ár liðin frá því að Spassky og Bobby Fischer settust að tafli í Laugardalshöll í fyrstu skákinni í heimsmeistaraeinvíginu í skák. Skáksamband Íslands hefur ákveðið að minnast þessa viðburðar með ýmsum hætti og var fyrsta skrefið stigið í upphafi ársins þegar efnt var til sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur sem fram fór samhliða einvígi Hannesar Hlífars Stefáns- sonar og Nigels Short. Sunnudaginn 14. júlí, á alþjóðleg- um safnadegi, verður opnuð sýning í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfis- götu í Reykjavík undir yfirskriftinni „Skákarfur Íslendinga og Einvígi aldarinnar“. Sýndir verða gripir tengdir einvígi aldarinnar. Spassky á leið til Íslands ÍSLANDSPÓSTUR hefur að und- anförnu átt í viðræðum við útgefend- ur blaða og tímarita og leitað leiða til þess að laga póstgjöld áskriftartíma- rita að breyttum tímum. Samkvæmt upplýsingum Áskels Jónssonar, framkvæmdastjóra markaðs- og sölusviðs Íslandspósts, hefur ný gjaldskrá Íslandspósts fyrir þessa þjónustu sem kynnt var í síðustu viku verið felld úr gildi vegna mik- illar óánægju þessara viðskiptavina. Áskell segir að rætt hafi verið við hvern þeirra fyrir sig. Farið hafi ver- ið yfir það hvernig þessi mál komi út hjá þeim og leitað leiða til að veita þeim aðlögunartíma. Ný gjaldskrá Íslandspósts felld úr gildi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.